Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Qupperneq 29
– fyrir lifandi heimili –
OG D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJAVÍK | AKUREYRI
LUKT TILBOÐ KR. 9.592
KERTI TILBOÐ KR. 1.032 STK.
KOPARVASI TILBOÐ KR.
3.592 5.592ILMKERTI TILBOÐ KR. 2.392
KERTI TILBOÐ KR. 1.912 STK.
VERTU MEÐ OKKUR Á KOMDU Í HÖLLINA
EÐA HEIMSÓTTU OKKUR Á HUSGAGNAHOLLIN.IS
É
g vil að heimilið sé notalegt og huggulegt,
frekar bjart og ekki kuldalegt. Einnig
finnst mér mikilvægt að hafa þægindi í
fyrirrúmi og að sonur minn njóti sín,“ seg-
ir Áslaug sem býr í afar opinni og bjartri íbúð í
miðbæ Reykjavíkur. Áslaug segir jafnframt mik-
ilvægt að eltast ekki við tískubólur í innréttingum
og hugsa í stað þess um þægindi og hagkvæmni
og hvað hverjum þyki fallegt.
„Af því að ég er með frekar nútímalegan stíl þá
finnst mér mikilvægt að blanda antíkhúsgögnum
sem hafa annaðhvort sögu- eða tilfinningalegt gildi
inn á heimilið, hvort sem ég gef hlutunum nýtt líf
með því að gera þá upp eða leyfi þeim að halda
sér í upprunalegri mynd,“ segir Áslaug og bætir
við að hún gæti þess að heimilið sé ekki of ster-
ílt.
Áslaug kaupir helst inn á heimilið í Epal,
IKEA, Húsgagnahöllinni, Hrími og á mörkuðum
en hún er jafnframt dugleg að gera upp gömul
húsgögn ssem henni hafa áskotnast í gegnum tíð-
ina. „Ég sæki innblástur úr tímaritum, af Pinte-
rest og þegar ég ferðast.“ Spurð hvað sé á óska-
listanum inn á heimið segir Áslaug það vera verk
eftir Kjarval, „Já og mikið af fölbleikum bóndarós-
um. Annars vantar mig ekki neitt og mikilvægast
finnst mér að hafa heilsu á heimilinu.“
Áslaug Heiða sækir innblástur meðal annars í tímarit og ferðalög.
Fallegir munir fyrir ofan barnarúmið. Stóllinn er dönsk hönnun sem Áslaug erfði frá ömmu sinni.
Nútímalegur stíll
Í FALLEGU HÚSI VIÐ TJÖRNINA Í REYKJAVÍK BÝR ÁSLAUG HEIÐA GUNNARSDÓTTIR LÖG-
FRÆÐINGUR ÁSAMT UNNUSTA SÍNUM OG SYNI. STÍLLINN Á HEIMILINU ER NÚTÍMA-
LEGUR OG STÍLHREINN Í BLAND VIÐ ANTÍKMUNI MEÐ TILFINNINGALEGT GILDI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
MIKILVÆGT AÐ ELTAST EKKI VIÐ TÍSKUBÓLUR
Kaffivélin góða ásamt krómaðri Kitchen Aid-hrærivél. Gæruskinnið fer vel á skóhillunni.
Skápur sem Áslaug gerði upp. Gula borðið gefur líflegt yfirbragð.
Horn unga mannsins á heimilinu.
9.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29