Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 62. tölublað 102. árgangur
LEIKUR MEÐ
KEVIN COSTNER
Í 3 DAYS TO KILL HUGA ÞARF AÐ FLÓÐ-VÖRNUM Í KVOSINNI
SYKUR, SANDUR
OG TÓMATSÓSA
Í MYNDLIST
VILJA VERJAST SJÁVARFLÓÐI 18 BRYNJAR BJÖRNSSON 10TÓMAS LEMARQUIS 54
Kaupi gull
og verðmæta
mála!
Sími: 661-7000
3. HÆÐ Í KRINGLUNNI
kaupumgull.is
Morgunblaðið/Þórður
Bensín Dropinn er dýr en hefur þó verið
að lækka í verði síðustu daga hér á landi.
Álagning og flutningskostnaður
íslensku olíufélaganna á dísilolíu
hækkaði um 157% á árunum 2005
til 2013, að því er fram kemur í nýj-
asta tölublaði FÍB-blaðsins, sem Fé-
lag íslenskra bifreiðaeigenda gefur
út. Á sama tímabili hækkaði vísitala
neysluverðs um 69% þannig að
álagningin hækkaði um 88 pró-
sentustig umfram það.
Samkvæmt FÍB-blaðinu hækkaði
álagning á hvern bensínlítra um
116%. Eftir sveiflur í kjölfar hruns-
ins hefur álagningin stigmagnast
frá árinu 2011. Í greininni er einnig
bent á að álagningin hér á landi sé
mun meiri en t.d. í Danmörku og
Svíþjóð. Reiknar FÍB það út að ár-
legur kostnaður neytenda vegna
mikillar álagningar sé um 4,4 millj-
arðar króna. »4
Álagning á dísilolíu
hefur hækkað langt
umfram vísitölu
Gagnrýnir nornaveiðar
» Már gagnrýnir nornaveiðar í
umfjöllun um mál hans.
» „Enginn vandi sé að fá al-
menningsálit upp á móti þeim
sem eru taldir hafa eitthvað
hærri tekjur en aðrir.“
Baldur Arnarson
Stefán Gunnar Sveinsson
Fulltrúar bankaráðs Seðlabankans
ákváðu einróma á fundi í gær að fela
Ríkisendurskoðun að gera úttekt á
greiðslum lögmannsreikninga Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra
vegna málaferla hans við bankann.
Fram kemur í yfirlýsingu frá
ráðinu að reikningar vegna um-
ræddra greiðslna voru greiddir af
Seðlabankanum frá lokum árs 2011
til miðs árs 2013. Felur ráðið jafn-
framt Ríkisendurskoðun að kanna
hvort farið hafi verið að lögum og
reglum við meðferð málsins.
Már boðaði til blaðamannafundar
á fimmta tímanum í gær, innan við
klukkustund eftir að fundur banka-
ráðs hófst. Sagðist hann þar hafa
beint því til bankaráðs að það hlutist
til um að þeim þætti málsins er að
honum snýr verði hraðað.
Már kveðst í samtali við Morgun-
blaðið tilbúinn að íhuga að endur-
greiða bankanum kostnaðinn, þótt í
ljós komi að hann hafi átt rétt á
greiðslunum. Niðurstaða rannsókn-
arinnar geti haft áhrif á ákvörðun
hans um að sækja um embættið.
Munu rannsaka mál Más
Bankaráð SÍ felur Ríkisendurskoðun að yfirfara launadeilu seðlabankastjóra
Kannað verði hvort farið hafi verið að lögum og reglum við afgreiðslu málsins
MNóg sé komið »14
Viðar Guðjónsson
Ágúst Ingi Jónsson
Íslendingar munu að óbreyttu setja
sér einhliða makrílkvóta næsta sum-
ar í ljósi þess að ESB, Noregur og
Færeyjar sömdu um makrílveiðar án
aðkomu Íslendinga. Svo virðist sem
Íslendingar geti komið að samningn-
um. Í hlut Íslendinga kæmu þá
11,9% af áætluðum heildarafla eða
tæplega 150 þúsund tonn.
Skilyrði á Grænlandsmiðum
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fylgir það skilyrði aðild að
samningnum að Ísland veiði þá ekki
meira en sem nemur 4% af 100 þús-
und tonna tilraunakvóta Grænlend-
inga, eða að há-
marki 4 þúsund
tonn. Þetta tæki
ekki til aðila sem
gera út skip undir
grænlenskum
fána, né ef Ísland
gerist ekki aðili
að samningnum.
„Að því gefnu að
menn sætti sig við
eðlilega hlutdeild
til Íslendinga þá finnst mér ekki úti-
lokað að við gætum komið að slíku
samkomulagi,“ segir Sigurður Ingi
Jóhannsson sjávarútvegsráðherra.
Í desember tilkynna fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
og íslensk stjórnvöld að þau hafi náð
óformlegu samkomulagi um að Ís-
land fái 11,9 prósent af makrílstofn-
inum. Andstaða Norðmanna hafi
hins vegar staðið eiginlegum samn-
ingi fyrir þrifum. Sigurður Ingi segir
að engar skýringar séu á því hvers
vegna horfið var frá því samkomu-
lagi. ,,Hvorki nú né á síðustu dögum
höfum við fengið nokkrar skýringar,
formlegar yfirlýsingar eða neitt frá
hendi þessara þriggja ríkja,“ segir
Sigurður Ingi.
Gunnar Bragi Sveinsson utanrík-
isráðherra lét í gær kalla sendiherra
Noregs og fulltrúa ESB og Færeyja
á fund í utanríkisráðuneytinu til að
gera alvarlegar athugasemdir við
hvernig staðið hefði verið að nýgerðu
samkomulagi sem stuðlar að veiðum
langt fram úr ráðleggingum
Alþjóðahafrannsóknaráðsins og
stefnir sjálfbærri nýtingu stofnsins í
hættu, eins og segir í tilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu.
Ekki tengt viðræðuslitum
Spurður segist Sigurður Ingi ekki
telja að fyrirhuguð slit á viðræðum
við ESB hafi neitt með ákvörðun
sambandsins að gera.
Hann telur samkomulag hinna
strandríkjanna ekki veikja stöðu Ís-
lendinga þegar kemur að því að setja
sér makrílkvóta fyrir næsta fisk-
veiðiár. „Þetta er hins vegar sann-
arlega veiking á mörkuðum og veikir
stofninn sannarlega til lengri tíma,“
segir Sigurður Ingi. »20 - 21
Samningsskilyrði á borðinu
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Komi Íslendingar að makrílsamningi verða takmarkanir á veiðum við Grænland
Íslendingar semji fái þeir eðlilega hlutdeild, segir sjávarútvegsráðherra
Með hækkandi sól bætist í hóp súrefnisþyrstra
skokkara á götum Reykjavíkur. Óhætt er að
segja að kjöraðstæður hafi verið til slíkrar iðju í
vetrarblíðunni undanfarið.
Að loknum slíkum átökum er mikilvægt að
teygja á lúnum leggjum.
Morgunblaðið/Golli
Horft út á
hafsins sjón-
deildarhring
Landssamtök hjólreiðamanna
mótmæla því í umsögn til Alþingis
að banna eigi akstur léttra bifhjóla,
sem komast upp að 25 km hraða á
klst. á götum og vegum með yfir 50
km hámarkshraða eins og boðað er
í frumvarpi innanríkisráðherra um
breytingar á umferðarlögum.
Verði frumvarpið lögfest verða
minnstu vélknúnu hjólin, sem í dag
falla undir flokk reiðhjóla, felld
undir flokk léttra bifhjóla og skrán-
ingarskyld. »16
Takmarka akstur
léttustu bifhjólanna