Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014 Heilsa og hreyfing „Jafnvægi, er það ekki bara eitthvað fyrir fimleikadrottningar? Aldeilis ekki, góur- inn,“ segir Fannar Karvel, íþróttafræð- ingur hjá Spörtu líkamsrækt. Hann segir jafnvægi vera álíka mikilvægt fyrir mannskepnuna og öndunin. „Að vísu hrökkvum við ekki upp af án jafnvægis en við myndum hinsvegar ALLT- AF liggja í gólfinu. Eftir því sem aldurinn færist yfir okkur verður jafnvægið enn mikilvægara og því er gott að byrja snemma í að vinna í þessari grunnstoð. Stökktu nú upp, taktu þér stöðu og haltu hnénu uppi og farðu 20 hringi í hvora átt. Endurtaktu alla seríuna þrisvar sinnum á hvorn fót og ef þér finnst þetta of létt skaltu prófa að loka augunum.“ ÆFING VIKUNNAR Hring eftir hring 1Stattu upprétt/-ur með vinstra hné ímjaðmarhæð. 2Taktu það næsta sem þú finnur; bolta, penna,bók eða kaffibolla (ekki fullan af kaffi samt). 3 Færðu hlutinn í hring utan um vinstra læri,fyrst réttsælis og svo rangsælis. Stígðu rólega niður og gerðu það sama fyrir hægri fótinn. H andknattleikskonan Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir telur að búið sé að ryðja brautina betur í þess- um málaflokki kvennamegin en hjá körlunum. „Ef eitthvað er fannst mér auðveldra að koma út úr skápnum innan íþróttahreyf- ingarinnar en úti í samfélaginu. Þetta er þéttur hópur innan kvennahandboltans og þar þekkja allir alla. Það ríkir ekki jafn- mikil þöggun um þetta og hjá körlunum,“ segir Ólöf en hún leikur með liði HK í Kópavoginum. Daníel Örn Einarsson, handknattleiks- maður hjá KR, segir fordóma og fáfræði enn til staðar innan íþróttahreyfing- arinnar. „Ég finn ekki fyrir beinum for- dómum í minn garð vegna samkyn- hneigðar minnar en ég finn enn fyrir óbeinum fordómum. Ég hef t.d. heyrt út- undan mér hvernig handboltamenn leyfa sér að tala um mig þegar ég er ekki nærri og ef þeir þekkja mig ekki per- sónulega.“ Danni hommi og Kolla markmaður Daníel segir marga íþróttamenn taka hann út fyrir rammann með því að skilgreina hann eingöngu út frá kynhneigð en ekki öðrum eiginleikum. „Ég er t.d. ávallt þekktur sem Danni hommi á meðan Ólöf Kolbrún er þekkt sem Kolla markmaður. Þetta er merki um muninn sem er við lýði á milli kynjanna og það er greinilega miklu minna pælt í þessu kvennamegin en karlamegin. Það er eins og fólk telji homma í íþróttum ekki passa inn í hugmyndir um staðalímyndir þar sem íhaldsemi er enn ráðandi í hugs- unarhætti hins karllæga íþróttasamfélags..“ Ólöf Kolbrún tekur í sama streng og segir fordóma sýnilegri hjá íþóttakörlum en íþróttakonum. „Íþróttamenningin er svo karllæg að ef stelpur eru góðar í fótbolta er oft talað um þær sem strákastelpur. Ég fékk strax viðurkenningu, fann ekki fyrir breyttu viðhorfi í minn garð og þurfti ekki að berjast fyrir tilverurétti mínum innan íþróttarinnar. Þá er orðið lessa ekki notað með sama niðrandi hætti og strákar nota orðið hommi,“ segir Ólöf. Íþróttahreyfingin situr eftir Daníel telur að menning í kringum íþróttaiðkun karla hafi setið á eftir al- mennri þróun í samfélaginu síðustu ár. „Það hefur orðið mikil vakning úti í sam- félaginu varðandi samkynhneigð á síðustu árum en íþróttahreyfingin karlamegin hef- ur ekki alveg fylgt þessu eftir. Það ríkir meiri íhaldssemi og þöggun innan íþrótta- hrefingarinnar og þar er þröngsýnt við- horf leyfilegra og viðurkenndara,“ segir Daníel. Hann hefur þurft að sanna sig með því að rífa kjaft og berjast en samt finnur hann fyrir því viðhorfi að hann sé álitinn í lagi þar sem hann er ekki eins og „hin- ir hommarnir“. Hann telur fordómana liggja fyrst og fremst í því að nýir liðs- félagar hans haldi að hann sé mjög frá- brugðinn öðrum vegna kynhneigðar sinnar. „Ráðandi íhaldssöm menning gerir það að verkum að fólk veit ekki hvernig það á að haga sér og sumir handboltamenn virð- ast halda að ég gangi afturábak í bleikum háhæluðum skóm áður en þeir kynnast mér.“ Daníel segir stráka úr öðrum íþrótta- greinum hafa sett sig í samband við sig og lýst yfir áhyggjum yfir því að koma út úr skápnum innan íþróttahreyfingarinnar. Þá þekkir hann einnig dæmi þess að sam- kynhneigðir strákar hrökklist úr íþróttum sökum kynhneigðar sinnar. „Auðvitað viltu umgangast fólk þar sem þú getur leyft þér að vera þú sjálfur og þar af leiðandi leiðast margir efnilegir samkynhneigðir íþróttamenn inn á aðrar brautir í lífinu.“ Margir í felum Bæði Ólöf og Daníel telja fjölmarga sam- kynhneigða karlkyns íþróttamenn vera í felum hér á landi. „Ég efast ekki um það og íhaldssöm menning íþróttahreyfing- arinnar karlamegin gerir það að verkum að þeir virðast ekki treysta sér til að koma til dyranna eins og þeir eru klædd- ir,“ segir Ólöf. Daníel hvetur alla samkynhneigða til að lifa lífinu í sátt við sjálfan sig hvort sem þeir sinna íþróttum eða ekki. „Það væri að sjálfsögðu mun skemmtilegra á loka- hófinu hjá mér ef það væru fleiri sam- kynhneigðir handboltamenn á svæðinu og því kalla ég bara eftir fleiri hommum í handboltann,“ segir Daníel og hlær. FORDÓMAR ENN VIÐ LÝÐI INNAN ÍÞRÓTTAHEIMSINS Íþróttaheimurinn opnari fyrir lesbíum Íþróttafólkið Daníel Örn Einarsson og Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir er sammála um að auðveld- ara sé fyrir íþróttakonur að koma út úr skápnum hér á landi heldur en íþróttakarla. Morgunblaðið/Þórður * Úr kvennaknattspyrnu á Íslandi erufjölmörg dæmi um samkynhneigðar konur sem stunda íþrótt sína. * Eingöngu 0,173% karlkyns íþrótta-manna í efstu deild í hand-, fót- og körfu- bolta viðurkenndi samkynhneigð sína á síð- asta leiktímabili samkvæmt útreikningum Karls Fannars Sævarssonar mannfræðings. * Almennt er erfitt er að mæla hlutfallsamkynhneigðra í samfélaginu en í opnum vestrænum samfélögum er almennt talað um tölur á bilinu 2-10%. * Í bandarískri rannsókn frá árinu 2011kom fram að 3,8% Bandaríkjamanna væru samkynhneigð, tvíkynhneigð eða kynskipt- ingar. * Burtséð frá því hvaða viðmiðunartalaer notuð er ljóst að fjöldi íslenskra sam- kynhneigðra íþróttakarla endurspeglar á engan hátt almennar tölur um samkyn- hneigð í mannlegum samfélögum. EINGÖNGU EINN KARLKYNS LEIKMAÐUR Í EFSTU DEILD Í HÓPÍÞRÓTT HÉR Á LANDI HEFUR GREINT FRÁ SAMKYNHNEIGÐ SINNI OPINBERLEGA. ÖNNUR LÖGMÁL VIRÐAST GILDA UM ÍÞRÓTTAKONUR AÐ ÞESSU LEYTI ÞVÍ FJÖLDI ÞEIRRA HEFUR OPINBERAÐ SAMKYNHNEIGÐ SÍNA. Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is Margir sérfræðingar segja ber af ýmsu tagi vera allra meina bót og telja þau geta minnkað líkur á krabbameini. Þau innihalda m.a. andoxunarefni og önnur náttúruleg vítamin og steinefni sem talin eru vinna gegn krabbameini. Vísindamenn við Clemson háskólann fundu út að jarðarber og bláber geta dregið úr vexti krabbameinsfrumna bæði í brjósti og leghálsi. Ber gegn krabbameini
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.