Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 52

Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 52
52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Eins og alþjóð er kunnugt er List með stóru L í hávegum höfð á Seyðisfirði. Má þar nefna Menningar- miðstöð myndlistar á Austurlandi-Skaftfell, árlega Lunga- listahátíð ungs fólks, sem ungir listamenn og leiðbeinendur víða að úr heiminum sækja. Afkvæmi Lunga-hátíðarinnar er Lungaskól- inn listalýðháskóli, sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi, sem hefur störf í mars nk. Listaháskóli Ís- lands í samvinnu við Skaftfell- Dieter Roth Academy sendir ár- lega 10-20 listnema til Seyð- isfjarðar, að vetri, þar sem þeir starfa með kennurum og heima- mönnum að viðfangsefnum sínum nokkrar vikur. Erlendir og ís- lenskir listamenn dvelja á Seyð- isfirði lengri og skemmri tíma og sumir hafa fest sér húsnæði á staðnum og búa þar mislangan tíma í senn. Einn þessara lista- manna er svissneski Seyðfirðing- urinn Cristoph Buchel sem býr með íslenskri konu sinni, Nínu Magnúsdóttur. Þau keyptu fyrir rúmum sex árum m.a. Þórshamar Hafnargötu 25 (byggingarár 1882) á Búðareyrinni og hafa end- urbyggt og innréttað þar vinnu- stofu og komið sér upp heimili. Börn þeirra sækja nú skóla á Seyðisfirði. Tillaga Cristoph var valin til sýningar í Íslenska skál- anum í Tvíæringnum í Feneyjum sem framlag Íslands. Nína verður sýning- arstjóri. Fyrri reglur, um val fagráðs á lista- mönnum til Tvíær- ingsins, hafa senni- lega þótt staðnaðar? A.m.k. var reglum nú breytt til þess m.a. að sögn fram- kvæmdastjóra ís- lenska skálans að „opna fyrir hið óvænta“. Það virðist svo sannarlega hafa tekist. Eitthvað virðist það fara fyrir brjóstið á nokkrum listfræð- ingum þjóðarinnar sem hafa kosið að tjá sig. Helst er að þeir virðast lítt þekkja til hans, enda Cristoph ekki búsettur í 101 Reykjavík. Hann dvelur m.a. á landsbyggð- inni með fjölskyldu sína, nánar til- tekið í litlum alþjóðlegum kaup- stað á Austurlandi sem heitir Seyðisfjörður. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð- ingur veltir þessu fyrir sér og skrifar athygliverða grein í Mbl. 17.2. sl. sem ber yfirskriftina „Fyrir Íslands hönd“. Þar skrifar hann m.a.: „Sjálfur hefi ég ekki heyrt manninn nefndan og jafnvel Morgunblaðið ekki heldur“, áfram skrifar hann: „Fyrsta sinni er gengið framhjá mörgum íslensk- um listamönnum sem hafa lagt mikið til myndlistarlífs í landinu á liðnum árum“ og hann spyr: „Eru það næg meðmæli með erlendum listamanni að hafa sýnt hér tvisv- ar í mýflugumynd árið 2008?“ Einnig: „Ennfremur má setja spurningarmerki við þá ákvörðun Kynningarmiðstöðvar að fela eig- inkonu listamannsins stjórn sýn- ingarinnar.“ (tilv. lýkur) Ég tel rétt að láta öðrum mér skarpari um „leikvöll listarinnar“ að meta þessar hugleiðingar listfræðings- ins en vil koma eftirfarandi á framfæri: Listamenn fara og koma eins og farfuglarnir og dvelja þar sem þeir nærast best á hverjum tíma. Það hafa þeir gert í aldir. „Listin er án landamæra“ heyrist oft. Í því umhverfi og viðmóti sem Seyð- isfjörður skapar listafólki sínu, ís- lensku og erlendu, á það vel við. Það er því ekki tilviljun að nokkrir ungir og eldri listamenn velja að dvelja þar mislengi til þess m.a. að sækja sér rétt andrými, teng- ingu, skerpa á listagyðjunni og sækja sér fóður til sköpunar. Eig- um við ekki að óska Cristoph og Nínu til hamingju með verkefnið, sem til þess réttbærir aðilar völdu, og óska þeim góðs gengis sem verðugir fulltrúar fyrir Ís- lands hönd í Feneyjum? Svissneskur Seyðfirðingur: Fyrir Íslands hönd Eftir Þorvald Jóhannsson » Listin er án landamæra. Listamenn koma og fara eins og farfugl- arnir og dvelja þar sem þeir nærast best á hverjum tíma. Svo hefur verið um aldir. Þorvaldur Jóhannsson Höfundur er eldri borgari á Seyðisfirði. Nú bætast við leikritin á Alþingi frammíköll utan úr sal. Birgitta Jóns galar „heyr, heyr“ líki henni málflutningurinn. Hún heldur víst að hún sé al- heimsþingmaður. Píratar bera ekki virðingu fyrir þinginu. Björt framtíð er þögull og stefnu- laus flokkur sem þó vill opna landið. Yngsti þingmaðurinn lýsti í blaða- viðtali að hún þyldi ekki gamalt fólk því það ef- aðist um getu hennar á þingi – því- líkur hroki – og að hún ætlaði ekki að tala nema hún hefði eitthvað að segja, enda segir hún ekkert. Frábært að borga þessu fólki laun. Nú færist í vöxt hjá hroka- fullu ungu fólki að við hin eldri eigum ekkert að segja, að fram- tíðin sé þeirra, en engin framtíð er án fortíðar. Það hlýtur að vera einsdæmi í heiminum að afþökkuð sé reynsla og þekking þeirra eldri. Hvernig er farið með eldri kyn- slóðina, sem byggði hér allt upp? Jú, hún er reyrð niður og jafnvel svöng síðustu æviárin. Þið eruð öll til skammar á þingi, en lífsins karma mun bíta ykkur þótt síðar verði. Ég vildi ekkert gefa ykkur tölvur, ipod, niðurgreitt fæði, síma og allt það sem þið takið til ykkar af kökunni. Gaman væri að fá upp- gefna úttekt af ráðherrakortunum og hvaða vesalinga við höfum á ævilaunum. Þvílíkir hræsnarar, að gera samning við Kína og veita leyfi til olíuleitar. Mestu umhverfissóðum, manna- og dýraníðingum, sem eru með alheimsyfirráð á stefnuskrá sinni. Klingja engar viðvörunar- bjöllur í hausnum á ykkur? Samn- ingurinn mun stuðla að atvinnu- leysi og fleiru, borun á uppeldisstöðvum fisksins okkar, eitt slys er einu slysi of mikið. Við búum á eldfjallaeyju og hver verða áhrif borunar? Svo afsakið þið ykkur með því að koma betur að mannréttindum í gegnum samn- inginn. Þið vitið að þeim er ná- kvæmlega sama um álit ykkar, þeir fara sínu fram, eru löngu bún- ir að ákveða framtíðina. „Vinur, þegar þú vilt mér eitthvað“, nú ætlið þið að hjálpa til að arðræna Grænlendinga, hvað með það þó að eyjar sökkvi í suðurhöfum? Tæki og tól við sjálfa jökulröndina. Græðgin hefur yfirhöndina. Hver er Heiðar Már Guð- jónsson? Er búið að selja honum HS orku? Hvaðan kemur honum fé til þátttöku í olíuleit? Hvers leppur er hann? Hverjir eru að sprengja upp leiguverð með kaupum á íbúð- um, hvaðan kemur það fé? Áfram heldur viðbjóðurinn í stjórnlausu landi. Aldeilis ekki taka á þessum málum á þingi, enda getið þið það ekki. Svo í lokin. Birgitta Jóns og Björt framtíð: Hvers lensk viljið þið vera? Ég mótmæli Falun Gong-ruglinu og þessu heimsk- jaftæði, þið ráðið ekki við þau öfl. Fylgist þið ekki með heimsmál- unum? Komi til stríðs, þá skulið þið vita að engir eru vinirnir. Ég vona að þjóðin verði ekki illa úti vegna annarra ríkja, en búið er að stíga fyrstu skrefin til óljósrar framtíðar. Við erum stjórnlaus, agalaus og með gervilýðræði og heimóttarlega auðtrúa gagnvart umheiminum. Hættið þessari mik- ilmennsku, við erum smáþjóð, en góður konfektmoli handa Kínverj- um. STEFANÍA JÓNASDÓTTIR, Sauðárkróki. Kína og Alþingi Frá Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir Bréf til blaðsins - með morgunkaffinu Þú færð GO Walk skó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Palóma, Grindavík| Skóbúðin, Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.