Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 38
*Föt og fylgihlutir Snákamunstur, hlébarðamunstur og ýmis dýramunstur eru sjóðheit um þessar mundir »40
H
vernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Ég held að ég sé svoddan ei-
lífðarunglingur, mér finnst gaman að ögra því hefðbundna og vera
tilraunagjörn. Ég myndi segja að stíllinn einkenndist af afslöppuðum
sniðum og skipulögðu kaosi hvað varðar efni, en ég elska að setja sam-
an liti og munstur til þess að fá óvænta niðurstöðu. Ég vil einungis ganga í fötum
og efnum sem mér líður vel í og eru þægileg en mér finnst fólk alls ekki líta vel út
í fötum sem því líður illa í. Til dæmis forðast ég það að ganga í gallabuxum, há-
hæluðum skóm og brjóstahaldara með víraspöng vegna þess að mér finnst óþægi-
legt að klæðast því.
Áttu þér uppáhaldsflík eða -fylgihlut? Ég á nokkrar flíkur sem eru í algjöru
uppáhaldi hjá mér en það eru til dæmis peysa frá Munda með blóðkornamunstri
sem ég keypti fyrir nokkrum árum en hún er það besta sem ég veit um á veturna,
að vera í peysunni er eins og klæðast unaðslegu teppi. Önnur peysa sem er í miklu
uppáhaldi hjá mér er Oprah-peysan mín sem kærastinn minn gaf mér í jólagjöf,
vegna þess að Oprah er bara svo mikill gleðigjafi. Uppáhaldsfylgihluturinn minn
er heklaður kragi í öllum regnbogans litum sem var keyptur í Aftur, það skemmir
ekki fyrir að þessi dýrindisflík er gerð úr endurnýttu garni.
Ætlar þú að festa kaup á einhverju sérstöku fyrir vorið? Ég var að kaupa mér
Kenzo-derhúfu sem mig hefur langað í síðan síðasta sumar, ég talaði meira að
segja um það upp úr svefni og fannst það ágætismerki um þetta væri eitthvað sem
mig langaði virkilega í fyrir alvöru og að ég ætti að láta það eftir mér fyrir vorið.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó þegar kemur að klæðaburði? Ég
hef vanið mig á að virða vel fyrir mér vöruna sem ég ætla að kaupa, hvers konar
efni er í henni og hvar hún er framleidd. Því miður eru sjaldnast nákvæmar upp-
lýsingar um hvar og hvernig flíkur eru framleiddar en það fer mjög fyrir brjóstið
á mér að margar af flíkunum í vinsælustu tískuverslununum eru framleiddar í
verksmiðjum þar sem kjör eru bág og aðstæður hræðilegar, oft beinlínis lífshættu-
legar. Ég reyni mitt besta til að vera meðvituð um þetta þegar ég kaupi föt og
bera virðingu fyrir flíkunum sem ég kaupi. Ég mæli með að kaupa sjaldnar föt en
vanda valið; frekar kaupa fáar flíkur sem eru vandaðar og hafa hærri gæðastimpil
en að kaupa mjög mikið magn af flíkum sem kosta minna en endast ekki jafnvel.
Hvar kaupir þú helst föt? Yfirleitt sjaldan á sama staðnum og í sömu búðum, yf-
irleitt rekst ég á eitthvað sem grípur mig frekar en að vera í leit að einhverju sér-
stöku. Þegar ég er erlendis nýti ég mér það að versla í búðum sem selja vörur eft-
ir uppáhaldshönnuðina mína. Uppáhaldsbúðin mín hér heima var Mundi’s boutique
en ég er líka mjög hrifin af Aftur, Geysi og elska þegar ég finn gersemar í Rauða-
krossbúðunum.
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Ætli það sé ekki þegar ég fór til
Antwerpen og keypti mér prjónaðar gulllitaðar buxur með froskamunstri eftir
uppáhaldshönnuðinn minn, Bernhard Willhelm.
En þau verstu? Ég verð að nefna það þegar ég var 13 ára og keypti síða kápu í
Mótor sem var samansett úr panelum úr gallaefni og riffluðu flaueli sem var alls
konar á litinn. Til að toppa þetta var gerviloðfeldur á kraganum, neðan á flíkinni
og neðan á ermunum. Þetta er án efa ljótasta flík sem ég hef séð en mér þykir
samt svo vænt um hana vegna þess að hún rifjar upp svo góðar
og vandræðalegar minningar og hefur oft orðið aðhláturs-
efni vinahópsins. Ég verð eiginlega bara að ramma
hana inn og hengja upp á vegg.
Hvaðan sækir þú innblástur? Ég sæki inn-
blástur til uppáhaldshönnuðanna minna og
þar sem ég er mikill tónlistarunnandi myndi
ég segja að ég sækti innblástur til tónlist-
arfólks sem ég held upp á.
Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir
ekki að nota? Nei, ég vil ekki skilja neina
flík útundan og vil ekki takmarka notkunina á
fötum með því að flokka einstakar flíkur sem
spariflíkur.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Já, uppáhalds-
hönnuðurnir mínir eru Bernhard Willhelm, Walter Van Beirendonck, Meadham
Kirchkoff og Martin Margiela en ég held líka rosalega mikið upp á merkin Com-
mes des Garcons, Moonspoonsaloon, Kenzo og Kokon To Zai.
Morgunblaðið/Ómar
FORÐAST AÐ GANGA Í GALLABUXUM
Svoddan eilífð-
arunglingur
TANJA HULD LEVÝ GUÐMUNDSDÓTTIR STUNDAR NÁM Í TEXTÍL-
HÖNNUN VIÐ MYNDLISTARSKÓLANN Í REYKJAVÍK. TANJA, SEM ER
EINNIG MENNTAÐUR FATAHÖNNUÐUR, HEFUR MIKLAR SKOÐANIR
Á TÍSKU OG HEFUR EINKAR ÁBERANDI OG FRUMLEGAN STÍL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Tanja Huld í
uppáhalds-
peysunni sinni.
Walter van
Beirendonck
er einn af eftir-
lætishönn-
uðum Tönju.
Úr sumarlínu Bernhards Willhelms.
Fallega Kenzo-
derhúfan.