Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
3 Days to Kill
Hasarmynd sem Tómas Lemarquis
leikur í en hann fer með hlutverk
hryðjuverkamanns sem kallaður er
Albínóinn. Kevin Costner leikur
njósnara sem fær þær fréttir að
hann sé með banvænan sjúkdóm,
segir starfi sínu lausu og ákveður að
sinna betur dóttur sinni sem hann
hefur lítil samskipti haft við. Honum
er boðið að prófa lyf sem gæti bjarg-
að lífi hans og þarf í staðinn að taka
að sér lokaverkefni sem felst í því að
hafa hendur í hári einhvers mesta
hryðjuverkamanns heimsins. Auk
Costners og Tómasar fara með
helstu hlutverk Amber Heard, Con-
nie Nielsen og Hailee Steinfeld. Me-
tacritic: 40/100
300: Rise of an Empire
Hér er komið sjálfstætt framhald
kvikmyndarinnar 300 frá árinu
2006. Leónídas konungur er fallinn
og persneski herinn, leiddur af kon-
ungi Persa, Xerxes, nálgast Aþenu.
Xerxes ætlar sér að sigra bæði
Spörtu og Aþenu og útrýma Grikkj-
um. Hinn hugrakki Þemistókles fær
það verkefni að verja Aþenu sem
virðist ómögulegt þar sem her Xerx-
esar er gríðaröflugur. Leikstjóri er
Noam Murro og með aðalhlutverk
fara Sullivan Stapleton, Rodrigo
Santoro, Eva Green, Lena Headey,
Jack O’Connell, David Wenham og
Andrew Tiernan.
Metacritic: 57/100
Saving Mr. Banks
Tom Hanks fer með hlutverk Walts
Disney í Saving Mr. Banks. Árið 1938
ákvað Disney að gera kvikmynd sem
byggð væri á sögunum um Mary
Poppins og reyndi að fá höfund
þeirra, Helen Lyndon Goff (Emma
Thompson), til að selja sér kvik-
myndaréttinn. Goff reyndist Disney
erfið viðureignar og tók það hann
yfir 20 ár að fá samþykki hennar.
Goff leist illa á þau lög og texta sem
Disney hugðist hafa í myndinni og
einnig að hafa teiknuð atriði í henni.
Leikstjóri er John Lee Hancock og
auk Hanks og Thompson fara með
helstu hlutverk Colin Farrell, Jason
Schwartzman, B.J. Novak, Paul Gia-
matti, Rachel Griffiths og Kathy Ba-
ker. Metacritic: 65/100
Ævintýri hr. Píbodýs og Sérmanns
Teiknimynd sem segir af gáfaðasta
hundi í heimi, hr. Píbodý, sem hlotið
hefur bæði Nóbelsverðlaun og verð-
laun á Ólympíuleikum. Hr. Píbodý
ættleiðir dreng sem hann nefnir
Sérmann og vill að hann hljóti úr-
valsmenntun. Hann smíðar tímavél
svo Sérmann geti upplifað stærstu
atburði mannkynssögunnar en babb
kemur í bátinn þegar Sérmann
stelst til að nota hana í leyfisleysi.
Leikstjóri er Rob Minkoff. Metacri-
tic: 58/100
Dark Touch
Fransk-írska hryllingsmyndin Dark
Touch fjallar um ellefu ára stúlku,
Niahm, sem lifði af fjöldamorð. For-
eldrar hennar og bróðir voru myrt
og lögreglan tekur lítið mark á vitn-
isburði hennar en hún heldur því
fram að húsinu sem hún bjó í hafi
verið um að kenna. Nágrannar
Niahm taka hana að sér en hryll-
ingnum er langt í frá lokið. Leik-
stjóri er Marina de Van og með aðal-
hlutverk fara Padraic Delaney,
Robert Donnelly og Charlotte Flyv-
holm. Metacritic: 64/100
Near Dark
Helgin verður blóðug í Bíó Paradís
því auk Dark Touch verður sýnd
vampírumyndin Near Dark frá 1987
eftir Kathryn Bigelow, á vegum bíó-
klúbbsins Svartra sunnudaga.
Bíófrumsýningar
Blóðug frumsýningahelgi
Stríð Úr kvikmyndinni 300: Rise of an Empire, framhaldi 300.
Alls 22 listamenn og hópar hafa
fengið styrk úr lista- og menning-
arsjóði Kópavogsbæjar fyrir sam-
tals 5,3 milljónir króna. Samtals
bárust 47 umsóknir fyrir hátt í tíu
milljónum.
Pamela De Sensi hlaut hæsta
styrkinn eða 800.000 kr. vegna
starfsemi Töfrahurðarinnar í Saln-
um og Töfrahornsins í Kópavogs-
kirkju. Tónlistarhátíð unga fólksins
hlaut 600.000 kr. Tónlistarskóli
Kópavogs hlaut 400.000 kr. til að
flytja barnasöngleikinn Rabba.
Þjóðlagahópurinn Gljúfrabúar
hlaut 300.000 kr. til að vekja áhuga
barna og unglinga í Kópavogi á ís-
lenskri þjóðlagatónlist. Anna Hera
Björnsdóttir hlaut 300.000 kr.
vegna danssýningarinnar Undir
berum himni sem ætluð er leik-
skólabörnum. Guðrún Birgisdóttir
hlaut 250.000 kr. vegna hádegistón-
leikanna Líttu inn í Salinn. Óp-
hópurinn hlaut 250.000 kr. vegna
barnaóperunnar Hans og Grétu í
Salnum. Valgerður Sigurðardóttir
hlaut 250.000 kr. til að gera stutt-
myndina Tröllasaga. Ingi Hrafn
Hilmarsson hlaut 200.000 kr. vegna
uppsetningar á nýju leikriti eftir
sig sem hann mun sjálfur leika.
Lista- og menningarráð hefur gert
þriggja ára samning um rekstrar-
styrki til Karlakórs Kópavogs,
Kvennakórs Kópavogs, Samkórs
Kópavogs og Söngvina, en hver kór
fær 180.000 kr. á ári.
Listafólk Styrkirnir voru afhentir við há-
tíðlega athöfn í Gerðarsafni fyrr í vikunni.
Kópavogsbær úthlutar 5,3 milljónum
króna í styrki til menningarverkefna
Hljómsveitin Thin Jim fagnar sjö
ára starfsafmæli sínu með tón-
leikum á Rósenberg í kvöld kl.
22.
Thin Jim vinnur að nýju efni
og stefnir á upptökur í Nashville
í samstafi við Gary Paczosa, sem
þekktur er fyrir samstarf sitt við
m.a. Alison Krauss og Dolly Par-
ton. Fyrsta plata Thin Jim, This
is me, var einnig unnin í sam-
starfi við Paczosa. Margrét Eir
og Jökull Jörgensen eru for-
sprakkar hljómveitarinnar en
með þeim leika Ásgeir Ásgeirs-
son á gítar og Kjartan Guðnason
á trommur. Á tónleikunum koma
einnig fram söngkonurnar Erna
Hrönn og Heiða Ólafsdóttir,
Tryggvi Hübner á gítar og
söngvarinn Páll Rósinkranz.
Söngstjörnur Heiða Ólafsdóttir, Erna
Hrönn og Margrét Eir syngja saman.
Afmælistónleikar Thin Jim á Rósenberg
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
300:RISEOFANEMPIRE3D KL.5:40-8-10:20
300:RISEOFANEMPIREVIP KL.3:40-5:40-8-10:20
SAVINGMR.BANKS KL.5:20-8-10:40
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
WINTERSTALE1 KL.10:20
GAMLINGINN KL.8
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTALKL.3D:3:40 2D:3:40-5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL KL. 3D:3:30 2D:3:40-5:50
THELEGOMOVIEENSTAL2D KL.8
JÓNSIOGRIDDARAREGLAN ÍSLTAL2D KL.3:20
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
SPARBÍÓ
MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU
KR.750 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1000 Á GRÆNT
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.8-10:20
NONSTOP KL.8
3DAYSTOKILL KL.10:20
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2D KL.5:50
KEFLAVÍK
AKUREYRI
300:RISEOFANEMPIRE3DKL.8-10:20
SAVINGMR.BANKS KL.8
NONSTOP KL.10:40
GAMLINGINN KL.5:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL.5:50
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI
Í 2D OG 3D
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.5:40-8-10:20
NONSTOP KL.10:40
GAMLINGINN KL.5:30-8-10:30
12YEARSASLAVE KL. 5:20 -8
300:RISEOFANEMPIREKL.3D:8-10:10 2D:5:50
GRAVITY3D SALUR1(STÆRSTATJALDLANDSINS) KL.5:50
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
GAMLINGINN KL.8-10:20
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.5:50
LÍFSLEIKNIGILLZ KL.8
SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VARIETY
ENTERTAINMENT WEEKLY
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM ZACK SNYDER,
LEIKSTJÓRA 300 OG MAN OF STEEL
12
12
12
12
L
L
L
ÍSL TAL
ÍSL TAL
Besti leikari í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND
MEÐ KEVIN COSTNER
OG HINUM ÍSLENSKA
TÓMASI LEMARQUIS
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR TAKEN
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
3 DAYS TO KILL Sýnd kl. 8 - 10:20
HR.PÍBODY & SÉRMANNS 3D Sýnd kl. 4 - 6
HR.PÍBODY & SÉRMANNS 2D Sýnd kl. 3:45
THE MONUMENTS MEN Sýnd kl. 10:25
RIDE ALONG Sýnd kl. 6 - 8 - 10:10
DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8
THE LEGO MOVIE 2D Sýnd kl. 3:50
G.D.Ó. - MBL