Morgunblaðið - 18.02.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Karl Steinar Valsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn mun taka við
starfi tengifulltrúa Íslands hjá
Europol af
Arnari Jenssyni
aðstoðaryfirlög-
regluþjóni, sem
gegnt hefur
starfinu und-
anfarin ár.
Hann lætur af
þeim störfum 1.
júlí næstkom-
andi en þá mun
Karl Steinar
taka við starfinu. Þetta kemur
fram á vef lögreglunnar.
Ríkislögreglustjóri, tollstjóri,
lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu, lögreglustjórinn á
Suðurnesjum og sérstakur sak-
sóknari hafa gert með sér sam-
starfssamning um starf tengifull-
trúa Íslands hjá Europol.
Samstarfssamningurinn byggir á
samningi Íslands og Europol frá
2001 sem gerir ráð fyrir því að Ís-
land geti tilnefnt tengifulltrúa hjá
stofnuninni, sem er í Haag í Hol-
landi.
Í tilkynningu segir að samstarf
Íslands og Europol á sviði lög-
gæslu og öryggismála hafi verið á
mörgum sviðum og hafi mikla
þýðingu í tengslum við lögreglu-
rannsóknir sem teygt hafa anga
sína til annarra landa. Þá felur
samstarfssamningurinn í sér að
sérfræðingar á vegum Europol
hafa komið hingað til lands og að-
stoðað í tengslum við rannsóknir
sakamála. vidar@mbl.is
Karl Steinar í
stað Arnars
Fer í starf tengiliðs hjá Europol
Karl Steinar
Valsson.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Íslenskir sjúklingar hafa þegið 97 líf-
færi úr látnum gjöfum frá árinu 2004
til ársloka 2013. Um er að ræða 10
hjörtu, 41 nýra,
28 lifrar, 13 lungu
og 5 bris. Yfir
sama tímabil hafa
líffæraígræðslur
frá lifandi gjöfum
í íslenska sjúk-
linga verið 79; 70
nýru sem voru
grædd í líffæra-
þegana á Land-
spítalanum, 6
nýru og 3 lifrar sem voru græddar í
erlendis.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
sem Runólfur Pálsson, yfirlæknir
nýrnalækninga á Landspítalanum,
tók saman fyrir Alþingi um líffæra-
ígræðslur og líffæragjafir Íslend-
inga. Alþingi fjallar nú um nýja til-
skipun ESB um kröfur varðandi
gæði og öryggi líffæra úr mönnum
sem eru ætluð til ígræðslu. Runólfur
telur að þessi nýja tilskipun breyti
litlu hér á landi, enda snýr hún að
auknu gegnsæi umsýslu í líffæra-
flutningum og ígræðslu. Helst yrði
þetta hvatning til að vera með mið-
læga stjórnsýslu í þessum efnum en
það sé m.a. tilgangurinn með ný-
stofnuðum samráðshópi landlæknis
um líffæragjafir.
345 líffæraígræðslur
Líffæri hafa verið gefin úr 18 látn-
um einstaklingum á Íslandi frá 2008
til ársloka 2013. Þeir gáfu tíu hjörtu,
36 nýru, 14 lifrar, 10 lungu og þrjú
bris. Yfir sama tímabil hefur líffæra-
gjöf verið synjað níu sinnum hjá
mögulegum gjöfum.
Frá 1970 til ársloka 2013 hafa 307
íslenskir sjúklingar gengið undir líf-
færaígræðslu, sumir oftar en einu
sinni en ígræðslurnar telja 345.
Árangurinn af líffæraígræðslunum
virðist vera góður eins og sjá má á
myndinni hér fyrir ofan. „Margar af
þessum ígræðslum áttu sér stað fyrir
allmörgum árum síðan. Fyrsti Ís-
lendingurinn gekkst undir hjarta- og
lungnaígræðslu árið 1988 og hann er
ennþá í fullu fjöri. Árið 1970 fékk
fyrsti Íslendingurinn ígrætt nýra, en
það er jafnframt fyrsta líffæra-
ígræðsla í Íslending, og það nýra
starfar ágætlega enn þann dag í
dag,“ segir Runólfur. Líffæri sem
eru gefin hér fara til Gautaborgar og
þá fá Íslendingar líffæri gefins það-
an. „Síðustu ár höfum við ekki verið
að gefa eins mikið og við höfum feng-
ið, t.d. af nýrum, frá Gautaborg. Tíðni
líffæraígræðslna er að aukast, ekki
síst nýrna en það er m.a vegna aukn-
ingar á sjúkdómum eins og sykursýki
og svo endist ígræðslulíffæri ekki
nema í ákveðinn tíma,“ segir Runólf-
ur. Ísland er með langhæsta hlutfall
af nýrnaígræðslum frá lifandi gjöfum
en með fá líffæri frá látnum gjöfum.
Noregur er með hæsta hlutfall lát-
inna gjafa, eða um 24 af hverri millj-
ón íbúa, í Svíþjóð er tíðnin 16 af millj-
ón og hér á landi rétt um 10 af milljón
sem gefa líffæri sín eftir andlátið.
Góður árangur af
líffæraígræðslum
Líffæri gefin úr 18 látnum einstaklingum á síðustu sex árum
Líffæraígræðslur í íslenska sjúklinga
1970 -2013
Heimild: Landspítali háskólasjúkrahús
Hjarta
15 ígræðslur í
14 sjúklinga
12 á lífi í árslok 2013
Hjarta og lungu
4 ígræðslur í
4 sjúklinga
2 á lífi í árslok 2013
Lungu
17 ígræðslur í
16 sjúklinga
2 á lífi í árslok 2013
Lifur
50 ígræðslur í
45 sjúklinga
(4 börn fengu lifur frá
lifandi gjafa)
32 á lífi í árslok 2013
Nýra
254 ígræðslur í
223 sjúklinga
(152 frá lifandi gjöfumog
102 frá látnumgjöfum)
153 með starfandi
nýra í ársl. 2013
Bris
5 ígræðslur í
5 sjúklinga
4 voru með starfandi
bris í árslok 2013
Líffæraígræðslur í íslenska sjúklinga
2004-2013
Hjarta (alls 10) Nýra (117) Lifur (31) Lunga (13) Bris (5)
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
25
20
15
10
5
0
Heimild: Landspítali háskólasjúkrahús
2 2 3 1 2
5
14 15
10
8
10
11
17
13
141
3
3
2
3
5
4
2
3 5
1
25
21
3
2
1
1
Líffæragjafir frá látnum
gjöfum á Íslandi
2008-2013
2008 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 2013
Heimild: Landspítali háskólasjúkrahús
6
5
4
3
2
1
0
2
6
2
3 3
2
Runólfur
Pálsson
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ísfélag Vestmannaeyja hefur skrifað undir
viljayfirlýsingu um sölu á fjölveiðiskipinu Þor-
steini ÞH og uppsjávarfrystiskipinu Guðmundi
VE úr landi. Fyrirhugað er að félag í eigu
Royal Seafood á Grænlandi, Ísfélagsins og
annarra aðila eignist og geri skipin út á Græn-
landsmið. Áhöfnum skipanna hefur verið sagt
upp, alls á sjötta tug starfsmanna, og er reikn-
að með að skipin verði afhent nýjum eigendum
í vor. Fyrir síldar- og makrílvertíð sumarsins
er reiknað með að nýtt skip verði komið í flota
Ísfélagsins.
Hefur legið fyrir
í talsverðan tíma
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ís-
félagsins í Vestmannaeyjum, segir að fyrir hafi
legið í talsverðan tíma að
með minnkandi kvótum,
auknum afköstum í landi og
nýjum og öflugum skipum
yrðu breytingar hjá fyrir-
tækinu. Skiljanlega væru
menn áhyggjufullir vegna
uppsagnanna og margir
skipverjar á Guðmundi og
Þorsteini hefðu verið lengi
hjá Ísfélaginu. Á næstunni
yrði farið vel yfir stöðuna;
nýtt skip væri væntanlegt, Ísfélagið gerði út
fleiri skip, störf væru hjá fyrirtækinu í landi og
fleiri möguleikar hefðu verið skoðaðir.
Yfirmönnum á Þorsteini var sagt upp í októ-
ber og undirmönnum og þeim sem hafa styttri
uppsagnarfrest í desember, alls 15 manns. Á
frystiskipinu Guðmundi var 38 manns sagt upp
á sunnudag. Aðspurður hvort mögulegt væri
að skipverjar fengju störf á skipunum eftir að
þau fara til nýrra eigenda sagði Stefán að það
væri á forræði grænlenska félagsins og um
mönnun skipa giltu þá grænlenskar reglur.
Fram kemur í fréttatilkynningu að Royal
Greenland sé elsta og þekktasta sjávarútvegs-
fyrirtæki Grænlands. Ísfélag Vestmannaeyja
hf. er elsta starfandi hlutafélag á Íslandi, stofn-
að 1. desember 1901, og er burðarás í atvinnu-
lífi í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.
Ofurskattlagning dregur
úr samkeppnishæfni
Í tilkynningunni er vakin athygli á óvissu
varðandi framtíðarhorfur í íslenskum sjávar-
útvegi. „Sú ofurskattlagning, þ.e. svokallað
veiðigjald, sem útgerðir í landinu þurfa að
greiða, mun leiða til þess að atvinnugreinin
verður ekki lengur samkeppnishæf á alþjóð-
legum mörkuðum,“ segir í tilkynningunni.
Skip seld úr landi og uppsagnir
Samkvæmt viljayfirlýsingu verða Guðmundur VE og Þorsteinn ÞH gerðir út á Grænlandsmið
af nýju félagi Á sjötta tug skipverja hefur verið sagt upp Vel verður farið yfir stöðuna á næstunni
Stefán
Friðriksson
Ný skip í stað eldri
» Guðmundur VE-29 var smíðaður í
Noregi 1987 og Þorsteinn ÞH-360 var
smíðaður í Noregi ári síðar.
» Heimaey VE 1, kom til Ísfélagsins í
maí 2012. Skipið var smíðað í
skipasmíðastöðinni Asmar í Síle og var
fyrsta nýja uppsjávarskipið sem bættist
í íslenska flotann í mörg ár.
» Í lok ágúst á síðasta ári var greint
frá því að Ísfélagið hefði undirritað
samning um kaup á uppsjávarskipi sem
myndi leysa tvö eldri skip félagsins af
hólmi.