Morgunblaðið - 18.02.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið erum öll góðir félagar
og það myndast traust í
allar áttir, þetta er
mjög skemmtilegt að
öllu leyti, “ segir
Gunnar Björn Guðmundsson leik-
stjóri sem leikstýrir nú í sjöunda
sinn leikriti hjá Leikdeild ung-
mennafélags Biskupstungna. „Ég
leikstýrði þeim fyrst fyrir tíu árum
og hef leikstýrt þeim allar götur síð-
an, en þau setja upp verk annað
hvert ár. Ég flyt alltaf upp í Tungur
og bý þar í sex vikur hjá Svavari
Sveinssyni á Gilsbrún meðan á æf-
ingaferlinu stendur. Ef ég legg sam-
an tímann sem ég hef búið í Tung-
unum, þá er það um það bil heilt ár.
Það er notalegt að fá alltaf sama
herbergið og við erum orðnir góðir
vinir við Svavar, þetta er aldrei neitt
vesen. Við fögnum hvor öðrum þeg-
ar ég mæti á svæðið í upphafi
æfingaferils,“
segir Gunnar Björn og bætir við
að þegar leikfélagið leitaði til hans í
fyrsta sinn fyrir tíu árum þá hafi
hann ekki vitað hvort Reykholtið
þetta væri á landinu og hann hafi
engan þekkt á svæðinu. „Nú á ég
marga vini hér.“
Þau gera allt fyrir leiklistina
Gunnar Björn hefur unnið
mikið með áhugahreyfingunni í leik-
listarlífi landsins, hann hefur bæði
leikið og leikstýrt. „Ég hef fengið
mikið af minni þjálfun þar og það
hefur nýst mér í öllu sem ég hef
gert, líka í kvikmyndagerðinni. Mér
finnst ofboðslega skemmtilegt að
leikstýra áhugaleikfélögum og ég
læt það ganga fyrir nánast öllu. Það
er líka svo gott að flytja upp í sveit á
þessum árstíma og kúpla sig út úr
öllu í bænum.“ Hann segir það mik-
inn kost í leikstjórastarfinu að vera
búinn að kynnast mörgum leikar-
anna svo vel sem raun ber vitni,
hann hefur því lært á styrkleika
hvers og eins. „Ég veit hvað ég get
prófað að láta fólk gera og hvað er
passlega krefjandi fyrir hvern og
einn. En þó það sé ákveðinn kjarni
sem er sama fólkið í félaginu, þá
kemur alltaf nýtt fólk á hverju ári
inn í leikarahópinn. Það eru sér-
staklega margir nýir núna, sem er
frábært fyrir endurnýjunina.“ Þegar
Gunnar er spurður að því hvernig
honum gangi að hafa stjórn á sveita-
fólkinu segir hann það láta mjög vel
að stjórn. „Þau hlýða mér í einu og
öllu, hversu galið sem það er, þau
gera hvað sem ég bið þau um, menn
aflita á sér hárið, eru klipptir og
tættir. Þau eru til í að gera hvað sem
er fyrir leiklistina. Það er gott að
finna að þau treysta mér og ég
þykist vita hvað ég er að gera.“
Mesta kikkið að skapa
og skemmta fólki
Gunnar hefur nóg að gera, því
um þessar mundir er hann að vinna
að norskum sjónvarpsþáttum sem
heita Björgunarbáturinn Elías.
„Þetta eru teiknimyndaþættir fyrir
leikskólabörn sem sýndir eru um
allan heim. Þetta eru 52 þættir og
ég leikstýri einum þætti en er með-
leikstjóri að öllum hinum. Það er
rosalega gaman að taka þátt í þessu,
því þarna er ofboðslega mikill metn-
aður og þetta er mjög flott allt sam-
an. Þetta er þriðja serían í þessum
þáttum og kvikmyndafyrirtækið
KAOS framleiðir þá.“ Gunnar Björn
hefur ekki einvörðungu verið að
leikstýra, hann hefur líka leikið heil-
mikið í gegnum tíðina. „Ég hef leik-
ið heilmikið í gegnum tíðina, en síð-
ast var ég á sviði í Ævintýrum
Er farinn að kunna
lagið á leikurunum
Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrði fyrst hjá Leikdeild ungmennafélags
Biskupstungna fyrir tíu árum. Nú er hann að leikstýra þar í sveit í sjöunda sinn
en hann kann vel við sig í Tungunum og flytur þangað í sex vikur meðan á æf-
ingaferlinu stendur. Sýningin Barið í brestina hefur slegið í gegn undanfarið.
Gengur mikið á Guðný Rósa Magnúsdóttir, Kristinn Bjarnason og Aðal-
heiður Helgadóttir heldur betur í miklum átökum í hlutverkum sínum.
Barnsfæðing Egill Jónasson, Runólfur Einarsson, Íris Blandon og Bryn-
hildur Óskarsdóttir (á bekknum) leika hér í ærslafullri senu.
Samtökin Konur í tækni verða með
viðburð á morgun miðvikudag kl.
17.30 í höfuðstöðvum Marel, Austur-
hrauni 9, Garðabæ. Markmiðið er að
styrkja tengslanet og starfsferil
kvenna í tækni. Þar munu þrír starfs-
menn Marels deila reynslu sinni af
því hvernig er að vera kona og starfa í
tæknigeiranum: Guðrún Lauga Ólafs-
dóttir (Dynamics AX Competence
Center Manager) hefur verið viðloð-
andi tæknigeirann í langan tíma og
segir frá tækifærum sem hún hefur
rekist á, á sínum starfsferli. Rósa
Björg Ólafsdóttir (Manager Agile
Software Center) segir frá Agile-
aðferðinni og hvernig hún nýtist for-
riturum fyrirtækja við hugbúnaðar-
þróun. Gunnlaug Ottesen (Dynamics
AX Project Manager) vinnur að því að
þróa og uppfæra eina aðalhugbún-
aðarlausn Marels sem notuð er í 16
löndum.
Vefsíðan www.Facebook/Konur í tækni
Morgunblaðið/Frikki
Konur í tækni Þær vilja styrkja tengslanet og starfsferil sinn.
Hvernig er að vera kona í tækni?
Í kvöld verður Salvör Nordal heim-
spekingur með kaffihúsaspjall í nota-
legri kaffiaðstöðu Bíó Paradísar eftir
sýningu ítölsku myndarinnar Miele
eða Hunang, eftir Valeriu Golino sem
er aðeins sýnd í Bíó Paradís. Myndin
fjallar um Irene sem starfar á svört-
um markaði líknardrápa á Ítalíu.
Myndin veltir upp áleitnum spurn-
ingum varðandi líknardráp. Miele
gerir sitt besta til þess að dánar-
stundin verði sem fallegust. Málið
flækist þegar Grimaldi sem er í raun
og veru langt frá því að vera líkam-
lega veikur leitar aðstoðar hennar.
Salvör Nordal er forstöðumaður
Siðfræðistofnunar og hefur haldið
fjölda námskeiða um siðfræði heil-
brigðisþjónustu og þau vandamál
sem heilbrigðisstarfsmenn og lang-
veikir kljást við.
Myndin verður sýnd kl. 20 en spjall
Salvarar byrjar kl. 21.40 að sýningu
lokinni.
Endilega …
… forvitnist um líknardráp
Miele Áhugaverð kvikmynd sem veltir upp áleitnum spurningum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI