Morgunblaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
Vinstri grænum líður illa undirESB-umræðunni sem von er.
Þeir sviku kjósendur sína sögu-
lega árið 2009 þegar þeir tóku
þátt í að sækja um aðild að sam-
bandinu þvert á
kosningaloforð.
Stólarnir voru mik-
ilvægari en loforð
og ætlaðar hug-
sjónir. Síðan hafa
forystumenn
flokksins reynt að
fela og réttlæta
svikin.
Ein útgáfan af þeim málflutn-ingi heyrðist á Alþingi í gær
þegar Katrín Jakobsdóttir flokks-
formaður ræddi um skýrslu
Hagfræðistofnunar um stöðu að-
ildarviðræðnanna. Hún skautaði
að mestu framhjá því að taka af-
stöðu en fór þess í stað út í nokk-
urs konar bókagagnrýni.
Hún hefði að eigin sögn viljaðsjá „dýpri umfjöllun“ en
finna má á nokkur hundruð blað-
síðum skýrslunnar og viðauka
hennar. Hvað ætli fræðimennirnir
sem skrifuðu þessar síður hefðu
þurft að bæta mörgum við til að
Katrín Jakobsdóttir hefði orðið
sátt við dýptina?
Annað sem truflaði hana viðlestur skýrslunnar er að hún
saknaði heimildaskrár svo þing-
menn gætu kynnt sér ítarefni!
Nú er að vísu vitnað til heim-ilda víða í skýrslunni, en það
er vitaskuld aukaatriði eins og
flest það sem Katrín bauð upp á í
umræðunni.
Aðalatriði fer hins vegar aðverða hversu lengi á að bjóða
þjóðinni upp á þessa vitlausu um-
ræðu um aðild að sambandi sem
hún vill ekki.
Katrín
Jakobsdóttir
Umræður án
innihalds
STAKSTEINAR
Í skýrslu sem lögmannaskrifstofan
Logos vann fyrir Rauða krossinn
kemur fram að íslensk lög og reglu-
gerðir virka hamlandi á aðkomu al-
þjóðlegs hjálparliðs á neyðartímum
hér á landi. „Við hjá Rauða kross-
inum rekum okkur ítrekað á það að
reglugerðaumhverfið hefur komið í
veg fyrir tafarlausan innflutning
björgunarliðs á neyðartímum í þeim
löndum þar sem neyðarástand hefur
skapast,“ segir Jón Brynjar Birgis-
son, verkefnastjóri á hjálparstarfs-
sviði. Fram kemur í greiningunni að
hömlur á Íslandi snúa að vegabréfs-
áritunum, tímabundnu atvinnuleyfi,
viðurkenningu starfsréttinda sér-
fræðinga, tolla, matvæla- og lyfja-
innflutningi og innflutningi á dýrum
til björgunarstarfa, svo eitthvað sé
nefnt. Einnig þarf að líta til fjar-
skiptamála, fjármagnsflutninga,
samskipta við fjölmiðla og flutnings
hjálpargagna.
„Rauði krossinn lenti í miklum
vanda þegar hann vildi flytja inn
bílaflota sinn til Haití. Það þurfti að
finna aðrar leiðir þar og leigja bíla á
meðan ónotaður Land Cruiser-floti
Rauða krossins stóð óhreyfður,“ seg-
ir Jón Brynjar.
Greiningin er þáttur í fjölþjóðlegu
almannavarnaverkefni sem Rauði
krossinn á Íslandi var fenginn til að
leiða, og hlaut til þess styrk frá
ECHO, neyðarsjóði Evrópusam-
bandsins. vidar@mbl.is
Land Cruiser-flotinn stóð óhreyfður
Ljósmynd/Þórir Guðmundsson
Haítí Erla Svava Sigurðardóttir,
hjúkrunarfræðingur á Haítí.
Íslenskt reglugerðaumhverfi myndi
hamla innfluttri aðstoð á neyðartímum
Þrettán af fimmtán verslunum hafa
hækkað verð á vörukörfu ASÍ á síð-
ustu tólf mánuðum. Þar af hækkuðu
fjórar verslanir, Víðir, Kaupfélag
Steingrímsfjarðar, Nettó og Iceland,
meira en sem nemur verðbólgu á
tímabilinu.
Hækkunin nemur 6,8% en verð-
bólga mældist um 4% á sama tíma.
Tvær verslanir lækkuðu hins vegar
á tímabilinu, Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga um 2,4% og Kaskó um
1,2%.
Til hliðsjónar bendir ASÍ á að
verð á matar- og drykkjarvörum í
neysluvísitölunni hafi hækkað um
3,7% frá janúar í fyrra til sama mán-
aðar í ár. Víðir, Nettó, Iceland,
Kaupfélag Skagfirðinga og Kaup-
félag Steingrímsfjarðar hafi hækkað
meira en sem því nemur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Matvara Mest hækkaði verðið í
Víði, um 6,8%, skv. verðeftirliti ASÍ.
Hækkuðu
meira en
vísitalan
Veður víða um heim 19.2., kl. 18.00
Reykjavík 4 slydda
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -1 alskýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 4 alskýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 5 þoka
Stokkhólmur 1 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 10 skýjað
París 10 alskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 7 skúrir
Moskva -1 heiðskírt
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 16 heiðskírt
Winnipeg -11 skýjað
Montreal -2 alskýjað
New York 7 skýjað
Chicago 3 heiðskírt
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:06 18:18
ÍSAFJÖRÐUR 9:20 18:14
SIGLUFJÖRÐUR 9:03 17:57
DJÚPIVOGUR 8:38 17:45
www.norræna.is
Sími 570 8600
Skemmtisiglingar með Norwegian Cruise Line
Feneyar, Grikkland og Tyrkland 15. maí verð frá kr. 265.000
Alaska 21. ágúst verð frá kr. 360.000
Barcelona og Miðjarðarhafið 29. ágúst verð frá 275.000
Feneyjar og Barcelona 13. september verð frá kr. 360.000
Panama og Los Angeles 31. október verð frá kr. 424.000
Karabískahafið og Orlando 14. nóvember verð frá kr. 288.000
Íslensk fararstjórn
www.norræna.is sími 570 8600
Valið besta skipafélag í Evrópu síðustu sex ár