Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 14
B
ergur Þór Ingólfsson lokaði fyrir
stuttu ævintýralegu verkefni sem
hann segist ekki vera samur eftir.
Hann hefur leikstýrt Mary Popp-
ins, sem er orðinn vinsælasti
söngleikur Íslandssögunnar, og brátt leik-
stýrir hann öðrum söngleik í New York eftir
Ívar Pál Jónsson. Norðmenn hafa sýnt Mary
Poppins áhuga og til greina kemur að sýn-
ingin í Borgarleikhúsinu verði keypt til sýn-
ingar í stærsta söngleikjahúsi Norðmanna.
Um helgina verður Furðulegt háttalag hunds
um nótt frumsýnt þar sem Bergur leikur föð-
ur einhverfs drengs. Í kaffipásum hér heima
á hann skypefundi við New York. Þetta og
ótalmargt fleira er á dagskrá Bergs, sem
leikur og leikstýrir jöfnum höndum.
Segðu okkur fyrst frá áhuga Norðmanna á
Mary Poppins. Leist þeim svona vel á sýn-
inguna?
„Já, nefnilega. Þeir komu hingað fyrir jól
og voru mjög áhugasamir um að kaupa Borg-
arleikhússýninguna og setja hana upp með
norskum leikurum. Leikmyndinni var því
ekki hent núna þegar við vorum að ganga frá
sýningunni og við geymum búningana vel.
Eins og stendur eru Norðmennirnir í samn-
ingaviðræðum við Borgarleikhúsið og skoða
hvort það borgi sig fyrir þá að setja upp sýn-
inguna sjálfir eða kaupa hana með okkar list-
rænu stjórnendum. Það yrði þá leikárið 2015-
2016 sem Mary Poppins yrði sett upp úti.“
Var ekkert undarlegt að kveðja Mary
Poppins-verkefnið?
„Það má segja að þetta hafi verið mikil til-
finningaleg fjárfesting fyrir alla sem að þessu
komu. Þegar tjaldið féll á síðustu sýningu
féllust allir í faðma. Þetta var eins og lítið
kærleiksþorp og tökumaður Stöðvar 2, sem
kom til að fylgjast með síðustu sýningunni,
fór meira að segja að gráta örlítið þegar
hann var að mynda á bak við. Við erum mjög
stolt og glöð með þetta. Mary Poppins var
stórkostlega lærdómsríkt tveggja ára ferli en
nú er það að baki og maður stefnir bara að
nýjum sigrum með reynsluna í farteskinu.“
Hvenær byrjaðirðu að leikstýra?
Í atvinnuleikhúsi var það Kristnihald undir
Jökli árið 2001. Ég hef leikstýrt um tuttugu
verkum, bæði í stóru leikhúsunum en einnig
annars staðar, eins og Stúdentaleikhúsinu og
svo í GRAL, grindvíska atvinnuleikhúsinu
sem ég stofnaði ásamt félögum mínum. Ég
hef alltaf verið í 300 prósent vinnu því jöfn-
um höndum hef ég leikið og leikstýrt. Í
augnablikinu er ég sérstaklega stilltur inn á
leikstjórnina þótt ég vilji í raun gera allt.
Þetta er eins og að vera í hljómsveit: „Kom-
um hérna öll saman, þrjú eða þrjátíu, og ger-
um eitthvað skemmtilegt og það er best ef ég
ræð! Svo skrifum við eitthvað saman og
sköpum.““
Hvernig leggst verkefnið í New York í þig?
„Ég er á Skype þessa dagana að tala við
skrifstofuna úti sem sér um að ráða fyrir
okkur fólk til verksins. Það er allt frá
sýningarstjórum upp í smiði. Ég bý til prófíl
af þeim leikurum sem ég þarf á að halda og
svo forvelja þau fyrir okkur leikara sem við
tökum í prufur úti í New York í páskafríinu
frá leikhúsinu hér heima. Þá sit ég með hin-
um listrænu stjórnendunum úti í sal eins og í
bíómyndunum og læt fólk syngja og dansa
fyrir mig,“ segir Bergur hlæjandi. „Við frum-
sýnum verkefnið 16. ágúst en ég flýg með
fjölskylduna út um miðjan júní. Eiginkona
mín, Eva Vala Guðjónsdóttir, er leikmynda-
og búningahönnuður og verður í að undirbúa
einhver verkefni þarna úti en annars verða
hún og dætur mínar í því að anda að sér
borginni meðan ég upplifi minn draum í leik-
húsinu.“
Tengsl eiginkonu nýtast
Eva Vala er verðlaunahönnuður, hefur meðal
annars hlotið Edduna fyrir sín störf, og í
gegnum hana hafa aðstandendur söngleiksins
nýja, Revolution in the Elbow of Ragnar
Agnarsson furniture painter, fengið sambönd
við fólk úti sem hefur verið tilbúið að aðstoða
við leit að fólki til vinnslu söngleiksins. Er
þar því að þakka að Eva Vala hefur verið að
vinna með því kvikmyndafólki frá Hollywood
sem komið hefur hingað til lands síðustu tvö
sumur í tengslum við stórmyndirnar Noah og
Walter Mitty. Bergur gat því haft samband
við til að mynda Michael Wilkinson, sem kom
með góðar ábendingar. Þau hjón hafa meðal
annars unnið saman í GRAL en leikhúsið
hefur sett upp fjögur leikverk. Þar af er vin-
sælustu sýningu þeirra að ljúka, Horn á
höfði, sem gengið hefur fyrir fullu húsi í sex
ár. GRAL og Stúdíó Sýrland eru þessa dag-
ana að þróa saman nýja leið til að taka upp
leiksýningar með það fyrir augum að Horn á
höfði komi út á dvd-mynddiskum.
Bergur er þá þessa dagana að æfa leikritið
Hamlet litla, sem er útgáfa af harmleik
Shakespeares. Bergur skrifaði verkið út frá
því að það félli í kramið hjá yngri kynslóð.
Ætlunin er að bjóða öllum fimmtubekkingum
í Reykjavík að sjá sýninguna. Sjálfur á hann
ellefu ára stelpu sem og fjórar dætur allt í
allt á aldrinum 11-23 ára.
Hjálpar það að eiga barn á þessum aldri
við að skapa fyrir börn?
„Sjálfur hef ég barnslega eiginleika þótt ég
skilgreini mig ekki sérstaklega sem barna-
leikhúsmann og Mary Poppins er til dæmis
ekki barnasýning heldur fjölskylduleikrit.
Það er í raun ekki mikill munur á því að
skrifa fyrir börn eða fullorðna. Ellefu ára
krakkar eru orðnir svo ofboðslega klárir og
ég tala til vitsmuna þeirra og tilfinn-
ingagreindar, sem er nánast á sama plani og
mín eigin. Hamlet er verk sem fjallar um
ekkert smádramatíska atburði þar sem Ham-
let missir föður sinn og kemst að því að það
Hefur ekkert að gera við
að vera ofurvitiborinn
LEIKARINN OG LEIKSTJÓRINN BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON ER VANUR ÞVÍ AÐ DRAGA VART ANDANN MILLI VERKEFNA. HANN SYNDIR FRÁ LEIKSTJÓRN EINS
SÖNGLEIKS TIL ANNARS OG TEKUR ÞÁTT Í FRUMSÝNINGU Á LEIKVERKI Í BORGARLEIKHÚSINU UM HELGINA. HANN SEGIR LEIKHÚSIÐ SNÚAST UM ALLT
AÐRA HLUTI EN AÐ VERA OFBOÐSLEGA GÁFAÐUR. HANN HAFI EKKI ÁHUGA Á AÐ VERA HOMO YFIRBURÐAGÁFNA. SAMKENND SKIPTI MEIRA MÁLI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Eiginkona og dætur Bergs Þórs Ingólfs-
sonar anda að sér New York í sumar
meðan Bergur Þór Ingólfsson upplifir
sinn draum í leikhúsinu þar.
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014
Svipmynd