Morgunblaðið - 18.02.2014, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þingvellir falla ekki undir skilgrein-
ingu á óbyggðum og því er ekki
heimilt að dreifa ösku látins fólks
þar. Þetta er mat Þingvallanefndar
en innanríkisráðuneytið óskaði eftir
afstöðu hennar til erindis sem því
barst frá aðstandendum íslenskrar
manneskju sem vildu fá að dreifa
ösku hennar í þjóðgarðinum við
Þingvallavatn.
Erindinu var því vísað aftur til
innanríkisráðuneytisins sem mun að
líkindum svara erindinu í þessari
viku. Samkvæmt upplýsingum þess
er ekki algengt að óskað sé eftir
heimild til að dreifa ösku utan
kirkjugarða.
Aðeins yfir óbyggðum og hafi
Í reglugerð um dreifingu ösku
utan kirkjugarðs er heimilað að
dreifa ösku í óbyggðum eða úti á hafi
en það er hins vegar ekki heimilt yfir
byggð, væntanlega byggð eða stöðu-
vötn.
Hingað til hefur þurft að sækja
um heimild til þess að dreifa ösku ut-
an kirkjugarða til ráðuneytisins.
Reglugerðinni var hins vegar nýlega
breytt og hefur sýslumaðurinn á
Siglufirði séð um að afgreiða slíkar
beiðnir frá 1. febrúar sl.
„Við öfluðum upplýsinga um
lagahlið þessa. Lögin heimila ekki að
það sé dreift í byggð eða yfir stöðu-
vatn. Þingvellir teljast ekki falla
undir skilgreiningu á óbyggðum. Þá
er það svo einfalt að þetta er ekki
heimilt,“ segir Ólafur Örn Haralds-
son, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
Hann segir jafnframt að þetta
sé í fyrsta skipti sem Þingvallanefnd
taki formlega fyrir beiðni um að
ösku sé dreift í þjóðgarðinum.
Telja ekki heimilt að
dreifa ösku í þjóðgarði
Morgunblaðið/Júlíus
Þingvellir Beiðni barst um leyfi til
að dreifa ösku við Þingvallavatn.
Vilja dreifa
ösku á Þingvöllum
„Þetta er algerlega einstakt
mannvirki,“ sagði Pétur H. Ár-
mannsson, arkitekt og sviðs-
stjóri hjá Minjastofnun Ís-
lands, um Seljavallalaug.
„Laugin hefur menningar-
sögulegt, listrænt og um-
hverfislegt gildi. Þarna er
mjög óvenjulegt samspil við
náttúruna. Aðkoman að laug-
inni og hvernig hún situr í
landslaginu þykir merkilegt,“
sagði Pétur. Hann hefur
sýnt myndir af Seljavalla-
laug í fyrirlestrum í er-
lendum háskólum. „Þetta
var það mannvirki af
þeim sem ég sýndi sem
vakti mestan áhuga.
Hvernig heitt vatnið
kemur út úr berg-
inu og rennur
í laugina.
Þetta er
merkilegt
mannvirki.“
Merkilegt
mannvirki
SELJAVALLALAUG ER
EINSTÖK Í SINNI RÖÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Seljavallalaug þarfnast viðhalds, að
mati Minjastofnunar Íslands. Stofn-
unin telur brýnt að mótuð verði
stefna um viðhald og rekstur laug-
arinnar „svo tryggja megi varðveislu
þessa einstæða mannvirkis í góðri
samvinnu þeirra aðila sem henni
tengjast“. Þetta kemur fram í bréfi
sem Minjastofnun sendi formanni
Ungmennafélagsins Eyfellings þann
22. janúar sl. Ungmennafélagið
hefur umsjón með lauginni.
Starfsmenn Minjastofnunar skoð-
uðu Seljavallalaug í júní 2013. Þeim
þótti ástand hennar bágborið og aug-
ljós þörf á viðhaldi, ekki síst í bún-
ingsklefahúsi. „Nauðsynlegt er að
Seljavallalaug og umhverfi hennar
sé haldið snyrtilegu og að viðhald
mannvirkisins dragist ekki frekar.
Laugin er vinsæll ferðamannastaður
og ágangur því mikill,“ segir í bréfi
Minjastofnunar. Styrkur var veittur
úr húsafriðunarsjóði árið 2012 til
endurbóta á lauginni. Hann var ekki
nýttur og féll niður í janúar 2013.
Minjastofnun sendi sveitarstjórn
Rangárþings eystra erindi vegna
laugarinnar. Sveitarstjórnin hefur
falið sveitarstjóra og skipulagsfull-
trúa að boða landeigendur og um-
ráðamenn laugarinnar á sinn fund,
skv. fundargerð frá 13. febrúar.
Seljavallalaug er ekki í slæmu
ástandi, að mati Ármanns Fannars
Magnússonar, formanns Ung-
mennafélagsins Eyfellings. Hann
sagði ekki langt síðan skipt var um
þak og hluta af klæðningu búnings-
klefahúss. „Ég veit ekki hvað er ver-
ið að setja út á,“ sagði Ármann um
ábendingar Minjastofnunar.
Hvað varðar styrkinn úr húsafrið-
unarsjóði sagði Ármann að það
þyrfti bara að sækja um hann aftur.
Styrkurinn var 200 þúsund krónur.
Mikið af vinnu við viðhald við laugina
er unnið í sjálfboðavinnu en einnig
eru ráðnir menn til verka. Auk ung-
mennafélagsins komu brottfluttir
Eyfellingar um tíma og lögðu hönd á
plóginn við umhirðu laugarinnar.
Ármann taldi laugina ekki liggja
undir skemmdum. Engu að síður
þurfi að dytta að henni og eitthvað
verði gert í sumar. Ekki hefur ver-
ið fastsett hvað gert verður á
þessu ári.
Mikill fjöldi erlendra
ferðamanna heimsækir
Seljavallalaug á hverju ári.
Ármann sagði stöðugan
straum ferðafólks að lauginni
og margir færu í bað. „Um-
gengnin mætti vera
betri. Annars hugsa ég
að slæm umgengni sé
frekar ungum Ís-
lendingum að kenna
en útlendingum,“
sagði Ármann.
Morgunblaðið/Una Sighvatsdóttir
Seljavallalaug Hún var byggð árið 1923 og friðlýst árið 2006. Friðunin nær til mannvirkja og næsta umhverfis.
Segir Seljavallalaug
þarfnast viðhalds
Minjastofnun telur brýnt að tryggja varðveislu sundlaugar
Pétur H.
Ármannsson
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Andlegri líðan Íslendinga hrakaði
umtalsvert að jólahátíðinni lokinni, að
minnsta kosti ef marka má Þjóðar-
púls Capacent. Í honum er meðal ann-
ars spurst fyrir um ýmsa þætti sem
hafa áhrif á líðan fólks. Í ljós kom að
hlutfall fólks sem upplifði mikla ham-
ingju eða litlar áhyggjur dróst saman
um rúm 13% frá lokum desember til
seinni hluta janúar.
Capacent byrjaði að kanna andlega
líðan svarenda í vikulegum könnun-
um í maí 2010. Um það bil 800 manns
svara þeim í viku hverri. Mælikvarði
andlegrar líðanar byggist á sex
spurningum og er fólk beðið um að
lýsa með þeim líðan sinni stærstan
hluta dagsins. Þannig er spurt hvort
það upplifi hamingju, áhyggjur, dep-
urð, reiði eða streitu.
Líðanin gengur í sveiflum, ekki síst
þegar fer að hausta eftir sumarið og
um jólin. Þannig hækkaði hlutfall
þeirra sem upplifðu mikla hamingju
eða litlar áhyggjur úr rúmum 36% í
rétt rúm 49% frá miðjum maí til miðs
júlí í fyrra. Það hlutfall lækkaði svo
um 17% þegar komið var fram í seinni
hluta september.
Sambærilegar sveiflur er hægt að
finna frá sumarmánuðum til hausts
árin á undan og í kringum jólin.
Færri í basli
Í könnunum Capacent eru svar-
endur einnig beðnir um að leggja mat
á líf sitt, hvort fólkið sé bjartsýnt eða
svartsýnt á stöðu sína eftir fimm ár.
Frá því að byrjað var að kanna lífs-
mat fólks hafa fleiri talið sig dafna,
þ.e. að líf þeirra sé gott og að það
verði jafngott eða betra eftir fimm ár.
Hlutfallið var um 45% í maí 2010 en í
byrjun þessa mánaðar mældist það
60%.
Jafnmargir í þrengingum
Að sama skapi hefur hlutfall þeirra
sem telja sig í basli, þeirra sem eru
svartsýnir á framtíðina eða telja sig
ekki í góðum aðstæðum í augnablik-
inu, lækkað frá 2010. Þá taldi rúmur
helmingur sig í basli en nú er hlut-
fallið 37,7%.
Hlutfall þeirra sem eru í þrenging-
um, þ.e. standa illa og sjá ekki fram á
betri tíð, hefur hins vegar að mestu
staðið í stað. Hlutfallið var 3,1% í maí
2010 en mælist nú 2,3%.
Líðanin best á
sumrin og í
kringum jól
Capacent kannar líðan og lífsmat
Andleg líðan
Mikla hamingju/litlar áhyggjur Miklar áhyggjur/litla hamingju
60
40
20
0
Janúar 2012 Janúar 2014
13,5%
34,4%
8,1%
42,4%
Sveiflur
» Samkvæmt greiningu Capa-
cent virðast einstaka atburðir
hafa sterka fylgni við það
hvernig fólk metur lífið.
» Þannig lækkaði t.d. lífsmat
fólks í aðdraganda Icesave-
kosninganna í apríl 2011 en tók
kipp eftir þær.
» Neikvæð umræða rétt fyrir
fjöldamótmæli í október 2011
virtist einnig tengjast nei-
kvæðara mati fólks á lífi sínu.
Öðruvísi flísar
Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800
Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is