Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 30
Matur og drykkir Sker laukinn með rótinni Gordon Ramsey. *Þegar sjónvarpskokkurinn Gordon Ramseysaxar lauk gætir hann þess að skera ekkirótina af lauknum fyrr en í lokin. Hann skerlaukinn í tvennt en heldur rótarhausnum áhvorum helmingi meðan hann saxar. Með þvívill hann meina að tárunum fækki. Áhuga-samir um laukskurð geta séð myndband á Youtube-vefnum með því að slá inn leit- arstrenginn Gordon Ramsey onion. Uppskrift frá Ingimar Alex, matreiðslumeistara Hafsins. Uppskrift fyrir 4: 1 kg þorskhnakkar 100 g parmesanostur 1 blómkálshaus 1 spergilskálshaus 300 g kartöflusmælki 2 laukar ½ lítri matreiðslurjómi 1 box af humarsúpu Hafsins 100 g smjör 250-350 ml mjólk Salt og svartur pipar Repjuolía Karrí/aromat/önnur krydd eftir smekk (sjá meðfylgjandi uppskrift að humarsósu) Þorskurinn: Þorskhnakkinn er skor- inn í um það bil 100 g steikur, tvær á mann. Steikurnar eru steiktar á pönnu á annarri hliðinni upp úr olíu og svo er smá bita af smjörinu bætt út á pönn- una þegar steikurnar eru að verða gullbrúnaðar (ætti bara að taka örfáar mínútur). Ekki fullelda steikurnar á pönnunni, heldur takið þær af og rað- ið í ofnfat (eða í eldfast mót) og síðan er parmesanostur rifinn yfir toppinn á hverri steik. Stillið ofninn á blástur, 180-200 gráður á undir- og yfirhita. Þorskurinn á bara að vera stutt inni í ofni eða þar til að parmesanosturinn er farinn að bakast (sirka 5-8 mín.). Blómkálsmauk: Allt blómkálið er skorið niður í bita og soðið í potti upp úr vatni og mjólk (sama hlutfall af mjólk og vatni – magnið fer eftir stærð pottsins, mjólkur og vatns- blandan þarf bara að hylja blómkálið). Soðið þar til það er orðið alveg mjúkt, þá er það sigtað úr pottinum og allur vökvinn tekinn frá. Blómkálið sett í matvinnsluvél með smá smjörklípu og kryddað til með salti og pipar. Hægt er að gera þetta fyrr um kvöldið/daginn og hita blómkálsmaukið varlega upp þegar það á að bera það fram. Smjörsteikt spergilkál og smælki: Forsjóðið smælkið og skrælið en ekki sjóða of lengi því það á eftir að steikja það á pönnu síðar. Spergilkálið er skorið niður í fallega jafna bita og svo forsoðið í sjóðandi salt vatni og snögg- kælt þegar það er orðið nánast mjúkt í gegn. Skerið smælkið í tvennt og steikið á pönnu, skerið laukinn og bætið út á pönnuna og steikið með. Þá er fínt að setja smá smjör á pönnuna og leyfa því að bráðna almennilega og smælkið dregur það í sig. Í lokin er spergilkálið sett út á pönnuna og það smakkað til með salti og pipar. Farið varlega í að hreyfa við því eftir að það er sett út í svo það fari ekki allt í mauk. Humarsósa: Humarsúpa Hafsins er fínn grunnur til að laga sósu úr. Hitið grunninn upp í potti og smakkið hann til með salti, pipar, rjóma, smjöri, aro- mat, karrí svo eitthvað sé nefnt. Hér ræður aðeins tungan og eigin smekkur för. Mjög gott er að nota töfrasprota til að þeyta smá lofti í sósuna rétt áð- ur en hún er borin fram. Svo hefur fólk frjálsar hendur þegar kemur að framreiðslunni og getur skreytt diskana eftir eigin höfði. Parmesanristað- ur þorskhnakki með humarsósu B ræðurnir Eyjólfur og Páll Pálssynir reka sína fiskverslunina hvor undir nafninu Hafið, fiskverslun. Bræðurnir segja al- mennt viðhorf gagnvart fiski hafa breyst á undanförnum árum og fiskur sé ekki lengur bara hefðbundinn hversdagsmatur. „Fiskur getur líka verið lúxusmáltíð og helgarmatur sem hefur það fram yfir marga aðra fæðu að vera bæði léttur í maga og hollur,“ segir Páll en þeir bræður bjóða upp á mikið úrval af fiski og fiskréttum hjá sér. Eyjólfur segist hafa verið með fingurna í fiski síðan hann var ungur drengur en hann hóf störf í frystihúsi 12 ára gamall. „Síðan þegar ég var 15 ára fór ég á sjóinn og 17 ára byrjaði ég að vinna í fiskbúð. Þar fann ég mig mjög vel og blundaði í mér sá draumur að opna eigin fisk- búð,“ segir Eyjólfur. „Ég hef alltaf viljað vera minn eigin herra og fá að ráða minni för. Árið 2006 rættist svo draumurinn þegar ég opnaði, ásamt Dóra æskufélaga mínum (Halldóri Heiðari Halldórssyni), fisk- verslunina Hafið í Hlíðasmára, Kópavogi.“ Páll hafði einnig unnið áður í fiski og hafði því smá reynslu. „Ég var bara skólastrákur og var í Flensborg þegar ég byrjaði að vinna hjá Eyjó og Dóra,“ segir Páll. „Eftir að ég kláraði skólann hóf ég störf hjá þeim og hef verið þar í og með síðan.“ Hafið hefur vaxið jafnt og þétt með árunum og nú fyrir nokkrum mánuðum ákváðu bræðurnir að opna aðra verslun, nú í Spönginni í Grafarvogi, sem Páll sér um að reka. Hann segir þær fiskbúðir sem hafa verið til staðar í Spönginn á undan Hafinu hafa lagt upp laupana. „Áhættan er ekki mikil þegar topphráefni, áralöng reynsla og góð þjónusta koma saman. Hljómar ef til vill klisjukennt, en þetta er upp- skrift að farsælum rekstri,“ segir Páll. „Við erum komnir til að vera í Spönginni, það er alveg á hreinu.“ Slógust stundum á yngri árum Þeir segja samstarfið ganga vel en oft komi upp deilumál, sem er skilj- anlegt enda nánir bræður. „Við slógumst nú stundum þegar við vorum yngri. Þá vorum við frekar fjörugir en höfum róast aðeins núna,“ segir Eyjólfur og hlær. Páll segir fjölskylduna einstaklega samheldna. „Við erum mjög náin fjölskylda og erum við bræður sérstaklega heimakær- ir, auk þess erum við miklir mömmustrákar,“ segir Páll. Hér gefur Ingimar Alex, matreiðslumeistari Hafsins, uppskrift að gómsætum fiskrétti, en bræðurnir sögðust vilja bjóða upp á einfalda en glæsilega uppskrift sem breyti hverjum sem er í meistarakokk. BRÆÐURNIR EYJÓLFUR OG PÁLL HAFA BÁÐIR STARFAÐ LENGI Í FISKI Samrýndir bræður í Hafinu ÞAÐ GETUR BÆÐI VERIÐ SNÚIÐ OG SNJALLT FYRIR BRÆÐUR AÐ REKA SAMAN FYRIRTÆKI. NÁNDIN ER MIKIL EN Á SAMA TÍMA ER STUTT Í BRÆÐRARÍG. ÞAÐ GENGUR ÞÓ VEL HJÁ EYJÓLFI OG PÁLI EN ÞEIR ERU KENNDIR VIÐ FISKVERSLUNINA HAFIÐ SEM OPNAÐI FYRIR STUTTU NÝTT ÚTIBÚ. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is „Við erum mjög náin fjölskylda og erum við bræður sérstaklega heimakær- ir, auk þess erum við miklir mömmustrákar,“ segir Páll. Morgunblaðið/Þórður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.