Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 50
E
dda Karin Hjartardóttir Magna-
son er í Svíþjóð þekkt tónlist-
arkona og nú nýlega leikkona en
hún var valin leikkona ársins
2013 í Svíþjóð þegar hún hlaut
Gullbjölluna fyrir aðalhlutverk í kvikmynd-
inni Monica Z. Þetta þykja stórmerkileg tíð-
indi þar sem Edda er hvorki menntuð leik-
kona né hafði hún leikið áður þegar hún tók
að sér hlutverk djasssöngkonunnar Monicu
Zetterlund. Okkur Íslendingum þykir auðvit-
að merkilegast að uppgötva að Edda Magna-
son, eins og nafnið gefur til kynna, er ís-
lensk.
„Faðir minn er íslenskur og býr reyndar á
Íslandi sem og öll föðurfjölskyldan mín,“ seg-
ir Edda sem skilur íslensku vel þótt hún
treysti sér ekki til að nota hana í viðtalinu.
Fyrir ekki mörgum árum var hún þó nokkuð
sleip í tungumálinu og talaði íslensku ágæt-
lega en þá dvaldi hún í sex mánuði samfleytt
hérlendis, vann í frystihúsi, ísbúð og sótti ís-
lenskunámskeið. Hún segist viss um að ef
hún dveldi á Íslandi í lengri tíma myndi mál-
ið fljótt rifjast upp. Og hún segir að ensku-
framburður hennar sé engan veginn líkur því
sem Svíar bera enskuna fram heldur er hann
mun líkari þeim framburði sem Íslendingar
eru þekktir fyrir.
„Ég ólst upp í Svíþjóð, í stórum systk-
inahópi, ég á sex systkini alls, þrjár systur
og þrjá bræður.“ Á milli systkina Eddu eru
ekki mörg ár svo að systkinahópurinn var
fjörugur en fimm þeirra eru einnig hálf-
íslensk. Þau hafa farið ólíkar leiðir í lífinu, til
dæmis er einn bróðir hennar kokkur, hún á
systur sem er hjúkrunarfræðingur en þó á
hún bróður sem starfar við kvikmyndagerð.
„Við bjuggum í dreifbýli, rétt fyrir utan
Malmö en foreldrar mínir voru þó ekki í
neinum sveitastörfum – pabbi er dýralæknir
og mamma mín hjúkrunarfræðingur. Svo
skildu foreldrar mínir að skiptum og pabbi
býr nú á Egilsstöðum og starfar þar við sitt
fag. Ég kem því talsvert til Íslands, að
minnsta kosti einu sinni á ári og Ísland er
má segja mín vin – staðurinn sem ég „flý“ til
frá striti og þegar ég þarf að hvílast og hlaða
batteríin. Ef ég fer í frí fer ég til Íslands.“
Á Íslandi snýst allt um mat
Edda hefur lýst því yfir í viðtölum úti hvern-
ig föðuramma hennar hafi kveikt söng-
áhugann þegar Edda heyrði hana syngja
Heims um ból. Sjálfri finnst henni hún hafa
sterk tengsl við landið. „Ég fæ mér alltaf
„eina með öllu“ þegar ég kem til Íslands og
raunar snýst allt voðalega mikið um mat þeg-
ar ég er þar, að borða og sækja sundlaug-
arnar. Ég eyði yfirleitt fjórum vikum í senn á
landinu og er þá dugleg að ferðast með
pabba á jeppanum hans. Það er reyndar fast-
ur liður að við keyrum frá Reykjavík til Eg-
ilsstaða, það er engin Íslandsferð án þess.“
Þennan dag sem Edda spjallar við blaða-
mann er hún á leiðinni til Berlínar daginn
eftir þar sem henni var svo hampað sem
einni af tíu vonarstjörnum Evrópu. Var hún
valin á svokallaðan „Shooting Star“-lista en
það er European Film Promotion sem velur
árlega 10 efnilega leikara til að kynna fyrir
þekktum leikstjórum og kvikmyndaframleið-
endum. Fyrir það fyrsta kom það Eddu veru-
lega á óvart að fá hlutverk Monicu Zetter-
lund þar sem hún hafði ekki numið leiklist og
hvergi leikið og þá voru það ekki síður óvænt
og gleðileg tíðindi af hreppa Gullbjölluna.
Monicu Zetterlund sem myndin fjallar um
var og er ein dáðasta söngkona Svía en hún
lést árið 2005. Það var því
hreint út sagt tilfinningamál
fyrir Svía hvaða leikkonu yrði
treyst fyrir því að túlka líf
hennar, söng og störf. Mynd-
in sló bæði í gegn hjá gagn-
rýnendum og áhorfendum.
Monica Z var vinsælasta kvik-
myndin í Svíþjóð á síðasta ári
og hlaut 11 tilnefningar til
Gullbjöllunnar, þar af vann
hún fern verðlaun og hún var
mest sótta kvikmyndin í Sví-
þjóð árið 2013.
Skiljanlega var söngur stór
partur af hlutverki Eddu í
myndinni og þar var Edda á
heimavelli en hún er stórt
nafn í sænskum tónlist-
arheimi. Á síðasta ári und-
irritaði hún samning við War-
ner Music og Sony/AtV Music
Publishing og í vor kemur
þriðja platan hennar út sem
er þá gefin út í nafni Warner.
Lögin hennar eru sungin á ensku og hún
semur þau sjálf, syngur og spilar á píanó og
hljómborð. Það kom fljótt í ljós að hún hafði
mikla tónlistarhæfileika en áður en hún fór
út í eiginlegt tónlistarnám þreifaði hún sig
áfram á píanóinu heima í Ystad án leiðsagn-
ar.
Á unglingsárum fór Edda svo að semja og
taka upp eigin tónlist. Hún segir erfitt að
lýsa því sem hún geri því hún sé undir áhrif-
um margvíslegra tónlistarstefna. Þar megi
nefna djass, klassíska píanótónlist, popp og
ýmislegt sem minni á kvikmyndatónlist. Nýja
platan er gáskafull og tilraunakenndari en
tvær hinar fyrri. Edda segist fylgjast vel
með íslenskri tónlist, Björk, Sigur Rós og
Ásgeir Trausti eru þar í uppáhaldi en síðasta
haust sá hún raunar um tónlist í stórri dans-
sýningu í óperunni í Malmö sem breski dans-
höfundurinn Ben Wright hafði umsjón með.
Sýningin var byggð í kringum tónlist af sóló-
plötu Jónsa úr Sigur Rós; Go. Edda söng
sjálf eitt lag á íslensku.
Leikstjórinn fann hana á tónleikum
Hvernig vildi það til að Edda fékk hlutverk
Monicu Zetterlund?
„Ég hélt tónleika í einu stærsta leikhúsi
Stokkhólms í tilefni hálfrar aldar afmælis
Amnesty International. Þar á meðal áhorf-
enda var kona sem þekkti til framleiðenda
myndarinnar og vissi að þeir voru að leita að
leikkonu til að fara með hlutverk Monicu.
Þeir voru þá í miðjum prufum og höfðu feng-
ið marga leikara til sín. Leikstjórinn sótti í
kjölfarið tónleika hjá mér, fékk þá hugmynd
að fá mig í prufu og sendi mér tölvupóst. Ég
ákvað að slá til þótt mér þætti það svolítið
skelfileg tilhugsun en þetta reyndist svo vera
hrikalega gaman. Ég fór í gegnum margar
prufur og hreppti á endanum hlutverkið. Í
kjölfarið stakk ég mér á bólakaf í rannsókn-
arvinnu til að fá tilfinningu fyrir karakter
hennar og söng og ég þurfti
einnig að breyta mínum eðli-
lega hreim því ég er frá
Skáni og skánska er talsvert
öðruvísi en sú sænska sem
íbúar Stokkhólms tala. Leik-
stjórinn einbeitti sér að mér
og mínu hlutverki og það fór
mikil vinna í þetta auk þess
sem ég var í því að vinna að
tónlistinni. Ég hafði líka mik-
ið að segja um að þróa per-
sónu mína hvað heildarútlit
og ásjónu varðar enda var ég
endalaust að prófa alls kyns
búninga og láta mála mig og
greiða.“
Og svo ertu bara valin leik-
kona ársins í Svíþjóð, hvað
segirðu um það?
„Já! Það var eiginlega
trufluð tilfinning og ég er óg-
urlega hamingjusöm með það.
Allt þetta verkefni var þannig
að ég féll kylliflöt fyrir kvik-
myndaheiminum, það má segja að ég hafi
orðið ástfangin af honum. Þarna eru töfrar
og einbeiting og fókus. Fólkið og öll um-
gjörðin er stórkostleg. Að fá að vera svona í
miðri hringiðunni í aðalhlutverki gerði það
líka að verkum að ég fékk að upplifa alla
hluta starfsins. Það má segja að þetta hafi
verið eitt viðburðaríkasta árið í lífi mínu.
Bæði leikurinn og svo samningurinn við War-
ner Bros. Sá samningur þýðir að þeir geta
þjónað mér vel og ég á til dæmis núna svaka-
lega dýran og fínan míkrafón,“ segir Edda og
hlær.
Edda á sænskan kærasta sem hún segist
þó ekki vilja tjá sig meira um nema staðfesta
það að hún er ekki einhleyp. Framtíðarplönin
eru opin. Hún segist mjög opin fyrir því að
gera eitthvað meira með leik, sérstaklega ef
spennandi verkefni rekur á fjörur hennar.
„Stokkhólmur er auðvitað mín heimahöfn
núna en ég finn að ég er ekki fjötruð og gæti
hugsað mér að vinna hvar sem er í heiminum
þannig séð.“ Við kveðjumst og blaðamaður
freistast að lokum til að spyrja hvaða mun
hún sjái helst á Íslendingum og Svíum. „Það
er miklu auðveldara að kjafta við Íslendinga
um eitthvað – svona smáspjall. Enda eigið
þið svo mikið af þessum smáorðum sem fylla
upp í tómið. Maður getur sagt; já, já, sko, og
einmitt og jæja. Hvað segirðu gott? og svo
framvegis. Það er ágætt að geta stuðst við
það finnst mér.“
Hálfíslensk og leik-
kona ársins í Svíþjóð
EDDA MAGNASON ER DÓTTIR ÍSLENSKS DÝRALÆKNIS Á AUSTFJÖRÐUM OG HEFUR UNNIÐ
HUG OG HJÖRTU SVÍA MEÐ FRAMGÖNGU SINNI SEM MONICA ZETTERLUND. EDDA ER EINNIG
ÞEKKT TÓNLISTARKONA ÞAR Í LANDI OG Á SÍÐASTA ÁRI UNDIRRITAÐI HÚN SAMNING VIÐ
WARNER MUSIC OG SONY OG Í VOR KEMUR ÞRIÐJA SÓLÓPLATAN HENNAR ÚT.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
„Það er miklu auðveldara að kjafta við Íslendinga um
eitthvað – svona smáspjall. Enda eigið þið svo mikið af
þessum smáorðum sem fylla upp í tómið,“ segir Edda.
* Ég kem þvítalsvert tilÍslands, að
minnsta kosti
einu sinni á ári
og Ísland er má
segja mín vin –
staðurinn sem ég
„flý“ til frá striti
og þegar ég þarf
að hvílast og
hlaða batteríin.
Ef ég fer í frí fer
ég til Íslands.“
Viðtal
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014