Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Bókhald
Skattframtal
Framtalsskil fyrir einstaklinga og
fyrirtæki.
Sanngjarnt verð
www.rekstrargreining.is
info@rekstrargreining.is
! " "#$ % !
&$"'"(## ) ***+
+
Ýmislegt
Teg. 06023-501 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir:
37-40. Verð: 17.900.
Teg. 0327-503 Flottir dömuskór úr
leðri, fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 18.885.
Teg. 01327-301 Flottir dömuskór úr
leðri, fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 16.985.
Teg. 7528 Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri, fóðraðir. Stærðir:
37 - 40. Verð: 18.885.
Teg. 041-22 Flottir dömuskór úr leðri,
fóðraðir. Stærðir: 37-40.
Verð: 21.475.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.– fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Baldur fæddistí Reykjavík 24.
júní 1933. Hann
lést á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Skógarbæ í
Reykjavík 1. mars
2014.
Foreldrar Bald-
urs voru Magna
Ólafsdóttir, f. 27.
júní 1898, d. 12. júlí
1987, og Bjarni
Bjarnason, f. 5. júlí 1901, d. 23.
júlí 1972. Baldur var þriðji í röð
sex systkina, en systkini hans
eru: Anna Ólafía, f. 24. nóv-
ember 1927, d. 4. nóvember
2013; Bjarni Valgeir, f. 29.
ágúst 1931; Bragi Guðmundur,
f. 26. september 1935; Bára
Helga, f. 27. janúar 1937, og
Alda Björg, f. 1. mars 1942.
Fyrri kona Baldurs var Guð-
rún Jóna Sigurjónsdóttir og
eignuðust þau einn
son, Baldur Þór, f.
19. mars 1961. Þau
skildu. Hinn 19.
ágúst 1967 kvænt-
ist Baldur eftirlif-
andi eiginkonu
sinni, Iben Sonne,
f. 12. febrúar 1944
í Danmörku.
Barnabörn Baldurs
eru átta talsins og
langafabörnin eru
orðin sjö.
Baldur var lengst af starfs-
ævinni leigubílstjóri í Reykja-
vík, fyrst hjá Steindóri en
lengst af þó á Borgarbílastöð-
inni. Síðustu starfsárin starfaði
hann sem húsvörður hjá Knatt-
spyrnufélaginu Val á Hlíð-
arenda.
Útför Baldurs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 14. mars
2014, kl. 13.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín
Iben.
Í dag kveð ég bróður og góð-
an vin. Dengsi, eins og hann var
ávallt kallaður af fjölskyldu og
vinum, var drengur góður og
heill.
Ávallt var hægt að reiða sig á
aðstoð hans og oft hljóp hann
undir bagga með okkur Birnu
þegar eitthvað kom upp á hjá
okkar stóra barnahópi.
Við ólumst upp saman í hópi
sex systkina á Laugavegi 11.
Eins og gengur og gerist var
ýmislegt brallað á æskuárunum
og miðbærinn var okkar leik-
völlur. Minningar af sleðabruni
á Arnarhóli og skautum á
Tjörninni koma upp í huga mér
þegar ég hugsa til baka til þess-
ara ára.
Dengsi fór ungur í sveit á
sumrin til frændfólks okkar að
Erpsstöðum í Dalasýslu og undi
hag sínum vel þar. Á unglings-
árunum störfuðum við saman á
Eyrinni, sem oft var fyrsta starf
ungra manna á þessum árum.
Eftir það fór Dengsi eina vertíð
á síld með pabba, en eftir það
hófst akstursferill hans. Í fyrstu
ók hann sendibíl hjá KRON en
fljótlega færði hann sig yfir í
leigubílaakstur, en við það starf-
aði hann lengst af ævinnar. Síð-
ustu ár starfsævinnar starfaði
Dengsi hjá Knattspyrnufélaginu
Val sem húsvörður í íþróttahúsi
félagsins á Hlíðarenda. Þótti
honum vænt um að fá að ljúka
starfsævinni hjá félaginu sínu,
en hann hætti störfum rétt fyrir
sjötugsafmælið sitt.
Dengsi hafði ávallt gaman af
dansi og Iben konu sinni kynnt-
ist hann einmitt þegar hann
fylgdi vini sínum Sigvalda Þor-
gilssyni danskennara á dans-
námskeið í London.
Ég man hvað krakkarnir
mínir voru spenntir þegar von
var á Dengsa frænda í heim-
sókn. Ekki nóg með að hann
æki alltaf um á flottum amerísk-
um drossíum, heldur var hann
einnig mikill sprelligosi og þótti
gaman að ærslast í ungviðinu
með töfrabrögðum og öðru
glensi. Minnast þau því Dengsa
með miklum hlýhug og gleði í
hjarta.
Kæri bróðir, hafðu þökk fyrir
samfylgdina, þitt ljúfa og rólega
viðmót og góðar minningar í
gegnum tíðina.
Við Birna biðjum Guð að
styrkja Iben, Baldur Þór og
aðra aðstandendur í þeirra sorg.
Þinn bróðir,
Bragi (Lillibó).
Nú hefur hann Dengsi okkar
kvatt þetta jarðlíf. Trú manna
er misjöfn um hvað tekur þá við
og er það bara gott. Hver og
einn verður að fá að trúa því
sem honum finnst réttast.
Mig langar að kveðja þig
Dengsi minn með nokkrum
minningabrotum sem undan-
farna daga hafa komið upp í
huga mér.
Þegar við hittumst í fyrsta
sinn sagðir þú dálítið skondið,
sem ég ætla ekki að hafa eftir
hér, en þá sá ég strax hversu
vænt þér þótti um einkason
þinn, hann Baldur Þór. Hann
var á þessum tíma að vinna á
varðskipinu Þór og þótti mér
aðdáunarvert að alltaf þegar
hann fór út og eins þegar hann
kom í land, þá varst þú mættur
á bryggjuna til að kveðja eða
taka á móti honum. Alveg sama
hvernig veðrið var, alltaf varst
þú mættur.
Eftir að börnin okkar Bald-
urs fóru að koma í heiminn sá
ég líka hversu barngóður þú
varst. Þegar þið Iben komuð í
heimsókn snerist þú í kringum
þau og breyttist í raun sjálfur í
barn. Oft á tíðum voru lætin
orðin slík að ég bað þig að róa
þig aðeins. Þá sagðir þú já, já,
en hélst svo bara áfram. Svo
eftir að þið hjónin voruð farin
tók oft langan tíma að ná bless-
uðum börnunum niður.
Eins er mér minnisstætt
sumar eitt, þegar við fórum með
þér og Iben í sumarbústað. Bú-
staðurinn var mjög lítill og þ.a.l.
herbergin mjög lítil. Þegar svo
átti að fara að sofa gat Iben alls
ekki hugsað sér að sofa í svona
kompu og sagðist ætla að sofa
úti í bíl.
Við stríddum henni auðvitað
heilmikið og sögðum henni (hún
er dönsk) að sannir Íslendingar
létu nú ekki lítið og þröngt her-
bergi hræða sig. En þú, Dengsi,
sannaðir enn og aftur hversu
góður maður þú varst og tókst
svefnpokann þinn og fórst með
þinni konu út í bíl og þar sváfuð
þið.
Annað var það sem líka ein-
kenndi þig. Það að gefast upp
var ekki til hjá þér og þegar
eitthvað bjátaði á varst þú alltaf
til staðar og sagðir oft þessar
fleygu setningar, sem seint
munu renna mér úr minni, og
steyttir hnefann þeim til
áherslu: „Nú er bara að gera
hluti“ og „Það veður enginn í
vélarnar“.
Já Dengsi minn, svona varst
þú. Þegar svo alzheimer-sjúk-
dómurinn fór að herja á þig þá
komu auðvitað erfiðir tímar,
sérstaklega fyrir þig og hana
Iben þína og Baldur son þinn.
Samt verður að segjast að þótt
þú hættir að þekkja flest af
fólkinu í kringum þig varstu
alltaf kátur og hress, en það var
líka eitt af því sem einkenndi
þig svo mjög. Ég man varla eft-
ir þér nema með bros á vör.
Nú ætla ég að láta þessu lok-
ið og kveðja þig. Hver veit svo
hvort við hittumst aftur „hinum
megin“.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Iben, Baldur og aðrir
nákomnir, ég votta ykkur mína
innilegustu samúð.
Guðrún Lára (Gunna).
Afi Dengsi var vinalegur
maður með hvítt skegg og góð-
leg augu. Alltaf þegar við hitt-
um hann fengum við fallegt
bros, hlýja kveðju og þétt inni-
legt handtak. Munum við alltaf
minnast hans þannig.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Vald. Briem)
Við sendum þeim sem okkur
standa næst og eiga sárast um
að binda, Iben og pabba, alla
okkar ást og styrk.
Rakel Huld, Karen Rut,
Davíð Þór, Aron Örn og
fjölskyldur.
Góður drengur, heiðarlegur,
traustur, fyndinn og skemmti-
legur er mér efst í huga er ég
minnist Dengsa vinar míns.
Dengsi, eins og hann var alltaf
kallaður, og Iben konan hans
voru vinir okkar fjölskyldunnar
í nær 50 ár. Iben og Dengsi var
samnefni er um þau var rætt
því svo samrýnd voru þau að í
okkar huga voru þau sannarlega
eitt. Ég minnist margra góðra
stunda sem við áttum saman á
heimili okkar Hebba, það leið
varla sú vika að ekki heimsæktu
þau okkur á Álfholtsveginn eða í
Dalalandið og oft var þá glatt á
hjalla og umræður skemmtileg-
ar, ekki síst þar sem Dengsi
fann oftast fyndnu hliðina á
málefnunum. Leiðir skildi hjá
góðum vinum en vináttan var
alltaf jafnsterk, eins og aldrei
hefði verið kvatt þótt höf skildu
okkur að.
Þannig var það í hvert sinn
er við hittumst í heimsóknum
mínum til Íslands. Elsku Iben
mín, ég vef þig örmum í hug-
anum og vildi óska að ég væri
þér nærri á þessum erfiða tíma.
Ég veit í hjarta mínu að Dengsa
mínum verður vel tekið hinum
megin, svo drengilega gekk
hann um götu lífs síns. Við
kveðjum góðan vin með trega í
hjarta.
Margrét Sölvadóttir
og fjölskylda.
Baldur Þorsteinn
Bjarnason
✝ GuðmundurGuðmundsson
fæddist 20. maí
1919 á Núpi í
Haukadalshreppi í
Dalasýslu. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hlévangi í Reykja-
nesbæ 3. mars
2014.
Foreldrar hans
voru Sólveig Ólafs-
dóttir, f. 15.10. 1885, d. 13.2.
1936, og Guðmundur Guð-
mundsson, bóndi á Núpi í
Haukadal, Dal., f. 29.9. 1879, d.
14.9. 1926. Uppeldisfaðir Guð-
mundar var Guðjón Gísli Sig-
urðsson, f. 3.6. 1895, d. 21.8.
1982. Systkini hans voru: Sigríð-
ur hjúkrunarkona í Englandi, f.
23.4. 1909, d. 6.11. 1997, Sig-
urlaug húsfreyja í Keflavík, f.
6.11. 1911, d. 2.3. 1987, Jóna El-
ísabet, ljósmóðir og húsfreyja í
Reykjavík, f. 11.6. 1915, d. 16.5.
1995, Jóhannes, prentari í
Reykjavík, f. 26.2. 1917, d. 16.10.
1993, Ólafía Katrín, húsfreyja í
Keflavík, f. 27.3. 1918, d. 7.4.
1995, Kjartan bifreiðarstjóri í
Keflavík, f. 23.4. 1921, d. 12.8.
1972, Jón Kristinn, pípulagn-
ingameistari í Borgarnesi, f. 2.3.
1923, d. 19.5. 2004, Guðfinna
Sumarrós, verkakona Keflavík,
f. 5.6. 1924, d. 20.11. 2012, og
hálfbróðir hans sammæðra var
Sigurvin Ingvi Guðjónsson,
bóndi á Mjóabóli í Haukadal,
Dal., f. 18.4. 1927, d. 1.8. 1998.
Guðmundur kvæntist Önnu
Jósefsdóttur, f. 18.11. 1918, d.
10.2. 1995, frá Hlíðartúni í Mið-
dölum 8. ágúst
1942. Guðmundur
og Anna eignuðust
þrjár dætur, þær
Kristínu, f. 8.3.
1941, Ólafíu Gunn-
laugu (Stellu), f.
23.3. 1943, og Guð-
veigu, f. 26.8. 1950.
Guðmundur eign-
aðist sjö barnabörn,
15 barnabarnabörn
og fimm barna-
barnabarnabörn.
Guðmundur ólst upp í for-
eldrahúsum og hjá móður sinni
á Núpi til 10 ára aldurs, þegar
hann fór í vist að Skriðukoti en
þar dvaldist hann í sex ár hjá
þeim hjónum Árna Jónassyni og
Sigurjónu Jónsdóttur. Að þeirri
vist lokinni gerðist hann vinnu-
maður víðar í Haukadal og Mið-
dölum.
Guðmundur og Anna hófu
fyrst búskap á Núpi í Haukadal,
Dalasýslu. Árið 1946 festu þau
kaup á jörðinni Kolsstöðum í
Miðdalahreppi og bjuggu þar til
ársins 1966 þegar þau brugðu
búi og fluttust til Keflavíkur,
þar starfaði Guðmundur hjá
Pósti og síma. Árið 1974 fluttust
Guðmundur og Anna aftur í Dal-
ina og störfuðu á Dvalarheimili
aldraðra á Fellsenda í Miðdölum
allt til starfsloka, lá þá leiðin aft-
ur til Keflavíkur. Guðmundur
dvaldi síðustu ár ævi sinnar á
Hlévangi, dvalarheimili aldr-
aðra í Reykjanesbæ.
Útför Guðmundar fer fram
frá Kvennabrekkukirkju í dag,
14. mars 2014, og hefst athöfnin
kl. 14.
Í dag kveðjum við elskulegan
afa okkar í hinsta sinn. Æsku-
minningarnar leita fram en við
systkinin vorum svo lánsöm að
fá að njóta samvista við hann
og ömmu okkar, bæði sem börn
og fullorðin á Kolsstöðum og í
Keflavík. Afi var með eindæm-
um hraustur alla sína tíð og
mikið ljúfmenni. Hann var mik-
ill Dalamaður og voru Kolsstað-
irnir hans líf og yndi og þangað
leitaði hann ávallt um leið og
vora tók og dvaldi þar á sumrin
í áraraðir eftir að hann fluttist
alfarið til Keflavíkur. Þar dund-
aði hann sér við að lagfæra
girðingar, dyttaði að húsinu og
rak kindur úr túninu allt þar til
hann gat ekki verið einn lengur
vegna aldurs. Hann var ávallt
nægjusamur, vildi alls ekki láta
hafa fyrir sér og gætti hófsemi
í einu og öllu sem gerði það að
verkum að hann hafði góða
heilsu og gat notið alls hins
besta allt til æviloka.
Elsku afi okkar, við kveðjum
þig með söknuði í hjarta en
gleðjumst yfir öllum góðu
minningunum sem við eigum
um ykkur ömmu sem hefur nú
tekið á móti þér með bros á
vör.
Takk fyrir allt elsku afi.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín barnabörn
Anna Bára, Svavar Guðni
og Rakel Linda.
Guðmundur
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má
finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má
smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi
lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útför-
in fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar
verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera
umsjónarfólki minningargreina viðvart.
Minningargreinar