Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 12
Nói flutti í haust á dvalarheimilið
Hlíð á Akureyri og horfir þaðan
daglega yfir einbýlishúsið þar sem
fjölskyldan bjó lengst af, Aust-
urbyggð 15. „Það er skemmtilegt
að horfa heim á hverjum degi! Ég
hafði ekki í myndað mér það, þeg-
ar ég byggði húsið ungur maður,
að ég ætti eftir að lenda hér á
dvalarheimilinu við hliðina,“ segir
þessi lífsglaði öldungur og hlær.
Jóhann er mikið á ferðinni; tíður
gestur á ýmsum listviðburðum í
bænum og brunar líka um ná-
grennið þegar gott er veður á far-
artæki sínu, ellinöðrunni, sem hann
kallar svo.
Nói situr ekki auðum höndum
eins og glöggt má sjá á sýningunni
í Listasafninu. Verk hans þar eru
unnin á þessu ári og í fyrra, auk
þess sem sýndir eru stólar sem
hann framleiddi á árum áður.
„Meiningin var að safna saman
gömlum verkum en svo hljóp ein-
hver spenna í mig … Halldór er
systursonur minn og bauð mér
þess vegna að hafa verk inni á sýn-
ingunni sinni, sem ég er honum
mjög þakklátur fyrir. Ég vinn mín
verk ekki eftir hefðbundnum form-
um heldur eftir hugdettum sem
skapast í draumi eða í formum
hluta er ég sé á verkstæðum eða
úti í náttúrunni. Við erum mjög
ólíkir í myndformum, hann mörg-
um árum yngri og hefur myndlist
sem aðalstarf en mér finnst samt
passa vel að við sýnum saman.“
Jóhann Ingimarsson er þekktur
maður á Akureyri og hefur verið í
áratugi. Hann hóf nám í hús-
gagnasmíði 17 ára og fór að því
loknu til Danmerkur og lærði
hönnun. Rak síðan húsgagnaverk-
smiðju á Akureyri, Valbjörk, frá
1951 til 1970 en þau hjón, hann og
Guðrún Helgadóttir, jafnan kölluð
Didda, komu þá á fót hús-
gagnaverslun. Það var Örkin hans
Nóa og fluttu þau inn vönduð hús-
gögn frá Ítalíu. Fyrirtækið seldu
þau, verslunin var síðar lögð niður,
en nú höndla raunar Helga dóttir
hjónanna og Kristján eiginmaður
hennar með húsgögn í Örkinni
hans Nóa í innbænum þótt ekki sé
í sama mæli og á árum áður.
Lífið snerist sem sagt meira og
minna um húsgögn og það var ekki
fyrr en Didda lést, 1993, að Nói
snéri sér að einhverju ráði að list-
inni en hefur sinnt henni af krafti
allar götur síðan. „Hún var alltaf á
móti þessu rugli í mér! Fannst
þetta ljótt,“ segir Nói og hlær.
Fjöldi listaverka Nóa prýðir Ak-
ureyrarbæ og fyrsta skúlptúrinn,
Kærleika, gerði hann einmitt í
minningu eiginkonu sinnar og gaf
bænum. Verkið stendur á Oddeyri.
Annað áberandi verk Nóa er
Heimur vonar, stórt verk sem
stendur norðan við hús Mennta-
skólans á Akureyri, og það þriðja
sem nefna má er Samstaða sem
stendur neðst við Strandgötu;
minnisvarði sem reistur var 1996 í
tilefni 100 ára samfellds starfs
verkalýðsfélaga í Eyjafirði.
Heim vonar og fleiri verk gerði
Nói úr afskurði af bobbingum; stál-
kúlum sem notuð eru í troll. Efnið
hefur hann fengið gefins og var
einmitt með stórt verk úr slíkum
afskurði í bígerð – Viskuvitann, 30
metra hátt verk sem hann hugðist
færa Háskólanum á Akureyri.
Teikning er af Viskuvitanum á
sýningunni, upplýstum á klöpp-
unum sunnan við húsnæði skólans.
AKUREYRI
Handverkið
heldur mér
gangandi
JÓHANN INGIMARSSON – ALLTAF KALLAÐUR NÓI – VERÐ-
UR 88 ÁRA Í SUMAR EN ER ENN Í FULLU FJÖRI OG SÍSKAP-
ANDI. NÓI ER GESTUR Á SÝNINGU FRÆNDA SÍNS, HALL-
DÓRS ÁSGEIRSSONAR, Á LISTASAFNINU Á AKUREYRI.
Nói á vinnustofu sinni í gamla eldhúsi dvalarheimilisins Hlíðar. Þarna eru módel af listaverkum sem til eru eða hann von-
ast til að verði að veruleika, t.d. borðið og bekkurinn sem hann langar að koma upp við hvert eyðibýli á Langanesi.
* Í fyrra var þetta komið út í það að fólkkunni sér ekki magamál og át sér til óbóta.Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, sem seldi saltkjöt
og baunir ekki á túkall eins og síðustu ár heldur 995 kr.
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
EYJAFJARÐARSVEIT
Framkvæmdir standa nú yfir við
Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit þar sem hús
mun rísa undir verslunina Bakgarðinn, sem
var áður á Akureyri; gjafavöruverslun með
skandinavísku ívafi en eigendur eru þeir
sömu. Svæðið verður kallað Sveinsstaður.
VESTMANNAEYJAR
Vinnslustöðin, Ísfélag
Vestmannaeyja og
Vestmannaeyjabær
hafa undanfarið
unnið að samkomu-
lagi um aðkomu að
því að leysa skuldavanda íþróttafélagsins
ÍBV. Skuldsetning var nánast óviðráðanleg
í árslok 2012 en ÍBV hefur síðan lyft
grettistaki þó það dugi ekki til að leysa
vandann.
KÓPASKER
Bæjarráð
Norðurþings
hefur
samþykkt
að leggja
fram 800.000 króna hlutafjárframlag
til Framfarafélags Öxarfjarðar vegna
kaupa á fasteign þar sem rekin hefur
verið dagvöruverslun. Félagið vill
gja reksturinn.tryg
HORNAFJÖRÐUR
Stofnaður
hefur verið
fornbílaklúbbur
og er aðal-
markmiðið að
viðhalda og gera upp gamla bíla, sem
og eldri landbúnaðarvélar og önnur
tæki. Klúbburinn hyggst einnig standa
vörð um menningarsögulegt gildi
heimasmíðaðra tækja úr héraðinu.
KÓPAVOGUR
Minningarskjöldur
var afhjúpaður
við Kópavogslæk
á dögunum.
Tvö systkini á
unglingsaldri frá
Hvammkoti drukknuðu í læknum á leið frá
Reykjavík 1874 en þriðja systkinið, Sigríður
Elísabet Árnadóttir, komst af við illan leik.
Langömmubörn hennar, Árni Sigurðsson og
Þórunn Anna Sigurðardóttir, afhjúpuðu skjöldinn.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014