Morgunblaðið - 14.03.2014, Side 14

Morgunblaðið - 14.03.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 Már Guðmundsson, seðlabanka- stjóri, sendi í gær frá sér eftirfar- andi yfirlýsingu: Því hefur verið haldið fram á und- anförnum dögum að tilvísun mín til sjálfstæðis Seðlabankans varðandi það dómsmál sem ég rak varðandi launamál mín sé eftiráskýring. Í þessu sambandi hefur einkum verið vísað til tvenns. Það fyrra er að það geti vart skert sjálfstæði Seðla- bankans að sami aðili ákveði laun seðlabankastjóra og til dæmis hæstaréttardómara sem séu sjálf- stæðir í störfum sínum. Það er alveg rétt enda hefur því ekki verið haldið fram af mér né af lögmanni mínum að það í sjálfu sér að kjararáð ákveði laun seðlabankastjóra gangi í ber- högg við sjálfstæði Seðlabankans. Það seinna sem nefnt er að sjálf- stæði Seðlabankans hafi ekki komið fram sem málsástæða fyrir dóms- stólum. Það er einnig rétt en af því hafa verið dregnar rangar ályktanir. Ég lagði áherslu á þennan þátt máls- ins við lögmann minn. Það var hins vegar hans mat að frá lögfræðilegu sjónarmiði þyrfti ekki að geta þess sem málsástæðu eins og hann hygð- ist leggja málið. Eftir sem áður var þetta af minni hálfu ein af tveimur meginástæðum málsóknarinnar. Þær spurningar sem ég taldi mikilvægt að fá svar við með mála- rekstri mínum voru eftirfarandi: 1. Er hægt með lögum frá Alþingi að lækka laun seðlabankastjóra á fimm ára skipunartíma án þess að það sé skýrt tekið fram í viðkomandi lögum? 2. Er vernd og réttarstaða þeirra sem hafa með ráðherrabréfi fimm ára skipunartíma án uppsagn- arfrests verri en þeirra sem hafa ráðningarsamninga með uppsagn- arfresti, þvert á það sem áður var talið? Þessar spurningar varða sann- arlega sjálfstæði Seðlabankans ann- ars vegar og stöðu seðlabanka- stjóraembættisins hins vegar. Það er vel skjalfest að í mínum huga voru frá upphafi tvö meg- insjónarmið að baki málarekstri mínum. Annað laut að sjónarmiðum varðandi sjálfstæði seðlabanka. Hitt laut að því hversu óeðlilegt var að breyta þessum launum eftir að ráðn- ingarferli á árinu 2009 var lokið þeg- ar nægt svigrúm var til að lækka laun seðlabankastjóra í framhaldi af hruninu áður en umsóknarfrestur rann út. Vísa ég í þessu sambandi m.a. til tölvupósts míns til þáverandi formanns bankaráðs frá 14. júní 2009 en þar tala ég bæði um per- sónulegar og faglegar ástæður fyrir því að ef áform frumvarps um kjar- aráð nái fram að ganga gæti farið svo að ég drægi umsókn mína um starf seðlabankastjóra til baka. Varðandi faglegar ástæður sagði ég m.a.: „Aðgerðin myndi fela í sér veikingu á sjálfstæði og reisn Seðla- bankans. Víða er ekki hægt að skerða kjör seðlabankastjóra á ráðn- ingartíma hans.“ Þetta endurtek ég svo hvað eftir annað í öllum mál- flutningi mínum í aðdraganda máls- höfðunar og alla tíð síðan (sjá nánar fylgiskjöl með þessari yfirlýsingu). Má þar nefna tölvupósta til þáver- andi formanns bankaráðs og til for- sætisráðherra í júnímánuði 2009, minnispunkta frá maí 2010 í tilefni af fundi efnahags- og viðskiptanefndar og yfirlýsingu mína frá 24. apríl 2013 vegna dóms Hæstaréttar. Efni þeirrar yfirlýsingar virðist því miður fara framhjá mörgum á sínum tíma. Meðal annars þess vegna hefur verið auðveldara að setja dómsmál mitt í tortryggilegt samhengi og gera því skóna að það hafi verið einfalt launa- mál. Í lokin get ég ekki á mér setið að leiðrétta rangfærslu sem ég rakst á í Staksteinum við skrif þessarar yfir- lýsingar. Þar erum við Lára Júlíus- dóttir, fyrrverandi formaður banka- ráðs, titluð flokkssystkin. Það höfum við hins vegar aldrei verið. Þegar ég hætti stjórnmálaafskiptum á árinu 1994 var ég í Alþýðubandalaginu. Lára var mér vitanlega aldrei þar enda í Alþýðuflokknum, Þjóðvaka og síðan í Samfylkingunni. Ég hef aldr- ei starfað í neinum af þessum flokk- um. Að vísu hafði ég á einhverjum tíma spurnir af því að nafn mitt hafði verið flutt úr Alþýðubandalaginu yf- ir í þann flokk. En mér tókst að fá það afskráð fyrir nokkrum árum. Már Guðmundsson Sjálfstæði Seðlabankans er ekki eftiráskýring Skannaðu kóðann til að lesa Baldur Arnarson Stefán Gunnar Sveinsson Már Guðmundsson seðlabankastjóri íhugar að endurgreiða Seðlabank- anum þann kostnað sem hlaust af málsókn hans gegn bankanum. Morgunblaðið ræddi við hann eftir blaðamannafund í Seðlabankanum. – Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hefur gagnrýnt að Seðla- bankinn skuli ekki hafa upplýst í tveimur bréfum til fjármálaráðu- neytisins að bankinn myndi greiða kostnaðinn af málinu. Þá vill Ás- mundur Einar Daðason þingmaður láta rannsaka hvort hann hafi fengið fullnægjandi svör við fyrirspurn sinni um málið. Er rétt af þér að tala um ómálefnalega umræðu? „Ég var kannski ekki endilega að tala um þetta. Það er náttúrlega ver- ið að þyrla upp einhverju andrúms- lofti. Þetta er ekki aðeins umræða, heldur skopmyndir og allt þar á milli. Eins og gert er í sumum þjóð- félögum er reynt að æsa fólk upp áð- ur en það er með rétta mynd af mál- inu. Varðandi bréfin þá höfum við svarað því. Ráðuneytið fékk réttar upplýsingar. Það var spurt um hvaða kostnaður hafði verið greiddur fram að þeim tíma. Því var svarað og því var rétt svarað. Síðan var spurt hvort Már seðlabankastjóri myndi endurgreiða þetta. Því var auðvitað engin leið að svara. Auðvitað hefði kannski átt að svara því. Það er ann- að mál. Það er rétt að hafa það í huga að það er algjör regla, hjá ráðuneytum og Seðlabankanum, að við svörum þeim spurningum sem er spurt. Ef við færum að svara spurningum sem ekki er spurt þá endar það hvergi.“ Talið að svarið væri rétt – Í framhaldi af þessu vaknar spurning hvort það þurfi ekki að fara betur yfir boðleiðir innan bankans. Þú segir einmitt að höfundar bréfa Seðlabankans gátu ekki svarað þessu, en hefði ekki verið hægt að spyrja þig áður en svarið var sent til fjármálaráðuneytisins? „Það var farið yfir það. Það var talið, og að mínu viti réttilega, að þetta væri eins rétt svar og hægt væri að gefa á þeim tímapunkti, út frá því sem spurt var um. Svo skul- um við bíða eftir athugun; boðleiðir innan bankans eru ansi stuttar og góðar.“ – Kæmi til greina að greiða máls- kostnaðinn til baka? „Já, það kemur allt til greina í því. Það fer náttúrlega eftir því hver nið- urstaðan verður. Þetta snýst ekki um peninginn. Þetta snýst um prin- sippið. Og það getur vel verið, þótt niðurstaðan sé sú að ég hafi gert allt rétt og átt rétt á þessu, að þá muni ég samt gera það. Ég vil fyrst fá þetta á hreint enda hef ég engan áhuga á því að gefa mönnum meira fóður í sínar nornaveiðar heldur en þarf. En það er ekki tímabært að ræða þá spurningu núna.“ – Skömmu eftir að þú tekur við embætti seðlabankastjóra nefnirðu í viðtali við Morgunblaðið að þú viljir eiga góð samskipti við fjölmiðla. Út frá þeirri yfirlýsingu má lesa vilja til að koma upplýsingum á framfæri. Nú hafa ýmsir aðilar, til dæmis fyrr- verandi fulltrúar í bankaráði, lýst yf- ir óánægju með að þessar upplýs- ingar skyldu ekki hafa verið á almannavitorði, strax þegar þetta var ákveðið fyrir áfrýjunina til Hæstaréttar, 20. nóvember 2012. Í ljósi allrar umræðunnar sem að þessu snýr, telurðu að þú hefðir hugsanlega átt að upplýsa almenn- ing um að SÍ borgaði kostnaðinn? „Já. Það var þó kannski ekki mitt að gera það. Ég hafði ekki forræði á þessu máli. Það er alveg hægt að spyrja sig, átti að upplýsa almenn- ing?“ segir Már. Greiða oft hærri upphæðir „Við erum oft að greiða allskonar kostnað, stundum hærri upphæðir en þetta. Við værum væntanlega að senda tvær, þrjár fréttatilkynningar á dag, ef allt væri tilgreint. Það kem- ur alveg til greina. Það hefur bara ekki verið hefðin í bankanum, þegar svona mál eru. En það má vel vera að það hefði átt að gera þetta með ýms- um öðrum hætti. Ég get alveg tekið undir það. Þetta mál er klúður frá fyrsta degi, frá þeim degi sem frumvarp um kjararáð er lagt fram. Síðan hvernig forsætisráðuneytið og bankaráðið taka á málinu. Málið er ekki bara klúður, þar er fullt af óheilindum. Og við skulum skrifa þá sögu síðar,“ seg- ir Már Guðmundsson. Nóg sé komið af „nornaveiðum“  Seðlabankastjóri segir launadeilu hans „klúður frá fyrsta degi“  Greinir frá „óheilindum“ síðar  Útilokar ekki að endurgreiða Seðlabankanum kostnað vegna málsóknar hans gegn bankanum Morgunblaðið/Kristinn Á fundi bankaráðs í gær Frá vinstri, Már, Auður Hermannsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Ragnar Árnason og Ólöf Nordal, formaður ráðsins. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri segir að hann telji sig ekki hafa brotið af sér í málskostn- aðarmálinu. Ásakanir hangi hins vegar í loftinu og reynt sé að kynda undir ómálefnalegri um- ræðu, sem sé mjög skaðleg fyrir sig og Seðlabanka Íslands. Í því ljósi beinir Már því til bankaráðs- ins að það hlutist til um að hrað- að verði eftir föngum þeim hluta athugunar bankaráðsins sem snúi að seðlabankastjóra, og að sem fyrst verði skorið úr um hvort ástæða sé til þess að ætla að Már hafi gerst á einhvern hátt brot- legur í þessu máli. Þetta kemur fram í bréfi sem Már afhenti bankaráði Seðla- banka Íslands á fundi þess í gær og sem hann las upp á blaða- mannafundi sem boðað var til í Seðlabankanum. Sagði Már á fundinum að bankaráðið myndi biðja um stærri athugun á þessu máli. Kom fram í máli hans að á fundi bankaráðsins hefði mikið verið lagt fram af gögnum, bæði frá honum og öðrum, sem sneru að öllum þáttum þessa máls. Már hefði síðan vikið af fundi, sem venja væri þegar rædd væru mál sem tengdust honum. „Ég er að leggja áherslu á það að minn þáttur verði tekinn út úr og hon- um hraðað, því að það er ekki gott fyrir einn eða neinn að hafa þessar ásakanir sem eru í sum- um tilfellum óljósar og hangandi, og fá úr því skorið, hvort þarna er eitthvað sem teljist brotlegt,“ sagði Már ennfremur á fund- inum. Eftir að Már las upp yfirlýs- ingu sína gaf hann fjölmiðlum kost á viðtölum við sig. Í fréttum RÚV í gærkvöld kom fram að Már liti ekki á athugun banka- ráðsins sem vantraust á sig. Jafn- framt kom fram að hann hefði ekki fundið fyrir neinu slíku van- trausti á fundi bankaráðs. Aðspurður sagði Már að ákvörðun bankaráðsins myndi ekki ráða úrslitum um það hvort að hann hygðist sækja aftur um starf seðlabankastjórans. Hann hefði verið að velta því fyrir sér hvort sem er. Niðurstaða athug- unarinnar gæti hins vegar haft þar áhrif á. sgs@mbl.is Már vill hraða at- hugun á sjálfum sér  Lagði fram gögn á fundi bankaráðs Bankaráð Seðla- banka Íslands sendi tilkynn- ingu til fjölmiðla eftir fund ráðsins síðdegis í gær, en þar var launa- deila Más Guð- mundssonar meðal umræðu- efna. Orðrétt sagði í tilkynn- ingunni sem er dagsett í gær: „Á fundi bankaráðs Seðlabanka Íslands í dag, 13. mars 2014, var ákveðið að fela Ríkisendurskoðun að gera úttekt á greiðslum lög- mannsreikninga bankastjóra Seðla- banka Íslands vegna málaferla hans við bankann. Reikningar þess- ir voru greiddir af Seðlabankanum frá lokum árs 2011 til miðs árs 2013. Er Ríkisendurskoðun jafn- framt falið að kanna hvort farið hafi verið að lögum og reglum við meðferð málsins. Bankaráð Seðlabanka Íslands leggur áherslu á að skoðun þessa máls verði vönduð og að málið verði upplýst, enda verkefni banka- ráðs að gæta þess að farið sé að lög- um og reglum um bankann og standa vörð um hagsmuni Seðla- banka Íslands,“ segir í yfirlýsing- unni sem er undirrituð af Ólöfu Nordal, formanni ráðsins. Ekki náðist í Ólöfu í gærkvöldi. Núverandi bankaráð Seðlabank- ans var kjörið á Alþingi 5. júlí 2013 og eru þar sjö aðalmenn. Tryggt sé að farið sé að lögum um Seðlabankann Ólöf Nordal – Þú nefnir að það þurfi að kanna þátt fleiri aðila í málinu. Það má ætla að Lára V. Júlíusdóttir, fv. formaður bankaráðs Seðlabankans, komi þar við sögu. Koma þáverandi forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, og þáv. ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu þar einnig við sögu, í ljósi þess að þú hefur vísað til samskipta við þessa aðila í viðtölum nýverið? „Ég hef ekki hugmynd um það. Ég veit ekki hversu langt bankaráðið fer með sína rannsókn. Ég tel það hins vegar frekar ólíklegt. Ef málið snýst um það hvernig að því var staðið að bankinn tók ákvörðun um að greiða þennan kostnað þá koma þeir aðilar sem hér eru nefndir ekki við sögu. Ef það er spurning um að kafa ítarlega í forsögu alls þessa máls þá kann það að vera. Þá væri það ekki til að rekja hvað er rétt eða rangt. Auðvitað hefur bankaráðið ekkert um þau mál að segja. Það verður að koma í ljós.“ Gætu rannsakað þátt Jóhönnu MÁR ÚTILOKAR EKKI AÐ FORSAGAN VERÐI KÖNNUÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.