Morgunblaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Flor Silvia
Kort Kristín (t.h) og Aðalheiður Héðinsdóttir afhenda Kaffitári Íslandskort Söguhrings kvenna í Þjóðminjasafni í
haust. Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Samtaka kvenna af erlendum uppruna og Borgarbókasafns.
Það er sannkölluð tungumálaherferð
að hafa Cafe Lingua á mörgum stöð-
um. Við verðum sterkari með því að
vinna saman.“ Í tilefni móðurmáls-
viku verður viðburður hjá Café
Lingua sem heitir Albönsk tunga og
menning, á laugardaginn í Gerðu-
bergi, en þá verður Vatra, félag Alb-
ana á Íslandi með kynningu á landi
og þjóð frá ýmsum sjónarhornum.
Tungumál gefa okkur
rætur og vængi
Kristín stendur líka fyrir menn-
ingarmótsverkefni sem heitir Fljúg-
andi teppi, en það fer fram í leik-,
grunn- og framhaldsskólum. Á
menningarmótum fá nemendur, for-
eldrar og starfsfólk tækifæri til að
hittast og kynna sína persónulegu
menningu, sem tengist ekki endilega
þjóðarmenningu. Allir eru þátttak-
endur og áhorfendur um leið. „Ég
bjó til þetta verkefni þegar ég starf-
aði sem kennari í Danmörku, en ég
hef þróað það og aðlagað íslensku
samfélagi. Mér finnst það mikill fjár-
sjóður fyrir samfélagið að í því búi
fólk sem talar mörg tungumál. Í ís-
lenska skólakerfinu eru núna ótal
mörg börn sem eru fjöl- eða tvítyngd
og við eigum að líta á það sem kost,
það er styrkleiki fyrir Ísland að hér
búi svona fjölbreytt fólk. Á Íslandi
eru töluð yfir hundrað tungumál, frá
mörgum heimsálfum. Þetta er gott
að nýta í tungumálakennslu í skól-
unum og ég hef einmitt verið að þróa
menningarmótin í þá átt. Ég fékk til
dæmis tvítyngda nemendur sem
voru með spænsku sem móðurmál í
Austurbæjarskóla til að taka þátt í
menningarmóti í spænskukennslu,
þau kynnti spænska menningu á
spænsku. Tvítyngdu börnin fengu að
njóta þess að tala sitt móðurmál og
íslensku krakkarnir nutu þess að
heyra hvernig alvöru spænska er
töluð. Frábært fyrir alla og skapar
raunverulegan vettvang fyrir sam-
skipti. Tungumál gefa okkur rætur
og vængi, hvort sem um er að ræða
móðurmál eða önnur mál sem við
tileinkum okkur. Móðurmálin eru
rætur sjálfsmyndindarinnar og þau
erlendu mál sem við lærum gefa
okkur vængi og skapa meðal ann-
ars tengsl okkar og samskipti við
heiminn. En svo er líka hægt að
hugsa þetta öfugt, því ný tungumál
gefa okkur nýjar rætur og góð tök
á móðurmálinu senda hugann á
flug.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
Íslenska UNESCO-nefndin og Stofn-
un Vigdísar Finnbogadóttur í er-
lendum tungumálum efna til nokk-
urra viðburða vikuna 21.-28. febrúar
í tilefni Alþjóðadags móðurmálsins:
Í tilefni þessa dags í ár verður vakin
athygli á starfi fjölmargra aðila sem
tengjast ólíkum móðurmálum,
hvatt til umræðu í skólum um
hvernig sé hægt að koma til móts
við nemendur sem tala annað
móðurmál en íslensku og mynd-
böndum um efnið komið á fram-
færi.
Tungumálaforða Íslands leitað í skólum landsins: Efnt verður til sam-
vinnu við skóla um skráningu á tungumálaforða sínum, og haldinn
verður sérstakur fyrirlestur um ólík móðurmál í skólakerfinu.
www.tungumalatorg.is.
Sögustund fyrir börn á 10 tungumálum: Gerðuberg föstudag 21. febr.
kl. 13-15.
Danska sem móðurmál, annað mál og erlent mál: Fyrirlestur dr. Berg-
þóru Kristjánsdóttur, lektors við Árósaháskóla.
Oddi, Háskóla Íslands fimmtudag 27. febr. kl. 16.
Móðurmál – mál málanna: Málþing í Norræna húsinu föstudag 28.
febr. kl. 15-17:
Hólmfríður Garðarsdóttir: Tungumál eru sameign okkar allra – rækt-
um þau!
Renata Emilsson Pesková: Öll mál skipta máli – en fyrir hverja?
Hanna Ragnarsdóttir: Tungumál sem auðlind – fjölbreyttir kennara-
hópar.
Þorbjörg Þorsteinsdóttir: Dýrmætur tungumálaforði.
Móðurmálsvikan
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Hagkaup
Gildir 20.-23. feb. verð nú áður mælie. verð
Ísl.lamb kindafilet ...................... 2.999 4.498 2.999 kr. kg
Kindalundir ............................... 2.999 4.498 2.999 kr. kg
SS kryddlegið grill-læri ............... 1.679 2.399 1.679 kr. kg
Tómatbrauð............................... 299 499 299 kr. stk.
Baguette stórt ........................... 199 319 199 kr. stk.
Pizzaslaufa................................ 149 199 149 kr. stk.
Nóatún
Gildir 21.-23. feb. verð nú áður mælie. verð
Kindalundir úr kjötborði.............. 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Kindafilet úr kjötborði ................. 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Kindagúllas úr kjötborði ............. 1.098 1.498 1.098 kr. kg
Kindasnitsel úr kjötborði............. 1.098 1.498 1.098 kr. kg
Ungnautahamb. 200 g úr kjötb. .. 369 385 369 kr. stk.
ÍM Kjúklingabringur.................... 2.198 2.469 2.198 kr. kg
Þín verslun
Gildir 20.-23. feb. verð nú áður mælie. verð
Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 2.299 3.129 2.299 kr. kg
Nautasnitsel úr kjötborði ............ 2.539 3.179 2.539 kr. kg
Ísfugl ferskur heill kjúklingur ....... 919 1.149 919 kr. kg
Ísfugl kalkúnasneiðar ................. 1.679 2.098 1.679 kr. kg
Floridana morgunsafi 1 l ............ 259 398 259 kr. ltr
Daloon kínarúllur 600 g ............. 669 898 1.115 kr. kg
Pataks Tikka Masala sósa 450 g. 309 398 687 kr. kg
Tilda Basmati hrísgr. 500 g......... 379 525 758 kr. kg
Krónan
Gildir 20.-23. feb. verð nú áður mælie. verð
Grísakótilettur lúxus úrb. erlendar 1.299 2.198 1.299 kr. kg
Grísahryggur úrbeinaður ............. 1.299 2.198 1.299 kr. kg
Grísalundir ................................ 1.399 2.197 1.399 kr. kg
Lambalærissneiðar .................... 1.978 2.198 1.978 kr. kg
Lamba-sirloinsneiðar ................. 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Lambakótilettur ......................... 2.158 2.398 2.158 kr. kg
Kjarval
Gildir 20.-23. feb. verð nú áður mælie. verð
SS grískt lambalæri ................... 1.799 2.298 1.799 kr. kg
SS hangiálegg box 115 g ........... 498 639 498 kr. pk.
Holta kjúklingabringur ................ 2.548 2.988 2.548 kr. kg
Þykkvab. kartöflugratín 600 g ..... 549 619 549 kr. pk.
Hatting pítubrauð fín 6 stk .......... 349 389 349 kr. pk.
Frönsk hvítl.baguette 2 stk ......... 299 339 299 kr. pk.
Fjarðarkaup
Gildir 20.-22. feb. verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Nauta-entrecote úr kjötborði....... 3.098 3.998 3.098 kr. kg
Kindafilet úr kjötborði................. 2.798 3.498 2.798 kr. kg
Hamborgarar 2x115g m/brauði .. 490 540 490 kr. pk.
Fjallalambs frosinn lambahryggur 1.745 2.049 1.745 kr. kg
Ali pepperonibréf....................... 338 515 338 kr. pk.
Ali skinkustrimlar ....................... 1.498 2.343 1.498 kr. kg
Dr. Oetker pizza tradizionale........ 589 589 589 kr. kg
Coke 12x0,33 ml dósir............... 998 1.308 998 kr. pk.
Helgartilboðin
Í kvöld kl. 20 verður efnt til samræðu
um myndlist Haraldar Jónssonar í
Hafnarborg, menningar- og lista-
miðstöð Hafnarfjarðar. Yfirskriftin er
Nálgun, en tilefni hennar er einka-
sýning Haraldar, H N I T, sem nú
stendur yfir í Sverrissal. Frummæl-
endur eru Markús Þór Andrésson
sýningarstjóri, Harpa Arnardóttir,
leikkona og leikstjóri, og Valur B.
Antonsson heimspekingur. Þau munu
nálgast verk Haraldar úr mismunandi
áttum, þreifa á eiginleikum þeirra og
einkennum og leiða í ljós þræði sem
tengja þau jafnvel saman.
Haraldur Jónsson nam myndlist
við Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands, Listaakademíuna í Düsseldorf
og Institut des Hautes Études en
Arts Plastiques í París. Hann hefur
haldið fjölda sýninga og eru verk
hans tíðum valin til að veita innsýn í
íslenska myndlist samtímans, bæði
hér heima og erlendis. Á sýningunni
eru ný verk, bæði teikningar og
skúlptúrar sem virkja skynjun
mannsins á eigin tilfinningum, upp-
lifun af rými og táknum.
Samræða um myndlist í Hafnarborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Myndlistarmaður Haraldur Jónsson.
Heimspekingur, leikari og sýn-
ingarstjóri spjalla um verkin 20%
afsláttur
af öllum snyrtivörum
í febrúar
Velkomin á Dior daga
í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 19. - 21. febrúar.
Spennandi nýjungar
Falleg gjöf fylgir ef keyptar
eru tvær Dior vörur* Álfheimum 74 - 104 Reykjavík - Sími 568 5170
* Meðan birgðir endast
Aukablað
alla þriðjudaga