Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
OPEL ASTRA ENJOY TURBO
09/2008, ekinn 82 Þ.km, 6 gíra.
Verð 1.940.000 TILBOÐ 1.590.000.
Raðnr.251732 áwww.BILO.is
MMCOUTLANDER COMFORT
11/2004, ekinn 39 Þ.km, sjálf-
skiptur, leður, topplúga.
Verð 1.690.000. Raðnr. 251851
á www.BILO.is
TOYOTA Land Cruiser 120VX
03/2004, 8manna, ekinn 315
Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Smur- og
þjónustubók. Verð 1.990.000.
Rnr.400369
SKODA Superb Ambition
diesel 4x4
Árgerð 10/2011, ekinn 64 Þ.KM,
sjálfskiptur. Verð 4.890.000.
Rnr.400290
Valdir bílar á
100% láni
Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD.
● Samningsviðræður milli Rússlands
og Efnahags- og samvinnustofnunar-
innar, OECD, hafa verið settar á ís, en
tengsl við Úkraínu verða aukin. Þetta
kom fram í tilkynningu frá stofnuninni í
gær, en alls eru 34 lönd aðilar að henni.
Tilkynningin kemur í kjölfar aukinnar
pressu á Rússland vegna atburðanna á
Krímskaganum sem hafa svo gott sem
fryst samskiptin milli Moskvu og vest-
urveldanna.
Nánar á mbl.is
Viðræður OECD og
Rússa settar á ís
VIÐTAL
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Sprotafyrirtækið GIRO hefur varið
44 milljónum á síðustu tveimur árum
til að þróa hita- og þrýstimæli sem
nýtist við rannsóknir og boranir á há-
hitasvæðum. Fyrir viku seldi fyrir-
tækið fyrsta mælinn til Landsvirkj-
unar, að því er stofnendur
fyrirtækisins, hugvitsmaðurinn Sölvi
Oddsson og Gunnar Gunnarsson lög-
maður, segja í samtali við Morgun-
blaðið.
Nú er svo komið að þeir velta fyrir
sér hvernig best sé að standa að fjár-
mögnun á næstu skrefum fyrirtæk-
isins: að framleiða mælana og selja
þá hér á landi og erlendis.
Raunar er þessi mælir afsprengi
vinnu við þróun á hitaþolnum stefnu-
og hallamæli sem fer í prófanir síðar
á þessu ári, og ætti að verða fáan-
legur á næsta ári.
Olíugeirinn heillar líka
Þegar fram líða stundir sjá þeir
fyrir sér að fyrirtækið hasli sér einn-
ig völl í olíugeiranum. „Ef mælarnir
virka í jarðhita virka þeir klárlega í
olíu. Jarðhitamælingar eru mun erf-
iðari viðureignar en olían,“ segir
Sölvi.
Hann hefur auk þess hugmyndir
um að smíða og selja mun fleiri vörur
sem tengjast jarðhita og olíuvinnslu.
„Fyrirtækið minnir á jólatré, það er
hægt að hengja svo mikið á það. Það
þarf til dæmis spil til að koma mæl-
inum ofan í holuna, ég vil smíða létt-
ari spil en tíðkast í dag, svo þarf dýpt-
armæli til að mæla hve djúpt
mælarnir fara, og svo mætti lengi
telja. Það er engin ástæða til að láta
staðar numið hér. Möguleikarnir og
tækifærin eru mörg,“ segir Sölvi.
Gunnar segist sjá fyrir sér, að
GIRO verði samstarfsvettvangur
fólks með hugmyndir að vörum fyrir
jarðhita og boranir. „Við viljum sér-
hæfa okkur á þessu sviði og hugvits-
menn þurfa aðstoð við að láta hug-
myndir sínar verða að veruleika,“
segir hann. „Það er langur vegur frá
því að eiga góða hugmynd og hrinda
henni í framkvæmd. GIRO gæti verið
það sem upp á vantar til að gera
margar góðar hugmyndir að veru-
leika.“
Aðspurður hvernig það kom til að
Sölvi hóf að smíða þessa mæla, segir
hann að hugmyndin hafi kviknað
þegar hann vann við boreftirlit á
Hellisheiði hjá Mannviti. Þá sá hann
möguleika á að búa til búnað sem
myndi spara peninga og stytta bor-
tíma, sem er téður stefnu- og halla-
mælir. Nema hvað, í miðju kafi tók
hann þá „rökréttu ákvörðun“ að
smíða fyrst hita- og þrýstimæli sem
sé einfaldara tæki, sem byggist á
upphaflegu hugmyndinni, og Lands-
virkjun hefur nú keypt.
Nýjungin sem Sölvi hafði fram að
færa var að búa til stefnu- og halla-
mæli sem þoldi mun meiri hita en
gengur og gerist á markaðnum í dag.
Gunnar segir að boltinn hafi farið
að rúlla þegar Landsvirkjun varð
samstarfsaðili GIRO og þegar félagið
fékk fyrstu styrkina vegna verkefn-
isins. Fyrirtækið hefur fengið 20
milljónir frá Tækniþróunarsjóði,
andvirði 21 milljónar frá Landsvirkj-
un í formi beins fjárstuðnings, tækni-
aðstoðar og annarrar fyrirgreiðslu
og þrjár milljónir frá Íslandsbanka,
„fyrir utan alla vinnuna og tímann
sem við höfum lagt til sem á endan-
um skapaði vöruna og fyrirtækið“.
Sölvi segir að þeir hafi notið góðs
af aðstoð frá Landsvirkjun og Orku-
veitu Reykjavíkur. Fyrirtækin hafi
leyft þeim að prófa mælana í borhol-
um þeirra, sem er ekki sjálfgefið því
borholurnar eru mjög verðmætar.
Lykillinn að þróuninni á mælunum
var einmitt aðgengi að borholum.
„Þessi aðstoð gerði okkur kleift að
sanna okkur og sýna að varan virk-
ar,“ segir Sölvi.
Gunnar bendir á að nokkur íslensk
fyrirtæki hafi sprottið fram sem veiti
erlendum jarðhitafyrirtækjum ráð-
gjöf, en þeim þykir spennandi að
vera búnir að koma á fót fyrirtæki
sem framleiðir tæki og tól til að þjón-
usta þennan iðnað. „Takist okkur að
koma á samstarfi við þau, skapast
mörg tækifæri,“ segir hann.
Umræddur hitamælir var fram-
leiddur alfarið á Íslandi, ef frá er tal-
in hitaflaskan, sem væri mögulegt að
framleiða hér á landi, að sögn Sölva.
„Það er vel hægt að smíða þetta allt
hér á landi,“ segir hann.
Tilbúnir í landvinninga með mæli
Morgunblaðið/Þórður
Frumkvöðlar Stofnendur GIRO, þeir Gunnar Gunnarsson lögmaður og hugmyndasmiðurinn Sölvi Oddsson.
Sprotafyrirtækið GIRO hefur varið 44 milljónum á síðustu tveimur árum til að þróa hita- og þrýsti-
mæli Nýtist við rannsóknir og boranir á háhitasvæðum Renna hýru auga til olíumarkaðarins
Seldu til Landsvirkjunar
» Fyrir viku seldi GIRO sinn
fyrsta hita- og þrýstimæli, sem
það varði tveimur árum í að
þróa, til Landsvirkjunar.
» Mælirinn er afsprengi vinnu
við þróun á hitaþolnum stefnu-
og hallamæli sem ætti að
verða fáanlegur á næsta ári.
● Á morgun frá kl. 13-17 munu Deloitte
og Lögfræðiaðstoð Orators bjóða upp á
ókeypis aðstoð við gerð skattframtala í
Lögbergi, Háskóla Íslands, 3. hæð. Um
er að ræða árvisst samstarfsverkefni
Orator og Deloitte þar sem almenningi
býðst að mæta í Háskóla Íslands og fá
ókeypis ráðgjöf um hvernig rétt skal
standa að framtalsskilum á skatti.
Meistaranemar í lögfræði og sérfræð-
ingar Deloitte verða á staðnum.
Aðstoð við framtalið
● Talið er að viðskipti með falsaðan
varning nemi yfir 250 milljörðum
Bandaríkjadala á hverju ári. Embætti
tollstjóra tekur þátt í alþjóðlegu
verkefni sem beinist gegn vörufölsun
og tengslum við fjölþjóðlega skipu-
lagða glæpastarfsemi.
Herferðin ber yfirskriftina: „Fals-
anir: ekki kaupa hlut í skipulagðri
glæpastarfsemi“. Herferðin sem um
ræðir er á vegum fíkniefna- og af-
brotamálaskrifstofu Sameinuðu
þjóðanna. Eru neytendur hvattir til að
leiða hugann að því hverjir og hvað sé
að baki framleiðslu á fölsuðum
vörum. Nánar á mbl.is
250 milljarðar dollara
STUTTAR FRÉTTIR
!"
#""
#$"
%#"
!!$
%
#%!
!!%
"%%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
"!
##"
#%
%
!"$
#%#"
!$!
"
!!
#$"
#%!
%!
!" "
#%$
!!
"
#"$"
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á