Morgunblaðið - 11.03.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.03.2014, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2014 Ég kynntist Matthíasi vini mínum vel árið 2001 þegar ég flutti ásamt fjölskyldu minni til Spánar. Við vorum nágrannar og garðar okkur lágu saman, á milli okkar myndaðist strax mikil vin- átta. Á morgnana var það mér kært þegar hlýlegt bros Kristínar heilsaði mér yfir vegginn og kvöldstundirnar okkar félagana oft hápunktur dagsins, heimsókn- irnar yfir urðu því tíðar og seinna meir mér ógleymanlegar minn- ingar. Þegar leiðir okkar lágu heim á við urðu engin vinaslit heldur urðu okkar vinabönd sterkari, þegar ég kom til ykkar upp á Arnarnes og seinna meir þegar ég fór upp hæðina til þín í Lóm- sali. Við félagarnir fórum á seinni árum í skemmtilegar ferðir sam- an í húsið þitt á Spáni og eru veislurnar sem við héldum þar mér alltaf minnisstæðar mjög og skemmtilegar. Ferðir okkar á sumrin í bústaðinn þinn í Trost- ansfjörðinn voru alltaf gleðiferðir þar sem rifjaðar voru upp á leið- inni allar þær sögur sem landið hafði að geyma, þú vissir margt, ef ekki allt um það sem hafði liðið hjá á bakvið hvern einasta hól í sveitum landsins. Kaffihúsaferðirnar okkar í borginni voru þó tíðari enda stutt fyrir okkur að fara, þó okkur þætti ekkert langt að fara austur fyrir fjall og kíkja þar á mannlífið. Við félagarnir ræddum allt á milli heima og geima frá lífi til dauða. Þú varst með mikla kímni enda alltaf mikið hlegið, alveg sama hvað var rætt. Ótrúlegast fannst mér þó allt það sem þú mundir, sögurnar, fólkið, atburðirnir og allt sem þú einhvern tíman sást eða last á lífsleiðinni. Þú varst mikill fagurkeri og gjafmildur, það var sama hvaða búð við fórum í hér heima eða á Spáni, alla hluti skoðaðir þú vel og ef þeir voru fal- legir vildirðu færa börnunum þín- um og barnabörnum. Ég vil þakka þér, Matthías, fyrir að vera góður vinur og ég á eftir að sakna félagsskapar þíns mikið. Ég votta Hinrik, Auði og fjölskyldum samúð mína. Hvíldu í friði. Þinn vinur Hjörtur Friðriksson. Hinn vestfirzki víkingur er að velli hniginn. Vaskur og hrein- skiptinn, málsnjall og mælskur vel, gat verið hvort sem er hvass- yrtur eða spaugsamur í ræðustól, enginn skyldi freista þess að grípa fram í fyrir honum þar, svo skjótur sem hann var til andsvara og hittinn á hinn rétta tón. Hann hafði einnig hið ágætasta vald á íslenzku, kjarnyrtu máli. Við- brögð hinna þingreyndari við ný- liðanum 1971 voru yfirleitt hín ágætustu en þó báru nokkrir þar af. Í þeim góða hópi var Matthías einna fremstur, Lúðvík Jósefsson reyndar gefið Matthíasi hina beztu einkunn, þó marga snerr- una tækju þeir fyrr og síðar. Ölll mín kynni af Matthíasi áttu eftir að staðfesta þau orð um hrein- lyndan og drenglundaðan mann, skapheitan og einlægan í allri málafylgju sinni, þar fylgdi hugur ævinlega máli. Hann var mikill og vaskur baráttumaður fyrir vel- gengni fólksins fyrir vestan, landsbyggðarfólks yfirleitt. En ekki var sú eigind síðri er sneri að glettni og gamansemi hans sem var einstök á góðum stundum, enda hann vinsæll vel í þing- mannahópnum. Og svo fann mað- ur þessa eðlislægu hlýju til fólks, heitt var hjartað er í brjósti sló. Sextugum sendi ég Matthíasi kveðju og læt brot af henni fylgja með þessari stuttu saknaðar- kveðju. Segir flest sem þarf. Elds í línu unir sér, undirmálum fjarri er. Horskur drengur, hreinn og beinn, harður á köflum eins og steinn. Þó er mætust muna í merluð glettnin, lundin hlý. Leiftrar fyndnin, logar háð líkt og kornum gulls sé stráð. Þeim fækkar nú óðum þessum kæru kempum sem maður átti svo góð og lærdómsrík samskipti við. Þar á hann Matthías Bjarnason sína hugþekku sögu, sem þökkuð skal nú. Börnum hans og öðrum aðstandendum sendum við Hanna einlægar samúðarkveðjur. Bless- uð sé hugumkær minning þessa mæta drengs. Helgi Seljan. Í fortíð, nútíð og framtíð var Ísafjörður bærinn hans. Hann fæddist þar og ólst upp, þroskað- ist á meðal fólksins fyrir vestan, fór í Verslunarskólann og kom heim aftur og varð forustumaður á mörgum sviðum. Pólitíkin heill- aði hann og hann varð ritstjóri Vesturlands, blaðs sjálfstæðis- manna á Ísafirði, ásamt Sigurði Bjarnasyni frá Vigur, og var bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins um árabil og forseti bæjarstjórnar um tíma. Síðar varð hann þing- maður Vestfirðinga og ráðherra. Hann var „sjálfstæðismaður af gamla skólanum“ og hugtakið „stétt með stétt“ vildi hann nota fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Frjáls- hyggjutilburðir flokks hans, þeg- ar þeir voru mest áberandi, þókn- uðust honum illa og hann nefndi það oft að „gróðapungar“ ættu ekki að hafa afgerandi áhrif á stefnu flokksins. Það vissu allir hvar þeir höfðu Matthías Bjarna- son, hann talaði skýrt og var fast- ur fyrir, honum varð ekki hnikað, ef hann var sannfærður um að hann væri á réttri leið. Hann þorði að vera ráðherra og lét ekki embættismannakerfið ráða för, þótt hann virti mjög sína sam- starfsmenn í hinum mörgu ráðu- neytum sem hann stýrði á löngum ráðherraferli. „Járnkarlinn getur verið erfið- ur,“ sögðu forustumenn Sjálf- stæðisflokksins og báru sig illa. Á löngum þingmannsferli Matthías- ar, sem stóð frá 1963 til 1995, var hann ávallt á vaktinni, þegar hagsmunir Ísafjarðar og Vest- fjarða voru undir, enda þekkti hann betur en aðrir þörfina fyrir öfluga varnarbaráttu landsbyggð- arinnar. Auðvitað var hann þing- maður og ráðherra landsins alls, en hann var kosinn af fólkinu sínu fyrir vestan og það hafði forgang í huga hans. Það var afar gott fyrir þá, sem voru í forustu fyrir sveit- arfélögin á Vestfjörðum, að leita ráða hjá Matthíasi. Hann kunni söguna, vissi hvað var brýnast í nútíðinni og horfði til framtíðar. Allt sem horfði til framfara á Ísa- firði og Vestfjörðum gladdi hann, en að sama skapi féll honum þungt, þegar hallaði undan fæti og kjörnir fulltrúar Vestfirðinga og landsbyggðar stóðu ekki undir væntingum á örlagatímum. Það er margs að minnast, þegar hinn aldni höfðingi Matthías Bjarna- son er nú allur. Eitt af því sem er hvað minnisstæðast er húmorinn, hann gat oft verið stórkostlegur, en hér er ekki tækifæri til að fara nánar út í þá sálma. Hitt, sem rétt er að halda til haga, var hispurs- leysi hans og hreinskilni. Vegna þess hvað hann var hreinn og beinn naut hann virðingar fjöl- margra andstæðinga sinna í póli- tík. Þeim þótti vænt um hann. Einhver öflugasti málsvari Ísa- fjarðar, Vestfjarða og lands- byggðarinnar á Íslandi er fallinn frá og honum ber að þakka vel unnin störf. Persónulega þakka ég Matthíasi Bjarnasyni fyrir vin- semd og hjálpsemi um áratuga- skeið, þegar þörf var á stuðningi ráðamanna landsins við réttmæt- ar óskir Vestfirðinga um betra mannlíf. Ég sendi börnum hans, fjöl- skyldum og frændgarði samúðar- kveðjur. Magnús Reynir Guðmundsson, fv. bæjarritari á Ísafirði. Genginn er fyrir ætternisstap- ann félagsmálagarpurinn og full- huginn Matthías Bjarnason í hárri elli. Með hinum margvíslegu þjóðmálastörfum markaði hann djúp spor í atvinnusögu íslenzku þjóðarinnar, þótt fyrirferðar- mesta megi hiklaust telja forystu hans í sjávarútvegsmálum, en undir henni náðu Íslendingar lokaáfanga í stækkun fiskveiði- lögsögunnar. Matthías var borinn og barn- fæddur Ísfirðingur, þótt framætt- ir hans lægju til Eyjafjarðar. Fluttu foreldrar hans austan það- an til Ísafjarðar sem þá var einn mesti uppgangsstaður landsins, en um aldamótin næstsíðustu voru Ísafjörður og Seyðisfjörður mestir uppgangsstaðir næst á eft- ir Reykjavík. Gerðist Matthías ungur að ár- um merkisberi og forystumaður Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði og síðar einnig um gervalla Vestfirði og tók enda síðar við landsstjórn- armálum sem ráðherra um átta ára skeið samtals. Kornungur að árum keypti hann starfandi Bókaverzlun Helga Guðbjartssonar á Ísafirði og rak hana af myndarskap um margra ára skeið, eða allt til þess að þjóðmálastörf hans urðu svo umfangsmikil að leyfðu ekki ann- an starfa. Ennfremur var hann framkvæmdastjóri Djúpbátsins um áratuga skeið, sem sá um allar samgöngur um Ísafjarðardjúp og víðar um Vestfirði. Árið 1946 hrundu Matthías og félagar hans áratuga einveldi Al- þýðuflokksins í bæjarstjórn Ísa- fjarðar. Var Sigurður Bjarnason frá Vigur einnig í fararbroddi þeirra vígaferla. Tók þá að eflast útgerð og fiskvinnsla á Ísafirði. Höfðu umsvif Sjálfstæðisflokks- ins þau áhrif að Kjartan Jóhanns- son læknir vann þingsæti af Al- þýðuflokknum. Skömmu síðar tók Matthías við forystu flokksins á Vestfjörðum. Átti sæti á Alþingi í meira en þrjátíu ár, þar af átta ár á ráðherrastóli. Matthías Bjarnason var skap- ríkur og viljasterkur maður, sem fór sínu fram af vilja og festu. Mörgum flokksgæðingi þótti hann frekur mjög og óbilgjarn í umsvifum sínum fyrir umbjóð- endur sína, en þar kom að hinir sömu mátu verk hans að verðleik- um. Matthías kvæntist ungur að ár- um Kristínu Ingimundardóttur, ættaðri frá Hólmavík. Eignuðust þau tvö myndarbörn, Auði og Hinrik. Kristínu missti Matthías fyrir nokkrum árum. Varð hún Matthíasi mikill harmdauði, en hún hafði átt við heilsuleysi að stríða um alllangt skeið. Vinir Matthíasar kveðja vest- firzku kempuna með virðingu og þakklæti. Hann mun lengi vera minnisstæður vinum sínum og velunnurum, sem biðja honum blessunar Guðs. Sverrir Hermannsson. Matthías Bjarnason var einn af áhrifamestu stjórnmálamönnum þjóðarinnar síðasta aldarfjórðung síðustu aldar. Hann var skapríkur og hlífði sér hvergi ef því var að skipta. Mikill málafylgjumaður en gat slegið á létta stengi ef þannig lá á honum. Hann var allra manna skemmtilegastur í vinahópi, mannfróður og hafði frá mörgu að segja. Hann var svo lifandi í frá- sögnum sínum að þær festust í minni manns. Kannski vegna þess, að þær voru oft lýsandi fyrir aðstæður sögupersónunnar og skaphöfn. Til þess að skilja stjórnmála- manninn Matthías Bjarnason verður að hafa í huga, að hann var Ísfirðingur í húð og hár og það mótaði stjórnmálaferil hans. Það sést glöggt af þeim ráðherraemb- ættum, sem hann gegndi, hvar áherslur hans lágu. Hann var sjávarútvegsráðherra og hefur þáttur hans í lausn landhelgis- málsins verið vanmetinn. Hann var sex ár heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra og loks samgöngu- ráðherra. Á þeim vettvangi sjáum við sporin eftir hann um Vestfirði eins og sjúkrahúsið á Ísafirði, svo að eitthvað sé nefnt. En sam- göngumál Vestfjarða eru sagan endalausa og þörf áminning um, að jafnræði verður ekki með byggðarlögunum umhverfis land- ið fyrr en þau mál verða komin í fullnægjandi horf. Við Kristrún áttum góðar stundir með Kristínu og Matt- híasi. Pólitíkin getur verið erfið á stundum. Þá er gott að rifja upp, að í gegnum hana eignast maður góða vini. Matthías var heil- steyptur stjórnmálamaður, gjör- hugull og vissi hvað hann vildi og hvert hann stefndi. Hann var vin- ur vina sinna og þau Kristín bæði, gestrisin og höfðingjar heim að sækja. Halldór Blöndal. Leiðir okkar Matthíasar Bjarnasonar lágu fyrst saman á SUS-þingi í Hnífsdal haustið 1981. Ég þekkti hann auðvitað af afspurn og vissi að hann hafði ver- ið með öflugustu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í mörg ár. Við þetta tækifæri flutti Matthías eftirminnilega ræðu sem var sneisafull af pólitík en einnig vel krydduð með sögum að vestan. Eftir þetta var okkar samstarf jafnan gott, m.a. í miðstjórn flokksins, þótt hann væri þrjátíu árum eldri en ég og kæmi úr gjör- ólíku umhverfi. Við vorum sam- þingsmenn í átta ár og á meðan ég var þingflokksformaður og hann á sínu síðasta kjörtímabili, 1991-95, var gott traust milli okkar þótt hann væri ekki sáttur við allt sem gert var. Snemma tók ég eftir því hve hann var fljótur að setja sig inn í flókin mál og móta sér af- stöðu til þeirra. Árið 1984, þegar ég var aðstoðarmaður fjármála- ráðherra, barst í tal okkar í milli að ég færði mig til og yrði aðstoð- armaður hans. Af því varð þó ekki. En eftirminnilegt var að hlusta á hann og Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra tak- ast á um fjárveitingar til vega- mála. Í þeirri rimmu vildi hvorugur láta sinn hlut. Matthías var lengi aðsópsmikill í stjórnmálunum og hafði víðtæka reynslu úr atvinnulífi og bæjar- málum á Ísafirði þegar hann tók sæti á Alþingi árið 1963 eftir nokkur átök heima í héraði. Sem sjávarútvegsráðherra undirritaði hann reglugerð um útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 200 mílur 1975. Stærsti stjórnmálasigur hans var án efa samningurinn við Breta um það mál sem gerður var í Ósló 1976. En hann gat einnig verið ánægður með marga aðra áfanga sem náðust fyrir hans tilverknað, bæði í samgöngumálum og á sviði heilbrigðismála. Hann var af gamla skólanum í þeim skilningi að hann var ötull í baráttu fyrir hagsmuni síns kjördæmis og fyrir þá mörgu sem leituðu til hans. Hann var málafylgjumaður, af- burðafundamaður og átti alla tíð mikið persónulegt fylgi. Til þess var tekið hvað Matt- hías var skemmtilegur þegar hann vildi það við hafa. Hann gat sagt sögur af þannig innlifun að viðstaddir grétu af hlátri. Hann var víðfróður og mikill áhugamað- ur um sögu lands og þjóðar, sat m.a. um árabil í Hrafns- eyrarnefnd. Hann var mikill skapmaður og gat verið gríðar- lega harður í horn að taka í póli- tíkinni. Fundu pólitískir andstæð- ingar oft fyrir því en einnig samflokksmenn ef honum mislík- aði. Um tíma sagði hann skilið við Sjálfstæðisflokkinn en sneri til baka í kosningunum 2007 og var sérstaklega hylltur á landsfundi vorið 2013. Í níræðisafmæli sínu í ágúst 2011 lék Matthías við hvern sinn fingur og sagði sögur. Á síðasta ári áttum við langt og ánægjulegt samtal heima hjá honum innan um hans mikla safn náttúrugripa og bóka. Um síðustu jól fengum við hjónin hlýlegt jólakort frá Matthíasi sem lauk með þessum orðum: „Hjá mér hallar degi og endalokin nálgast hægt og bít- andi“. Og nú hefur hann kvatt. SJÁ SÍÐU 28 ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengda- föður, afa, bróður, tengdasonar og frænda, ÓLAFS KRISTÓFERS GUÐMUNDSSONAR framkvæmdastjóra, Lindasmára 4, Kópavogi. Guðný Helgadóttir, Guðmundur Pétur Ólafsson, Bjarney Anna Bjarnadóttir, Rakel Ýr Ólafsdóttir, Lloyd Hans McFetridge, Helga Kristín Ólafsdóttir, Björgólfur Guðmundsson, Þóra Hallgrímsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Gylfi Hallgrímsson, Björg Guðmundsdóttir, Halldór Þorsteinsson, Helgi Þórarinn Guðnason, Guðlaug Einarsdóttir, afabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, fóstur- bróðir, afi og langafi, ERLINGUR NORÐMANN GUÐMUNDSSON, Hörðubóli, Dalabyggð, lést á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal laugardaginn 8. mars. Útförin verður auglýst síðar. Ragnhildur Beatrice Erlingsdóttir, Sigurjón Hannesson, Kristrún Erna Erlingsdóttir, Baldur Kjartansson, Guðríður Erlingsdóttir, Stefán Hólmsteinsson, Líneik Dóra Erlingsdóttir, Guðmundur Erlingsson, Ninna Karla Katrínardóttir, Una Auður Kristjánsdóttir, Hjalti Samúelsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ÞORKELSSON, Garðaflöt 13, Garðabæ, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðju- daginn 4. mars. Útförin fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn 13. mars kl. 15.00. Ásta Helgadóttir, Haraldur Helgason, Valgerður Hannesdóttir, Ólafur Þorkell Helgason, Svandís Torfadóttir, Guðrún Helgadóttir, Geir Gígja, Andri Már Helgason, Margrét Huld Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, SVAVA GUNNARSDÓTTIR frá Steinsstöðum, Akranesi, síðast til heimilis á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða Akranesi, andaðist miðvikudaginn 5. mars. Útför hennar verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 14. mars kl. 14.00. Gunnar Jónsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN MARKÚSDÓTTIR frá Þingeyri, sem lést á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar miðvikudaginn 5. mars, verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 15. mars kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þingeyrarkirkju eða líknarstofnanir. Sigríður Skarphéðinsdóttir, Skarphéðinn Ólafsson, Njáll Skarphéðinsson, Pálína Baldvinsdóttir, Guðbjörg Skarphéðinsdóttir, Hilmar Pálsson, Bjarki Skarphéðinsson, Sigrún Lárusdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.