Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Í klakaböndum Gangandi vegfarendur þurfa að fara varlega í Laugardalnum og víðar, því svellbunkarnir þekja óvíða göngustíga en mannbroddar auðvelda gönguna í góða veðrinu til muna.
Kristinn
Árið 1992 var ríkisstyrkjum til
strandsiglinga við Ísland hætt og
töldu margir að það myndi hafa í
för með sér aukna samkeppni á
milli stóru skipafélaganna, Sam-
skipa og Eimskipafélagsins.
Raunin varð önnur. Smám saman
dró úr strandsiglingum og árið
2000 hættu Samskip strandsigl-
ingum og í byrjun ágústmánaðar
árið 2004 var skýrt frá því að
Eimskipafélagið hygðist einnig
hætta strandsiglingum við Ísland.
Ríkisstuðningur tekur
á sig margar myndir
Á þessum tíma komu margir fram á ritvöll-
inn og lýstu því yfir að stuðningur við til-
teknar samgöngugreinar ætti að vera liðin tíð.
Vildi þá gleymast að þótt innanlandsflutn-
ingar á sjó væru úr sögunni lögðust flutningar
ekki af, þeir fór nú upp í loftið og ofan á veg-
ina. Landflutningafyrirtækin heimtuðu nú
margbreiða og styrkta akvegi sem skattborg-
arinn átti að kosta og fór þá stundum lítið fyr-
ir því að spurt væri um þjóðarhag. Margir sáu
þó þá mótsögn sem í því var fólgin að býsnast
yfir ríkisafskiptum og niðurgreiðslum til sigl-
inga hafna en sjá ekki að allir grunnþættir
samgöngukerfisins, hvort sem það eru vegir,
hafnir eða flugvellir, eru einmitt kostaðir af
almannafé. Í eðli sínu væri ekki grundvall-
armunur á mannvirkjagerðinni og sjálfum
flutningunum.
Þverpólitísk samstaða
um strandsiglingar
Á Alþingi myndaðist smám saman þver-
pólitísk samstaða um að finna leiðir til að
koma á strandsiglingum að nýju.
Þegar samgönguáætlun fyrir árin 2003-
2006 kom til umræðu á þingi bárust umsagnir
fjölmargra hagsmunaaðila, þar á meðal frá
Félagi íslenskra skipstjórnarmanna. Í umsögn
félagsins var mælt af miklum hyggindum auk
þess sem mjög eftirtektarverður þjóðhags-
legur samanburður var gerður af hálfu félags-
ins á sjóflutningum annars vegar og land- og
loftflutningum hins vegar. Almennt lýsti fé-
lagið sig „fylgjandi þeirri stefnu að samgöngu-
mál séu skipulögð sem samstæð
heild í stað þeirrar tilhögunar
sem áður var, að líta á hvern
hinna þriggja þátta samgangna
sem afmarkaðar stærðir, skipu-
lagslega og hagrænt“.
Horft til þjóðarhags
Þetta hefur síðan orðið leið-
arljós í skipulagi samgöngu-
mála. Í auknum mæli tóku
menn að beina sjónum að sam-
félagslegum tilkostnaði við
vöruflutninga á landi. Rann-
sóknir þóttu leiða í ljós að ein
ferð dráttarbíls með tengivagn og alls 30 til 40
tonna æki sliti vegi jafnmikið og þúsundir,
jafnvel tugþúsundir, fólksbíla af meðalstærð.
Niðurbrot á burðarlagi vega ræðst þó af fleiri
þáttum svo sem burðarþoli vega, búnaði flutn-
ingabíls, hjólbörðum og fjöðrunarkerfi. Reikn-
að var út að vöruflutningar á vegum hefðu í
för með sér kringum 300 til 500 milljóna króna
árlegan kostnað í auknu viðhaldi vegakerf-
isins.
Hagsmunatengdar áherslur
Jafnframt rannsóknum af þessu tagi létu
samgönguyfirvöld kanna kosti þess að koma
strandflutningum á að nýju. Svo hafði verið
gert um alllangt skeið þegar ég kom sem ráð-
herra í samgönguráðuneytið haustið 2010.
Vinnuhópur sem forveri minn skipaði hafði
komist að þeirri niðurstöðu að strandsiglingar
gætu verið hagkvæmur kostur miðað við
ákveðnar forsendur. Í skýrslu hópsins voru þó
settir ákveðnir fyrirvarar og skal þá haft í
huga að hagsmunaaðilar flutningageirans áttu
gjarnan aðkomu að slíkum vinnuhópum með
hagsmunatengdar áherslur sínar.
Tekið af skarið
Vorið 2011 skipaði ég starfshóp undir for-
ystu Guðmundar M. Kristjánssonar, hafn-
arstjóra á Ísafirði, sem falið var það hlutverk
að leggja fram tillögur um hvernig koma
mætti á strandsiglingum og undirbúa útboðs-
lýsingu fyrir ríkisstyrktar strandsiglingar. Nú
skyldi látið til skarar skríða. Hópurinn, sem
auk Guðmundar samanstóð af Pétri Ólafssyni,
skrifstofustjóra Akureyrarhafnar, Unnari
Jónssyni, rekstrarfræðingi á Akureyri, og sér-
fræðingum innanríkisráðuneytis, fjár-
málaráðuneytis, Vegagerðarinnar og Sigl-
ingastofnunar, lagði fram drög að
rekstraráætlun. Hún miðaðist við vikulegar
siglingar hringinn í kringum landið og að lík-
legir flutningar gætu numið um 70 þúsund
tonnum á ári. Bjóða ætti verkefnið út og miða
við að nokkurra ára stigminnkandi styrkur
myndi ýta undir frekari markaðssetningu fyr-
irtækjanna og þróun þessa kerfis. Rík-
isstjórnin veitti í kjölfarið samþykki við tillögu
minni um að ráðast í útboð á þessum for-
sendum.
Annað hljóð í strokkinn
Nú brá svo við að tvö helstu skipafélög
landsmanna, Eimskipafélagið og Samskip,
ákváðu að taka upp aukna þjónustu í sigl-
ingum við landið á siglingaleiðum sínum til
Evrópu. Létu þau nú þau boð út ganga að skip
þeirra myndu koma við á fleiri höfnum en áð-
ur og flytja vörur til útflutnings.
Ljóst var að gengi þetta eftir þýddi þetta
minnkandi landflutninga milli staða til að ná
til útflutningshafnar. Þetta þéttara sigl-
inganet skipafélaganna um landið gæti líka
þýtt aukna flutningaþjónustu milli hafna inn-
anlands sem dregið gæti úr þörf á landflutn-
ingum. Fram kom hjá öðru skipafélaginu að
þessi breyting þýddi að fækkað yrði ferðum
flutningabíla en vel að merkja landflutning-
arnir komust á hendi skipafélaganna þegar
þau hættu strandsiglingum og eru enn á
þeirra vegum. En nú kom líka fram af hálfu
útflytjenda að þetta myndi að öllum líkindum
hafa minnkandi flutningskostnað í för með
sér.
Breyttu um kúrs
Skipafélögin sjálf tóku með öðrum orðum
að sér verkefnið sem ríkið hafði ætlað að
styrkja og kváðust nú sjá sér hag í því að auka
þjónustu sína að þessu leyti.
Menn geta getið sér til um hvort ákvörðun
um væntanlegt útboð hafi átt þátt í þessari
nýju þjónustu skipafélganna en með þessu eru
þau í reynd að útfæra að miklu leyti þá hug-
mynd sem útboð strandsiglinganna snerist
um.
Ég lýsti því strax yfir að yrði þetta fyr-
irkomulag til framtíðar væri tilgangi með út-
boði á strandsiglingum náð og því ákvað rík-
isstjórnin að fresta fyrirhuguðu útboði.
Ég sagði jafnframt að fylgst yrði náið með
því hvernig þetta gengi eftir en kvað það jafn-
framt vera ánægjulegt ef strandsiglingar
væru þar með komnar á að nýju.
Og hver er niðurstaðan?
Athugun á stöðu mála nú leiðir í ljós mjög
ánægjulega niðurstöðu hvað þetta varðar. Eft-
ir tvo mánuði sigldu bæði skipafélögin annars
vegar vikulega og hins vegar hálfsmánaðar-
lega um ströndina með fleiri viðkomustöðum
og tengdu netið við siglingar sínar til útlanda.
Flutningur á strandsiglingarleiðum er eftir-
farandi í tonnum talið frá því siglingarnar hóf-
ust 20. mars 2013 og til áramóta:
Tonn
Ísafjörður 18.670
Sauðárkrókur 21.317
Akureyri 38.730
Reyðarfjörður 4.760
Samtals 83.477
Það er einungis Samskip sem eru með við-
komu á Reyðarfirði í strandsiglingaráætlun
og eru tölurnar þaðan bara vegna Samskipa
en Eimskip er með á áætlun vikulega brottför
frá Reykjavík til Vestmannaeyja og Reyð-
arfjarðar þess utan og er í þessum tölum ekki
það magn sem Eimskip flytur frá Reyðarfirði
en gera má ráð fyrir að það sé ekki undir
20.000 tonnum.
Tekjur hafnanna vegna tilkomu strandsigl-
inga að nýju hafa aukist um tugi milljóna.
Ef við gerum ráð fyrir að í hverjum gámi
séu 25 tonn þá gerðu þetta 3.339 ferðir með
gámaflutningabílum á milli framangreindra
staða og Reykjavíkur með farm og 3.339 ferð-
ir frá Reykjavík með tóma gáma út á land. Í
samræmi við þetta er fróðlegt að hafa í huga
að samkvæmt umfjöllun í Morgunblaðinu 6.
júní sl. hefðu flutningabílar Eimskips í þá tvo
mánuði, sem þá voru liðnir frá breytingunni,
ekið 150 þúsund km minna en áður en strand-
siglingarnar hófust. Munar um minna!
Eftir Ögmund
Jónasson » Tekjur hafnanna vegna
tilkomu strandsiglinga
að nýju hafa aukist um tugi
milljóna.
Ögmundur Jónasson
Strandsiglingar orðnar að veruleika á ný
Höfundur er fyrrverandi innanríkisráðherra.