Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 40
Chanel í stórmarkaði
*Grand Palais í París breyttist í stórmarkað fyrr í vikunni.Karl Lagerfeld sýndi þar vetrarlínu tískuhússins Chanelfyrir næsta haust. Þar gengu heimsþekktar fyrirsætur nið-ur „verslunargangana“ og fylltu innkaupakörfur sínar afChanel-merktum varningi en allar vörur, þvottaefni, bréf-þurrkur og matvæli, voru merkt með vísunum í tískuhúsið eða söguþess. Í lok sýningarinnar heyrðust skemmtileg skilaboð í kallkerfinu:
„Kæri viðskiptavinur, Chanel-búðinni verður nú lokað. Vinsamlegast
nældu þér í ávöxt og grænmeti í boði verslunarinnar á leiðinni út.“
Morgunblaðið/Golli
Ein klassísk – hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Ef ég horfi 1-2 ár aftur í tímann þá er það gulllitaður kjóll sem ég keypti í GK
fyrir skírn yngri dóttur minnar. Ég get dressað hann upp og niður og er alltaf
jafn ánægð með hann. Svo hafa góðar vinkonur fengið að njóta hans líka. Leð-
urbuxurnar sem ég keypti í Selected og er búin að nýta vel voru eftir á að hyggja
líka afar góð kaup, ég er hvergi nærri hætt að nota þær. Svo eru það flíkurnar
mínar frá ELLU, kjólar og pils, sem eru algjör klassík. Þær flíkur munu án efa
fylgja mér um ókomna tíð.
En þau verstu?
Það eru nokkrar ónefndar flíkur sem ég hef keypt í sterkum litum, sem eiga
bara hreint ekki við mig.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó,
þegar kemur að fatakaupum?
Ég hef í seinni tíð reynt að tileinka mér að fara
með möntruna „Vantar mig þetta“ í hvert sinn sem
ég handfjatla nýja flík. Einnig er ráðlagt að huga að
því hvort maður eigi e-ð sem passi við það sem
mann langar í áður en skrefið er stigið.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Ég fékk öran hjartslátt þegar ég skoðaði sumarlínu
Isabel Marant fyrir skemmstu. Ég er einnig aðdáandi
Stellu McCartney, Marc Jacobs, THAKOON, Rag &
Bone og Costume National. Svo ber ég ómælda virð-
ingu fyrir Coco Chanel heitinni. Það er ástæða fyrir
því að hún ein fatahönnuða komst á lista Time ma-
gazine yfir 100 áhrifamestu einstaklina á 20. öldinni.
Karl Lagerfeld heldur einnig að mínu mati vel um
taumana á samnefndu tískuhúsi. Síðan eru auðvitað
margir hérlendir hönnuðir að standa sig frábærlega
og mætti þar nefna ELLU, Spakmannsspjarir, JÖR,
KRON KRON, STEINUNNI, Magneu Einars, AFT-
UR o.fl.
Hvar verslar þú helst föt?
Hér heima versla ég að lík-
indum mest hjá ELLU, Sel-
ected, KRON KRON, GK
og Evu.
Áttu þér uppáhaldsflík
eða fylgihlut?
Ég bið dýravernd-
unarsinna um að færa sig beint yfir í næstu spurningu!
Ég á við skinnkápurnar sem ég klæðist á vetrum, sem
og vesti og trefla úr skinnum af ýmsum toga sem ylja
mér á köldum vetrardögum. Þetta eru allt flíkur sem ég
hef fengið í jólagjöf frá manninum mínum sl. áratug, en
honum hefur tekist einkar vel við val á fallegum flíkum sem
ég lít á sem lífstíðareign.
Fylgihlutir í uppáhaldi um þessar mundir eru helst stóra
Marc Jacobs taskan mín sem virðist geta tekið endalaust
við, og slíkt kemur sér vel þegar maður á lítið barn. Síðan
eru það Stellu McCartney sólgleraugun mín sem ég fékk í
sængurgjöf, en þau eru ávallt innan seilingar nú með hækk-
andi sól. Skartið mitt frá Kríu og Hildi Hafstein er nánast
ómissandi, að ég tali nú ekki um giftingarhringinn og dem-
antshringinn sem ég tek aldrei af mér.
Hverju myndir þú aldrei klæðast?
Ég myndi að líkindum aldrei fara í Crocks skó!
Hverju er mest af í fataskápnum?
Yfirhöfnum, kápum, slám og jökkum. „Mantran“ góða hefur enn ekki alveg náð í
gegn þar.
Hvert er þitt eftirlætis tísku-tímabil og hvers vegna?
Það er ekkert eitt tímabil í uppáhaldi hjá mér. Þau hafa flest sinn sérstaka
sjarma, nema kannski „eighties“ tímabilið, sem síst höfðar til mín.
Hvað ætlarðu að fá þér fyrir sumarið?
Ætli ég fái mér ekki einhverja hvíta eða ljósa flík fyrir sumarið, svona til að
létta aðeins á fataskápnum.
Birna á gott safn af
skinnkápum sem ylja
henni á veturna.
Birna heldur
upp á íslenska
tískuhúsið
ELLU.
Morgunblaðið/Eva Björk
Glæsileg sumarlína Isabel
Marant 2014.
STELLU MCCARTNEY SÓLGLERAUGUN ÁVALLT INNAN SEILINGAR
Skinnkápurnar
lífstíðareign
BIRNA RÚN GÍSLADÓTTIR STARFAR SEM SÉRFRÆÐINGUR Á
ÞRÓUNAR- OG MARKAÐSSVIÐI ARION BANKA. BIRNA HEFUR VAKIÐ
ATHYGLI GEGNUM TÍÐINA FYRIR GLÆSILEGAN OG JAFNFRAMT
PERSÓNULEGAN FATASTÍL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Coco Chanel komst á lista Time magazine yfir 100áhrifamestu einstaklinga á 20. öldinni
Birna Rún hefur sérlega fágaðan stíl.
Föt og
fylgihlutir