Morgunblaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014
Gengið á vatni Veðrið hefur verið umhleypingasamt undanfarið, frost og hlýindi hafa gengið yfir landið á víxl á suðvesturhorni landsins, engu var líkara en að mannverurnar gengju á vatni.
RAX
Á vorráðstefnu
Viðskiptafræði-
stofnunar Háskóla Ís-
lands í dag, föstudag-
inn 14. mars, kl. 11.30
til 12.00 í stofu 102 í
Gimli ræði ég um við-
skiptasiðferði og
bankahrunið. Ég reifa
þá kenningu heilags
Tómasar af Akvínó og
fleiri heimspekinga, að
menn megi ekki í við-
skiptum nýta sér skyndilega og ófyr-
irsjáanlega einokunaraðstöðu til að
setja öðrum afarkosti. Þetta hafi
hins vegar sums staðar verið gert,
þegar bankarnir íslensku féllu
haustið 2008.
Sænski seðlabankinn og hinn
enski opnuðu lánalínur til íslenskra
fjármálafyrirtækja eftir hrun, svo að
þau neyddust ekki til að selja eignir í
skyndi. Norski seðlabankinn neitaði
hins vegar að opna slíka lánalínu til
Glitnir Bank ASA í Noregi, heldur
vísaði honum til Tryggingarsjóðs
innstæðueigenda þar í landi. Sjóð-
urinn veitti Glitnir Bank ASA lána-
línu í nokkra daga, en lagði áherslu
á, að bankinn yrði seldur á því tíma-
bili. Stjórn sjóðsins kom saman 19.
október og samþykkti að mæla með
því, að samtök sparisjóða undir for-
ystu Finns Haugans keyptu bank-
ann fyrir 300 milljónir norskra
króna eða 5,6 milljarða íslenskra
króna (miðað við gengi 2014). Haug-
an boðaði forföll vegna vanhæfis, en
hann var einmitt formaður stjórnar
sjóðsins. Nokkrum mánuðum síðar
var bankinn metinn á tvo milljarða
norskra króna í bókum kaupenda.
Þeir höfðu grætt 1,7 milljarða
norskra króna eða 32
milljarða íslenskra
króna á nokkrum mán-
uðum. Ekki er að
furða, að Finn Haugan
fékk 540 þúsund
norskra króna kaup-
auka fyrir góða
frammistöðu árið 2008,
rúmar tíu milljónir ís-
lenskra króna.
Mælt er, að trygg-
ingarsjóðurinn hafi
sagt hinum íslensku
seljendum, að lánalínan
myndi aðeins gilda í
nokkra daga. En eftir að bankinn
var kominn í norskar hendur var
hún framlengd í nokkrar vikur. Ég
spurði fulltrúa tryggingarsjóðsins
um þetta, en hún kannaðist ekki við
nein slík skilaboð. Einnig er mælt,
að hugsanlegum kaupendum hafi
verið sagt, að þeir yrðu að leggja
fram háar tryggingar. Fulltrúi
sjóðsins kannast ekki heldur við þau
skilaboð. Hvorugt kemur þetta held-
ur fram í skýrslu um söluna, sem
sjóðurinn tók saman í árslok 2009.
En hvers vegna gat norski seðla-
bankinn ekki opnað lánalínu til
bankans? Hvers vegna lá svo á að
selja hann?
Glitnir Securities í Noregi var líka
selt strax eftir hrun. Hópur starfs-
manna keypti fyrirtækið 12. október
2008 fyrir 50 milljónir norskra
króna. Viku síðar seldu þeir helm-
ingshlut í því til RS Platou fyrir
sömu upphæð, 50 milljónir norskra
króna, 941 milljón íslenskra króna.
Þeir höfðu með öðrum orðum eign-
ast 50 milljón króna hlut á einni viku
fyrir ekki neitt. Hæg voru heimatök,
því að RS Platou var með skrifstofu
á hæðinni fyrir ofan Glitnir Sec-
urities í Haakon VII’s gate í Osló.
Þekktust starfsmenn fyrirtækjanna
tveggja vel.
Strax eftir fall Glitnis á Íslandi
lagði finnska fjármálaeftirlitið að
sögn ofuráherslu á, að Glitnir
Pankki Oy þar í landi yrði seldur.
Starfsmenn eftirlitsins hafa ekki
svarað skriflegum fyrirspurnum
mínum, svo að ég hef ekki fengið það
staðfest. Hópur starfsmanna keypti
bankann 14. október á þrjú þúsund
evrur. Í árslok 2008 var bókfært eig-
ið fé bankans 43 milljónir evra eða
6,7 milljarðar íslenskra króna. Árið
2013 var bankinn síðan seldur sam-
vinnubankanum finnska, S-Pankki,
fyrir 200 milljónir evra eða 31,2
milljarða íslenskra króna.
Reikna má tapið af þessum þrem-
ur furðulegu gerningum á ýmsan
hátt. Til dæmis má reikna með verð-
inu, sem fyrirtækin voru metin á
skömmu eftir söluna, í ársbyrjun
2009. Þá var Glitnir Bank ASA virði
32 milljarða íslenskra króna meira
en greitt hafði verið fyrir hann.
Glitnir Securities var virði 941 millj-
ónar króna meira en greitt hafði ver-
ið fyrir hann. Og Glitnir Pankki Oy
var bókfærður á 6,7 milljarða ís-
lenskra króna meira en greitt hafði
verið fyrir hann. Heildartjónið af
skyndiútsölunni miðað við þetta var
þá um 40 milljarðar íslenskra króna.
En þetta mætti líka meta miðað
við verðþróunina síðan og miða þá
við, að Glitnir Pankki Oy var seldur
2013 fyrir fjórfalt það verð, sem
hann var metinn á í ársbyrjun 2009.
Setjum svo, að norsku fyrirtækin tvö
hefðu hækkað svipað hlutfallslega í
verði. Þá hefði hugsanlega verið
hægt að fá fyrir þau um 130 millj-
arða íslenskra króna meira en gert
var. Samtals hefði þá verið hægt að
selja þessar þrjár eignir á 160 millj-
arða króna. Lægsta mat er 40 millj-
arðar króna, sem þessar eignir voru
sannanlega virði í ársbyrjun 2009.
Hæsta mat kann að vera um 160
milljarðar, en meðaltalið af þessu
tvennu er hundrað milljarðar.
Norskir og finnskir aðilar nýttu
sér tímabundna neyð íslensku bank-
anna til að hirða af þeim eignir á
smánarverði. Eins og ég lýsi betur í
fyrirlestri mínum er þetta siðferði-
lega rangt í skilningi heilags Tóm-
asar af Akvínó og fleiri heimspek-
inga. Það er síðan sjálfstætt
úrlausnarefni, hvort kaupendur hafa
fengið aðstoð norskra og finnskra
stjórnvalda, sem hafi þá látið þjóð-
ernisviðhorf ráða frekar en réttlæt-
issjónarmið.
Eftir Hannes Hólm-
stein Gissurarson »Norskir og finnskir
aðilar nýttu sér
tímabundna neyð ís-
lensku bankanna til að
hirða af þeim eignir á
smánarverði.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Höfundur sat í bankaráði Seðlabank-
ans 2001-2009.
Töpuðu Íslendingar hundrað milljörðum
á skyndisölu þriggja Glitniseigna?
Ljósmynd/J. P. Fagerback.
Í þessu húsi í Osló störfuðu starfsmenn Glitnir Securities á næstu hæð fyrir
neðan RS Platou.