Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
VARANLEG
VERÐLÆKKUN
Á HEIMILISTÆKJUM
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI
SÍÐAN 1956
HLUTI AF BYGMA
77.900 kr
Ofn
Electrolux ofn
74 ltr
Fréttastofa „RÚV“ og Samfylk-ingarinnar er tekin að hamast
við að sanna að engin viðhorf for-
ystu ESB liggi fyrir um að sem fyrst
beri að ákveða hvort aðlög-
unarviðræður Íslands haldi áfram.
Þótt svo væri spil-aði það enga
rullu hér. Því er enn
sérkennilegra að
hamast við að neita
þessum stað-
reyndum eins og
hinum sem meira
máli skipta.
Fréttastofan sjálfhafði þó haft
eftirfarandi eftir
Stefan Füle:
Stækkunarstjóri Evrópusam-bandsins segir það vera í þágu
allra að ákvörðunin um aðild bíði
ekki lengi. Hann segir ákvörðunina
um aðildarviðræður standa óhagg-
aða, þótt ekki sé ljóst hversu lengi.“
Og „RÚV“ sagði einnig frá þessu að:
Á blaðamannafundi í Brussel 16.júlí 2013 með Sigmundi Davíð
sagði José Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, hags-
muni ESB og Íslands felast í að Ís-
lendingar tækju ákvörðun um við-
ræður við ESB eftir „vandlega
íhugun og á hlutlægan, gegnsæjan
og yfirvegaðan hátt. Klukkan tifar
hins vegar og það er einnig best fyr-
ir okkur öll að þessi ákvörðun sé tek-
in án frekari tafar,“ sagði Barroso.
Það er alveg rétt hjá honum aðklukkan tifar, ef hún er í lagi.
En er ekki allt í lagi þarna uppi íEfstaleiti? Eða eru þar engin
mörk? Þarf málfarsráðunauturinn
að segja fréttamönnunum hvað „án
frekari tafar“ þýði?
Stefan Füle
Jafnvel þeir orðnir
ómarktækir
STAKSTEINAR
José Manuel
Barroso
Veður víða um heim 6.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri 0 heiðskírt
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló 3 alskýjað
Kaupmannahöfn 6 léttskýjað
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 11 heiðskírt
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 7 alskýjað
London 12 léttskýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 8 léttskýjað
Vín 8 skýjað
Moskva 1 alskýjað
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal -13 heiðskírt
New York -3 heiðskírt
Chicago -6 heiðskírt
Orlando 20 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:14 19:04
ÍSAFJÖRÐUR 8:23 19:06
SIGLUFJÖRÐUR 8:06 18:48
DJÚPIVOGUR 7:45 18:33
Þorvaldur Árni
Þorvaldsson og
Stjarna frá
Stóra-Hofi sigr-
uðu í töltkeppni
Meistaradeildar í
hestaíþróttum
sem fram fór í
Ölfushöllinni í
gærkvöldi. Efstu
hestar fengu há-
ar einkunnir fyr-
ir sýninguna, Þorvaldur og Stjarna
náðu sigrinum með 9,17. Fyrir reið-
mennsku sína hlaut Þorvaldur FT-
fjöðrina í annað sinn.
Þorvaldur Árni var með afger-
andi forystu eftir forkeppnina en að
þeim var saumað í úrslitum. Ís-
landsmeistararnir Árni Björn Páls-
son og Stormur frá Herríðarhóli
unnu sig vel upp og náðu öðru sæt-
inu með einkunnina 9,0. Viðar Ing-
ólfsson og Vornótt frá Hólabrekku
urðu í þriðja sæti með einkunnina
8,50 en þau sigruðu í töltkeppni síð-
asta árs.
Olil Amble er efst í einstaklings-
keppni knapa með 27 stig en Árni
Björn og Þorvaldur eru ekki langt
undan. Top Reiter / Sólning er efst
í liðakeppninni með 182,5 stig.
helgi@mbl.is
Sigraði með
hárri ein-
kunn í tölti
Þorvaldur efstur
Þorvaldur Árni
Þorvaldsson
Fyrstu farfuglar vorsins eru komnir
í Hornafjörð. „Þetta er aðeins að
byrja, en fuglakomurnar hefjast
ekki af neinni alvöru fyrr en komið
er fram í apríl,“ segir Brynjúlfur
Brynjólfsson, fuglaáhugamaður á
Höfn í Hornafirði, í samtali við
Morgunblaðið.
Í vikunni hafa í Nesjum, skammt
frá Höfn, sést bæði graf- og skúfönd.
Ekki er vitað hvaðan þessir fuglar
komu, segir Brynjúlfur, en þeir hafi
að minnsta kosti ekki verið á þessu
svæði í vetur. Gæsfuglar séu svo
farnir að láta á sér kræla. Í fjörum
við Höfn og í nágrenni hafi um 450
tjaldar hafi vetursetu. Líklegt sé að
fyrstu tjaldarnir sem sjást norður
með Austfjörðum séu hluti af þeim.
Svipaða sögu sé að segja um álft-
irnar. Í vetur voru tólf álftir í Lóns-
sveit en eru nú orðnar 32.
„Þessar álftir eru sennilega far-
fuglar. Það er gaman að fylgjast með
þessum vorboðum. Nú fara þeir að
tínast til landsins einn af öðrum og
þegar kemur lengra fram á vorið og
norðaustlægar áttir ríkjandi gerast
oft stórir hlutir,“ segir Brynjúlfur.
Hann hélt lengi úti vefsetrinu fugl-
ar.is. Það hefur legið niðri að und-
anförnu, en vænst er að það verði
orðið virkt aftur á næstu dögum.
Verður þar hægt að fylgjast með
komum farfugla og eftir atvikum
öðru áhugaverðu.
sbs@mbl.is
Grafönd og skúfönd komnar í Hornafjörð
Farfuglar farnir að sjást Byrjar
fyrir alvöru í apríl Álftir í Lónssveit
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Farfugl Skúföndin með unga sína.