Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 20
Innan um glerveggi nýbygginga við Potzdamer Platz er er brot úr Berlínarmúrnum vinsæll bakgrunnur á ljósmyndum.
É
g veit ekki hversu lengi ég
gat staðið einn og notið
þess að rýna í málverk
Caravaggios, „Amor sem
sigurvegari“, í Gemäldegalerie í
Berlín. En það voru einhverjar
mínútur sem ég velti aleinn örugg-
um pensildráttunum fyrir mér og
stórkostlegri tækninni í 410 ára
gömlu meistaraverkinu; allt frá
krulluðum kolli nakta módelsins að
fönunum í vængjunum og skítugum
tánöglunum. Eftir nokkrar mínútur
komu tveir eldri karlar og horfðu á
verkið í nokkrar sekúndur, svo var
ég aftur einn með snilldinni. Svip-
aða sögu má segja af því þegar ég
kom að verkum eftir Rembrandt,
van Eyck, Vermeer, Rafael, Holb-
en, Bronzini, Botticelli … Það eru
forréttindi að fá slíkt næði með ein-
stökum meistaraverkum, þess njóta
gestir yfirleitt ekki fyrir framan
verk sömu meistara eða annarra í
öðrum helstu listasöfnum stórborg-
anna – svo ekki sé minnst á hafaríið
á leiðinni að og fyrir framan lítið
málverk af kíminni konu í Louvre-
safninu í París.
Berlín er að mörgu leyti drauma-
viðkomustaður listunnandans.
Framboð tónleika er mikið og gott,
metnaður í óperuuppfærslum, mörg
góð leikkús að njóta ef gestir skilja
þýsku, og svo eru það hinar ótölu-
legu sjónrænu upplifanir sem boðið
er upp á í söfnum og galleríum
borgarinnar, þar sem nóg pláss og
næði er hjá verkunum. Þá er einnig
forvitnilegt að upplifa gríðarlega
uppbygginguna, þar sem póstmód-
ernískar byggingar 21. aldarinnar
fleyga eldri hverfi og götumyndir á
áhugaverðan hátt.
Nokkra galleríkjarna má finna í
borginni, til að mynda í Kreuzberg-
hverfinu og Mitte. Finna má síður á
netinu sem auðvelda gestum að
finna galleríin og kynna sér þær
sýningar sem eru í þeim á hverjum
tíma. Undanfarin ár hafa ungir
listamenn flykkst til Berlínar, enda
hefur verið auðvelt að finna þar
ódýrar vinnustofur auk þess sem
ódýrt er að búa þar, ef miðað er við
aðrar stórborgir Vesturlanda.
Krafturinn og hugmyndaauðgi þess-
ara ungu listamanna skilar sér vita-
skuld beint út í sýningarsalina, sem
eru af ýmsum toga og full ástæða
til að hvetja gesti til að kynna sér
þá senu alla.
Dýrgripir víða að
Fjölmörg áhugaverð söfn og lista-
setur má finna í Berlínarborg. Eitt
þeirra er frekar afskekkt, við
Grünewald-garðinn, en það er
Brücke-safnið með verkum express-
jónistanna í Brücke-hópnum. Þar
stóð poppstjarnan David Bowie
löngum á Berlínarárum sínum og
leitaði innblásturs. Á milli flestra
annarra safna er auðvelt að ganga.
Á Safnaeyjunni, Museum Insel, sem
í áratugi var strönduð í Austur-
Berlín, eru nokkur kunn söfn sem
gerð hafa verið upp, með ómet-
anlegum dýrgripum. Í Pergamon-
forngripasafninu gefur að líta forn-
minjar frá uppgreftri í borginni Ur,
sjálft Pergamon-altarið og það sem
eftir er af gríðarmikilli lágmyndinni
sem var á sínum tíma umhveftis
það á upprunastaðnum í Tyrklandi,
og sjálft Ishtar-hliðið frá Babýlon.
Makalausar fornminjar sem er hálf-
óraunverulegt að skoða í Berlín. Í
næsta húsi, Neues Museum, sem
var opnað aftur árið 2009 eftir
teikningum stjörnuarkitektsins
Davids Chippenfields, má sjá
egypska listmuni og þar á meðal
hina frægu brjóstmynd af Nefertiti.
Einnig safn forngripa sem Heinrich
Schliemann fann í rústum Tróju-
borgar og veggmyndir sem fjalla
um norræna menningu. Þá eru þar
líka Alte Nationalgalerie, með
grískum og rómverskum minjum,
og Þýska sögusafnið.
Rétt hjá öllum stórhýsunum sem
hafa risið úr stáli og gleri umhverf-
is Potzdamer Platz er kjarni menn-
ingarbygginga; hús Fílharm-
óníuhljómsveitarinnar,
Kammermúsíksalurinn og Kult-
urforum sem hýsir meðal annars
hið einstaka Gemäldegalerie, með
meistaraverkum evrópskrar mynd-
listar frá 14. öld fram á þá 19. Frá-
bært safn. Skammt þaðan stendur
síðan hin formhreina bygging Mies
van der Rohe, Neue Nation-
algalerie, mátulega stórt nútíma-
listasafn með vel mótuðum sýn-
ingum. Þar má sjá lykilverk margra
nafntoguðustu myndlistarmanna
síðustu hálfrar aldar, meðal annars
hið áhrifamikla málverk þýska ex-
pressjónistans Anselms Kiefers,
„Maikäfer flieg …“; þungt og mik-
ilfenglegt verk um skelfilega eyð-
ingu heimsstyrjaldarinnar síðari.
Í BERLÍN ER MARGT VIÐ AÐ VERA FYRIR LISTUNNANDANN
Makalaus verk
AÐGENGI AÐ FORNUM SEM NÝJUM DÝRGRIPUM OG ÁHRIFAMIKLUM LISTA-
VERKUM ER ÓVÍÐA BETRA EN Í BERLÍN. Á SÍÐUSTU ÁRUM HAFA KUNN
SÖFN BORGARINNAR FENGIÐ GLÆSILEGA YFIRHALNINGU.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Gestir í Pergamon-safninu velta for-
tíðinni fyrir sér undir hluta lágmyndar
sem var um Pergamon-altarið.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014
Ferðalög og flakk
4 olíuverk eftir
Kristján Davíðsson
Upplýsingar
gefur Árni Þór
í síma 821 7547
(arni.thor.s@gmail.com)
Til sölu
Verkin eru
frá árinunum
1948-20012
Mynd: Attm