Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 51
Kaupmannahöfn hjá Svend Hvidtfelt
Nielsen.
Hildigunnur kom aftur heim árið
1992, ásamt eiginmanni og elsta
barninu sem fæddist í Danmörku.
Hún stundaði síðan söngnám og lauk
burtfararprófi í söng frá Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar en kennari henn-
ar þar var dr. Þórunn Guðmunds-
dóttir.
Tónverk Hildigunnar eru nær 200
talsins og eru reglulega flutt hér á
landi og víða um heim, allt frá Ástr-
alíu til vesturstrandar Bandaríkj-
anna. Hildigunnur hefur verið virk í
félagsstarfi tónlistarfólks hér á landi,
hefur verið formaður í kammer-
kórnum Hljómeyki um árabil, spilar í
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, sit-
ur í stjórn Tónskáldafélags Íslands
og er stjórnarformaður Íslenskrar
tónverkamiðstöðvar. Auk þess að
semja tónverk og syngja kennir
Hildigunnur við tónlistardeild
Listaháskóla Íslands, í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar og Suzukitónlist-
arskólanum í Reykjavík.
Góð gestaboð – gulls ígildi
Ertu alæta á tónlist Hildigunnur?
„Nei. Ég ætla ekki að halda því
fram og ég held að þeir sem fullyrði
slíkt séu sjaldnast einlægir í slíkum
yfirlýsingum. Ég hlusta fyrst og
fremst á klassíska tónlist en hef engu
að síður mjög breiðan tónlistar-
smekk.
Í gær og fyrradag vorum við í
Hljómeyki t.d. að syngja með Dúnd-
urfréttum á þrennum tónleikum þar
sem flutt var stórvirkið The Wall með
Pink Floyd frá 1979. Þetta voru frá-
bærir tónleikar, fyrir troðfullum Eld-
borgarsal.“
– En svo ertu matgæðingur.
„Já. Foreldrar mínir unnu bæði úti
og maður byrjaði því ungur að bjarga
sér í eldhúsinu heima. Síðan kom-
umst við hjónin á bragðið á náms-
árunum i Danmörku. Við fjárfestum í
Det store danske madleksikon, 21
bindi, og eigum nú orðið um 100 góð-
ar uppskriftabækur. Stundum er líka
skemmtilegast að spila af fingrum
fram í eldhúsinu.
Við erum mjög samstiga í þessari
áráttu, höfum bæði gaman af því að
elda og reynum að bjóða fólki í mat
a.m.k. tvisvar í mánuði. Það er fátt
skemmtilegra en að hafa huggulegt
heima hjá sér, elda góðan mat, stilla
ljósin í stofunni, setja góða músík á
fóninn og njóta kvöldsins með góðum
vinum og kunningjum.“
Fjölskylda
Eiginmaður Hildigunnar er Jón
Lárus Stefánsson, f. 23.1. 1965, verk-
fræðingur. Foreldrar hans eru sr.
Stefán Lárusson, f. 18.11. 1928, fyrrv.
prestur, og Ólöf Sigríður Jónsdóttir,
f. 11.9. 1943, kennari og fyrrv. kirkju-
vörður. Þau eru búsett í Kópavogi.
Börn Hildigunnar og Jóns Lárusar
eru Fífa Jónsdóttir, f. 1.6. 1992, nemi;
Freyja Jónsdóttir, f. 6.4. 1996, nemi;
Finnur Jónsson, f. 30.4. 2000, nemi.
Systkini Hildigunnar eru Ólafur
Einar Rúnarsson, f. 25.1. 1970, tenór-
söngvari og kennari á Laugarbakka;
Þorbjörn Rúnarsson, f. 29.6. 1971,
áfangastjóri og tenórsöngvari, bú-
settur í Hafnarfirði; Hallveig Rúnars-
dóttir, f. 8.7. 1964, sópransöngkona.
Foreldrar Hildigunnar eru Guð-
finna Dóra Ólafsdóttir, f. 6.6. 1937,
fyrrv. tónmenntakennari í Garðabæ,
og Rúnar Einarsson, f. 27.12. 1937,
fyrrv. rafvirki í Garðabæ.
Úr frændgarði Hildigunnar Rúnarsdóttur
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
Vilhjálmur Bjarnason
sjóm. í Rvík
Guðný Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Einar Kristinn Vilhjálmsson
sjóm. í Rvík
Þorgerður Björnsdóttir
húsfr. og ræstitæknir í Rvík
Rúnar Einarsson
rafvirki í Garðabæ
Birna Einarsdóttir
búsett í Rvík
Fanney
Gunnarsd.
leiðsögum. í
Rvík
Björn Leví
Gunnarsson
vþm.
María Guðmundsdóttir
húsfr. á Refsstöðum
Björn Leví Gestsson
b., smiður og hagyrðingur á Refsstöðum í Laxárdal
Guðfinna Gísladóttir
húsfr. í Rvík
Halldór Guðmundsson
rafmagnsfr. í Rvík
Hildigunnur Halldórsdóttir
húsfr. og skáld í Rvík
Ólafur Þórðarson
rafmagnstæknifr. Í Rvík
Guðfinna Dóra Ólafsdóttir
tónmenntakennari í Garðabæ
Áslaug Ólafsd.
tónlistarkennari
í Garðabæ
Guðbjörg Þórðardóttir
saumakona frá Núpum
Sigurður Halldórsson
framkvæmdastj. Sumar-
tónleika í Skálholti
Hildigunnur Halldórsd.
fiðluleikari
Marta Guðrún
Halldórsdóttir
söngkona og kórstjóri
Þórður Gíslason
b. og organisti á Ölfusvatni í Grafningi
Guðmundur Gíslason
skólastj. Reykjaskóla
Edda Guðmundsdóttir
húsfr. í Garðabæ
Guðmundur Steingrímsson
alþm. og harmónikkuleikari
Ólafur Einar Rúnarsson
tenórsöngvari
Þorbjörn Rúnarsson
tenórsöngvari
Hallveig Rúnarsdóttir
sópransöngkona
Morgunblaðið/Heiddi
Í garðinum heima Afmælisbarnið.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Árni Helgason fæddist íReykjavík fyrir einni öld enólst upp á Eskifirði. For-
eldrar hans voru Helgi G. Þorláks-
son, kaupmaður þar, og k.h., Vilborg
Árnadóttir húsfreyja.
Eiginkona Árna var Ingibjörg
Gunnlaugsdóttir kennari sem lést
1994. Börn þeirra eru Gunnlaugur
Auðunn, útgerðarstjóri í Stykk-
ishólmi; Halldór, hagfræðingur hjá
SA; Helgi, skólastjóri Rimaskóla, og
Vilborg Anna, kennari við MK.
Árni var sjómaður og verkamaður
á Eskifirði og var sýsluritari þar
1936-42. Hann flutti þá í Stykkis-
hólm og átti eftir að verða þar vin-
sæll áhrifamaður í félags- og bæj-
arlífi enda kjörinn heiðursborgari
Stykkishólms.
Árni var sýsluskrifari í Hólminum
1942-56, stöðvarstjóri Pósts og síma
1954-84, landskunnur fréttaritari
Morgunblaðsins í rúma hálfa öld frá
1943, auk þess Ríkisútvarps frá 1958
og Ríkissjónvarps frá 1966, umboðs-
maður Brunabótafélagsins, Loft-
leiða hf. og Flugleiða hf. og stofn-
andi og stjórnandi útgerðarfélaga.
Árni var eindreginn málsvari
áfengisbindindis og Góðtemplara-
reglunnar og gegndi fjölda trún-
aðarstarfa fyrir hana, formaður
áfengisnefndar Stykkishólms, Fé-
lags áfengisvarnanefndar sýslunnar
og sat í Áfengisvarnarráði. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn, sat í stjórn
slysavarnafélagsins Brimrúnar á
Eskifirði, í stjórn Lúðrafélags Eski-
fjarðar, var stofnandi Lúðrasveitar
Stykkishólms og formaður hennar,
sat í stjórn Skógræktarfélags
Stykkishólms, hótelsfélagsins Þórs
og var einn stofnenda Lionsklúbbs
Stykkishólms.
Árni var endurskoðandi hrepps-
reikninga í Stykkishólmi, formaður
fræðslunefndar, sat í stjórn Amts-
bókasafnsins og var landsþekktur
skemmtikraftur sem söng eigin
gamanvísur á ótal skemmtunum.
Hann lést 27.2. 2008.
Í tilefni þess að 100 ár eru frá fæð-
ingu Árna bjóða börn hans til kaffi-
samsætis og dagskrár í félagsheimli
Stykkishólms sunnud. 16.3. kl. 14.30.
Merkir Íslendingar
Árni
Helgason
95 ára
Sigrún Sigurðardóttir
90 ára
Ragnhildur Einarsdóttir
85 ára
Sigríður Sóley
Magnúsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Sigurvin Jónsson
80 ára
Bára Brynjólfsdóttir
Elsa Jakobsdóttir
Ingibjörg Jónsdóttir
Jenný Júlíusdóttir
Jóhanna Stefánsdóttir
Jóhann Sv. Jónsson
75 ára
Baldur Vagnsson
Guðrún Bóasdóttir
Hrefna M. Magnúsdóttir
Inga Jóna Sigurðardóttir
Magnús Ólafsson
70 ára
Alfreð Steinar Rafnsson
Ágústa Högnadóttir
Gísli Þórðarson
Guðrún Hjördís Ólafsdóttir
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir
Halldóra Baldursdóttir
Hjörleifur Halldórsson
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Þorbjörg Ólafsdóttir
60 ára
Anton Holt
Ásbjörn Ægir Ásgeirsson
Edda Guðríður Ólafsdóttir
Elisabeth Erichsen Hauge
Hafsteinn Harðarson
Helgi Þorvaldsson
Katrín Sæmundsdóttir
Kristján E. Engilbertsson
Sigurborg I. Sigurðardóttir
Þórunn Ólafsdóttir
50 ára
Aðalsteinn Haraldsson
Arnþór Elvar Hermannsson
Berglind Guðmundsdóttir
Brynhildur Geirsdóttir
Ingi Torfi Sigurðsson
Kristján Ólason
Kristján V. Grétarsson
Kristmundur A. Jónsson
Stefan Grzegorz Hajduk
40 ára
Arnar Þór Jóhannsson
Ayodeji Gbeminiyi Kuforiji
Ásmundur Rúnar Ívarsson
Birna Ósk Björnsdóttir
Flora-Josephine Hagen
Liste
Hieronim Choinski
Íris Sveinbjörnsdóttir
Júlíus Helgi Pétursson
Ragnar Leó Kjartansson
Rúnar Snæland Jósefsson
Selma Aradóttir
Sædís María
Jónatansdóttir
30 ára
Árni Húnfjörð Brynjarsson
Brynjólfur Sæmundsson
Elmar Geir Jónsson
Elva Björg Gunnarsdóttir
Gísli Bergmann
Gylfi Snær Cooper
Salómonsson
Hrefna Magnúsdóttir
Maríanna Skúladóttir
Victoria Nkechi Anazia
Þórey Svana Þórisdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ríkey ólst upp á
Húsavík og í Kelduhverfi,
er nú búsett í Reykjavík,
lauk BA-prófi í spænsku
frá HÍ 2013 og stundar nú
nám í jarðfræði við HÍ.
Dóttir: Júlía Rósa Björns-
dóttir, f. 2011.
Foreldrar: Guðrún Helga
Sigurðardóttir, f. 1960,
lyfjatæknir í Garðabæ, og
Andrés Júlíus Ólafsson, f.
1960, sérfræðingur hjá
Umboðsmanni skuldara,
búsettur í Kópavogi.
Ríkey
Júlíusdóttir
30 ára Íris ólst upp í Nor-
egi og Kópavogi, býr nú í
Reykjavík, lauk háskóla-
brú frá Keili og hefur
lengst af stundað versl-
unarstörf.
Maki: Sigurður Steinar
Pálsson, f. 1982, smiður.
Sonur: Hjálmar Helgi, f.
2006.
Foreldrar: Heiður Ey-
steinsdóttir, f. 1960,
kennari og námsráðgjafi á
Selfossi, og Helge Rise, f.
1955, smiður í Noregi.
Íris Rise
30 ára Ólafur ólst upp í
Kópavogi og á Alftanesi,
býr í Hafnarfirði, hefur
stundað nám í rennismíði
og starfar hjá Micro ehf.
Maki: Ingibjörg Ólafs-
dóttir, f. 1989, starfs-
maður hjá Hafnarfjarð-
arbæ.
Synir: Daníel Myrkvi, f.
2008, og Matthías Wer-
ner, f. 2010.
Foreldrar: Ágúst Böðv-
arsson, f. 1955, og Þor-
gerður Nielsen, f. 1957.
Ólafur Böðvar
Ágústsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Ertu þreytt á að vera þreytt?
Getur verið að þig vanti járn?
Magnaðar járn- og bætiefnablöndur
úr lífrænt ræktuðum jurtum
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum