Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 22
Jack komst í heimsfréttirnar á síðasta ári þeg-ar hann fann aðferð til að greina krabbameiní brisi á frumstigi, bæði á skjótan og ódýran máta. Hann kallar sjálfan sig vísindanörd en honum hefur alltaf gengið mjög vel í skóla, svo vel að foreldrar hans höfðu ofan af fyrir honum með því að láta hann hafa allskonar vísindaverk- efni þegar heimanámið þraut. Pabbi hans er verkfræðingur og mamma hans svæfingalæknir og þau viðurkenna að þau séu kannski frekar vísindalega sinnuð fjölskylda. Jack og eldri bróð- ir hans, Luke, hafa fengið afnot af kjallaranum á heimili þeirra til að sinna áhugamálinu, vísindum og gera þar alls konar tilraunir. Luke tók eitt sinn upp á því að búa þar til nítróglyserín, bara til að sjá hvort hann gæti það. Þeir bræður hafa enda fengið tilkynningu frá FBI um að vegna þess hvaða efni og búnað þeir hafi keypt á netinu sé Alríkislögreglan farin að hafa auga með því hvað þeir gera á netinu. Vissi varla hvað bris var fyrst um sinn Þegar fjölskylduvinur lést úr briskrabbameini fyrir þremur árum fór Jack að kynna sér sjúk- dóminn og það hvers vegna svo erfiðlega gangi að vinna bug á honum. Hann – sem segist sjálfur varla hafa vitað hvað bris væri fyrir þann tíma – sá fljótlega að vandamálið er helst það að meinið greinist ekki fyrr en það er farið að breiðast út og því orðið illviðráðanlegt af þeim sökum; bar- áttan við krabbameinið hófst alltaf of seint til að geta verið árangursrík. Jack ákvað því að finna leið til að greina briskrabbamein á byrjunarstigi og lagðist yfir lesefni um sjúkdóminn. Þetta átti hug hans allan í nokkra mánuði og loks fékk hann hugljómun í miðjum líffræðitíma, þegar hann var að stelast til að lesa læknatímarit. Kennarinn hans varð ekkert sérstaklega hrifinn og gerði blaðið upptækt til að geta fengið frið til að kenna en Jack fór heim og tilkynnti for- eldrum sínum að hann þyrfti bara að finna rann- sóknarstofu til að geta þróað aðferðina! Það segir sig sjálft að fjórtán ára gagnfræðaskólanema er ekki hleypt inn í hvaða rannsóknarstofu sem er en eftir fjóra mánuði, og margar neitanir, fékk Jack uppörvandi svar frá prófessor við John Hopkins-háskólann. Honum fannst hugmyndin þess virði að láta á hana reyna og fékk Jack að mæta á rannsóknarstofu þar eftir skóla og um helgar til að prófa aðferðina. Eftir sjö mánuði var ljóst að hún virkar mjög vel og Jack dansaði um rannsóknastofuna í gleðivímu. Talar á ráðstefnum víða um heim Aðferðina þarf hins vegar að prófa vandlega áður en hún verður viðurkennd sem áreiðanleg, lækn- isfræðileg greining á briskrabbameini en vonast er til að eftir nokkur ár geti heilsugæslulæknar og -hjúkrunarfræðingar greint briskrabbamein á byrjunarstigi og að jafnvel verði hægt að kaupa svona próf í hvaða apóteki sem er. Jack Andraka er nú byrjaður að skoða í hvaða háskóla hann eigi að fara en inni á milli þess sem hann mætir í skólann ferðast hann um heiminn og talar á hinum og þessum ráðstefnum. Hann hefur hitt forseta Bandaríkjanna og ávarpar reglulega fremstu vísindamenn og krabbameins- lækna heims. Hann er stöðugt að velta hlutum fyrir sér en segir það ekki kappsmál að fylgja hugmyndum sínum til enda, hann er meira en til í að leyfa öðrum að prófa og þróa hugmyndirnar sem hann fær – hugur hans er svo frjór að Jack vill geta einbeitt sér að því að finna lausnir á vandamálum. „Ég held ekki að ég sé eitthvað rosalega gáfaður, ég þekki fólk sem er mun gáf- aðra en ég. En ef þú býrð ekki yfir sköp- unargáfu til að nýta þekkinguna sem þú hefur, þá siturðu bara uppi með haug af þekkingu og ekkert annað. Þá ertu bara eins og hver annar snjallsími,“ sagði vísindamaðurinn Jack Andraka í viðtali við 60 mínútur. Heimasíða Jack Andraka www.jackandraka.net „Ekki rosalega gáfaður“ Jack Andraka (til vinstri) ásamt félaga sínum á samkomu í New York-borg. Jack er aðeins 17 ára og þykir undrabarn fyrir það finna út aðferð til að greina krabbamein í brisi á frumstigi. AFP JACK ANDRAKA ER 17 ÁRA STRÁKUR FRÁ MARYLAND Í BANDARÍKJUNUM SEM HÆGT ER AÐ FLETTA UPP Á Í WIKIPEDIA. ÞAR ER HANN TITLAÐUR „VÍSINDAMAÐUR“, „UPPFINNINGAMAÐUR“ OG „KRABBAMEINSRANNSAK- ANDI“. JÁ, ÞIÐ LÁSUÐ RÉTT, HANN ER 17 ÁRA. Texti: Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjörgrosa@gmail.com 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014 Heilsa og hreyfing „Þessi æfing virkar vel á bæði neðri búk og efri búk, þá sérstaklega axl- irnar en tekur einnig á aftan í læri. Gerðu þessa æfingu rólega og vand- aðu þig vel,“ segir Silja Úlfarsdóttir, einkaþjálfari og fyrrverandi afreks- maður í frjálsum íþróttum. „Til þess að framkvæma þessa æf- ingu þarft þú æfingateygju sem er um það bil 1,5-2 metra löng. Æfing- in er endurtekin tíu sinnum á hvorn fót en gerð eru þrjú sett af henni. Ásamt því að taka smá pásu inn á milli.“ ÆFING VIKUNNAR Standandi framstig og axlarlyfta 1 Byrjaðu á því að koma þér fyrir,stígðu með fremri fót á miðja teygjuna og haltu í hvorn endann. 2 Rólega beygirðu þig niður í framstigs-hreyfingunaog á sama tíma ætlarðu að lyfta höndunum beint út til hliðar, eins hátt og þú getur. 3 Næst stendurðu aftur upprólega og setur hendurnar niður. Endurtekið. Morgunblaðið/Rósa Braga Vissir þú að fætur hafa fleiri en 500 þúsund svitakirtla og geta framleitt meira en hálfan lítra af svita á dag? Það útskýrir eflaust að gamlir sokkar lykta töluvert verr en önnur föt. Það er því ráð að skrúbba fæturna vel í næstu sturtuferð. Yfir 500.000 svitakirtlar BARÁTTAN VIÐ KRABBAMEIN HÓFST OF SEINT Jack vill geta einbeitt sér að því að finna lausnir á vandamálum. Krabbamein er þar á meðal. Morgunblaðið/Ásdís Í stuttu máli eykst magn ákveðins prótíns í blóðinu um leið og krabbamein fer að herja á brisið. Jack þróaði próf sem felst í því að einn lítill blóðdropi er settur á pappírsstrimil sem sýnir magn prótínsins og þótt hækkun þess sé ekki endilega alltaf vísbending um briskrabbamein, þá mælist hækkunin mjög snemma í 90% tilvika þeg- ar um krabbamein í brisi er að ræða. Þannig verður vonandi hægt að finna bris- krabbamein á algjöru frumstigi á fljótlegan, einfaldan og ódýran hátt í framtíðinni, þökk sé hugvitssemi þessa unga vísindamanns. Þróaði einfalt og ódýrt próf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.