Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 18
Ferðalög
og flakk
Handhæg ráð við pökkun
*Mörgum vex í augum að pakka niður fyrir ferðalög. Á vef USAToday er að finna handhæg ferðaráð. Góð regla fyrir borg-arferðir er t.d. að takmarka skópör við tvö, eitt betraog eitt hversdags, og pakka þeim neðst í ferðatöskuna.Líka er mælt með að ferðafötin séu valin í hlutlausumlitum (þá má fá úr fylgihlutum). Til að draga úr líkum áað fötin krumpist er tilvalið að rúlla þeim upp áður en
þau eru sett í töskuna. Best er líka ávallt að hafa tímann
fyrir sér og pakka ekki í flýti. (Nánar: travel.usnews.com).
Nú höfum við búið hér í Vínarborg í eitt ár og líkar vel. Vín er ein fal-
legasta borg sem við höfum komið til og hér er gaman og gott að búa.
Byggingarnar eru mikilfenglegar (við erum svo heppin að hafa heila
höll og meðfylgjandi hallargarð nánast í bakgarðinum hjá okkur!),
samgöngurnar eru frábærar og möguleikar til afþreyingar margir,
allt frá tónlist og listum til veitingastaða og skemmtigarða. Það er
líka gaman að fara örlítið út fyrir borgina og upplifa austurrísku
sveitina. Í haust fórum við t.d. á uppskeruhátíð vínbænda í grennd
við Vín. Þar sátum við, hlustuðum á alpapopp og gæddum okkur á
nýjustu vínafurðum Austurríkis á meðan við nutum útsýnisins. Nú
er farið að vora eftir nokkuð mildan vetur en til stendur að fara í eins
og eina skíðaferð áður en við tökum á móti sumrinu.
Vorkveðjur, Herdís, Örvar og Emil Dagur
Schloss Belvedere er í 2 mínútna göngufæri frá heimilinu okkar. Hér er-
um við Emil ásamt Ellu ömmu og Ellu frænku, með höllina í baksýn.
Örvar og Emil á einum af fjölmörg-
um jólamörkuðum fyrir jólin.
Menningarlíf í miðaldaborg
Hjónin á vínekru rétt utan við Vín.
PÓSTKORT F
RÁ VÍN
É
g tók eina önn í skiptinámi í Sjanghæ ár-
ið 2007, sem opnaði á einhverjar gáttir,“
segir Páll, spurður um tilurð þess að
áhugi hans á Suðaustur-Asíu var vak-
inn. Leitaðist hann við að nýta allan lausan tíma
til að ferðast, þar sem hann heillaðist mjög af
Taílandi. „Fólkið, maturinn og menningin var
einhvern veginn svo allt öðruvísi en maður átti
að venjast. Fólk býr við alls konar aðstæður og
heimsmynd þess er allt öðruvísi – en samt virk-
ar samfélagið einhvern veginn,“ segir hann.
Eftir útskrift frá Háskólanum á Bifröst komst
Páll inn í meistaranám í Suðaustur-Asíufræðum
við Chulalongkorn-háskólann í Bangkok. Nam
hann þar menningu, sögu og stjórnmál þessa
heimshluta. Skólinn er afar virtur að sögn Páls
en hann stofnaði taílenski konungurinn í upphafi
20. aldar. Sýnir konungsfjölskyldan skólanum
enn mikla tryggð en Páll tók m.a. við útskrift-
arskjali sínu úr hendi Maha Chakri Sirindhorn
prinsessu, þegar hann lauk námi árið 2010. „Það
þurfti að æfa athöfnina vel og virða ýmsar regl-
ur, eins og að horfa ekki í augu prinsessunnar
eða brosa til hennar – ekkert mátti fara úr-
skeiðis,“ segir hann kankvís.
Mildari útgáfa af Kína
Eftir útskrift bjó og starfaði Páll ytra um
tveggja ára skeið, við ýmis verkefni, svo sem
markaðsmál og fararstjórn. Enda þekkir hann
svæðið orðið vel og er orðinn þar heimavanur.
„Af þeim stöðum í Asíu sem ég hef komið til
er mín upplifun að Taíland sé einna aðgengileg-
ast og nútímavæddara að mörgu leyti en önnur
lönd. Gott netsamband í borgum og Starbucks
og 7/11-búðir víða eru birtingarmyndir nú-
tímans. Síðan er maður líka með hina hliðina,
utan borganna, þar sem landið er minna þróað
og gamla Asía mætir nútímanum,“ segir hann.
Páll ber einnig Taílendingum vel söguna sem
gestgjöfum.
„Taílendingar taka mjög vel á móti fólki. Mín
upplifun var að landið væri eins konar mildari
Asíuútgáfa af Kína,“ segir hann léttur í bragði.
Segir hann heimamenn almennt þekkta fyrir að
vera létta í lund. Jafnari veðursæld sé líka í
Taílandi, t.d. getur gerst mjög kalt í Kína á
vetrum. Bæði eiga löndin það hins vegar sam-
eiginlegt að státa af ríkri og fjölbreyttri mat-
arhefð. Margt sé hægt að kynna sér í þeim efn-
um.
Páll hefur hug á að kynna þessa hlið Taílands
frekar fyrir áhugasömum og mun gera senn. Á
komandi hausti mun hann, í samstarfi við Gló-
eigendurna Sollu Eiríksdóttur og Elías Guð-
mundsson, verða fararstjóri í matar- og heilsu-
ferð til landsins á vegum Ferðaþjónustu bænda.
„Markmiðið er að fólk upplifi eitthvað meira en
bara færiband á milli helstu ferðamannastaða.
Ég vil kynna landið betur frá sjónarhorni
heimamannsins,“ segir Páll. Dvalið verður í
Bankok í upphafi ferðar, þar sem m.a. betri taí-
lenskir veitingastaðir og ferskvörumarkaðir
verða sóttir heim. „Fólk mun líka prófa besta
götumat Bangkok-borgar,“ segir Páll. Leiðin
liggur síðan til eyjunnar Koh Samui þar sem
dvalist verður í heilsumiðstöðinni Vikasa í 10
daga. „Þar er hægt að gera ýmislegt uppbyggj-
andi, eins og að stunda jóga, hugleiðslu, detox,
líkamsrækt eða annað, auk þess sem Solla mun
kenna taílenska matreiðslu,“ segir Páll. Bætir
hann við að allir eigi að geta tekið eitthvað
meira með sér heim frá Taílandi en bara sól-
brúnkuna.
FÓLK, MATUR OG MENNING Í TAÍLANDI
Heillaðist af
nýjum heimi
PÁLL ARNAR STEINARSSON HAFÐI EKKERT SÉRSTAKLEGA VELT FYRIR SÉR
AÐ ÍLENGJAST Á FJARLÆGUM SLÓÐUM ÞEGAR HANN HÉLT TIL KÍNA Í
SKIPTINÁM. HANN FÉLL HINS VEGAR KYLLIFLATUR FYRIR ÁLFUNNI OG
LAUK SÍÐAR MEISTARAPRÓFI Í FRÆÐUM SUÐAUSTUR-ASÍU, FRÁ
VIRTUM TAÍLENSKUM HÁSKÓLA.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Páll tók þátt í hjálparstarfi eftir að
flóð ollu miklu tjóni í Taílandi 2011.
Útskrift úr Chulalongkorn háskólanum. Dr. Sunit
komst ekki, svo að búið var til pappaspjald af honum.
Frá Vikasa-heilsusetrinu, á eyjunni Koh Samui. Um 60 þúsund manns búa þar að staðaldri en ár-
lega sækir vel á aðra milljón ferðamanna eyjuna heim að sögn Páls, enda algjör paradís.
Með Dr. Sunit, deildarforseta, við
Ankor Wat í Kambódíu, í námsferð.