Morgunblaðið - 18.02.2014, Blaðsíða 27
skilið við knattspyrnuþjálfun, aflaði
sér réttinda sem framhaldsskóla-
kennari við KHÍ og hóf kennslu í
tréiðnaðardeild Fjölbrautaskóla
Vesturlands sem hann hefur sinnt
síðan.
Þá hefur Steinn verið slökkviliðs-
maður í Slökkviliði Akraness um
árabil.
Steinn og Elín, kona hans, hafa
rekið verslunina Rammar og mynd-
ir frá 1997. Þar ramma þau inn
myndir og málverk, auk þess sem
þau selja gluggatjöld og fleira því
tengt.
Knattspyrnan og golfið
Áhuginn á knattspyrnunni hefur
ekkert dalað hjá Steini þó að hann
sé hættur að sparka og þjálfa:
„Áhuginn á fótbolta fylgir manni í
gegnum lífið. Það er bara þannig.
Ég fylgist vel með mínu fólki hér á
Skaganum og hef auk þess verið
mikill stuðningsmaður Tottenham í
ensku deildinni um langt árabil.
Svo má geta þess að ég byrjaði í
golfi fyrir 15 árum, er í golf-
klúbbnum Leyni og spila golf mörg-
um sinnum í viku á sumrin. Ég get
að vísu ekki neitt, er með 15 eða 16 í
forgjöf. En það gerir ekkert til. Það
er aðalatriðið að vera með, skreppa
út á völl, hitta félagana, hreyfa sig
og njóta veðurblíðunnar.“
Fjölskylda
Eiginkona Steins er Elín Klara
Svavarsdóttir, f. 23.12. 1953, versl-
unarstjóri. Hún er dóttir hjónanna
Svavars Elíassonar, f. 20.5. 1929, d.
25.11. 2007, verkamanns á Akranesi,
og Sigríðar Þorbergsdóttur, f. 28.10.
1930, húsfreyju.
Börn Steins og Elínar Klöru eru
Steindóra Sigríður, f. 3.3. 1972,
íþróttafræðingur á Akranesi, en
börn hennar eru Daníel Hjörvar, f.
1998, og María Mist, f. 2001, en sam-
býlismaður Steindóru Sigríðar er
Kristinn Guðbrandsson, f. 1969,
íþróttafræðingur og grunnskóla-
kennari; Íris Dögg, f. 3.10. 1973,
íþróttafræðingur og verslunarstjóri
í Reykjanesbæ, en maður hennar er
Einar Guðberg Einarsson, f. 25.10.
1969, íþróttafræðingur og eru börn
þeirra Steinn Alexander, f. 1995, og
Elínora Guðlaug, f. 1996; Helgi Dan,
f. 4.3. 1976, húsasmiður í Reykja-
nesbæ, en kona hans er Júlía Jörg-
ensen, f. 5.7. 1978, stjórnmálafræð-
ingur og grunnskólakennari og eru
börn þeirra Ottó, f. 2005, og Þórunn
Elva, f. 2008; Helena Rut, f. 16.6.
1982, hárgreiðslumeistari á Akra-
nesi, en maður hennnar er Trausti
Freyr Jónsson, f. 15.5. 1979, lög-
reglumaður og eru börn þeirra Jón
Karl Kristján, f. 2000, Tristan
Freyr, f. 2006, og Kara Líf, f. 2008;
Marella, f. 29.5. 1985, við nám í ljós-
myndun í London en sambýlis-
maður hennar er Valgeir Sigurðs-
son, f. 1978, tölvunarfræðingur.
Bræður Steins Mars eru Frið-
þjófur Arnar Helgason, f. 27.2. 1953,
ljósmyndari og kvikmyndatökumað-
ur, og Helgi Valur Helgason, f. 22.6.
1956, starfsmaður Heilbrigðissviðs
Reykjavíkurborgar.
Foreldrar Steins Mars eru Helgi
Daníelsson, f. 16.4. 1933, fyrrver-
andi yfirlögregluþjónn hjá RLR og
fyrrverandi landsliðsmarkvörður í
knattspyrnu, og k.h. Steindóra S.
Steinsdóttir, f. 18.7. 1934, fyrrver-
andi deildarstjóri hjá Hagkaupum.
Úr frændgarði Steins Mars Helgasonar
Steinn Mar
Helgason
Gyðríður Steinsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Sigurðsson
ökum. í Rvík
Steinn Jónsson
vélstj. í Rvík
Steindóra Kristín Albertsdóttir
húsfr. í Rvík
Steindóra Sigríður Steinsdóttir
verslunarm.
Albert Þorvaldsson
rokkasm. á Bíldudal
Steindóra Guðmundsdóttir
húsfr. á Bíldudal
Guðrún Pálína Sigfúsdóttir
húsfr. á Borgum
Helgi Biering Ólafsson
smiður á Borgum í Grímsey
Sesselja Guðlaug Helgadóttir
húsfr. á Akranesi
Daníel Þjóðbjörnsson
múraram. á Akranesi
Helgi B. Daníelsson
fyrrv. yfirlögregluþj.
og landsliðsmarkm.
Þjóðbjörn Björnsson
b. á Læk og Norðurskarði
Hannes Þjóðbjörnsson
verkam. á Akranesi
Guðbjartur Hannesson
fyrrv. ráðherra
Jakob
Helgason
í Grímsey
Elín
Jakobsdóttir
húsfr. í
Kópavogi
Svanfríður I.
Jónasdóttir
bæjarstj. á Dalvík
og fyrrv. alþm
Ottó Jakobsson
fiskverkandi á Dalvík
Guðmundur Jónsson
símamaður í Rvík
Karl Guðmundsson
landsliðsm. og landsliðs-
þjálfari, úr Fram
Guðríður Auðunsdóttir
húsfr. á Læk, af Víkingslækjarætt
Guðmundur Auðunsson
hreppstj. á Skálpastöðum
Þorsteinn
Guðmundsson
hreppstj. á
Skálpastöðum
Þorsteinn Þorsteinsson
b. á Skálpastöðum
Guðmundur Þorsteinsson
b. á Skálpastöðum
VigfúsÖnundur Þorsteinsson
læknir
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2014
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
Ert þú búin að prófa
nýja súrdeigsbrauðið okkar?
Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.
Auður Auðuns, borgarstjóri,alþm. og ráðherra, fæddist áÍsafirði 18.2. 1911. Hún var
dóttir Jóns Auðuns Jónssonar, út-
gerðarmanns og alþm. á Ísafirði, og
Margrétar Guðrúnar Jónsdóttur
húsfreyju. Bróðir Auðar var Jón
Auðuns, dómkirkjuprestur, dómpró-
fastur og forseti Sálarrannsóknar-
félagsins um árabil.
Auður var Vestfirðingur í báðar
ættir, skyld Alþýðuflokksformönn-
unum Jóni Baldvinssyni og feðg-
unum Hannibal og Jóni Baldvini.
Eiginmaður Auðar var Hermann
Jónsson, hæstaréttarlögmaður og
fulltrúi tollstjórans í Reykjavík, og
eignuðust þau fjögur börn.
Auður lauk stúdentsprófi frá MR
1929 og embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla Íslands 1935. Hún var lög-
fræðingur Mæðrastyrksnefndar í
tuttugu ár, bæjar- og síðar borgar-
fulltrúi í Reykjavík fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn 1946-70, forseti bæjar- og
borgarstjórnar 1954-59 og 1960-70,
borgarstjóri, ásamt Geir Hallgríms-
syni 1959-60, alþm. 1959-74 og dóms-
og kirkjumálaráðherra 1970-71.
Þegar Auður var dóms- og kirkju-
málaráðherra var kvenréttindabar-
áttan að vakna af dvala eftir að hafa
legið í láginni um langt árabil. Rauð-
sokkuhreyfingin sá dagsins ljós 1.
maí 1970, Kvennaframboð bauð
fram í sveitarstjórnarkosningum
1982 og fékk tvo fulltrúa í borgar-
stjórn Reykjavíkur og í bæjarstjórn
Akureyrar og Kvennalistinn var
stofnaður 1983.
Auður átti fátt sameiginlegt með
róttækum kvenréttindakonum þess-
ara ára. Hún var íhaldssöm og borg-
araleg í hugsun.
Engu síður er nafn hennar skráð
skýrum stöfum í sögu íslenskrar
kvenréttindabaráttu, því hún varð
fyrst íslenskra kvenna til að ljúka
emkbættisprófi í lögfræði frá Há-
skóla Íslands, fyrsta konan sem varð
borgarstjóri og fyrsti kvenráðherr-
ann.
Auður sat á Allsherjarþingi SÞ
1967 og var formaður sendinefndar
Íslands á Kvennaráðstefnu SÞ í
Mexíkóborg 1975.
Auður lést 19.10. 1999.
Merkir Íslendingar
Auður
Auðuns
100 ára
Kristín Kristvarðsdóttir
90 ára
Helga Kr. Thors
85 ára
Hólmfríður Jóhannesdóttir
Jón Óskar Guðmundsson
Kristlaug V. Jónsdóttir
80 ára
Ása B. Ásbergsdóttir
Halldór Þorvaldsson
Jóhann B. Sveinbjörnsson
Jónatan Sveinsson
Margrét Hróbjartsdóttir
75 ára
Bentína S. Viggósdóttir
Edda Sigríður Ólafsdóttir
Elín Erlingsson
Ingibjörg Loftsdóttir
Jenný M.D. Henriksen
70 ára
Guðbjörg Ólafsdóttir
Kristjana M. Guðmunds-
dóttir
Sigríður Eiríksdóttir
Svanfríður S. Óskarsdóttir
60 ára
Brynja Jóna Gísladóttir
Brynleifur Ingimarsson
Egill Helgi Kristinsson
Guðmundur Jóhann Arason
Herdís Þorgeirsdóttir
Hinrik Þórhallsson
Hulda Þórsdóttir
Jóhanna Ólafsdóttir
Jónína Hrönn Baldursdóttir
Jónína Jóhannsdóttir
Kristín Karólína Karlsdóttir
Laufey Tryggvadóttir
Magnús Ólafsson
Orri Torfason
Sæmundur Stefánsson
Þórunn I. Ingvarsdóttir
50 ára
Birgir Örn Guðmundsson
Bjarki Kristjánsson
Eiríkur Sporði Hansínuson
Erna Sigurðardóttir
Guðrún Guðjónsdóttir
Guðrún Þorbjarnardóttir
Halldóra Eyjólfsdóttir
Hanna Eyrún Antonsdóttir
Hildur Larsen
Hjörvar Þór Guðmundsson
Jónatan Þórðarson
Jónína Björg Hilmarsdóttir
Kristín Sigursteinsdóttir
Kristján I. Kristjánsson
Ragnar Birkir Björnsson
Skarphéðinn Haraldsson
Sólbjörg Linda Reynisdóttir
Viðar Ingvason
Örn Guðmundarson
40 ára
Anna Agnieszka Bil
Arnar Eggert Thoroddsen
Atli Vilhelm Hjartarson
Brynjar Logi Þórisson
Einar Valgeirsson
Erla Stefánsdóttir
Hanna K. Sigurðardóttir
Héðinn Ragnar Jónsson
Ólafur Guðlaugsson
Sigríður J. Brynleifsdóttir
Sigþór Marteinsson
Sveinn H. Guðmarsson
Tómas Arnfjörð Ágústsson
Þráinn Hjálmarsson
30 ára
Daði Snær Jóhannsson
Hilmar Róbert Hilmarsson
Inga Lára Hjaltadóttir
Jóhann Ragnarsson
Svava Ásgeirsdóttir Blöndal
Þrúður Helgadóttir
Til hamingju með daginn
60 ára Emil ólst upp á
Vopnafirði, var bóndi í
Ytri-Hlíð og er nú mann-
auðsstjóri hjá Heilbrigð-
isstofnun Austurlands.
Maki: Aðalheiður Sigríður
Steingrímsdóttir, f. 1952,
húsfreyja og eiga þau
fjögur börn og 12 barna-
börn.
Foreldrar: Sigurjón Frið-
riksson, f. 1928, bóndi, og
Guðrún Emilsdóttir, f.
1928, húsfreyja.
Emil er að heiman.
Emil
Sigurjónsson
30 ára Freyja ólst upp í
Garðabæ, er búsett í
Mosfellsbæ, lauk prófi í
markaðsfræði og er
markaðsfræðingur hjá
Öskju.
Maki: Eiríkur Lárusson, f.
1983, rafvirki.
Dóttir: Ísmey, f. 2013.
Foreldrar: Þorbjörg Al-
bertsdóttir, f. 1959, inn-
heimtustjóri hjá Innnes,
og Leópold Sveinsson, f.
1960, framkvæmdastjóri
hjá Argus.
Freyja
Leópoldsdóttir
30 ára Þorvaldur í Grund-
arfirði, lauk sveinsprófi í
húsasmíði en starfar við
Baulu í Borgarfirði.
Maki: Kristín Lára Geirs-
dóttir, f. 1984, starfs-
maður við Baulu.
Synir: Sigurgeir Erik, f.
2008, og Jón Elberg, f.
2012.
Foreldrar: Kristberg
Jónsson, f. 1957, og Sig-
rún Tómasdóttir, f. 1957,
Þau reka veitingaskálann
Baulu í Borgarfirði.
Þorvaldur Á.
Kristbergsson