Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Hágæða flísalím og fúga
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir al la , al l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Weber.tec 822 Rakakvoða
8 kg kr. 7.890
24 kg kr. 19.990
Weber.xerm.
850 BlueCom-
fort C2TE
kr. 2.790
Weber.xerm.
BlueComfort
852 C2TE S1
kr. 3.990
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Látið fagmenn vinna verkin!
Weber.xerm.
BlueComfort
CE /TE S1
Xtra Flex
kr. 5.290
Weber.Fug 870
Fúga 1-6 mm
CG1 5 kg
kr. 1.690
Weber.Fug 880
Silicone
EC.1. plus
310 ml.
kr. 1.190
DEITERMANN
TECHNOLOGY INSIDE
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslendingadagsnefnd hélt kvöldverð á Gimli í Kanada sl.
laugardagskvöld til heiðurs Kristjan Stefanson, hæsta-
réttardómara í Winnipeg, og fékk hann meðal annars
málverk eftir Patriciu Peacock að gjöf fyrir óeigingjarnt
starf í þágu nefndarinnar, vestur-íslenska samfélagsins í
Manitoba og samskipta við Ísland í áratugi. Viðburð-
urinn markaði upphaf 125. árs nefndarinnar.
Íslendingadagshátíðin fer fram fyrstu helgina í ágúst
ár hvert. Kristjan Stefanson hefur verið ábyrgur fyrir
móttöku heiðursgesta hátíðarinnar í nær 40 ár og í raun
hefur hann séð um allt sem þeim viðkemur frá komu til
brottfarar. „Enginn gerir það betur en Kris,“ sagði Tim
Arnason, fyrrverandi forseti Íslendingadagsnefndar, í
ræðu sinni áður en hann afhenti Kris málverkið fyrir
hönd nefndarinnar.
Stjórn Íslendingadagsnefndarinnar ákvað í haust sem
leið að heiðra í fyrsta sinn þann einstakling sem hefði
unnið manna mest fyrir nefndina í tengslum við sam-
skiptin við Ísland. Athugun í vestur-íslenska samfélag-
inu leiddi í ljós að Kristjan Stefanson væri mikilvægasti
hlekkurinn í þessu sambandi og því var eftirleikurinn
auðveldur fyrir nefndina.
Kristjan Stefanson heiðraður
Ljósmynd/Anders Kuusselka
Heiður Kris Stefanson til hægri tekur við verkinu sem
Tim Arnason heldur á og er eftir Patriciu Peacock.
Hefur starfað fyrir Íslend-
ingadagsnefnd í áratugi
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Við stefnum á að komast á veiðar fljót-
lega eftir mánaðamót og reiknum með
að róa í allt sumar til að ná kvótanum,“
segir Sigurður Valdimar Sigurðsson,
skipstjóri og útgerðarmaður Magnúsar
SH 205 frá Hellissandi. Skipið skemmd-
ist mjög í bruna á Akranesi 30. júlí í
sumar, en nú hefur verið gert við skipið
hjá Þorgeiri og Ellert og var það sjósett
árla síðasta laugardagsmorgun. „Skipið
er nánast orðið nýtt og það má því segja
að við byrjum með stæl þegar við förum
aftur af stað eftir áfallið,“ segir Sig-
urður, sem gerir skipið út ásamt föður
sínum, Sigurði Kristjánssyni.
Magnús SH er 40 ára gamalt skip og
var verið að ljúka lengingu, breytingum
á innréttingum og fleiri endurbótum á
skipinu þegar eldurinn varð laus í fyrra-
sumar og allt brann um borð sem
brunnið gat. Nú hefur verið skipt um
allar lagnir, innréttingar, brúin verið
stækkuð og endurgerð, bógskrúfa sett á
skipið, nýtt mastur og nýr krani. „Það
þurfti í raun að taka allt skipið í gegn
og þá er stál og járn ekki undanskilið
því það var allt meira og minna undið,
snúið og skakkt,“ segir Sigurður.
Upphaflega var kostnaður vegna
breytinganna í fyrrasumar áætlaður 100
milljónir króna. Endanlegur kostnaður
verður verulega meiri þar sem verk-
efnið stækkaði mikið, en Sigurður segir
að hann liggi ekki fyrir. Auk Þorgeirs
og Ellerts kom Skaginn að endursmíði
skipsins, Straumnes sá um vinnu við
rafmagn og tæki koma frá Brimrúnu,
en Mareind í Grundarfirði annaðist upp-
setningu, svo nokkrir aðilar séu nefndir.
Veiðigjöldin verða
að vera sanngjörn
Sigurður segir að aldrei hafi komið til
greina að leggja árar í bát þrátt fyrir
áfallið. „Við höfum aldrei verið harðari
og erum alls ekkert á því að gefast
upp,“ segir Sigurður. Spenna sé í mann-
skapnum að komast aftur á veiðar.
Kvóti skipsins er um eitt þúsund tonn í
þorskígildum talið og hefur Magnús yf-
irleitt komið með um 1.200 tonn að landi
síðustu fiskveiðiár. Allur afli skipsins
fer á markað.
„Auðvitað eru veiðigjöldin erfið, en
maður verður að sníða sér stakk eftir
þeim veruleika. Það er ekkert að því að
borga veiðigjöld, en þau verða að vera
sanngjörn. Fyrir utan uppsjávarskipin
er flotinn orðinn rosalega gamall og
þörf er á mikilli endurnýjun. Það er
hins vegar ekki mögulegt ef menn þurfa
að borga óhemju há veiðigjöld. Þetta
þarf að vera í jafnvægi og innan marka
sem útgerðin ræður við,“ segir Sig-
urður.
Sem nýtt skip eftir endursmíði
Magnús SH sjósettur á ný eftir bruna í fyrrasumar Reikna með að róa í sumar til að ná kvótanum
Endurnýjun flotans ekki möguleg ef borga þarf óhemju há veiðigjöld, segir útgerðarmaðurinn
Ljósmynd/Ingólfur Árnason
Á flot á ný Tunglið var í fyllingu þegar Magnús SH 205 frá Hellissandi rann úr skipalyftunni hjá Þorgeiri
og Ellert hf. á Akranesi síðasta laugardagsmorgun eftir umfangsmiklar endurbætur í slippnum á Akranesi.
Samkomulag náðist ekki í tvíhliða
viðræðum Noregs og Evrópusam-
bandsins á fundum í Bergen í síð-
ustu viku. Í viðræðunum var fjallað
um kvóta í Norðursjó og Skagerak
og gagnkvæmar veiðiheimildir á
fleiri svæðum.
Á heimasíðu norska sjávar-
útvegsráðuneytisins harmar Elisa-
beth Aspaker sjávarútvegsráð-
herra að samkomulag hafi ekki
náðst í viðræðunum. Aðilar séu
þegar á eftir áætlun og viðræðum
hefði mátt ljúka fyrir áramót ef
Evrópusambandið hefði ekki frest-
að og lengt þessar og aðrar samn-
ingaviðræður. Aðilar hefðu verið
komnir langt í að ljúka viðræðunum
í síðustu viku, en það hefði ekki tek-
ist.
Ekki er búist við að samninga-
fundir verði boðaðir um makríl í
þessari viku, þar sem í gær hófst
sérstakur fundur sérfræðinga um
stofnmat á makríl á vegum Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins, ICES.
Rýnt í öll möguleg gögn
Verkefni fundarins er að rýna „í
öll möguleg gögn sem nýst geta í
stofnmati og ný líkön prófuð.
Bundnar eru vonir við að áreiðan-
legra stofnmat fáist með þeirri
vinnu sem hægt verði að nota til að
veita ráðgjöf um aflamark í fram-
tíðinni,“ eins og sagði í tilkynningu
frá ICES í október.
Auk makríls er ósamið um stjórn-
un veiða á norsk-íslenskri síld og
kolmunna á þessu ári. aij@mbl.is
Ekki fundað í
makríldeilunni
Noregur og ESB náðu ekki saman
Fjallað um stofnmat á makríl