Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Page 39
#12stig Það styttist í árshátíð Twitter-notenda á Íslandi, sjálfa Eurovision-keppnina. Eins og áður segir eru beinar útsendingar frá vinsælum viðburðum í sjónvarpi með vinsælasta umfjöllunarefni fólks á samfélagsmiðlum. Þannig voru alls send 20.710 tíst merkt #12stig á úrslitakvöldi Eurovision í fyrra. Vinsældirnar má rekja til þess að fólk vill upplifa stórar stundir saman og segja hvað öðru frá sinni upplifun. Kosningar eru annar hápunktur fyrir Twitter-notendur, en íþróttaviðburðir standa líka alltaf fyrir sínu. Þannig er úrslitaleikur ameríska fótboltans iðulega sá atburður sem mest er tíst um á hverju ári í Bandaríkjunum. Osama er allur Fréttir af því að Osama Bin Laden hefði verið drepinn bárust fyrst á Twitter. Það var Keith Urbahn, fyrrverandi skrif- stofustjóri Donalds Rumsfelds, sem var fyrstur til að segja frá þessu, en fjöl- miðlar gripu söguna á lofti um leið, og fjölluðu um málið áður en staðfesting lá fyrir af hálfu Bandaríkjastjórnar. Meðan á árásinni stóð lýsti pakistanskur maður að nafni Sohaib Athar atburðarásinni á Twitter, án þess að hafa hugmynd um hvað raunverulega var að gerast. Flugslys í Hudson Löngu áður en fjölmiðlar komust á staðinn til þess að segja frá því hvað var að ger- ast náði maður að nafni Janis Krums að segja heiminum frá brotlendingu flugvélar í Hud- son-ánni í New York. Hann sendi tíst með mynd af flugvél- inni í ánni og lýsti því að hann væri í ferju á ánni sem væri á leið að flugvélinni til að hjálpa farþegum að komast frá flak- inu. Fljótlega var hægt að finna fjölda mynda og mynd- banda frá slysstað og af björg- unaraðgerðum á Twitter. 9.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Smáralind | Sími 512 1330 Opið Sunnudaga 13-18 iPadmini Nettur ogflottur Verð frá:49.990.- SmartCover Fyrir iPad, flottir litir Verð frá:7.990.- iPadAir Kraftmikill og léttur Verð frá:84.990.- iPad hvarsemer, hvenærsemer iPad leiðarvísir Allt um iPad íeinni bók Verð:4.490.-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.