Morgunblaðið - 11.03.2014, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2014
Tónlistarmaðurinn Neil Young
hyggst síðar í þessari viku kynna
nýja netverslun með tónlist og nýj-
an spilara þar sem áhersla er lögð á
meiri tóngæði en nú tíðkast.
Young verður aðalræðumaður á
SXSW-ráðstefnunni í Texas þar
sem fjallað er um tónlist, óháða
kvikmyndagerð og tækniframfarir.
Í fréttatilkynningu, sem birt var á
aðdáendavef Youngs, kom fram að
hann hygðist efna til hópfjármögn-
unar á vefsvæðinu Kickstarter fyrir
nýja spilarann, sem nefnist Pono.
Munu fyrstu kaupendur fá afslátt af
fyrirhuguðu verði, sem er 399 doll-
arar (tæpar 45 þúsund krónur), og
verður spilari tekinn frá fyrir þá.
Hægt verður að hala tónlist niður
úr vefverslun, sem á að heita Pono-
Music og mun bjóða upp á hljóð-
skrár í mun meiri upplausn en
keppinautar á borð við iTunes-
verslun Apple. „Þetta snýst um tón-
listina, raunverulega tónlist,“ var
haft eftir Young, sem í sumar held-
ur tónleika á Íslandi. „Við viljum
færa stafræna tónlist inn í 21. öld-
ina og PonoMusic gerir það.“
Hugmyndin um Pono er ekki ný
og segist Young hafa rætt hana við
Steve Jobs, yfirmann Apple, 2012
án þess að neitt kæmi út úr því.
Margir eru að vinna að því að
koma á markað tækjum til að spila
stafræna tónlist með meiri gæðum
en nú tíðkast. „Þegar stafræn tón-
list kom fram á sjónarsviðið fyrir
rúmum áratug fórnuðu neytendur
hljómgæðum fyrir aðgengi og
hreyfanleika,“ segir Jeff Hiatt,
markaðsstjóri Sony Electronics.
„Vegna snaraukins aðgengis að
breiðbandi og viðráðanlegs verðs á
geymsluplássi undir skrár eru þessi
skipti ekki lengur nauðsynleg.“
AFP
Baráttumaður Neil Young telur að mp3-skrár geymi svo litlar upplýsingar
að tónlist komist ekki til skila. Hann telur að Pono muni bæta úr því.
Neil Young boðar
tímamótatónhlöðu
Tóngæði á oddinn í spilaranum Pono
Þetta var ekki eins einfalt ogþað virtist,“ segir í lokfyrstu sögunnar í þessumerka sagnasafni, þar sem
ung kona reynir að lýsa furðulegum
viðburðum. Það má auðveldlega
heimfæra á allan þann dapurlega en
þó hrífandi heim sem birtist í smásög-
um bandaríska sagnameistarans og
ljóðskáldsins Raymonds Carvers
(1938-1988), í bókinni Það sem við töl-
um um þegar við tölum um ást. Sög-
urnar eru svo meitlaðar, en jafnframt
lágstemmdar, að við fyrstu sýn virð-
ast þær einfaldar. En sú er alls ekki
raunin. Hér opinberast djúpur og
hrífandi sagnaheimur þar sem fjallað
er um samskipti fólks, iðulega erfið
og stormasöm, og alls ekki er allt orð-
að eða sýnilegt á yfirborðinu. En les-
andinn skynjar tilfinningarnar, hugs-
anirnar, hinn ósagða undirtexta, fyrir
tilstilli textagaldurs sem aðeins er á
færi bestu höfunda.
Í safninu eru 17 smásögur, og hafa
margar þeirra verið gefnar út í
sagnasöfnum, en saman mynda þær
afar áhrifaríka heild. Ástin kemur
víða fyrir, birtist t.a.m. í brostnum
vonum, skilnuðum og framhjáhaldi;
drykkja, misskilningur og hirðuleysi
um sjálfan sig og ástvinina, allt kem-
ur það við sögu, og undir krauma
óánægja og vonbrigði. Hinar litlu
ánægjustundir geta þó verið dýr-
mætar og lýsa upp annars gráa til-
veruna. Allt þetta túlkar höfundurinn
á snjallan hátt í fáorðum lýsingum og
gríðarvel skrifuðum samtölum.
Ljóðskáldið og sagnasmiðurinn
Óskar Árni Ósk-
arsson hefur þýtt
smásagnasafn Car-
vers, og gert það
afskaplega vel,
enda mætti benda
á ýmiss konar
skyldleika milli
sagna og ljóða
þeirra beggja. Áð-
ur hefur komið út þýðing Óskars
Árna á Sendiferðinni, síðustu smá-
sögum Carvers, þar á meðal sam-
nefndri sögu sem fjallar um dauða
skáldsins Anotons Tsjekhovs, sem
Carver hélt mikið upp á. Er það ein-
hver sú snilldarlegasta frásögn sem
undirritaður hefur lesið. Forvitnilegt
er að bera saman þessi tvö sagnasöfn
höfndarins og sjá þá þróun sem verð-
ur í höfundarverki Carvers á nokkr-
um árum. Sögurnar í Sendiferðinni
voru ekki gefnar út fyrr en eftir and-
lát Carvers árið 1988, þegar hann var
fimmtugur, en Það sem við tölum um
þegar við tölum um ást kom út árið
1981. Mikið hefur verið skrifað um
höfundarverk hans og í dag er vitað
að sögurnar í þessu safni voru skorn-
ar ótæpilega niður og slípaðar, ekki
síst fyrir hvatningu þáverandi rit-
stjóra Carvers, sem virðist hafa í því
ferli öllu fundið þennan sérstæða ein-
kennistón, geirneglt þessa nálgun við
alþýðufólkið, drauma þess og brostn-
ar vonir, sem hrífa okkur hér sem
annars staðar. Þetta eru heillandi
sögur sem unnendur vandaðra bók-
mennta ættu að lesa.
Sagnameistari Carver þótti með
fremstu smásagnahöfundum.
Djúpur og hrífandi
sagnaheimur Carvers
Smásögur
Það sem við tölum um þegar við
tölum um ást bbbbb
Eftir Raymond Carver.
Óskar Árni Óskarsson þýddi.
Bjartur 2013. Kilja, 153 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
300:RISEOFANEMPIRE3D KL.5:40-8-10:20
300:RISEOFANEMPIREVIP KL.5:40-8-10:20
SAVINGMR.BANKS KL.5:20-8-10:40
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
WINTERSTALE1 KL.10:20
GAMLINGINN KL.8
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.5:50
THELEGOMOVIEENSTAL2D KL.8
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.8-10:20
NONSTOP KL.8
3DAYSTOKILL KL.10:20
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL3DKL.5:50
THELEGOMOVIE ÍSLTAL2DKL.5:50
KEFLAVÍK
AKUREYRI
300:RISEOFANEMPIRE3DKL.8-10:20
SAVINGMR.BANKS KL.8
NONSTOP KL.10:40
GAMLINGINN KL.5:30
THELEGOMOVIE ÍSLTAL3DKL.5:50
300:RISEOFANEMPIRE2DKL.5:40-8-10:20
NONSTOP KL.10:40
GAMLINGINN KL.5:30-8-10:30
12YEARSASLAVE KL. 5:20 -8
300:RISEOFANEMPIREKL.3D:8-10:10 2D:5:50
GRAVITY3D SALUR1(STÆRSTATJALDLANDSINS) KL.5:50
NONSTOP KL.5:40-8-10:20
GAMLINGINN KL.8-10:20
I,FRANKENSTEIN KL.10:30
HR.PÍBODYOGSÉRMANN ÍSLTAL2DKL.5:50
LÍFSLEIKNIGILLZ KL.8
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUOG ENSKU TALI
Í 2D OG 3D
SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
VARIETY
ENTERTAINMENT WEEKLY
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM ZACK SNYDER,
LEIKSTJÓRA 300 OG MAN OF STEEL ÞAÐERENGINNHARÐARIENLIAMNEESON
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞRIÐ
JUDA
GSTI
LBOÐ
ÞR
IÐJ
UD
AG
ST
ILB
OÐ
ÞR
IÐJ
UD
AG
ST
ILB
OÐ
ÞR
IÐJ
UD
AG
ST
ILB
OÐ
ÞR
IÐ
JU
DA
GS
TIL
BO
Ð
ÞR
IÐ
JU
DA
GS
TIL
BO
Ð
12
12
12
12
L
ÍSL TAL
utv
Besti leikari í aukahlutverki
erki
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND
MEÐ KEVIN COSTNER
OG HINUM ÍSLENSKA
TÓMASI LEMARQUIS
FRÁ ÞEIM SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR TAKEN
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
3 DAYS TO KILL Sýnd kl. 8 - 10:20
HR.PÍBODY & SÉRMANN 3D Sýnd kl. 6
THE MONUMENTS MEN Sýnd kl. 8 - 10:25
RIDE ALONG Sýnd kl. 6 - 10:25
DALLAS BUYERS CLUB Sýnd kl. 5:45 - 8
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is