Morgunblaðið - 20.02.2014, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 20.02.2014, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup,Viðir, N ttó og Fríhöfnin. milli fórnarlamba til að halda þeim góðum sem voru aðgangsharðir og vildu fá greitt. „Þarna var um að ræða svikamyllu sem krafðist nýrra og nýrra fórnarlamba, til að standa undir kostnaði við hann sjálfan og fjölskyldu hans og til að greiða til þeirra sem hart sóttu að honum.“ Enginn blekktur Verjandi Sigurðar hélt því hins vegar fram að enginn hefði verið blekktur í samskiptum við hann. Sig- urður hefði staðið í margskonar við- skiptum og við allskyns fólk. Þau við- skipti hefðu oftar en ekki verið að frumkvæði annarra en hans sjálfs. Í mörgum tilvikum hefði vel tekist til og allir hagnast en í mun færri skipt- um tókst ekki eins vel til og því glöt- uðust fjármunir. Hann sagði að í þessu máli ætti það við að einhverjir hefðu glatað fé á áhættufjárfestingu, aðrir hefðu hreinlega lánað Sigurði fé þegar þeir vissu að hann var í krögg- um. Eitt væri víst að ekkert ólögmætt hefði átt sér stað. Hann sagði Sigurð hafa reynt að endurgreiða glatað fé í áhættufjárfestingun þrátt fyrir að honum bæri ekki skylda til þess og ef eitthvað stæði eftir af lánunum þá ætti að höfða einkamál, ekki væri hægt að innheimta skuldir í sakamál- um. Gagnrýndi lögreglu og fjölmiðla Hann sagði að það eitt væri sannað í málinu að umrætt fólk hefði fengið Sigurði fé í hendur sem ekki hefði verið endurgreitt að fullu. Ósannað væri hins vegar hvers vegna og hvort um lán hefði verið að ræða, fjárvörslu eða sameiginleg framlög manna til að braska. Óheimilt væri að byggja refsidóm á líkindum og því yrði að sýkna. Auk þessa gagnrýndi verjandinn framgöngu lögreglu og fjölmiðla harðlega. Hann sagði lögreglu hafa matað fjölmiðla á röngum upplýsing- um í upphafi rannsóknar sem leitt hefði til fjölmiðlafárs. Það hefði verið gríðarlega þungbært og í raun refs- ing án dóms og laga. Framfleytti sér með fjársvikum  Saksóknari fer fram á að Sigurður Kárason sitji ekki skemur í fangelsi en þrjú ár vegna fjársvika  Verjandi hans segir engum blekkingum hafa verið beitt og að vangoldin lán skuli sækja í einkamálum Morgunblaðið/Rósa Braga Sigurður Kárason Þrátt fyrir að hafa boðað yfirlýsingu í lok aðalmeðferðar bólaði ekkert á Sigurði Kárasyni í gær. Sigurður Kárason » Sigurður hefur lengi verið á milli tannanna á fólki. Hann byrjaði með leiktækjasal í Ein- holti í Reykjavík snemma á ní- unda áratug síðustu aldar en færði sig þaðan yfir í tívolí- rekstur og svo einnig hótel- rekstur. » Frægur var dómur sem Sig- urður hlaut fyrir að svíkja fé út úr ekkju með elliglöp, um 30 milljónir króna. Þau svik stóðu yfir í tvö ár. BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Skattaframtöl Sigurðar Kárasonar og eiginkonu hans á árunum 2006 til 2010 sýna bersýnilega að tekjur þeirra dugðu ekki til framfærslu fjöl- skyldu þeirra. Af uppgefnum tekjum hafi ekki verið hægt að greiða af ein- býlishúsi og tveimur íbúðum. Sak- sóknari heldur því hins vegar fram að með fjársvikum hafi Sigurður fram- fleytt sér og fjölskyldunni. Aðalmeðferð yfir Sigurði lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann er ákærður fyrir að hafa svikið á annað hundrað milljónir út úr 16 einstaklingum á árunum 2006-2010. Raunar upplýsti saksóknari að í upp- hafi rannsóknar lögreglu hefðu fórn- arlömbin verið mun fleiri og skipt tugum. Margir hefðu hins vegar ekki viljað kæra, meðal annars vegna þess að þeir fengu greitt til baka, með því sem saksóknari sagði vera fé frá öðr- um fórnarlömbum. Saksóknari sagði einnig að þetta væri umfangsmesta fjársvikamál sem hefði komið til kasta lögreglu höfuðborgarsvæðisins þar sem ein- staklingur ætti í hlut. Hvernig þess- um eina manni hefði tekist að ná til sín fjármunum frá fjölda einstaklinga væri hreint út sagt ótrúlegt. Fólki alls staðar að úr samfélaginu, menntuðu fólki og ómenntuðu, vinnandi og sjúku. Málið væri einsdæmi. Ekki síst fyrir þær sakir að Sigurður sótti að fólki sem átti ekki peninga. Hann hvatti það til að fá fyrirgreiðslu, lán eða yfirdrátt. „Þarna eru margir sem sitja eftir með mikinn skaða, vegna þess að fólk setti sig í hættu til að afla þessa fjár.“ Saksónari fór fram að á Sigurður verði dæmdur í það minnsta þriggja ára fangelsi vegna brota sinna. Ásetningurinn hefði verið einbeittur, Sigurður hefði ekki getað bent á nein gögn sem sýndu fram á að hann hefði átt í nokkrum viðskiptum öðrum en þeim að svíkja fé út úr fólki. Peningar á reikningi hans streymdu þannig á Saksóknari greindi frá því að við rannsókn málsins gegn Sigurði Kárasyni hefði komið í ljós að fórn- arlömb hans voru mun fleiri en ákært væri fyrir í málinu. Þá settu ekki öll fórnarlömb hans fram bótakröfu. Saksóknari fór yfir þann þátt málsins við aðalmeðferðina og sagði það bæði koma til að fólk sem fékk Sigurði allt sparifé sitt hefði annaðhvort ekki efni á að setja fram kröfu, með aðstoð lög- manns, eða þá að það vissi einfald- lega að Sigurður væri enginn borg- unarmaður fyrir bótum, enda sjálfur gjaldþrota. Þrír réttargæslumenn fluttu þó mál bótakrefjenda og sögðu þetta mál bæði niðurlægjandi og skömmustulegt, þ.e. að hafa trúað Sigurði og að hafa látið hann hafa féð. Þetta hefði haft mjög slæm áhrif á líðan þeirra. Ekki allir með bótakröfur NIÐURLÆGJANDI OG SKÖMMUSTULEGT Hollvinasamtök Heilbrigðisstofn- unarinnar á Sauðárkróki hafa sent þingmönnum Norðvesturkjördæmis bréf þar sem lýst er heilshugar yfir stuðningi við óskir sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um að yfirtaka rekstur stofnunarinnar með samningi við ríkið. Hollvinasamtökin skipar stór hópur íbúa Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar og Akrahrepps sem bera hag stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir íbúum Skagafjarðar fyrir brjósti. „Stofnunin er ein af mikilvægari grunnstoðum sam- félagsins og ómetanlegt það öryggi sem hún veitir. Það er eindreginn vilji til þess hún fái áfram að sinna sínu mikilvæga hlutverki í sömu mynd og verið hefur og ekki verð- ur séð að það verði öðru vísi tryggt en með því að heimamenn sjálfir sjái um reksturinn,“ segir í bréfinu en samtökin skora á heilbrigð- isráðherra, aðra ráðherra og þing- menn að ljá því lið að heimamenn taki að sér reksturinn svo tryggja megi að heilbrigðisþjónusta í Skagafirði verði áfram með þeim myndarbrag sem hún hefur verið undanfarna áratugi, „þrátt fyrir niðurskurð síðustu ár.“ Morgunblaðið/Björn Björnsson Sauðárkrókur Heimamenn hafa lýst yfir vilja til að taka við rekstri Heil- brigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki. Viðræður eru í gangi við yfirvöld. Hollvinir á Sauðár- króki styðja yfirtöku  Þingmenn í kjördæminu fengu bréf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.