Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 22
 Bættu grænmeti við þína uppáhaldsrétti Grænmeti á borð við kúrbít, spínat og gulrætur er auðvelt að bæta við nánast hvaða rétti sem er. Góð regla er líka að bæta því grænmeti sem til er við þá rétti sem eru að malla í pottunum hverju sinni.  Gerðu grænmetissúpur Súpur eru auðmeltar og hollar. Grænmetissúpur eru kjörnar fyrir þá sem alla jafna borða ekki mikið af græn- meti því með því að gera súpur haldast vítamínin í grænmetinu.  Berðu það fram hrátt Hrátt grænmeti getur hentað betur en eldað og mörgum finnst það bragðbetra. Skerðu niður grænmeti og hafðu á skrifborðinu í vinnunni, þá eru meiri líkur á að þú grípir í það.  Notaðu ídýfur Ídýfur gerðar til dæmis úr grískri jógúrt eða sýrðum rjóma eru tilvaldar til að dýfa grænmetinu í. Þannig verð- ur það meira eins og snakk.  Drekktu grænmetið Mikið úrval grænmetissafa er á boðstólum í verslunum og því á ekki að vera mikið mál að auka neyslu sína á grænmeti með því einfaldlega að drekka það. Fyrir þá sem eiga góðan blandara er líka hægt að skella grænmet- inu í hann og bæta við einhverjum sætum ávexti til að gera drykkinn meira aðlaðandi.  Laumaðu því á pitsur og spagettí Spagettí og pitsur eru vinsæl fæða. Það er auðvelt að gera þessa rétti hollari með því að læða grænmeti í sós- una. Smátt saxaður kúrbítur, laukur, eggaldin, brokkólí, sellerí eða gulrætur gera gæfumuninn upp á hollustuna en enginn verður sérstaklega var við það í sósunni ef það er smátt saxað eða maukað. Auk þess er auðvitað hægt að hrúga litríku grænmeti sem áleggi á pitsur til að gera þær skemmtilegri.  Gerðu þetta skemmtilegt Krökkum finnst gaman að fá að halda á matnum og bíta í. Maísstönglar, sellerístönglar og stórir gúrkubitar hafa þann kost að fara vel í hendi og gera máltíðina skemmtilegri. Grillaðu grænmetið Grillað grænmeti sem hefur verið penslað létt með olíu eða jafnvel marinerað er hið mesta lostæti. Grillpinnar með grænmeti í ólíkum litum eru líka stórskemmtilegur matur fyrir alla á heimilinu. Bættu grænmeti við ólíklegustu rétti Það eru engin lög sem segja að klassískir hraðréttir eins og grilluð samloka þurfi að innihalda bara ost og skinku. Á hana má bæta grillaðri papriku, eggaldini, sólþurrkuðum tómötum, ferskri basilíku eða hverju sem hugurinn girnist. Ekki verðlauna börnin fyrir að borða grænmeti Ef við verðlaunum börn fyrir að borða grænmeti verða verðlaunin það sem þau einblína á en ekki sjálft græn- metið. Grænmetisát verður þá að kvöð í stað þess að verða skemmtilegur og sjálfsagður hluti matartímans. 10 LEIÐIR TIL AÐ BORÐA MEIRA GRÆNT EKKI ER ÖLLUM GEFIÐ AÐ RAÐA Í SIG GRÆNMETI DAGINN LANGAN ÞÓTT SANNARLEGA SÉ ÞAÐ ÆSKILEGT. MARGAR LEIÐIR ERU ÞÓ FÆRAR TIL AÐ BÆTA GRÆNMETI INN Í DAGLEGA FÆÐU OG HÉR ERU TÍU TÍNDAR TIL SEM HENTA ÞEIM SEM EKKI ER SÉRLEGA VEL VIÐ GRÆNMETI. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Gott er að borða gulrótina … Heilsa og hreyfing *Margir lenda í þeim vítahring að telja sig verabúna að reyna „allt“ til að taka mataræði í gegnog losna við aukakíló. Lausnin er þó gjarnannærtækari en okkur grunar. Skyndikúrar ogýmsar sérsniðnar hraðlausnir duga skammt viðhliðina á þeim almennu ráðum að hreyfa sig ogborða hollt. Hin einföldu ráð eru þó bara ekki alltaf eins spennandi og flóknu lausnirnar en eru þó það eina sem raunverulega virkar. Ný Polarolía Nýtt útlit-meiri virkni Selolía, einstök olía Meiri virkni fall Omega 3 fitusýrur nir mælir með lolíu, en þinn? Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Selolían fæst í: Þín verslun Seljabraut, úsum, Fjarðarkaupum, ni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999 Nýtt! D-vítamínbætt t hlut n læk Se pótekum, heilsuh Fiskbúðinni Trönuhrau Hát Min a „Allt“ … nema hreyfing og hollusta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.