Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014 Vinafélag Íslensku óperunnar býð- ur til kynningar á óperunni Ragn- heiði í kvöld kl. 20 í salnum Kalda- lóni í Hörpu. Höfundar Ragnheiðar, Gunnar Þórðarson og Friðrik Erl- ingsson, munu leiða áhorfendur í gegnum söguna og verkið í tali og tónum og einsöngvarar í óperunni munu syngja valin brot úr henni við undirleik píanóleikarans Antoniu Hevesi. Aðgangur er ókeypis. Ragnheiður verður frumsýnd í Eld- borg 1. mars. og taka hátt í hund- rað listamenn þátt í sýningunni. Leikstjóri er Stefán Baldursson. Ragnheiður Þóra Einarsdóttir syngur titilhlutverkið í óperunni Ragnheiði. Kynning á Ragn- heiði í Kaldalóni Við tiltekt í geymslunni áæskuheimili mínu komu íljós gleymdar gersemar.Undir fótanuddtæki og stöflum af verðlausum hlutabréfum í föllnum íslenskum bönkum leyndust tveir óáteknir kassar með Lego- kubbum úr vestralínu Lego. Kubb- arnir höfðu verið keyptir sem gjafir en aldrei gefnir af ástæðum sem eru mér ókunnar og skipta mig engu máli. Þarna voru mér, sem er kom- inn yfir miðjan þrítugsaldur, færð á silfurfati nostalgía og barnæska. Svo þegar netheimar fóru að sýna mér stiklur úr væntanlegri Lego- kvikmynd, sem skartar í aðal-, auka- og örhlutverkum Morgan Freeman, Liam Neeson, Chris Pratt, Will Fer- rell, Elisabeth Banks, Nick Offer- man, Shaquille O’Neal, Channing Tatum, Jonah Hill, Anthony Daniels og Billy Dee Williams í hlutverkum sínum úr Star Wars og fleirum og fleirum þá hugsaði ég strax: Nei, nú er eitthvað Team America dæmi í uppsiglingu. Það sem ég hafði rangt fyrir mér. Þessi hópur stórleikara talsetur hin- ar ýmsu hetjur í ímynduðum Lego- heimi, þar sem ímyndunaraflinu hef- ur verið útrýmt, og allir gulu kallarnir lifa sínu níu-til-fimm lífi, borga fimmþúsundkall fyrir kaffi- bolla, horfa á sama fáránlega raun- veruleikaþáttinn og hlusta á endur- tekningakennda klúbbatónlist og forðast að gera eitthvað sem ekki er gert ráð fyrir í leiðbeiningunum. Legokubbarnir hafa því verið sviptir sálinni og töframættinum sem gerir þá svona spennandi. Í Legoheimum í herberginu mínu þótti til að mynda ekkert athugavert við það að geimskip með kafara- áhöfn liti við í miðaldakastalanum til að sækja vistir fyrir ferðina til vestravirkisins Fort Legoredo. Í myndinni ætlar hinn skipulags- sjúki Lord Business (Will Ferrell) að úða Legoheima með ofurvopninu Kragle, og þar með tryggja ævar- andi röð og reglu. Hinn ofur- venjulegi Emmet, (Chris Pratt) hef- ur aldrei fengið frumlega hugmynd á ævi sinni, enda alla tíð búið í skipu- lögðum heimi Lord Business. Und- arleg atburðarás hendir honum í fremstu víglínu andspyrnuhreyf- ingar hinna frjálst þenkjandi Lego- byggingameistara (e. Master Build- ers) sem berjast fyrir frjálsum Legoheimi, þar sem allir geta lifað og hrærst í þeirri skapandi óreiðu sem Lego á að vera. Í baráttu sinni þurfa Emmet og félagar að takast á við vélmennaher Lord Business, sem stýrt er af Vondu/Góðu löggunni, raddsetri af Liam Neeson. Meðal þeirra sem leggja Emmet lið eru Batman (Will Arnett), Vitruvius (Morgan Free- man) og Wyldstyle (Elisabeth Banks). Myndin er svo stórkostlega súr- realísk að það mætti halda að al- gjörlega óheft ímyndunarafl hefði sett upp nokkur atriði, eins og þegar Batman spilar þunglyndisrokk eftir sjálfan sig, eða þegar Fálkinn úr Star Wars birtist eins og hendi væri veifað. Ég og góðvinur minn, sem sáum myndina klukkan hálffjögur á laugardegi með sal fullum af helg- arpöbbum, hlógum vandræðalega mikið að myndinni, sérstaklega öll- um litlu skrýtnu vísununum og hug- myndaauðginni. Sagan er ekki beint hefðbundin deila góðs og ills, heldur fjallar myndin frekar um átök þeirra sem fylgja reglunum í hvívetna og stíga aldrei út fyrir línurnar við þá sem viðurkenna ekki tilvist línanna og fara þær leiðir sem þeim sýnist. Báðir hópar hafa nokkuð til síns máls, en þurfa að læra að lifa í sátt og samlyndi hvor við annan. Lego Meðalmaðurinn Emmet og Batman á örlagastundu í myndinni. Lego The Movie er góð skemmtun fyrir alla sem hafa afneitað því að fullorðnast. Lego, nostalgía og hláturskast Sambíóin, Smárabíó og Laugarásbíó The Lego Movie bbbbm Leikstjórar: Phil Lord, Christopher Mill- er. Leikarar: Will Arnett, Elisabeth Banks, Will Ferrell, Nick Offerman, Liam Neeson, Morgan Freeman og margir fleiri. 2014. Bandaríkin. 100 mínútur. GUNNAR DOFRI ÓLAFSSON KVIKMYNDIR Bresku kvikmyndaverðlaunin BAFTA voru afhent í fyrradag og hlaut kvikmynd leikstjórans Steve McQueen, 12 Years a Slave, eða Þræll í 12 ár, verðlaun sem besta kvikmynd ársins 2013. Flest verð- laun hlaut kvikmynd leikstjórans Alfonso Cuarón, Gravity, eða sex talsins og þá m.a. sem besta breska kvikmyndin, fyrir bestu leikstjórn, fyrir bestu kvikmyndatöku og bestu tæknibrellur. Daði Einarsson, list- rænn stjórnandi fyrirtækisins RVX, vann að tæknibrellum myndarinnar með hópi manna sem teiknuðu myndina í þrívídd út frá handriti og fullgerðu hana nánast áður en hún fór í tökur. Verðlaun sem besti leik- ari í aðalhlutverki hlaut Chiwetel Ejiofor fyrir leik sinn í 12 Years a Slave og leikkonan Cate Blanchett hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki, fyrir leik sinn í Blue Jasmine. Verðlaun sem besti leikari og leikkona í aukahlutverki hlutu Barkhad Abdi fyrir Captain Phillips og Jennifer Lawrence fyrir Americ- an Hustle. EPA Sigur Leikstjóri og framleiðandi Cravity, Alfonso Cuarón og David Heym- an, með Opruh Winfrey sem veitti verðlaun fyrir bestu bresku myndina. Þræll í 12 ár besta myndin á BAFTA Bestur Leikarinn Chiwetel Ejiofor með eiginkonu sinni Shari Mercer. Grallaralegir Leikararnir Christian Bale og Bradley Cooper með leikstjóranum David O. Russell. Hugguleg Brad Pitt og Angelina Jolie horfast hug- fangin í augu, prúðbúin á rauða dreglinum. Best Cate Blanchett hlaut BAFTA- verðlaunin sem besta leikkona í að- alhlutverki, fyrir Blue Jasmine. Listi yfir verðlaunahafa: awards.bafta.org/award/2014/film Gleraugu Frumkvöðull í hönnun glerja SJÓNARHÓLL Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is Þar sem gæðagleraugu kosta minna! Á verði fyrir alla - mikið úrval Komdu með sjónmælinguna með þér 2 fyri r1 * *Les eða göngugleraugu Sph+/-4 cyl -2 fylgja Glerin okkar koma frá BBGR Frakklandi, einum virtasta glerjaframleiðanda Evrópu Margskipt gleraugu frá kr. 39.900 umgjörð og gler

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.