Morgunblaðið - 18.02.2014, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra,leggur mikla rækt við líkamsræktina og var úti að ganga þegarMorgunblaðið náði í hana í gær. „Ég væri að hjóla með karlinum
en fann ekki hjólið og trítla því á eftir honum,“ sagði hún um leið og
hún dásamaði veðrið og útsýnið á Akranesi.
Hjónin Ingibjörg og Haraldur Sturlaugsson eiga svo sem ekki langt
að sækja í hreyfinguna. Hann var á fullu í fótboltanum á árum áður og
hún hljóp á eftir kindum og sótti kýrnar í sveitinni fyrir austan. „Við
erum nýbyrjuð hjá einkaþjálfara og höfum verið það stutt að ekki er
farið að reyna á samkeppnina en það kemur að því,“ segir hún.
Ingibjörg segist ekki vera fyrir eigið afmæli en kunni þeim mun
betur við þau hjá öðrum. „Ég fæ gæsahúð þegar þessi dagur nálgast,
en sem betur fer er hann ekki nema einu sinni á ári.“ Hún bætir við að
því verði ekki brugðið út af vananum. „Ég fer með karlinum í einka-
þjálfunina klukkan átta og ef við lifum hana af sjáum við til með fram-
haldið. Reyndar er engin hætta á öðru því hún Rúna okkar fer varlega
með gamalt fólk. En það verður ekkert partí.“
Íslandsdeild alþjóða samtakanna Go Red minnir árlega á að konur
geta líka fengið hjartaáföll og næsti vakningarfundur verður í Kringl-
unni næstkomandi laugardag kl. 14.00-15.15. „Þá fáum við um 15 al-
þingismenn til að sýna tískuföt,“ segir Ingibjörg sem er verndari sam-
takanna. „Við minnum á alvöru lífsins á léttu nótunum,“ heldur hún
áfram og er þar með rokin. steinthor@mbl.is
Ingibjörg Pálmadóttir 65 ára
Morgunblaðið/Golli
Á fullu Ingibjörg Pálmadóttir hefur nóg fyrir stafni.
Minnir á alvöru lífs-
ins á léttu nótunum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogur Halldór Kristian fæddist
24. júní kl. 0.00. Hann vó 4134 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Guðrún Halldórsdóttir og Rani Niel-
sen.
Nýir borgarar
Reykjavík Alexander Þór fæddist
3. apríl kl. 17.45. Hann vó 4005 g og
var 54 cm langur. Foreldrar hans eru
Þórunn Anna Magnúsdóttir og
Ármann Steinar Gunnarsson.
S
teinn Mar fæddist í
Reykjavík 18.2. 1954, en
flutti með fjölskyldu
sinni upp á Akranes er
hann var tveggja ára og
hefur átt þar heima síðan. Hann var
í Barnaskóla Akraness og Gagn-
fræðaskóla Akraness. Að loknu
gagnfræðaprófi hóf hann nám í tré-
smíði hjá Trésmiðju Sigurjóns og
Þorbergs, lauk sveinsprófi í þeirri
grein og öðlaðist síðan meistararétt-
indi.
Að loknu námi vann Steinn á
Akranesi að mestu næstu árin, að
undanskildu árinu 1978 er hann var
þjálfari Leifturs í Ólafsfirði.
Eins og margir strákar á Akra-
nesi lék Steinn knattspyrnu frá
blautu barnsbeini með öllum yngri
flokkum ÍA. Hann lék með meist-
araflokki ÍA, varð m.a. Íslands-
meistari með meistaraflokki tvisvar
og einu sinni með 2. flokki. Þá þjálf-
aði hann yngri flokka ÍA um árabil.
Hann var auk þess aðstoðarþjálfari
meistaraflokks hjá Herði Helgasyni
með góðum árangri. Steinn var
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
félags ÍA um skeið, auk þess sem
hann þjálfaði meistaraflokk ÍA í
kvennaflokki í nokkur ár og undir
hans stjórn unnust nokkrir Íslands-
og bikarmeistaratitlar.
Steinn þjálfaði einnig meist-
araflokk kvenna hjá Breiðabliki í
eitt ár og var landsliðsþjálfari
kvenna ásamt Sigurði Hannessyni.
Um aldamótin 2000 sagði Steinn
Steinn Mar Helgason, framhaldsskólakennari á Akranesi – 60 ára
Börn Steins og Ellu Talið frá vinstri: Marella, Helena Rut, Helgi Dan, Íris Dögg og Steindóra Sigríður.
Knattspyrnumaður
og kennari á Akranesi
Í „Ellu-garði“ Steinn og Ella við Akratorg sl. gamlárdag - þar sem þau búa.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
ALLT
á einum stað!
Lágmarks biðtími www.bilaattan.is
Dekkjaverkstæði
Varahlutir
Bílaverkstæði
Smurstöð