Morgunblaðið - 11.03.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2014
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Krakkarnir hafa lært mikiðaf þessu og þau segjastaldrei áður hafa setiðsvona marga fundi til að
skipuleggja eitthvað langt fram í
tímann. Það er gríðarlega mikil
vinna að skipuleggja svona hátíð en
líka gaman. Stemningin er mjög góð
í hópnum,“ segir Ólöf Dómhildur,
verkefnastjóri hjá Edinborg, menn-
ingarmiðstöð á Ísafirði, um listahá-
tíðina LÚR sem verður á Ísafirði í
sumar. „Þetta byrjaði allt á því að í
haust vorum við með verkefni hér í
Edinborg sem hét Listin og Evrópa,
en markmiðið með því var að skipu-
leggja ísfirska listahátíð. Okkur
langaði til að sjá hvort það væri
áhugi fyrir því hjá ungu fólki hér að
framkvæma hugmyndina. Sem
reyndist vera. Fjórar stelpur sem
eru í Listaskóla Rögnvaldar Ólafs-
sonar mynda kjarnann í hópnum og
þær hafa verið drifkrafturinn í
þessu. Nú mæta á milli tíu og tutt-
ugu manns á aldrinum 16-26 ára á
fundina þar sem allt er á fullu við að
skipuleggja LÚR.“
Danssmiðja frá útlandi
Hún segir krakkana standa sig
rosalega vel og að þau vinni þetta
nánast alveg sjálf. „Ég er þeim til
halds og trausts, sit alla fundi með
þeim og hjálpa þeim að fara yfir
hvaða verkefni eru á döfinni og hvert
við erum komin í skipulagningunni.
Við fórum í skipulagsferð og við
fengum líka til okkar hana Björt Sig-
finnsdóttur, einn af stofnendum
Lunga, listahátíðar á Seyðisfirði.
Hún kom og hélt fyrirlestur og miðl-
Ungir Ísfirðingar
halda listahátíð
Ungt fólk á Ísafirði á aldrinum 16-26 ára hefur verið á fullu í allan vetur að
undirbúa listahátíð sem það stendur fyrir í sumar. LÚR verður hátíð þar sem
áherslan verður á myndlist, sviðslistir og kvikmyndir. Þau ætla að byggja á því
sem til staðar er í bænum en fá líka góða gesti frá Evrópu.
Matur Það þarf líka að gera vel við sig á fundum og borða góðan mat.
Hópurinn Efri röð f.v.: Ólöf Dómhildur, Freyja Rein, Úlfur, Margeir, Dag-
björt Emilía, Ómar. Neðri röð f.h.: Guðmundur, Hólmfríður, Salóme og Líf.
Í kvöld kl. 20:30 ætlar Alma Ómars-
dóttir fréttamaður að halda fyrir-
lestur á Snorrastofu í Reykholti um
vinnuheimilið sem starfrækt var á
Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal á
heimsstyrjaldarárunum 1941-1942.
Þangað voru stúlkur sendar ef sann-
að þótti að þær ættu í sambandi við
erlenda hermenn. Í meistaraverkefni
Ölmu í blaða- og fréttamennsku frá
HÍ hafði hún samskipti stúlkna við er-
lenda hermenn á tímum seinni
heimsstyrjaldar á Íslandi að við-
fangsefni og hvernig yfirvöld brugð-
ust við þeim. Hún fékk aðgang að
gögnum Ungmennaeftirlitsins og
Ungmennadómstólsins, sem rann-
sökuðu og dæmdu í málum stúlkna,
en hafði einnig undir höndum gögn
vinnuskólans á Kleppjárnsreykjum.
Alma vinnur að gerð heimildamyndar
um hernámsárin á Íslandi, þar sem
saga stúlknanna er rakin.
Vefsíðan www.snorrastofa.is
Framandi Erlendir hermenn á Íslandi voru heillandi í augum ungra stúlkna.
Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum
Í kvöld klukkan 19:30 er blásið til
bingókvölds hjá Landssamtökunum
Geðhjálp í Borgartúni 3. Það er alltaf
gaman að spila bingó og fólk á öllum
aldri getur tekið þátt í að raða inn
tölunum sínum lóðrétt, lárétt, á ská
og í kross og stundum heilu spjöld-
unum. Veglegir vinningar verða í boði
fyrir heppna þátttakendur, meðal
annars miðar í leikhús, gjafabréf út
að borða og alls konar flottheit.
Nú er lag að rifja upp gamla bingó-
takta og skella sér í Borgartúnið, það
getur verið hörkuspennandi að vera
með og stefna að sjálfsögðu að því
að verða fyrstur til að hrópa BINGÓ!
Endilega …
… skellið ykkur
á bingó í kvöld
Morgunblaðið/Golli
Bingó Spil fyrir konur, karla og börn.
Í Bergi menningarhúsi á Dalvík
stendur nú yfir sýning sem heitir
Skyggnst inn á heimili, en þar er
gestum boðið að skyggnast inn á
heimili íbúa í Dalvíkurbyggð. Menn-
ingarhúsið Berg óskaði eftir aðilum
til að taka þátt í þessu skemmtilega
verkefni sem nú er orðið að veruleika.
Sendur var póstur á öll heimili í
byggðarlaginu þar sem óskað var eft-
ir að fá lánaða mynd sem hefði hang-
ið á heimilinu lengi. Myndefnið eða
stærðin skipti ekki máli og þetta
mátti vera ljósmynd, málverk eða
hvernig mynd sem var. Auk þess að
lána myndina á sýninguna voru allir
tilbúnir til að láta nokkur orð um
myndirnar fylgja þeim. Það má segja
að þátttakendur leyfi gestum sýning-
arinnar að skyggnast bæði inn á
heimilin og í hjörtu sín. Myndirnar og
sögurnar eru fullar af gleði, sorg og
áhugaverðum fróðleik. Allir eru vel-
komnir og enginn aðgangseyrir. Opið
á afgreiðslutíma Þulu Café – Bistro
kl. 11-17 alla daga nema mánudaga.
Nýstárleg sýning í Bergi
Skyggnst inn á heimilin
og í hjörtu Dalvíkinga
Töffari Hvaða saga ætli búi að baki þessari mynd?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.