Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 50
E dda Karin Hjartardóttir Magna- son er í Svíþjóð þekkt tónlist- arkona og nú nýlega leikkona en hún var valin leikkona ársins 2013 í Svíþjóð þegar hún hlaut Gullbjölluna fyrir aðalhlutverk í kvikmynd- inni Monica Z. Þetta þykja stórmerkileg tíð- indi þar sem Edda er hvorki menntuð leik- kona né hafði hún leikið áður þegar hún tók að sér hlutverk djasssöngkonunnar Monicu Zetterlund. Okkur Íslendingum þykir auðvit- að merkilegast að uppgötva að Edda Magna- son, eins og nafnið gefur til kynna, er ís- lensk. „Faðir minn er íslenskur og býr reyndar á Íslandi sem og öll föðurfjölskyldan mín,“ seg- ir Edda sem skilur íslensku vel þótt hún treysti sér ekki til að nota hana í viðtalinu. Fyrir ekki mörgum árum var hún þó nokkuð sleip í tungumálinu og talaði íslensku ágæt- lega en þá dvaldi hún í sex mánuði samfleytt hérlendis, vann í frystihúsi, ísbúð og sótti ís- lenskunámskeið. Hún segist viss um að ef hún dveldi á Íslandi í lengri tíma myndi mál- ið fljótt rifjast upp. Og hún segir að ensku- framburður hennar sé engan veginn líkur því sem Svíar bera enskuna fram heldur er hann mun líkari þeim framburði sem Íslendingar eru þekktir fyrir. „Ég ólst upp í Svíþjóð, í stórum systk- inahópi, ég á sex systkini alls, þrjár systur og þrjá bræður.“ Á milli systkina Eddu eru ekki mörg ár svo að systkinahópurinn var fjörugur en fimm þeirra eru einnig hálf- íslensk. Þau hafa farið ólíkar leiðir í lífinu, til dæmis er einn bróðir hennar kokkur, hún á systur sem er hjúkrunarfræðingur en þó á hún bróður sem starfar við kvikmyndagerð. „Við bjuggum í dreifbýli, rétt fyrir utan Malmö en foreldrar mínir voru þó ekki í neinum sveitastörfum – pabbi er dýralæknir og mamma mín hjúkrunarfræðingur. Svo skildu foreldrar mínir að skiptum og pabbi býr nú á Egilsstöðum og starfar þar við sitt fag. Ég kem því talsvert til Íslands, að minnsta kosti einu sinni á ári og Ísland er má segja mín vin – staðurinn sem ég „flý“ til frá striti og þegar ég þarf að hvílast og hlaða batteríin. Ef ég fer í frí fer ég til Íslands.“ Á Íslandi snýst allt um mat Edda hefur lýst því yfir í viðtölum úti hvern- ig föðuramma hennar hafi kveikt söng- áhugann þegar Edda heyrði hana syngja Heims um ból. Sjálfri finnst henni hún hafa sterk tengsl við landið. „Ég fæ mér alltaf „eina með öllu“ þegar ég kem til Íslands og raunar snýst allt voðalega mikið um mat þeg- ar ég er þar, að borða og sækja sundlaug- arnar. Ég eyði yfirleitt fjórum vikum í senn á landinu og er þá dugleg að ferðast með pabba á jeppanum hans. Það er reyndar fast- ur liður að við keyrum frá Reykjavík til Eg- ilsstaða, það er engin Íslandsferð án þess.“ Þennan dag sem Edda spjallar við blaða- mann er hún á leiðinni til Berlínar daginn eftir þar sem henni var svo hampað sem einni af tíu vonarstjörnum Evrópu. Var hún valin á svokallaðan „Shooting Star“-lista en það er European Film Promotion sem velur árlega 10 efnilega leikara til að kynna fyrir þekktum leikstjórum og kvikmyndaframleið- endum. Fyrir það fyrsta kom það Eddu veru- lega á óvart að fá hlutverk Monicu Zetter- lund þar sem hún hafði ekki numið leiklist og hvergi leikið og þá voru það ekki síður óvænt og gleðileg tíðindi af hreppa Gullbjölluna. Monicu Zetterlund sem myndin fjallar um var og er ein dáðasta söngkona Svía en hún lést árið 2005. Það var því hreint út sagt tilfinningamál fyrir Svía hvaða leikkonu yrði treyst fyrir því að túlka líf hennar, söng og störf. Mynd- in sló bæði í gegn hjá gagn- rýnendum og áhorfendum. Monica Z var vinsælasta kvik- myndin í Svíþjóð á síðasta ári og hlaut 11 tilnefningar til Gullbjöllunnar, þar af vann hún fern verðlaun og hún var mest sótta kvikmyndin í Sví- þjóð árið 2013. Skiljanlega var söngur stór partur af hlutverki Eddu í myndinni og þar var Edda á heimavelli en hún er stórt nafn í sænskum tónlist- arheimi. Á síðasta ári und- irritaði hún samning við War- ner Music og Sony/AtV Music Publishing og í vor kemur þriðja platan hennar út sem er þá gefin út í nafni Warner. Lögin hennar eru sungin á ensku og hún semur þau sjálf, syngur og spilar á píanó og hljómborð. Það kom fljótt í ljós að hún hafði mikla tónlistarhæfileika en áður en hún fór út í eiginlegt tónlistarnám þreifaði hún sig áfram á píanóinu heima í Ystad án leiðsagn- ar. Á unglingsárum fór Edda svo að semja og taka upp eigin tónlist. Hún segir erfitt að lýsa því sem hún geri því hún sé undir áhrif- um margvíslegra tónlistarstefna. Þar megi nefna djass, klassíska píanótónlist, popp og ýmislegt sem minni á kvikmyndatónlist. Nýja platan er gáskafull og tilraunakenndari en tvær hinar fyrri. Edda segist fylgjast vel með íslenskri tónlist, Björk, Sigur Rós og Ásgeir Trausti eru þar í uppáhaldi en síðasta haust sá hún raunar um tónlist í stórri dans- sýningu í óperunni í Malmö sem breski dans- höfundurinn Ben Wright hafði umsjón með. Sýningin var byggð í kringum tónlist af sóló- plötu Jónsa úr Sigur Rós; Go. Edda söng sjálf eitt lag á íslensku. Leikstjórinn fann hana á tónleikum Hvernig vildi það til að Edda fékk hlutverk Monicu Zetterlund? „Ég hélt tónleika í einu stærsta leikhúsi Stokkhólms í tilefni hálfrar aldar afmælis Amnesty International. Þar á meðal áhorf- enda var kona sem þekkti til framleiðenda myndarinnar og vissi að þeir voru að leita að leikkonu til að fara með hlutverk Monicu. Þeir voru þá í miðjum prufum og höfðu feng- ið marga leikara til sín. Leikstjórinn sótti í kjölfarið tónleika hjá mér, fékk þá hugmynd að fá mig í prufu og sendi mér tölvupóst. Ég ákvað að slá til þótt mér þætti það svolítið skelfileg tilhugsun en þetta reyndist svo vera hrikalega gaman. Ég fór í gegnum margar prufur og hreppti á endanum hlutverkið. Í kjölfarið stakk ég mér á bólakaf í rannsókn- arvinnu til að fá tilfinningu fyrir karakter hennar og söng og ég þurfti einnig að breyta mínum eðli- lega hreim því ég er frá Skáni og skánska er talsvert öðruvísi en sú sænska sem íbúar Stokkhólms tala. Leik- stjórinn einbeitti sér að mér og mínu hlutverki og það fór mikil vinna í þetta auk þess sem ég var í því að vinna að tónlistinni. Ég hafði líka mik- ið að segja um að þróa per- sónu mína hvað heildarútlit og ásjónu varðar enda var ég endalaust að prófa alls kyns búninga og láta mála mig og greiða.“ Og svo ertu bara valin leik- kona ársins í Svíþjóð, hvað segirðu um það? „Já! Það var eiginlega trufluð tilfinning og ég er óg- urlega hamingjusöm með það. Allt þetta verkefni var þannig að ég féll kylliflöt fyrir kvik- myndaheiminum, það má segja að ég hafi orðið ástfangin af honum. Þarna eru töfrar og einbeiting og fókus. Fólkið og öll um- gjörðin er stórkostleg. Að fá að vera svona í miðri hringiðunni í aðalhlutverki gerði það líka að verkum að ég fékk að upplifa alla hluta starfsins. Það má segja að þetta hafi verið eitt viðburðaríkasta árið í lífi mínu. Bæði leikurinn og svo samningurinn við War- ner Bros. Sá samningur þýðir að þeir geta þjónað mér vel og ég á til dæmis núna svaka- lega dýran og fínan míkrafón,“ segir Edda og hlær. Edda á sænskan kærasta sem hún segist þó ekki vilja tjá sig meira um nema staðfesta það að hún er ekki einhleyp. Framtíðarplönin eru opin. Hún segist mjög opin fyrir því að gera eitthvað meira með leik, sérstaklega ef spennandi verkefni rekur á fjörur hennar. „Stokkhólmur er auðvitað mín heimahöfn núna en ég finn að ég er ekki fjötruð og gæti hugsað mér að vinna hvar sem er í heiminum þannig séð.“ Við kveðjumst og blaðamaður freistast að lokum til að spyrja hvaða mun hún sjái helst á Íslendingum og Svíum. „Það er miklu auðveldara að kjafta við Íslendinga um eitthvað – svona smáspjall. Enda eigið þið svo mikið af þessum smáorðum sem fylla upp í tómið. Maður getur sagt; já, já, sko, og einmitt og jæja. Hvað segirðu gott? og svo framvegis. Það er ágætt að geta stuðst við það finnst mér.“ Hálfíslensk og leik- kona ársins í Svíþjóð EDDA MAGNASON ER DÓTTIR ÍSLENSKS DÝRALÆKNIS Á AUSTFJÖRÐUM OG HEFUR UNNIÐ HUG OG HJÖRTU SVÍA MEÐ FRAMGÖNGU SINNI SEM MONICA ZETTERLUND. EDDA ER EINNIG ÞEKKT TÓNLISTARKONA ÞAR Í LANDI OG Á SÍÐASTA ÁRI UNDIRRITAÐI HÚN SAMNING VIÐ WARNER MUSIC OG SONY OG Í VOR KEMUR ÞRIÐJA SÓLÓPLATAN HENNAR ÚT. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Það er miklu auðveldara að kjafta við Íslendinga um eitthvað – svona smáspjall. Enda eigið þið svo mikið af þessum smáorðum sem fylla upp í tómið,“ segir Edda. * Ég kem þvítalsvert tilÍslands, að minnsta kosti einu sinni á ári og Ísland er má segja mín vin – staðurinn sem ég „flý“ til frá striti og þegar ég þarf að hvílast og hlaða batteríin. Ef ég fer í frí fer ég til Íslands.“ Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.