Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
✝ Þorgerður Þor-leifsdóttir
fæddist í Fossgerði
á Berufjarð-
arströnd 28. júní
1928. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð 26. febr-
úar 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Þorleifur H.
Sigurðsson, bóndi í
Fossgerði, f. 23.
ágúst 1892, d. 9. febrúar 1958, og
kona hans Stefanía Þorvalds-
dóttir, f. 23. apríl 1902, d. 30.
mars 1989. Systkini Þorgerðar
voru Sigurður, f. 18. nóvember
1930, d. 5. apríl 2009, kvæntur
Kristbjörgu Sigurðardóttur, f.
29. september 1927, d. 16. janúar
2009, og Ragnhildur, f. 16. apríl
1943, gift Jóni Hannibalssyni, f.
17. júní 1939, d. 23. september
1998.
Árið 1949 giftist Þorgerður
Eiríki Jónasi Gíslasyni brúar-
smið, f. 9. ágúst 1920, d. 20. apríl
1997. Foreldrar hans voru Gísli
Eiríksson, bóndi í Naustakoti á
Vatnsleysuströnd, f. 22. apríl
1878, d. 2. janúar 1971, og kona
febrúar 1991, Þorgeir, f. 21. júní
1995. Mjöll, f. 1. janúar 2002 og
Kolka f. 1. janúar 2002. 5) Flosi,
f. 20. desember 1969, viðskipta-
fræðingur í Kópavogi, kvæntur
Nínu Björk Sigurðardóttur, f. 19.
ágúst 1972, d. 30. október 2013,
börn: Eyrún, f. 11. mars 2003,
Kári, f. 5. október 2005, Eiríkur,
f. 7. ágúst 2007. Fyrir á Flosi Júl-
íus, f. 1. mars 1999. 6) Elín, f. 20.
desember 1969, bókasafnsfræð-
ingur í Kópavogi, gift Magnúsi
Bollasyni tæknifræðingi, f. 21.
mars 1969, börn: Bolli, f. 3. febr-
úar 1996, Ásgerður, f. 4. maí
2000, og Þórhildur, f. 4. maí.
2000.
Þorgerður ólst upp við al-
menn sveitastörf í Fossgerði.
Sautján ára gömul var hún vet-
urlangt gangastúlka á Seyð-
isfjarðarspítala. Hún fór í hús-
mæðraskólann á Staðarfelli í
Dölum, var í vist í Kópavogi og
Reykjavík og vann á saumastofu
í Reykjavík. Eftir að hún giftist
var hún ráðskona í brúar-
vinnuflokki með manni sínum
víða um land flest sumur til 1985.
Frá 1979 til 1997 var hún dag-
mamma á veturna. Þorgerður og
Eiríkur Jónas reistu sér hús við
Kársnesbraut í Kópavogi 1953
og Þorgerður bjó þar í rúma
hálfa öld.
Útför Þorgerðar fer fram frá
Kópavogskirkju 7. mars 2014 og
hefst athöfnin kl. 15.
hans Guðný Jónas-
dóttir, f. 24. júní
1893, d. 23. apríl
1976. Þorgerður og
Eiríkur Jónas eign-
uðust sex börn: 1)
Gísli, f. 12. sept-
ember 1950, verk-
fræðingur á Ísa-
firði, kvæntur
Aðalbjörgu Sigurð-
ardóttur kennara, f.
15. júlí 1951, börn:
Eiríkur, f. 13. júní 1979, hann á
tvö börn, Greipur, f. 12. júlí 1982,
og Arnþrúður, f. 30. janúar 1987.
2) Björg, f. 20. desember 1953,
kennari í Kópavogi, gift Magnúsi
Ólafssyni jarðfræðingi, f. 13. des-
ember 1952, börn: Gerður, f. 18.
nóvember 1978, hún á þrjú börn
og Unnur, f. 2. mars 1983, hún á
tvö börn. 3) Þorleifur, f. 24. mars
1956, dýrafræðingur í Bolung-
arvík, kvæntur Heiðveigu Pét-
ursdóttur fulltrúa, f. 29. júlí
1963, barn: Þorgerður, f. 24.
ágúst 1992. 4) Ívar, f. 13. sept-
ember 1963, kerfisfræðingur í
Kópavogi, kvæntur Hrund Þor-
geirsdóttur ferðafræðingi, f. 8.
október 1964, börn: Yrsa, f. 5.
Nú hefur elskuleg tengdamóðir
mín kvatt þennan heim. Nú bergi
ég ekki lengur af hennar visku-
brunni eins og undanfarin 30 ár.
Það fyrsta sem ég lærði af henni
er að vanda mitt mál. Ég hlakka
til en ekki mig og hann langar
ekki honum.
Minningarnar eru margar. Ein
er mér ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum og ætla ég að geyma hana
vel. Þorgerður í eldhúsinu á Kárs-
nesbrautinni. Við situm öll í
kringum litla eldhúsborðið, fjö-
skyldan, vinir, ömmudagbörnin,
ekki alltaf þeir sömu en alltaf
margir og alveg ótrúlegt hve
margir komust í kringum þetta
litla borð. Þorgerður settist ekki
heldur aðstoðaði þá sem þurftu og
sá til þess að allir hefðu nóg á sín-
um diski.
Þorgerður var ekki kona
margra orða og minnist ég við-
bragða hennar er við Ívar höfðum
fréttir að færa um væntanlega
fjölgun tvíbura í fjölskyldunni.
„Jahérna hér,“ og hún sló á lær
sér, „ég held að ég verði að fá mér
sæti.“
Eftir Þorgerði liggur mikil
handavinna, sokkar, vettlingar,
fatnaður, sængurver, púðaver og
listilegur útsaumur. Í nokkur ár
hóaði hún okkur saman konunum
í ættinni, dætrum, tengdadætrum
og dætrum okkar, systur sinni og
hennar dætrum og kenndi okkur
hannyrðir. Eitt atriði tekið fyrir á
önn og hver og ein fór heim með
sitt verk. Farið var yfir harðang-
ur- og klaustursaum, venetian,
blómstursaum, hekl og prjón.
Alltaf var saumaklúbburinn
heima hjá Þorgerði og alltaf bauð
hún upp á brauðsúpuna sína. Þor-
gerður var ættmóðir og verður
hennar minnst sem slíkrar.
Hrund Þorgeirsdóttir.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Amma Þorgerður eins og við
börnin mín köllum hana alltaf
gætti Hákonar sonar míns um
nokkurra ára skeið í frumbernsku
hans. Vistin var góð og þegar leik-
skólapláss var tryggt þótti okkur
hjónunum meira virði að hann
fengi að njóta samveru við þau
heiðurshjón einn vetur enn og af-
þökkuðum plássið. Björney, stóra
systir, naut líka góðs af og fékk að
dvelja hjá þeim hjónum þegar
skóla lauk á daginn. Börnin voru í
öruggum höndum. Afi Jónas og
amma Þorgerður áttu alla tíð
stóran hluta af hjarta okkar og er-
um við þeim afskaplega þakklát.
Þeim tókst að gera börnin sem
þau gættu að hluta af þeirra heim-
ilislífi. Þau voru einstaklega lunk-
in við að vekja áhuga barnanna á
ýmsu sem mætti dunda sér við og
læra af í leiðinni. Það var bakað,
teiknað og litað í eldhúsinu og úti
var smíðað með Jónasi. Amma
Þorgerður var hvort tveggja
ákveðin og glaðvær í samskiptum
sínum við börnin. En umfram allt
var andrúmsloftið afslappað og
fullt af ró þroskaðs fólks sem
hafði alið upp stóran barnahóp og
vissi hvað skipti máli og hvað
ekki.
Það voru ekki einungis börnin
mín sem nutu elsku ömmu Þor-
gerðar. Ég sem var þá ung móðir
átti ótal samtöl við hana þegar ég
kom að sækja börnin mín og fékk
þá hvatningu og ráðleggingar
varðandi barnauppeldi og lífsins
gildi sem aldrei verða fullþökkuð.
Þau samtöl eru geymd en ekki
gleymd.
Öllum börnum hennar og fjöl-
skyldum þeirra sendum við fjöl-
skyldan innilegar samúðarkveðj-
ur.
Blessuð sé minning hennar.
Heiðrún Hákonardóttir.
Við höfum notið þeirra forrétt-
inda að fá að umgangast ömmu
Þorgerði stóran hluta ævi okkar.
Lífssýn hennar var einföld og
gegnheil. Hún hafði sanngirni að
leiðarljósi og bar virðingu fyrir
öllu sem lifir. Hún var iðin og
nægjusöm en þótti sjálfsagt og
nauðsynlegt að gera sér dagamun
þegar tilefni var til. Við erum elst
17 barnabarna ömmu og afa Jón-
asar. Frændsystkinahópurinn er
litríkur og hefur, ekki síst fyrir til-
stilli ömmu, tengst sterkum bönd-
um. Því finnum við nú til ríkrar
skyldu að halda merki ömmu og
afa á lofti og deila minningum
okkar með þeim yngri.
Þegar við vorum krakkar var
samgangurinn mismikill því
strákarnir bjuggu á Ísafirði en
það var jafnað út á sumrin með
ferðalögum og samveru sem og
sambýli við ömmu í Kópavogi á
háskólaárum. Eiríkur, Gerður og
Unnur nutu þess líka að eiga
ömmu sem dagmömmu fyrstu
æviárin, ásamt reyndar fjölmörg-
um öðrum börnum – börnum sem
líka kalla hana síðan ömmu.
Meðal fríðinda sem fylgdu því
að vera elst í hópnum var að þurfa
ekki endilega að borða seríós á
undan kókópöffsinu um helgar,
heldur mega fara beint í kókó-
pöffsið. Að fá að fara með í brúar-
vinnu. Að ferðast með þeim um
landið sem þau þekktu vel. Að
dvelja með þeim austur í Foss-
gerði og í Koti á Vatnsleysu-
strönd; að hafa seinna verið treyst
fyrir Kotinu ásamt vinahópum.
Að vakna um helgar við ilminn af
skonsu- og pönnukökubakstri og
fá að stela efstu kökunum úr stafl-
anum. Þær eru ómetanlegar
stundirnar sem við sátum bara á
kollinum í ömmuherbergi þar sem
hún sat og prjónaði og fórum yfir
málefni dagsins með myndirnar
af okkur öllum litlum á korktöfl-
unni.
Heimilið var á tímabili kallað
Sambýlið – Huldubraut þegar við
bjuggum þar öll, Gerður og Þór-
bergur í kjallaranum og Eiríkur
og Greipur uppi hjá ömmu. Þótt
Unnur hafi ekki haft formlega
heimilisfesti á staðnum átti hún
oft erindi og erindisleysu til
ömmu og okkar hinna – til dæmis
til að framkalla ömmu, eins og
þær langmægður kölluðu að lita
augabrúnir ömmu, það verkefni
önnuðust Gerður og Unnur lengi.
Við strákarnir komum ekki ná-
lægt því frekar en hinum háæru-
verðuga Harðangurs- og klaust-
urklúbbi ömmu sem í var boðið
reglulega dætrum, tengdadætr-
um, barnadætrum, systur og
systradætrum. Brauðsúpu-
skammturinn beið okkar og Þór-
bergs litla þó alltaf, amma passaði
það.
Ein allra harðasta og langlíf-
asta reglan á sambýlinu var
mánudagsfiskurinn sem byrjaði
sem fastur punktur á háskólaár-
um Eiríks og varaði lengi, meira
að segja eftir að amma flutti yfir
Kársnesið – áfram hélt Greipur,
sem gjarna dró Arnþrúði litlu
systur með, að mæta í fisk, graut
og spjall, lesa úr íslensku orða-
bókinni og dotta yfir dýralífs-
þætti.
Núna er amma Þorgerður farin
frá okkur og við minnumst liðinna
ára með söknuði en erum þakklát
fyrir samveruna, samtölin, ráð-
gjöfina og leiðsögnina. Eitt er það
þó sem við fáum sennilega ekki
svarið við úr þessu. Af hverju í
ósköpunum heitir kryddkaka úr
tertubotnaformum með rabarbar-
asultu á milli Suðræn sæla í upp-
Þorgerður
Þorleifsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR OLIVERSDÓTTIR
frá Hellissandi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
miðvikudaginn 26. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 7. mars kl. 13.00.
Lovísa Árnadóttir, Viðar Pétursson
Finnur Árnason, Anna María Urbancic
Ingibjörg Árnadóttir, Jónas Þór Guðmundsson
Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni,
Árni Grétar, Ebba Katrín,
Oliver Páll, Viktor Pétur, Guðmundur Már,
Lovísa Margrét, Stefán Árni og Viðar Breki.
✝
Ástkær eiginmaður minn,
HÉÐINN ÓLAFSSON,
Hlíf II,
Ísafirði,
lést þriðjudaginn 25. febrúar á sjúkrahúsinu
á Ísafirði.
Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 8. mars klukkan 14.00.
Dagbjört S. Gunnarsdóttir
og aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Grund,
áður Gnoðarvogi 32,
lést föstudaginn 28. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju
mánudaginn 10. mars kl. 13.00.
Guðrún R. Axelsdóttir, Einar Eiríksson,
Eiríkur Bergmann Einarsson, Aino Freyja Jarvela,
Áslaug Einarsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÓLÖF COOPER,
Gullsmára 7,
Kópavogi,
lést miðvikudaginn 26. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 7. mars kl. 13.00.
Gylfi Einarsson,
Margrét Björnsdóttir,
Konráð Gylfason, Anna María Harðardóttir,
Margrét Gylfadóttir, Ólafur Sveinsson
og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför systur okkar,
KRISTRÚNAR ÖNNU FINNSDÓTTUR
frá Ytri-Á,
Ólafsfirði.
Fyrir hönd systkina og fjölskyldna þeirra,
Eva Finnsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ERLA SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir hinn 5. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 14. mars kl. 13.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar, 3. hæð
norður, fyrir góða og hlýlega umönnun.
Sigríður Gissurardóttir, Guðmundur Ragnarsson,
Sigrún Gissurardóttir, Steinar S. Jónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN JÓN SIGTRYGGSSON,
Kúddi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnu-
daginn 2. mars.
Útförin verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju
laugardaginn 8. mars og hefst athöfnin
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök
Sjúkrahúss Seyðisfjarðar.
Birna Björnsdóttir, Stefán Gunnarsson,
Ragnheiður Þóra Björnsdóttir,
Páll Sigtryggur Björnsson,
Pétur Björnsson,
María Björnsdóttir,
Daníel Björnsson, Jóhanna Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÁGÚST JÓHANNES JÓNSSON
frá Vopnafirði,
Fróðengi 1,
lést föstudaginn 21. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug.
Guð blessi ykkur.
Kristbjörg D. Gunnarsdóttir,
Jóna S. Ágústsdóttir, Helgi R. Elísson,
Anna H. Ágústsdóttir, Hreinn Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR BJARNADÓTTUR
frá Suðureyri við Tálknafjörð,
Laugarnesvegi 87.
Þórey Magnúsdóttir,
Bjarni Eiríkur Magnússon,
Jóna Þórdís Magnúsdóttir, Salvar Guðmundsson,
Guðmundur Sigurður Magnússon,
Einar Magnússon, Gunnhildur Konráðsdóttir,
Magnús Ásgeir Magnússon, Heiða Hringsdóttir,
Kristján Magnússon, Ásdís Ásgeirsdóttir
og fjölskyldur þeirra