Morgunblaðið - 11.03.2014, Page 40

Morgunblaðið - 11.03.2014, Page 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2014 Sölustaðir: ELKO búðirnar • Byggt og Búið • Húsasmiðju búðirnar • BYKO búðirnar • Hagkaup • Max • Geisli Kaupfélag Skagfirðinga •Skipavík • Ormsson búiðirnar • Árvirkinn • SR-Byggingavörur • Hljómsýn • Þristur Act Heildverslun Dalvegi 16b • 201 Kópavogur 577 2150 • act@actehf.is R5150- Remington Rotary herrarakvél Hleðslan dugar í 30 mín. 90 mín. að hlaða. Má skola hnífana í vatni. 5 mín. flýti hleðsla. Alþjóðlegur straumur 110-220V XR1350 – Remington Hyper Flex PLUS Rotary rakvél – Lithium Hleðslan dugar í allt að 60 mín. 90 mín. að hlaða. Má skola hnífana í vatni. 5 mín. flýti hleðsla. Alþjóðlegur straumur 110-220V S9600-Remington SILK sléttujárn Digital LCD skjár sem sýnir hitan 150˚C - 240˚C Mjóar extra langar plötur 110mm. Fjótandi plötur sem fylgja hárinu eftir. Hitnar á 10 sek.Hægt að læsa hitastilli. Ci96S1 – Silk alhliða hár-mótunartæki 25mm klofin töng sem býr til margar tegundir af hár- greiðslum, meðalstórar krullur, lausar krullur, bylgjur, mjúka liði. Digital skjár 120-230˚C, hitnar upp á 30 sek., læsing á hitastillir, AC 9096 – Remington Silk hárblásari Kraftmikill 2400W hárblásari. Hárgreiðslustofu gæði með AC motor. Blæs 140 km/h. 6 x hita/hraða stillingar. Turbo boost. Kaldur blástur. Fermingagjafir 2014 Ci96W1-Silk keilujárn 25mm - 13mm. Digital LCD skjár sem sýnir hitan 120˚C - 220˚C Skáldsaga Marks Haddon,Furðulegt háttalag hundsum nótt, hefur heillað margalesendur frá því hún kom út fyrir rúmum áratug og ekki að ástæðulausu. Bókin veitir einstaka innsýn í hugarheim fimmtán ára drengs, Kristófers Boones, sem er á einhverfurófinu. Hann býr m.a. yfir einstökum stærðfræðihæfileikum og tekur eftir öllum sjónrænum smáat- riðum í kringum sig, en á samtímis erfitt með að lesa í mismunandi svip- brigði fólks, vill alls ekki láta snerta sig og er ófær um að segja ósatt. Dag einn finnur hann hund ná- granna síns dauðan úti í garði, rekinn í gegn með garðkvísl og ákveður að rannsaka drápið og skrifa út frá því leynilögreglusögu eftir hvatningu frá kennara sínum, Siobhan. Við rann- sóknina kemst Kristófer hins vegar að fleiru en hvernig örlögum hunds- ins var háttað og segja má að heimur hans hrynji til grunna, sem er sér- staklega ógnvekjandi fyrir dreng eins og hann. Í framhaldinu leggur Krist- ófer í hættuför frá rólegum heimabæ sínum Swindon á Suður-Englandi til stórborgarinnar London. Eitt af því sem gerir skáldsögu Haddon jafn heillandi og raun ber vitni er sterk rödd aðalpersónunnar sem miðlar upplifun sinni og áhuga- verðri sýn á heiminn í fyrstu persónu frásögn. Sú rödd nýtur sín ekki að fullu í annars ágætri leikgerð Simons Stephens. Nálgun hans byggist á því að Siobhan hvetji ekki aðeins Krist- ófer til að skrifa leynilögreglusögu, líkt og í bókinni, heldur sé hún að sviðsetja söguna í samvinnu við m.a. annað starfsfólk og nemendur skólans þar sem Kristófer er við nám. Sú nálgun er fyrst kynnt áhorfendum, mjög stuttaralega, eftir hlé en hefði þurft að vera skýrari frá upphafi. Eins hefði verið gaman að nýta svið- setningarpælinguna betur en gert er í leikgerðinni. Aðeins á örfáum stöðum leyfir Kristófer sér að leiðrétta per- sónurnar sem eru að leika söguna hans á móti honum þegar honum finnst þær fara vitlaust með og upp- skáru slíkar aðfinnslur aðalpersón- unnar allnokkurn hlátur hjá áhorf- endum, enda virkuðu þær vel. Í leikgerðinni er Siobhan ýmist látin fara með utanbókar eða lesa stóran hluta þess texta sem Kristófer miðlar milliliðalaust til lesenda í bókinni og dregur það að nokkru úr vægi drengsins í leikgerðinni og neyðir leikarann sem fer með hlutverk hans til að miðla tilfinningum og hugs- unum aðeins í þöglum leik. Framvindan er fremur hæg fram að hléi, en samt iðulega keyrð áfram á nokkuð þvingaðan hátt líkt og að leikstjórinn væri ósáttur við hæga- ganginn í handritinu. Tempó sýning- arinnar var best um miðbikið og náði hápunkti í vel heppnaðri útfærslu á ferðalagi Kristófers til London. Þar léku sviðshreyfingar Lee Proud lyk- ilhlutverk í að skapa þá ógn sem drengurinn upplifir af umhverfi sínu. Fjölskylduuppgjörið sem við tók í framhaldinu einkenndist hins vegar af of miklum öskrum sem urðu þreyt- andi til lengdar. Val Hilmars Jónssonar leikstjóra á Þorvaldi Davíð Kristjánssyni í hlut- verk Kristófers er snjallt, enda býr Þorvaldur Davíð yfir miklum sviðs- sjarma sem nýtist honum ein- staklega vel í þessu vandasama hlut- verki. Hann nær listilega vel að feta einstigið milli þess að vera annars vegar mjög sympatískur og hins veg- ar óþolandi þegar hann er sem erf- iðastur í samskiptum sínum við ann- að fólk. Best tókst Þorvaldi Davið upp í frábærri útfærslu á viðauka bókarinnar, en þar tók leikgleðin völdin í skemmtilegu og mjög svo sjónrænu samspili við leikmyndina þar sem vídeótækni Petrs Hloušek var nýtt eins og best verður á kosið. Gaman hefði verið að sjá slíkt sam- spil leikara við leikmyndina og vídeó- tæknina enn betur nýtt víðar í sýn- ingunni. Nína Dögg Filippusdóttir fór fallega með hlutverk Judyar, móður Kristófers, þannig að auðvelt var að hafa samúð með henni þrátt fyrir svik hennar við einkasoninn. Brynhildur Guðjónsdóttir var fín í hlutverki Siobhan, þótt hlutverkið byði ekki upp á mikil leikræn tilþrif. Sama verður einnig sagt um hlutverk Eds, föður Kristófers, sem Bergur Þór Ingólfsson lék. Aðrir leikarar brugðu sér í margvísleg hlutverk, allt frá manneskjum af holdi og blóði til húsgagna, og gerðu það með ágæt- um. Öll umgjörð sýningarinnar, hvort heldur er búningar, leikmynd, ljós, tónlist, lýsing eða vídeó, þjónaði inni- haldinu og sögunni vel. Leikmynd Finns Arnars Arnarsonar samanstóð af tveimur löngum færanlegum veggjum með földum dyrum. Hægt var að varpa vídeói á svarta veggina sem og kríta á þá og mátti m.a. sjá kunnunglegar teiknaðar myndir úr bókinni. Aftast á sviðinu sveif risa- stór teningur sem iðulega var not- aður sem tjald fyrir vídeótæknina. Meðal atriða sem voru sérlega vel útfærð sjónrænt séð voru sjósund móðurinnar og leit Kristófers að gælurottunni sinni á neðanjarðar- lestarteinunum í London. Hins vegar hefði þurft að huga betur að lykil- senum á borð við bréfafundinn ör- lagaríka, sem náði ekki að vera sá dramatíski vendipunktur sem hann hefði þurft að vera. Einnig hefði þurft að gera meira úr þeirri rök- rænu niðurstöðu Kristófers að hon- um sé ekki lengur óhætt hjá föður sínum, sem er lykilatriði í allri fram- vindu verksins. Stundum gætti óþarfa ósamræmis í innbyrðis reglum verksins. Sem fyrr segir vill Kristófer ekki láta snerta sig og ræðst jafnvel á þá sem það óvart gera. Þeir feðgar lenda í heiftarlegri rimmu þegar Ed reynir að faðma Kristófer, en örstuttu síðar fá aðrar persónur verksins að bera Kristófer um sviðið án þess að hann mótmæli því með neinum hætti. Síðar í verk- inu sættir hann sig einnig ítrekað við að haldið sé utan um hann og virkar það ankannalega í ljósi þeirra upp- lýsinga sem áhorfendur hafa fengið um persónu hans. Hér hefði farið betur á því að leikstjórinn hefði valið aðrar sviðslausnir og haldið í inn- byrðis samræmi persónunnar. Að öllu framansögðu var samt ánægjulegt að rifja upp kynni sín af hinum heillandi Kristófer og fylgjast með þroskandi ferðalagi hans bæði í tíma og rúmi. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Hundsdráp „Þorvaldur Davíð [býr] yfir miklum sviðssjarma sem nýtist honum einstaklega vel í þessu vandasama hlutverki,“ segir m.a. í rýni um Furðulegt háttalag hunds um nótt, en þar kemur óvænt hundsdráp sögunni af stað. Þroskasaga einstaks pilts Borgarleikhúsið Furðulegt háttalag hunds um nótt bbbnn Leikgerð eftir Simon Stephens byggð á skáldsögu eftir Mark Haddon. Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir. Leikstjórn: Hilmar Jónsson. Leikmynd: Finnur Arn- ar Arnarson. Búningar: Þórunn María Jónsdóttir. Lýsing og vídeó: Björn Berg- steinn Guðmundsson og Petr Hloušek. Sviðshreyfingar: Lee Proud. Hljóð: Thorbjoern Knudsen. Tónlist: Ásgeir Trausti og Frank Hall. Hljóðmynd: Frank Hall og Thorbjørn Knudsen. Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir. Leikarar: Þor- valdur Davíð Kristjánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Jóhanna Vig- dís Arnardóttir, Maríanna Clara Lúth- ersdóttir, Jóhann Sigurðarson, Sigurður Þór Óskarsson, Álfrún Helga Örnólfs- dóttir og Arnar Dan Kristjánsson. Frum- sýning á Stóra sviði Borgarleikhússins 8. febrúar 2014. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Hasarmyndin 300: Rise of an Emp- ire var sú kvikmynd sem mestum miðasölutekjum skilaði yfir helgina af þeim myndum sem sýndar eru í kvikmyndahúsum landsins. Alls sáu rúmlega 4.400 manns þá mynd. Teiknimyndin Ævintýri hr. Píbodýs og Sérmanns var einnig vinsæl hjá landanum, en hana sáu rúmlega 5.400 manns um helgina. Myndirnar tvær skákuðu þar með The Lego Movie sem trónt hefur á listanum sl. þrjár vikur, en á sl. fjórum vikum hafa rúmlega 28 þús- und manns séð hana. Mest sótta myndin í bíóhúsum landsins um þessar mundir er sem fyrr Frozen, en hana hafa tæp 48 þúsund manns séð á sl. þrettán vikum. Alls rötuðu fjórar nýjar myndir inn á topp-tíu-listann þessa vikuna, þeirra á meðal er Saving Mr. Banks sem fjallar um rúmlega 20 ára bar- áttu Walts Disneys fyrir því að fá Helen Lyndon Goff, höfund Mary Poppins, til að samþykkja kvik- myndun bóka hennar um barnfóstr- una ástsælu. Bíóaðsókn helgarinnar Bíólistinn 7. - 9. mars 2014 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 300: Rise of an Empire Mr. Peabody and Sherman Lego The Movie Non-Stop Gamlinginn (Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann ) Ride Along 3 Days to Kill Monuments Men, The 12 Years A Slave Saving Mr. Banks Ný Ný 1 2 3 4 Ný 5 15 Ný 1 1 4 2 3 3 1 2 8 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Hasar og krúttlegheit hafa betur en legóið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.