Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 49
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
heim til okkar þegar við vorum lítil
og hitta pabba prívat. Við héldum
að þetta væri eitthvað tengt
vinnunni hans, það var ekkert óeðli-
legt við það því hann starfaði í
þannig geira, var verslunarmaður.“
Litum á okkur sem
þjóna fólksins
Þór gekk til liðs við lögregluna
nítján ára. „Þessir menn sem voru í
lögreglunni þá voru þvílíkir englar;
mannþekkjarar sem höfðu mikinn
áhuga á starfinu og litu á sig sem
þjóna fólksins. Samfélagið var auð-
vitað minna en maður gekk í mörg
ólík verkefni sem þættu kannski
óhugsandi í dag. Ég lenti í því eitt
sinn að vera kallaður að heimili þar
sem ungbarn hafði verið skilið eftir
í vöggu meðan mamman fór á ball.
Mér var svona hálfpartinn afhent
barnið, ég fékk aðstoð við að blanda
pelann, skipti á því og endaði á því
að passa það alla nóttina. Þegar
mamman kom um morguninn var
hún drukkin og með drukkinn karl-
mann með sér. Barnaverndarnefnd
bað mig að hafa barnið heima hjá
mér meðan rynni af móðurinni, sem
ég og gerði og hafði það hjá mér og
fjölskyldu minni uns barnavernd-
arnefnd kom daginn eftir.“
Þór starfaði einnig um tíma sem
lögregluþjónn hjá Sameinuðu þjóð-
unum og frægt er það mál sem
komst í blöðin þegar Þór, ásamt öðr-
um starfsmönnum stofnunarinnar,
var í mikilli hættu í Beirút í Líbanon
vegna hernaðarátaka þar í landi árið
1976. Þar segist hann hafa fundið
fyrir því að eitthvað sem hann gat
ekki útskýrt leiddi hann af stað í
gegnum þær ógöngur en hann og
félagar hans festust í bílalest inni í
landinu í fjóra daga þar sem stríð
geisaði allt í kringum þá.
Fannstu fyrir einhverju öðru sem
þú gast ekki útskýrt á þeim langa
tíma sem þú starfaðir hjá lögregl-
unni?
„Ég held að „þeir“, leiðbeinendur
Þór Gunnlaugsson er þekkturlæknamiðill og heilari hér íborg en í nokkur ár, eða frá
því hann fór á eftirlaun, hefur hann
tekið á móti fólki á heimili sínu. Þór
lætur ekki mikið yfir sér, er vina-
legur með stórt bros og býður
blaðamanni inn í íbúð sína í
Krummahólum. Hann er einn þeirra
miðla sem fólk spjallar um á netinu
og símanúmer hans gengur manna
á milli. Undirrituð hafði heyrt af
honum úr ótal ólíkum áttum og var
til dæmis búin að vera með númerið
hans í töskunni í að minnsta kosti
ár áður en hringt var í hann vegna
viðtalsins. Þór á svolítið óvenjulegan
bakgrunn fyrir miðil. Hann starfaði
alla sína ævi sem lögreglumaður.
Þór ólst upp í Vesturbænum,
gekk í Melaskóla og lék sér meðal
annars með börnunum í Kamp
Knox. Var hann næmur sem barn?
„Mér er sagt það. Þegar ég var
fimm eða sex ára var KFUM með
helgarnámskeið fyrir börn sem ég
var sendur á en sú dvöl stóð stutt
því stuttu eftir að faðir minn skilaði
mér uppeftir var hringt í hann og
honum sagt að hann yrði að sækja
mig. Ég vissi ekki fyrr en löngu síð-
ar að þá var ég kominn upp á háa-
loft að leika mér við krakka sem
enginn sá. Þá fékk ég einnig að vita
síðar að faðir minn fór eitt sinn að
heimsækja Ragnhildi Gottskálks-
dóttur, sem var þekktur miðill í
Tjarnargötunni, og hafði mig með
sér. Þegar við komum þangað sagði
hún að það yrði ekki pláss fyrir allt
þetta fólk sem fylgdi mér inni hjá
henni. Pabbi náttúrlega sá engan en
það varð úr að hún fékk dóttur sína
til að passa mig frammi í anddyri
meðan pabbi var hjá henni á fund-
inum.
Löngu síðar komst ég að því að
pabbi minn, afi og langafi höfðu haft
þessa hæfileika. Þetta var bara
feimnismál. En það skýrði margt
fyrir mér og systur minni. Til dæm-
is það að fólk var alltaf að koma
mínir að handan, hafi passað alla tíð
að opna snöggt fyrir mín vit og loka
aftur án þess að ég fattaði það. Það
komu upp mál sem fóru illa í mig
og ég tók nærri mér enda er maður
í gegnum þetta starf búinn að koma
að ótrúlegustu hlutum. Maður mátti
ekki missa þetta inn í hjartastöðina
sína. Ég fann stundum sitthvað á
mér en þegar ég tók þá ákvörðun
að fara á eftirlaun, og svona undir
það síðasta í lögreglustarfinu, fór að
koma ýmislegt upp og ég fann að
það var eitthvað í gangi. Ég fór á
miðilsfund og fékk þau skilaboð að
það yrði ekki opnað fyrir þetta hjá
mér fyrr en ég hætti að vinna því
þá færi ég á hvolf inn í þeirra
heim.“
Þór nefnir nokkur af þeim fjöl-
breyttu verkefnum sem berast á
hans borð. Fólk kemur vegna kvíða,
bakverkja, vöðvabólgu, orku- og
svefnleysis og óteljandi annarra
kvilla, konur og karlar. Þá er leitað
til hans vegna myrkfælni og ýmiss
konar óþæginda. Raunar prófaði
blaðamaður að leggjast á bekkinn
og Þór lagði heitar hendur yfir
hann. Þór spurði út í ýmsa líkams-
parta og spurði út í verki hér og
þar og það stóð heima. Hann til-
kynnti blaðamanni jafnframt að
„þeir“ myndu koma síðar þetta
kvöld og bæta svefn og nætur-
svefninn var með mestu ágætum.
Þór segir að næm börn hafi hann
stundum hitt þar sem foreldrar hafi
áhyggjur af því að börnin upplifi of
mikið af einhverju óútskýranlegu í
kringum sig og raunar nefnir hann
Vestfirði sérstaklega, hann segir
það stað þar sem óvenjumargir ein-
staklingar sjái lengra en nef þeirra
nær.
Vinsælar bænastundir
í Fossvogskirkju
Þór hefur heimsótt fólk á sjúkrahús
og leitt bænastundir í Fossvogs-
kirkju fyrir fullu húsi. Samveru-
stundirnar hafa verið opnar fyrir
alla sem „þiggja vilja innblástur í
hjartarótina vegna vanlíðunar eða
annarra orsaka“, eins og segir á
heimasíðu þjóðkirkjunnar. Þór varð
hins vegar fyrir því óhappi að
hryggbrjóta sig á síðasta ári og
bænastundirnar hafa því þurft að
bíða um sinn en hann segir að
stefnt sé að því að næsta haust
verði þær aftur settar af stað. Þór
er þá einn þeirra miðla sem nýta
sér netið í kynningu á starfi sínu og
er með heimasíðuna thorgu.123.is.
Tvisvar til þrisvar á ári hefur Þór
farið til Stansted í Bretlandi og sótt
kúrsa í einum virtasta miðlaskóla
Bretlands; Arthur Finley College í
Stansted. Hann á stutt eftir í því
námi til að öðlast starfsréttindi sem
miðill og getur þá starfað sem miðill
um allt evrópska efnahagssvæðið.
Slíkir miðlar fá þá að vinna í kirkjum
þar í landi og inni á sjúkrahúsum.
Þór segir að hér heima hafi hann átt
erfitt með að finna einhvern til að
leiðbeina sér í að þroska hæfileika
sína og þróa og því hafi hann ákveð-
ið að fara út. „Sumir miðlar fara
aldrei úr stólnum hjá sér en ég hef
þurft að ferðast um allar trissur,
fengið skilaboð um að sækja ákveðna
staði á Íslandi og einnig um að ég
þurfi að fara utan til að fá tengingar.
Þannig fór ég í eftirminnilega ferð til
Indlands árið 2007 sem ég segi til
dæmis frá á heimasíðunni minni og
ég mun fara þangað aftur veit ég og
ferðast þá til suðurhluta landsins.“
Hvað finnst þér mikilvægast í
starfi þínu sem miðill?
„Aðalatriðið er að sýna heilindi.
Við miðlarnir sjálfir gerum ekki
neitt, við erum bara millistykki; þótt
ég sjái líkamann með röntgen-
skynjun og finni eru það aðrir sem
vinna bak við tjöldin. Mér finnst mér
hafa verið sýnd mikil forréttindi.“
ÞÓR GUNNLAUGSSON
Goðsögn
í Breiðholtinu
ÞÓR GUNNLAUGSSON FANN ÝMISLEGT Á SÉR ÞÁ
ÁRATUGI SEM HANN STARFAÐI SEM LÖGREGLUÞJÓNN,
HÉR HEIMA OG FYRIR SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR.
Tvisvar til þrisvar á ári hefur Þór Gunnlaugsson sótt kúrsa í einum virtasta miðlaskóla Bretlands; Arthur Finley College.
* Ég fann stundum sitthvað á mér enþegar ég tók þá ákvörðun að fara áeftirlaun, og svona undir það síðasta í
lögreglustarfinu, fór að koma ýmislegt upp
og ég fann að það var eitthvað í gangi.“
EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir bifreiða.
Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
Exide rafgeymarnir fást hjá: