Morgunblaðið - 20.02.2014, Qupperneq 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
FERMINGAR
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega
glæsilegt.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
7. mars.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Gjörningur á vegum Gjörn-
ingaklúbbsins verður frumfluttur í
Listasafni Íslands í kvöld.
„Þetta er viðamesti gjörningur
sem við höfum gert til þessa,“ segir
Sigrún Hrólfsdóttir, einn meðlima
Gjörningaklúbbsins, en auk hennar
eru í hópnum þær Jóní Jónsdóttir
og Eirún Sigurðardóttir.
„Það sem er nýstárlegt við þenn-
an gjörning er það hversu margir
koma að honum. Það eru dansarar,
leikarar, kvikmyndatökumenn, ljós-
myndarar og arkitektar sem koma
að verkinu. Í raun einhver úr öllum
listgreinum en það eru fimmtán
manns sem koma fram í sjálfu verk-
inu,“ segir Sigrún, en þess má geta
að fram koma listamenn á borð við
Sögu Sigurðardóttur dansara, Úlf
Grönvold leikmyndahönnuð og
Hildigunni Sverrisdóttur arkitekt.
Vilja hvíla rökhyggjuna
„Við erum að hvetja fólk til þess
að nýta öll skilningarvitin til þess að
upplifa heiminn. Það er mikilvægt
að hvíla rökhyggjuna og treysta
betur undirmeðvitundinni og þess-
um órökréttu tilfinningum sem
leynast innra með okkur. Þetta
sjáum við gjarnan þegar við upp-
lifum list eða erum ástfangin. Þær
tilfinningar sem við þá upplifum eru
oft á tíðum ekki mjög rökréttar.
Í sýningunni erum við að leggja
áherslu á að virkja öll skilning-
arvitin. Upplifunin verður því mjög
líkamleg, ef svo má að orði komast.
Reynt er að nota til dæmis lykt-
arskynið, heyrn og sjón. Fólk þarf
þó ekki að hræðast þetta. Þetta
verður allt saman mjög jákvætt.“
Eiga að mæta í svörtu
Athygli vekur að fólk er beðið um
að mæta í svörtum fötum og þær
segja að gripið verði til ráðstafana
fari gestir ekki að þeim fyr-
irmælum.
„Það komast aðeins 40 manns að í
hverri sýningu og við biðjum alla
gesti um að mæta svartklæddir.
Ástæðan er sú að áhorfendurnir eru
í vissum skilningi þátttakendur í
gjörningnum. Þeir tákna hinn
svarta massa í gjörningnum en
standa líka fyrir ákveðna nánd og
eru inni í verkinu.
Við erum að láta reyna á það
gjörningaform sem getur skapað
þessa ákveðnu nánd. Enginn verður
tekinn fyrir heldur eru áhorfendur
með nærveru sinni að skapa eina
heild og renna saman við verkið á
sérstakan hátt.“
Fylgja eigin fyrirmælum
Sigrún segir mikla vinnu liggja að
baki gjörningnum.
„Við gerðum einfaldari útgáfu af
þessu verki fyrst fyrir nokkrum ár-
um í Malmö og erum að byggja á
þeim grunni. Við höfum undirbúið
gjörninginn í langan tíma. Hug-
myndirnar sem liggja að baki eru
bæði nýjar og gamlar. Margar af
þessum hugmyndum eiga djúpar
rætur í okkar listsköpun í gegnum
tíðina. Við lögðum þrátt fyrir það
mikla áherslu á að fylgja sjálfar
okkar eigin fyrirmælum þ.e. að
hugsa minna og skynja meira.“
Eirún á von á því að gjörning-
urinn muni höfða til margra.
„Þetta er verk sem getur höfðað
til manns á mjög hráan hátt. Þá eru
líka margar vísanir í gjörningum til
dæmis í listasöguna, heimspeki og
svo framvegis sem margir ættu að
geta tengt við. Það er því hægt að
upplifa gjörninginn á marga vegu.
Þá er líka sérstakt við verkið að
maður fer á vissan hátt inn í verkið
og verður hluti af því og mörgum
ætti að finnast það spennandi upp-
lifun,“ segir Eirún.
Gjörningurinn fer fram dagana,
20., 21., 22. og 26., 27. og 28. febrúar
kl. 19.00 og 21.00 og komast aðeins
40 gestir á hvern gjörning. Hægt er
að panta miða í síma 783 8443 og
með því að senda póst á netfangið
gjorningaklubburinn@listasafn.is.
Miðaverð er 2.900 kr.
Hugsa minna og skynja meira
Með því viðamesta sem Gjörningaklúbburinn hefur gert til þessa Gestir mæti svartklæddir
Vilja virkja öll skynfærin Fjölmargir koma að gjörningnum Ekki ástæða til að hræðast
Morgunblaðið/Golli
Gjörningar Í kvöld verður frumsýning á gjörningi í Listasafni Íslands. Um er að ræða einn viðamesta gjörning sem Gjörningaklúbburinn hefur staðið að.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég nota þetta hugtak, vendipunkt,
sem aðgangshugtak að sýningunni,
en þetta er hugtak sem kemur
sennilega úr siglingafræði. Ég er
ekki orðsifjafræðingur en ég ímynda
mér að vendipunktur sé sá staður
þegar menn breyta um stefnu og að
þetta sé lýsandi orð fyrir það, þegar
aðstæður þvinga mann til að skipta
um stefnu. Þannig er vendipunktur
líklega einnig skilgreindur í stærð-
fræði og raunvísindum sem nauð-
synleg beygja eða breyting á stefnu
og sýningin er um það, þegar eitt
fyrirbæri hefur áhrif á annað þannig
að eitthvað gerist og það hefur aug-
ljósar afleiðingar,“ segir myndlist-
armaðurinn Kristinn E. Hrafnsson
um sýningu sína Vendipunkt, sem
opnuð verður í Hverfisgalleríi,
Hverfisgötu 4, í dag kl. 17.
– Það er væntanlega erfitt að lýsa
því með orðum hvernig þetta birtist í
verkunum?
„Já, það er það því verkin eiga að
miðla þessari hugsun og ég nota ým-
is meðöl til þess að koma henni til
skila. Hún á sér margar birting-
armyndir. Ég er með ljósmyndir,
textaverk, veggmyndir og skúlptúr
þannig að þetta birtist í ýmsum
formum,“ svarar Kristinn. „En í
grunninn má segja að sýningin sé
um það að skoða heiminn frá ýmsum
sjónarhornum.“
– Siglingafræði er þér greinilega
hugleikin, þú sóttir innblástur í hana
fyrir sýningu þína Misvísun í Lista-
safninu á Akureyri árið 2012.
„Já, siglingafræðin er náttúrlega
myndlíking fyrir lífið og hún er mikil
uppspretta. Þegar ég fór að kynna
mér siglingafræði lenti ég fljótt í því
að fara út í himingeiminn og þegar
maður kemur þangað bogna allar
línur. Þá eru nánast engar beinar
línur og frásögnin orðin allt önnur
og þessi lögmál um vendipunkta eru
þar virk út af þyngdarafli og stöð-
ugri hreyfingu. Enginn hlutur hreyf-
ist í beina línu heldur eru alltaf ein-
hverjar kúrfur, allt á hreyfingu í
einhverja átt og eitt element hefur
áhrif á annað,“ segir Kristinn.
Vefsíða Kristins: www.keh.is.
Breytt um stefnu
Myndlistarmaðurinn Kristinn E. Hrafnsson opnar sýn-
ingu á nýjum verkum, Vendipunkt, í Hverfisgalleríi í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vendipunktar Kristinn við verk sín í Hverfisgalleríi í gær.