Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 38
*Föt og fylgihlutir Snákamunstur, hlébarðamunstur og ýmis dýramunstur eru sjóðheit um þessar mundir »40 H vernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Ég held að ég sé svoddan ei- lífðarunglingur, mér finnst gaman að ögra því hefðbundna og vera tilraunagjörn. Ég myndi segja að stíllinn einkenndist af afslöppuðum sniðum og skipulögðu kaosi hvað varðar efni, en ég elska að setja sam- an liti og munstur til þess að fá óvænta niðurstöðu. Ég vil einungis ganga í fötum og efnum sem mér líður vel í og eru þægileg en mér finnst fólk alls ekki líta vel út í fötum sem því líður illa í. Til dæmis forðast ég það að ganga í gallabuxum, há- hæluðum skóm og brjóstahaldara með víraspöng vegna þess að mér finnst óþægi- legt að klæðast því. Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut? Ég á nokkrar flíkur sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér en það eru til dæmis peysa frá Munda með blóðkornamunstri sem ég keypti fyrir nokkrum árum en hún er það besta sem ég veit um á veturna, að vera í peysunni er eins og klæðast unaðslegu teppi. Önnur peysa sem er í miklu uppáhaldi hjá mér er Oprah-peysan mín sem kærastinn minn gaf mér í jólagjöf, vegna þess að Oprah er bara svo mikill gleðigjafi. Uppáhaldsfylgihluturinn minn er heklaður kragi í öllum regnbogans litum sem var keyptur í Aftur, það skemmir ekki fyrir að þessi dýrindisflík er gerð úr endurnýttu garni. Ætlar þú að festa kaup á einhverju sérstöku fyrir vorið? Ég var að kaupa mér Kenzo-derhúfu sem mig hefur langað í síðan síðasta sumar, ég talaði meira að segja um það upp úr svefni og fannst það ágætismerki um þetta væri eitthvað sem mig langaði virkilega í fyrir alvöru og að ég ætti að láta það eftir mér fyrir vorið. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að klæðaburði? Ég hef vanið mig á að virða vel fyrir mér vöruna sem ég ætla að kaupa, hvers konar efni er í henni og hvar hún er framleidd. Því miður eru sjaldnast nákvæmar upp- lýsingar um hvar og hvernig flíkur eru framleiddar en það fer mjög fyrir brjóstið á mér að margar af flíkunum í vinsælustu tískuverslununum eru framleiddar í verksmiðjum þar sem kjör eru bág og aðstæður hræðilegar, oft beinlínis lífshættu- legar. Ég reyni mitt besta til að vera meðvituð um þetta þegar ég kaupi föt og bera virðingu fyrir flíkunum sem ég kaupi. Ég mæli með að kaupa sjaldnar föt en vanda valið; frekar kaupa fáar flíkur sem eru vandaðar og hafa hærri gæðastimpil en að kaupa mjög mikið magn af flíkum sem kosta minna en endast ekki jafnvel. Hvar kaupir þú helst föt? Yfirleitt sjaldan á sama staðnum og í sömu búðum, yf- irleitt rekst ég á eitthvað sem grípur mig frekar en að vera í leit að einhverju sér- stöku. Þegar ég er erlendis nýti ég mér það að versla í búðum sem selja vörur eft- ir uppáhaldshönnuðina mína. Uppáhaldsbúðin mín hér heima var Mundi’s boutique en ég er líka mjög hrifin af Aftur, Geysi og elska þegar ég finn gersemar í Rauða- krossbúðunum. Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Ætli það sé ekki þegar ég fór til Antwerpen og keypti mér prjónaðar gulllitaðar buxur með froskamunstri eftir uppáhaldshönnuðinn minn, Bernhard Willhelm. En þau verstu? Ég verð að nefna það þegar ég var 13 ára og keypti síða kápu í Mótor sem var samansett úr panelum úr gallaefni og riffluðu flaueli sem var alls konar á litinn. Til að toppa þetta var gerviloðfeldur á kraganum, neðan á flíkinni og neðan á ermunum. Þetta er án efa ljótasta flík sem ég hef séð en mér þykir samt svo vænt um hana vegna þess að hún rifjar upp svo góðar og vandræðalegar minningar og hefur oft orðið aðhláturs- efni vinahópsins. Ég verð eiginlega bara að ramma hana inn og hengja upp á vegg. Hvaðan sækir þú innblástur? Ég sæki inn- blástur til uppáhaldshönnuðanna minna og þar sem ég er mikill tónlistarunnandi myndi ég segja að ég sækti innblástur til tónlist- arfólks sem ég held upp á. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, ég vil ekki skilja neina flík útundan og vil ekki takmarka notkunina á fötum með því að flokka einstakar flíkur sem spariflíkur. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Já, uppáhalds- hönnuðurnir mínir eru Bernhard Willhelm, Walter Van Beirendonck, Meadham Kirchkoff og Martin Margiela en ég held líka rosalega mikið upp á merkin Com- mes des Garcons, Moonspoonsaloon, Kenzo og Kokon To Zai. Morgunblaðið/Ómar FORÐAST AÐ GANGA Í GALLABUXUM Svoddan eilífð- arunglingur TANJA HULD LEVÝ GUÐMUNDSDÓTTIR STUNDAR NÁM Í TEXTÍL- HÖNNUN VIÐ MYNDLISTARSKÓLANN Í REYKJAVÍK. TANJA, SEM ER EINNIG MENNTAÐUR FATAHÖNNUÐUR, HEFUR MIKLAR SKOÐANIR Á TÍSKU OG HEFUR EINKAR ÁBERANDI OG FRUMLEGAN STÍL. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Tanja Huld í uppáhalds- peysunni sinni. Walter van Beirendonck er einn af eftir- lætishönn- uðum Tönju. Úr sumarlínu Bernhards Willhelms. Fallega Kenzo- derhúfan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.