Morgunblaðið - 18.02.2014, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
✝ HelgiGeorgsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 6.
september 1962.
Hann andaðist á
heimili sínu í
Kópavogi 5. febr-
úar 2014. For-
eldrar hans eru
hjónin Georg Her-
mannsson, f. 16.8.
1939, og Helga
Helgadóttir, f. 12.1. 1943, bú-
sett í Borgarnesi. Systir Helga
er Hrafnhildur Georgsdóttir, f.
11.3. 1976, sem búsett er í
Kópavogi. Hennar maður er
Jón Óttar Birgisson, f. 9.4.
1974. Þeirra börn eru Ísak, f.
29.3. 2003, Ísabella, f. 11.5.
2005, og Georg, f. 1.12. 2009.
1989, og þeirra börn eru Kar-
ítas Líf, f. 4.2. 2010, og Davíð
Leó, f. 3.11. 2012. Sambýliskona
Sveins er Súsanna Sif Jóns-
dóttir, f. 5.11. 1991. Árið 1988
hóf Helgi sambúð með Erlu
Guðmundsdóttur, f. 31.5. 1966,
þau skildu. Dætur Helga og
Erlu eru Brynhildur, f. 4.4.
1993, og Hulda, f. 14.10. 2001.
Helgi lætur eftir sig unnustu,
Evu Lilju Rúnarsdóttur, f. 12.7.
1976. Börn hennar eru Rúnar,
Gabriel og Rakel. Helgi hefur
unnið margvísleg störf um æv-
ina en lengst af sem grafískur
hönnuður. Helgi var tónlist-
armaður og spilaði með ýmsum
hljómsveitum, m.a. Url og Ten-
derfoot. Einnig lék hann með
tónlistarmönnum í Betel og
Betaníu.
Útför Helga verður gerð frá
Lindakirkju í Kópavogi í dag,
18. febrúar 2014, kl.13. Jarðsett
verður í Vestmannaeyjum.
Helgi ólst upp í
Borgarnesi til 1974,
en fjölskyldan flutti
til Vestmannaeyja
þegar hann var 11
ára. Þar átti Helgi
sín unglingsár og
eignaðist marga
vini. 1980 flutti fjöl-
skyldan aftur í
Borgarnes, Árið
1986 hóf Helgi sam-
búð með Önnu Mar-
gréti Sveinsdóttur, f. 15.9. 1968,
þau skildu. Helgi og Anna eign-
uðust 3 börn: Helgu, f. 10.12.
1986, hennar sonur er Daníel
Helgi, f. 8.9. 2006, og tvíbura-
bræðurna Bjarna Tómas og
Svein Halldór, f. 8.10. 1988.
Sambýliskona Bjarna er Petra
Rán Jóhannsdóttir, f. 15.10.
Svo leggur þú á höfin blá og breið
á burt frá mér og óskalöndum þín-
um
og stjarna hver, sem lýsir þína leið
er lítill gneisti, er hrökk af strengjum
mínum.
Þú skilur eftir minningar hjá mér
um marga gleðistund frá liðnum ár-
um,
og alltaf mun ég fagna og þjást með
þér,
og þú skalt vera minn – í söng og
tárum.
Eitt orð, eitt ljóð, eitt kvein frá
kvaldri sál
er kveðja mín. Ég veit þú fyrirgefur.
En seinna gef ég minningunum mál,
á meðan allt á himni og jörðu sefur.
Þá flýg ég yfir djúpin draumablá,
í dimmum skógum sál mín spor þín
rekur.
Þú gafst mér alla gleði, sem ég á
Þú gafst mér sorg, sem enginn frá
mér tekur.
Svo kveð ég þig. En er þú minnist
mín,
þá mundu, að ég þakka liðna daga.
Við framtíð mína fléttast örlög þín.
Að fótum þínum krýpur öll mín saga.
Og legðu svo á höfin blá og breið, –
þó blási kalt, og dagar verði að ár-
um,
þá veit ég, að þú villtist rétta leið
og verður minn – í bæn, í söng og
tárum.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.)
Guð gefi þér ljós og frið. Þín
elskandi
mamma.
Til sonar
Ríkur rán um sinn
í reiða stormurinn.
Á foldu fýkur allt,
í fang er stundum kalt.
Lægir loft og sjó,
líf að fyrri ró.
Allt þá aftur kyrrð,
eilífð, nánd og firrð.
Eigum alla tíð
árin sár og blíð.
Vænn er vinur minn,
veit það pabbi þinn.
(Brynleifur H. Steingrímsson)
Mjög er um tregt tungu að
hræra.
Margs að minnast, margs að
sakna.
Guð geymi þig, sonur minn.
Pabbi.
Elsku besti pabbi, við hefð-
um viljað meiri tíma með þér.
Þú var mjög einstakur og
sterkur karakter. Hér eru
nokkrar minningar af ótal
mörgum.
Pabbi, þú varst mjög dugleg-
ur og mjög metnaðarfullur. Þú
hafðir alltaf mikla trú á því sem
þú varst að gera og það var
aldrei neitt hálfkák í því sem þú
gerðir og það alltaf bara allt
eða ekkert. Sem dæmi má
nefna þegar þú fórst út að leika
með okkur krökkunum að búa
til snjóhús, þá bjóst þú ekki til
snjóhús heldur snjóhöll með
öllu tilheyrandi og þegar þú
fékkst æði fyrir Kellogg’s
special K borðaðir þú það í öll
mál, alla daga.
Það er alveg sama hvað þú
tókst sér fyrir hendur, þér
tókst það alltaf og þú gerðir
hina ótrúlegustu hluti. Þú varst
mikill braskari og hafðir mjög
gaman af því. Sem dæmi má
nefna þá státaðir þú þig af því
að hafa náð að skipta þrisvar
sinnum um bíl á einum og sam-
an deginum. Með árunum öðl-
aðist þú mikla reynslu og undir
þín síðustu ár varst þú orðinn
mjög fær og klár markaðsmað-
ur og margir leituðu ráða hjá
þér.
Þú varst mjög skemmtilegur
og fyndinn og þar sem margir
voru komnir saman varst þú
alltaf hrókur alls fagnaðar og
fylltir herbergið af gleði. Þú
varst mjög ráðagóður og kær-
leiksríkur. Maður gat alltaf leit-
að til þín og þú varst alltaf
tilbúinn að hlusta og hjálpa og
við vitum að þú gerðir alltaf
þitt besta.
Við vitum að þú varst mjög
stoltur af okkur krökkunum og
barnabörnum þínum og elskað-
ir okkur öll út af lífinu.
Þú varst ótrúlegur tónlistar-
maður og áttir mjög fjölbreytt-
an tónlistarferil og við krakk-
arnir erum rosalega stolt af
þér. Þú kunnir liggur við á öll
hljóðfæri og ef þú kunnir ekki á
þau nú þegar þá tók það mjög
stuttan tíma fyrir þig að læra.
Skemmtilegt dæmi um það
hversu mikill tónlistarkarakter
þú varst þá gafst þú kontra-
bassanum þínum nafnið Súlli.
Þú hafðir mjög gaman af því
að ferðast og vera úti í nátt-
úrunni. Það var líka rosa gott
að eiga kósí stund heima með
pabba og þú varst mikill kúrari.
Þú hafðir svo góða nærveru og
heima hjá pabba var alltaf gott
að vera.
Þú varst alltaf svo hug-
myndaríkur og tókst þér ótrú-
legustu hluti fyrir hendur. Sem
dæmi má nefna þegar þú eydd-
ir góðum hluta úr degi í að búa
til hest í fullri stærð úr snjó og
til eru myndir af okkur krökk-
unum uppi á þessum hesti.
Það eru margar fallegar og
góðar minningar sem koma upp
í hugann og við erum mjög
þakklát fyrir þær allar og allt
sem þú gerðir fyrir okkur. Við
munum sakna þín alla tíð á
meðan við lifum og erum ekki
tilbúin að kveðja strax. En við
vitum að þú ert kominn á betri
stað.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku pabbi okkar, takk fyrir
að vera þú. Við elskum þig.
Helga, Sveinn, Bjarni,
Brynhildur og Hulda.
Hvernig get ég komið orðum
að því að kveðja Helga í hinsta
sinn? Ég sakna hans svo óend-
anlega mikið.
Við áttum sameiginlega vini
en kynntumst ekki fyrr en fyrir
rúmu ári á samkomu. Það
fyrsta sem ég man eftir var
hvernig augun í honum ljómuðu
og hversu vel hann ilmaði. Það
var eins og við hefðum fengið
heila ævi á einu ári – og bara
það besta. Við tengdumst strax
svo sterkum böndum.
Þrátt fyrir að við fengjum
ekki meiri tíma saman fékk ég
að kynnast Helga, draumum
hans, löngunum og þrám. Hann
gaf mér svo margt og var mér
svo mikið.
Helgi var hlýr, nærgætinn og
ástríkur. Nákvæmur þar sem
hann lagði sig fram við að
kynnast mér sem best. Hann
vildi skoða hluti í rólegheitun-
um, ólíkt mér sem fannst
stundum óþolandi hvað hann
hafði oft rétt fyrir sér.
Hann var gáfaður, hafði
skoðun á öllu og fylgdist vel
með málefnum líðandi stundar.
Hann var vel máli farinn, elsk-
aði íslenskt mál og málfar.
Hann gat hlegið sig máttlausan
þar til tísti í honum þegar ég
kom með snilldar málshætti
með gullkornum og nýyrðum
sem ekki eru til í íslenskri
tungu. Þá reyndi hann að leið-
rétta mismæli mín með mis-
jöfnum árangri. Hann kallaði
mig blómið sitt eða trippi ef
hann vildi stríða mér. Ég elsk-
aði gráa hárið á honum.„Gráni
minn“ hlýju augun og mjúkt
faðmlag.
Hann kom fram við mig eins
og drottningu, bar virðingu fyr-
ir mér, við vorum jafningjar.
Hann skildi mig og vildi mér
allt það besta. Hann var minn
og ég var hans. Helgi hafði dýr-
an smekk; eins og hann sagði
oft það er bara einn sími; Ip-
hone, ein tölva; Mac og einn
bíll; Benz og ekkert dugði nema
Hugo Boss. Hann var alltaf vel
til fara og með fágaðan fata-
smekk.
Hann vildi njóta alls þess
góða sem lífið hafði upp á að
bjóða og langaði að sýna mér
svo margt. Hann var enginn
íþróttaálfur og vildi gera eitt-
hvað allt annað en að hreyfa
sig. Okkur leið svo vel saman.
Þar sýndi hann sinn innri mann
sem ég er svo þakklát fyrir að
hafa fengið að kynnast. Líf mitt
er svo miklu ríkara vegna þess
að ég fékk að vera partur af lífi
hans. Börnin hans frá fyrri
samböndum og börnin mín ná
vel saman, sérstaklega Hulda
dóttir hans og Gabríel sonur
minn. Fjölskylda hans er heil-
steypt og hjartahlý.
Elsku Helgi minn. Mér hefði
aldrei dottið í hug þegar við
hittumst síðast að við myndum
aldrei hittast aftur. Að það
myndi vera í síðasta sinn sem
ég myndi faðma þig og kyssa.
Það er svo margt sem mig
langar til að segja þér en þú
veist það allt. Ég fékk að
snerta hjartað þitt og þú mitt.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þér, elska þig
og vera elskuð af þér. Þú verð-
ur alltaf Gráni minn.
Ég á eftir að sakna þín svo
mikið. Það er svo margt sem er
ósanngjarnt í þessu lífi að mig
langar stundum til að stappa
niður fótunum og frekjast í
Guði. En það færir þig ekki aft-
ur til mín, ástin mín eina. Ég
hugga mig við það að þú ert
kominn heim og að þetta líf er
sem augnablik. Þangað til mun
ég halda áfram og hafa orð þín
í hjarta mínu sem þú hvattir
mig með. Þú ert stóra ástin í
lífinu mínu. Þín,
Eva.
Ég gleymi aldrei þeim degi
þegar mér var sagt að hann
Helgi bróðir minn væri dáinn.
Þetta gat bara ekki verið rétt.
Nú kveðjum við hann elsku
Helga stóra bróður minn sem
var mér alltaf svo góður og
traustur. Helgi skilur eftir sig
stórt skarð sem aldrei verður
fyllt. Við vorum bara tvö systk-
inin og mun ég sakna hans
ólýsanlega mikið.
Verndi þig englar, elskan mín,
þá augun fögru lykjast þín;
líði þeir kringum hvílu hljótt
á hvítum vængjum um miðja nótt.
Nei, nei það varla óhætt er
englum að trúa fyrir þér;
engill ert þú og englum þá
of vel kann þig að lítast á.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Elsku Helgi minn. Litla syst-
ir situr eftir pínulítið ein. Þú
verður hjá mér í hjartanu mínu
og veit ég að þú ert þarna ein-
hvers staðar og heldur áfram
að passa upp á mig.
Mér þykir óendanlega vænt
um þig. Þín litla systir,
Hrafnhildur.
Við fráfall Helga vinar míns
hefur stórt skarð myndast sem
er vandfyllt. Við eigum marga
kunningja, en fáa vini. Helgi
var sannur vinur. Ég minnist
fyrst þegar ég sá Helga, síð-
hærðan poppara sitjandi í
Hvítasunnukirkjunni í Vest-
mannaeyjum. Ég fór að spjalla
við þennan forvitnilega kappa
og í stuttu máli þá myndaðist
þarna vinskapur sem hefur ver-
ið órofinn síðan. Fljótlega upp-
götvaði ég hvílíkur afburðamað-
ur Helgi var á mörgum sviðum.
Fjölmargir menn með eigin-
leika Helga eru miklir hugsuðir
en litlir framkvæmdamenn.
Helgi var einn af minnihlutan-
um sem hafði ekki bara fram-
kvæmdaviljann heldur fram-
kvæmdagleðina. Eftir
orðatiltækið hans „let’s do it“
var vaðið af stað með látum og
hlutirnir kláraðir.
Árið er 2006 og allt brjálað í
Eyjum vegna samgöngumála. Á
Kaffi Kró erum við Helgi ásamt
útvöldum mannvitsbrekkum að
ræða málin. Við sitjum saman
eftir spjallið og Helgi kemur
með hugmynd um að búa til
heimasíðu, kröfur um bættar
samgöngur með undirskrifta-
söfnun á netinu. Hann skrapp
heim og um kvöldið er Eyja-
frelsi.net orðin til. Á þremur
dögum safnast um 4.000 undir-
skriftir. Prentað út og næsta
vél tekin til Reykjavíkur. Þaðan
var þrammað niður á Arnarhól
og Geir Haarde, sem þá var
forsætisráðherra, fær bunkann
í hendur. Eftir fáa daga er
Flugfélag Íslands byrjað að
fljúga á 50 sæta flugvélum til
Eyja. Þá kættumst við Helgi og
prakkarabrosið breiddist út um
andlitið á Helga.
Um haustið berst beiðni frá
Icelandair um að fá hóp frá
Eyjum til að spila í Kaup-
mannahöfn á ferðaráðstefnu.
Tvær sekúndur og strax komið
„let’s do it“. Mesta vandamálið
var að drösla „Súlla“ í gegnum
flutningakerfið. Fyrirbærið er
risastór kontrabassi sem Helgi
spilaði á. Fyrir nokkrum árum
veiktist Helgi. Hann kom niður
á kaffi Kró til mín og leit ekki
vel út. Eftir að hafa heimsótt
lækni kemur hann brosandi til
baka og segir mér að þetta sé
líklega ekkert alvarlegt. Lækn-
isúrskurðurinn; „þú ert allt of
feitur“. Að sjálfsögðu var málið
tekið föstum tökum og ákveðið
að leysa það á sem skemmstum
tíma með fjallgöngum. Eitt fjall
á hverjum laugardegi var
ákveðið.
Í stuttu máli var þetta, eins
og annað, tekið með trompi og
Helgi nær dauða en lífi eftir
hverja ferð. Stuttu seinna fer
Helgi til hjartasérfræðings sem
tekur af honum hjartalínurit.
Það kemur í ljós að drep hafði
komist í hjartavöðva og gróið.
Hjartað var með innan við 40%
starfsgetu.
Helgi kemur til mín og er að
segja mér frá þessu og ég í
hálfgerðu sjokki þegar stríðn-
isglottið kemur á andlitið:
„Simmi, þú ert líklega sá sem
hefur komist næst því að drepa
mig, með þessum fjallgöngum.“
Á síðasta starfsdegi Helga var
hann að breyta heimasíðu Vík-
ing Tours og það gert með
þeirri elju sem einkenndi þenn-
an frábæra vin.
Þau eru þung síðustu sporin
með Helga. En trúin sem við
eigum á lifandi Guð og son hans
Jesúm Krist léttir undir. Ég
kveð þennan kæra vin með orð-
um ritningarinnar úr Hebr. 12:
„Beinum sjónum vorum til
Jesú, höfundar og fullkomnara
trúarinnar.“
Ég bið góðan Guð að hugga
börn, barnabörn og ástvini í
þeirra miklu sorg.
Sigurmundur G. Einarsson.
Sporin hafa verð þung síð-
ustu daga eftir að mér barst sú
harmafregn að minn kæri vinur
og félagi, Helgi Georgsson væri
allur. Þegar maður lítur aftur
streyma minningabrotin fram.
Kynni okkar Helga hófust í
Vestmannaeyjum árið 1979 er
við hófum störf í Vinnslustöð
Vestmannaeyja. Unnum við þar
saman á lyfturum. Það kom
strax í ljós að við áttum skap
saman. Fyrir utan vinnutíma
var ýmislegt stundað, svo sem
gönguferðir um Heimaey og
var eyjan oft gengin enda á
milli og hver toppur klifinn á
fögru sumarkvöldi. Leyndar-
dómar tónlistarinnar voru líka
kannaðir á ýmsan máta, bæði á
tónleikum og við hlustun og ef
ekki var hlustað á aðra var tón-
listin samin á staðnum í fé-
lagskap við Óskar og Ævar
Kjartanssyni, félaga okkar. Við
vorum saman öllum stundum,
félagarnir á þessum tíma.
„Bónusgengið“ vorum við fé-
lagarnir kallaðir. Eitt sinn fór-
um við strákarnir til Reykjavík-
ur í innkaup á hljóðfærum og
var stefnan tekin á ónefnda
hljóðfæraverslun. Þar var
verslað grimmt og tóku eigend-
ur sér frí það sem eftir var
dags, enda höfðu þeir ekki
fengið aðra eins sölu á einum
degi, aldrei.
Helgi var mikill músíkmaður
og var jafnvígur á bassa og
trommur. Má segja að Helgi
hafi komið mér til að gutla á
hljómborð og hef ég stundað
það síðan. Eftir Eyjadvöl vor-
um við báðir í Reykjavík við
störf og leik. Enn var tónlistin
stunduð og eru stefin ófá sem
við höfum hnoðað saman. Þær
upptökur eru allar til og munu
verða geymdar vel. Lékum við
meðal annars saman inn á
hljómplötu með félaga okkar.
Helgi hefur starfað með ýmsum
tónlistarmönnum gegnum tíð-
ina og gefið út sitthvora plöt-
una með hljómsveitunum Ten-
derfoot og Url.
Ótaldar eru allar bíóferðirn-
ar, bíltúrarnir og veiðitúrarnir
sem farnir hafa verið í gegnum
tíðina. Helgi stundaði ýmis
störf á þessum árum, meðal
annars rak hann veitingasölu á
Akranesi og seinna veitingasölu
í flugstöðinni í Vestmannaeyj-
um, en hann hafði flutt aftur til
Eyja með
Erlu barnsmóður sinni.
Bjuggu þau þar saman í all-
mörg ár. Helgi fluttist nýlega
aftur til Reykjavíkur og til
nýrra starfa. Í mörg ár vann
Helgi við heimasíðugerð fyrir
ýmis fyrirtæki og auglýsinga-
gerð ýmiskonar. Síðustu mán-
uði var Helgi að byggja upp
heildsölu ásamt félaga sínum og
var mikill hugur í honum gagn-
vart því verkefni. Þegar Helgi
gerði eitthvað þá var það
hundrað prósent, ekkert minna
dugði honum.
Það var alltaf gott að hitta
Helga og snæddum við stund-
um saman á mínum vinnustað.
Ef einhver tími leið á milli hitt-
inga, þá var hringt og spjallað.
Það var alltaf gott að heyra í
honum Helga mínum. Mun ég
vissulega sakna þessara stunda
sem við áttum saman. Stutt er
síðan við snæddum hádegisverð
saman og var þá gott hljóð í
mínum manni.
Ég kveð þig að sinni, kæri
vinur, en minning um góðan
dreng og félaga mun lifa í
hjarta mínu um ókomin ár.
Foreldrum Helga, Evu, börnum
og öðrum ásvinum hans votta
ég mína dýpstu samúð. Hvíl í
friði, kæri vinur. Hvíl í friði.
Karl Sesar Karlsson.
Helgi Georgsson
HINSTA KVEÐJA
Við kveðjum Helga
frænda okkar með þakk-
læti fyrir ljúfa samfylgd í
gegnum allt okkar líf. Við
þökkum fyrir dýrmætar
minningar, þar sem gleði
og hjartahlýja Helga er
eins og rauður þráður, allt-
af stutt í prakkarabrosið,
vonarblik í augum og dill-
andi hláturinn. Börnunum
og ástvinum öllum sendum
við samúðarkveðjur.
Hvíl í friði, elsku Helgi.
Soffia og Björn.
HINSTA KVEÐJA
Við áttum tíma saman
sem gaf okkur yndisleg
börn. Minning þín mun lifa
áfram í þeim. Ég er þakklát
fyrir tímann sem við áttum
saman og síðustu skiptin
sem við hittumst sem voru
miklar gleðistundir. Hvíl í
friði.
Anna Margrét
Sveinsdóttir.
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM