Morgunblaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 32
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Maður verður svolítið upp með
sér þegar forystufólk heimsins
stendur við ræðustólana. Þetta er
einföld, klassísk norræn hönnun
með áherslu á gæði og notagildi,“
segir Eyþór Sigurbergsson hönn-
uður í Noregi.
Hann er Eyjapeyi að uppruna
en hefur búið ytra frá 1978. Hefur
sl. 30 ár eða svo starfað við marg-
víslega hönnun, meðal annars á
gagnvirkum sýningum fyrir söfn
og stórfyrirtæki, sem fjalla um
vistvæna orku, skíði og knatt-
spyrnu. Fleira mætti nefna, en
meðal þeirra sem þekkja til hönn-
unar og stefna og strauma á því
sviði er Eyþór kunnur maður.
Í ráðstefnusal
ríkisstjórnarbyggingar
Árið 2000 fékk Eyþór fyrirspurn
frá skrifstofu norska forsætisráð-
herrans um hvort hann gæti hann-
að tvo ræðustóla sem nota ætti við
heimsóknir erlendra ráðamanna og
stærri viðburði ríkisstjórnarinnar.
Þeim var komið fyrir í ráð-
stefnusal forsætisráðherra á efstu
hæð ríkistjórnarbyggingarinnar í
miðborg Oslóar – sem var sprengd
í árás Breivik í júlí 2011.
Nokkrum árum seinna pantaði
forsætisráðuneytið þrjá ræðustóla
sem nota átti til hins sama í nýjum
ráðstefnusal við hlið bústaðar for-
sætisráðherra. Síðan hafa komið
pantanir frá ráðuneytum utanríkis-
og verslunarmála. Það var svo nú í
janúar sem „sjálft Stórþingið“ eins
og Eyþór kemst að orði fékk þrjá
ræðustóla. Þar verða þeir í and-
dyri þinghússins og notaðir við
ýmsa stórviðburði.
Obama, Pútín og Cameron
„Í ár fagna Norðmenn 200 ára
afmæli stjórnarskrár sinnar. Og
má þá búast við að ræðustólarnir
verði mikið notaðir og muni sjást
oft í fjölmiðlum, segir Eyþór um
ræðustólana góðu sem eru snot-
urlega gerðir að flestra dómi.
Ræður það eðlilega miklum um
vinsældir þeirra og að þeim hefur
verið komið fyrir á ýmsum betri
stöðum ef svo mætti segja.
Undirstaða stólanna er plata úr
ljósri eik og fóturinn er tvískiptur;
úr ryðfríu glerblásnu stáli og ljósri
eik. Umgjörð borðplötunnar er
einnig úr ryðfríu glerblásnu stáli,
en sjálf platan er viður klæddur
með möttum svörtum, um það bil
50 x 50 cm á breidd. Þar er gert
ráð fyrir að koma megi fyrir t.d.
spjaldtölvu, hljóðnema, skriffærum
og vatnsglasi. Á hlið púltsins er
svo rofi en með honum má hækka
og lækka borðfótinn alveg niður í
85 cm hæð svo það getur til dæmis
nýst ræðumanni í hjólastól.
Annars er það einkum „stór
nöfn“ sem hefur sést í púltunum
sem Eyþór hefur annað; stirni eins
og til dæmis Barack Obama
Bandaríkjaforseti, Vladimír Pútín
Rússlandsforseti, Angela Merkel,
kanslari Þýskalands, David Came-
ron, forsætisráðherra Englands,
Daninn Anders Fogh Rasmussen,
framkvæmdastjóri NATO, og svo
mætti áfram telja.
Stálið má ekki glansa
„Auðvitað eru gerðar miklar
kröfur í þessari smíði. Ryðfrítt
stálið má til dæmis ekki vera
glansandi, þannig að flassglampar
ljósmyndara speglist frá því. Því
þurfti ég að leita til listasmiða í
Árósum í Danmörku við að útbúa
stálið á þann veg að það uppfyllti
þessar kröfur. Annars eru þessir
gripir að stofninum til smíðaðir
hér í Noregi, en samvinnan við
Danina hefur leitt til þess að ein-
hverjir landvinningar með vöruna
þar í landi eru í skoðun.“
Eyþór hefur hannað margar
aðrar útfærslur af ræðustólum
sem nú eru í hótelum og ráð-
stefnusölum víðsvegar í Noregi.
Er annars rafeindavirki að mennt
og fór upphaflega til Noregs til
starfa á því sviði. Síðan tóku málin
nýja stefnu eins og gengur og ger-
ist - og hönnun hvers konar gagn-
virkra sýninga, á söfnum og vin-
sælum ferðamannastöðum, hefur
verið helstu viðfangsefnin í tímans
rás.
Stór nöfn í íslenskum stólum
Eyjapeyinn Eyþór Sigurbergsson hannaði ræðustóla sem notaðir eru í opinberum byggingum í
Noregi Ráðuneytin og nú sjálft Stórþingið Obama, Pútín og Merkel hafa stigið í stólana góðu
Morgunblaðið/Kristinn
Forystumenn David Cameron, forsætisráðherra Breta, og hinn norski Jens Stoltenberg í ræðustólum frá Eyþóri.
Hönnun Klassísk norræn hönnun með áherslu á gæði, segir Eyþór.
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Golfhermir
DOUBLE EAGLE 2000
Frábær aðstaða til að spila golf.
Þú getur valið um 9 golfvelli,
St. Andrew´s, Coeurd Alene,
Firestone, Pebble Beach,
Druids Glen,
Doral Resort,Emirates.
Haltu sveiflunni
við í vetur
Tryggðu þér fastan
tíma í vetur
Hringdu núna
og bókaðu
tíma Fáskrúðsfjörður | Unnið var í gær viðlöndun úr færeyska skipinu Fagra-
bergi frá Fuglafirði. Skipið fékk
loðnuna út af Grindavík og munu um
800 tonn fara í vinnslu hjá Loðnu-
vinnslunni hf. á Fáskrúðsfirði.
Loðnan er fryst fyrir Japans- og
Rússlandsmarkaði. Að sögn frétta-
ritara Morgunblaðsins á Fáskrúðs-
firði ríkir ekki mikil bjartsýni hjá
fólki ef ekki finnast fleiri loðnugöng-
ur. Verður þá erfitt að fá hrogn fyrir
markaðinn, sagði Friðrik Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði,
við fréttaritara.
Morgunblaðið/Albert Kemp
800 tonn í frystingu
hjá Loðnuvinnslunni
Eyþór Sigmundsson er fæddur í
Eyjum 1954. Hann var tækni-
maður hjá Ríkisútvarpinu endur
fyrir löngu og minnist þess að
hafa verið á vakt með Gerði B.
Bjarklind þegar fréttir bárust af
andláti Elvis Presley í ágúst árið
1977. Árið eftir flutti hann til
Noregs í leit að vinnu og hefur
ekki snúið aftur heim til Íslands
eftir það, nema sem gestur.
Ílentist ytra
VAR TÆKNIMAÐUR RÚV