Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 49
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 heim til okkar þegar við vorum lítil og hitta pabba prívat. Við héldum að þetta væri eitthvað tengt vinnunni hans, það var ekkert óeðli- legt við það því hann starfaði í þannig geira, var verslunarmaður.“ Litum á okkur sem þjóna fólksins Þór gekk til liðs við lögregluna nítján ára. „Þessir menn sem voru í lögreglunni þá voru þvílíkir englar; mannþekkjarar sem höfðu mikinn áhuga á starfinu og litu á sig sem þjóna fólksins. Samfélagið var auð- vitað minna en maður gekk í mörg ólík verkefni sem þættu kannski óhugsandi í dag. Ég lenti í því eitt sinn að vera kallaður að heimili þar sem ungbarn hafði verið skilið eftir í vöggu meðan mamman fór á ball. Mér var svona hálfpartinn afhent barnið, ég fékk aðstoð við að blanda pelann, skipti á því og endaði á því að passa það alla nóttina. Þegar mamman kom um morguninn var hún drukkin og með drukkinn karl- mann með sér. Barnaverndarnefnd bað mig að hafa barnið heima hjá mér meðan rynni af móðurinni, sem ég og gerði og hafði það hjá mér og fjölskyldu minni uns barnavernd- arnefnd kom daginn eftir.“ Þór starfaði einnig um tíma sem lögregluþjónn hjá Sameinuðu þjóð- unum og frægt er það mál sem komst í blöðin þegar Þór, ásamt öðr- um starfsmönnum stofnunarinnar, var í mikilli hættu í Beirút í Líbanon vegna hernaðarátaka þar í landi árið 1976. Þar segist hann hafa fundið fyrir því að eitthvað sem hann gat ekki útskýrt leiddi hann af stað í gegnum þær ógöngur en hann og félagar hans festust í bílalest inni í landinu í fjóra daga þar sem stríð geisaði allt í kringum þá. Fannstu fyrir einhverju öðru sem þú gast ekki útskýrt á þeim langa tíma sem þú starfaðir hjá lögregl- unni? „Ég held að „þeir“, leiðbeinendur Þór Gunnlaugsson er þekkturlæknamiðill og heilari hér íborg en í nokkur ár, eða frá því hann fór á eftirlaun, hefur hann tekið á móti fólki á heimili sínu. Þór lætur ekki mikið yfir sér, er vina- legur með stórt bros og býður blaðamanni inn í íbúð sína í Krummahólum. Hann er einn þeirra miðla sem fólk spjallar um á netinu og símanúmer hans gengur manna á milli. Undirrituð hafði heyrt af honum úr ótal ólíkum áttum og var til dæmis búin að vera með númerið hans í töskunni í að minnsta kosti ár áður en hringt var í hann vegna viðtalsins. Þór á svolítið óvenjulegan bakgrunn fyrir miðil. Hann starfaði alla sína ævi sem lögreglumaður. Þór ólst upp í Vesturbænum, gekk í Melaskóla og lék sér meðal annars með börnunum í Kamp Knox. Var hann næmur sem barn? „Mér er sagt það. Þegar ég var fimm eða sex ára var KFUM með helgarnámskeið fyrir börn sem ég var sendur á en sú dvöl stóð stutt því stuttu eftir að faðir minn skilaði mér uppeftir var hringt í hann og honum sagt að hann yrði að sækja mig. Ég vissi ekki fyrr en löngu síð- ar að þá var ég kominn upp á háa- loft að leika mér við krakka sem enginn sá. Þá fékk ég einnig að vita síðar að faðir minn fór eitt sinn að heimsækja Ragnhildi Gottskálks- dóttur, sem var þekktur miðill í Tjarnargötunni, og hafði mig með sér. Þegar við komum þangað sagði hún að það yrði ekki pláss fyrir allt þetta fólk sem fylgdi mér inni hjá henni. Pabbi náttúrlega sá engan en það varð úr að hún fékk dóttur sína til að passa mig frammi í anddyri meðan pabbi var hjá henni á fund- inum. Löngu síðar komst ég að því að pabbi minn, afi og langafi höfðu haft þessa hæfileika. Þetta var bara feimnismál. En það skýrði margt fyrir mér og systur minni. Til dæm- is það að fólk var alltaf að koma mínir að handan, hafi passað alla tíð að opna snöggt fyrir mín vit og loka aftur án þess að ég fattaði það. Það komu upp mál sem fóru illa í mig og ég tók nærri mér enda er maður í gegnum þetta starf búinn að koma að ótrúlegustu hlutum. Maður mátti ekki missa þetta inn í hjartastöðina sína. Ég fann stundum sitthvað á mér en þegar ég tók þá ákvörðun að fara á eftirlaun, og svona undir það síðasta í lögreglustarfinu, fór að koma ýmislegt upp og ég fann að það var eitthvað í gangi. Ég fór á miðilsfund og fékk þau skilaboð að það yrði ekki opnað fyrir þetta hjá mér fyrr en ég hætti að vinna því þá færi ég á hvolf inn í þeirra heim.“ Þór nefnir nokkur af þeim fjöl- breyttu verkefnum sem berast á hans borð. Fólk kemur vegna kvíða, bakverkja, vöðvabólgu, orku- og svefnleysis og óteljandi annarra kvilla, konur og karlar. Þá er leitað til hans vegna myrkfælni og ýmiss konar óþæginda. Raunar prófaði blaðamaður að leggjast á bekkinn og Þór lagði heitar hendur yfir hann. Þór spurði út í ýmsa líkams- parta og spurði út í verki hér og þar og það stóð heima. Hann til- kynnti blaðamanni jafnframt að „þeir“ myndu koma síðar þetta kvöld og bæta svefn og nætur- svefninn var með mestu ágætum. Þór segir að næm börn hafi hann stundum hitt þar sem foreldrar hafi áhyggjur af því að börnin upplifi of mikið af einhverju óútskýranlegu í kringum sig og raunar nefnir hann Vestfirði sérstaklega, hann segir það stað þar sem óvenjumargir ein- staklingar sjái lengra en nef þeirra nær. Vinsælar bænastundir í Fossvogskirkju Þór hefur heimsótt fólk á sjúkrahús og leitt bænastundir í Fossvogs- kirkju fyrir fullu húsi. Samveru- stundirnar hafa verið opnar fyrir alla sem „þiggja vilja innblástur í hjartarótina vegna vanlíðunar eða annarra orsaka“, eins og segir á heimasíðu þjóðkirkjunnar. Þór varð hins vegar fyrir því óhappi að hryggbrjóta sig á síðasta ári og bænastundirnar hafa því þurft að bíða um sinn en hann segir að stefnt sé að því að næsta haust verði þær aftur settar af stað. Þór er þá einn þeirra miðla sem nýta sér netið í kynningu á starfi sínu og er með heimasíðuna thorgu.123.is. Tvisvar til þrisvar á ári hefur Þór farið til Stansted í Bretlandi og sótt kúrsa í einum virtasta miðlaskóla Bretlands; Arthur Finley College í Stansted. Hann á stutt eftir í því námi til að öðlast starfsréttindi sem miðill og getur þá starfað sem miðill um allt evrópska efnahagssvæðið. Slíkir miðlar fá þá að vinna í kirkjum þar í landi og inni á sjúkrahúsum. Þór segir að hér heima hafi hann átt erfitt með að finna einhvern til að leiðbeina sér í að þroska hæfileika sína og þróa og því hafi hann ákveð- ið að fara út. „Sumir miðlar fara aldrei úr stólnum hjá sér en ég hef þurft að ferðast um allar trissur, fengið skilaboð um að sækja ákveðna staði á Íslandi og einnig um að ég þurfi að fara utan til að fá tengingar. Þannig fór ég í eftirminnilega ferð til Indlands árið 2007 sem ég segi til dæmis frá á heimasíðunni minni og ég mun fara þangað aftur veit ég og ferðast þá til suðurhluta landsins.“ Hvað finnst þér mikilvægast í starfi þínu sem miðill? „Aðalatriðið er að sýna heilindi. Við miðlarnir sjálfir gerum ekki neitt, við erum bara millistykki; þótt ég sjái líkamann með röntgen- skynjun og finni eru það aðrir sem vinna bak við tjöldin. Mér finnst mér hafa verið sýnd mikil forréttindi.“ ÞÓR GUNNLAUGSSON Goðsögn í Breiðholtinu ÞÓR GUNNLAUGSSON FANN ÝMISLEGT Á SÉR ÞÁ ÁRATUGI SEM HANN STARFAÐI SEM LÖGREGLUÞJÓNN, HÉR HEIMA OG FYRIR SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR. Tvisvar til þrisvar á ári hefur Þór Gunnlaugsson sótt kúrsa í einum virtasta miðlaskóla Bretlands; Arthur Finley College. * Ég fann stundum sitthvað á mér enþegar ég tók þá ákvörðun að fara áeftirlaun, og svona undir það síðasta í lögreglustarfinu, fór að koma ýmislegt upp og ég fann að það var eitthvað í gangi.“ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. Exide rafgeymarnir fást hjá:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.