Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 47
að fyrst skekkjan hefði verið í þessa áttina væri hún ekki eins alvarleg og ella hefði verið. Stalín virtist líta á þessi mistök sem „ívilnandi gerning“ svo notað sé mál lögfræðinnar. Á frægum fundi miðstjórnarinnar í Moskvu, fáum árum eftir dauða Stalíns, upplýsti Krústsjov um nokkra helstu glæpi hans í frægri ræðu. Hún spurðist smám saman út en sanntrúaðir neituðu lengi að trúa því að hefði verið flutt. Í „leyniræðunni“ en þó eink- um síðar viðurkenndi Krústsjov að hann sjálfur og samverkamenn hans hefðu verið blóðugir upp að öxl- um, í orðanna fremstu merkingu. En hann undir- strikaði að menn hefðu ekki átt annars kost vildu þeir halda lífi og ábyrgðin hefði öll verið Stalíns. Annar fór á undan Fljótlega upp úr því að kommúnistar náðu völdum í Rússlandi voru gerðar miklar hreinsanir á Krím- skaga. Handlangari Leníns og síðan Stalíns, Lev Mekhlis, sá um að taka meinta andstæðinga af lífi í þúsundatali og var ofsinn og grimmdin slík að jafnvel Stalín þótti hún eftirtektarverð og sagði af henni sög- ur. Í lok góðs dagsverks þótti Stalín við hæfi að gera Mekhlis að ritstjóra Prövdu, Sannleikans, og segir Simon Montefiore í bók sinni að böðullinn af Krím- skaga hafi sýnt í því starfi sömu taktana við rithöf- unda og fyrri fórnarlömb sín. En rétt er að hafa í huga að gjöf Krústsjovs á Krímskaga til Úkraínu laut lögmálum veruleikans sem var árið 1954. Hún var gerð í tilefni þess að Úkraína hafði þá tilheyrt hinu Rússneska heims- veldi í 300 ár. Það flögraði ekki að Krústsjov að hann væri með þessum sýndargerningi að flytja Krím- skaga undan Moskvuvaldinu, því að Úkraína laut því valdi og það stóð ekki annað til en að svo yrði til eilífðar. Enda héldu eftirmenn Krústsjovs áfram að dvelja í sínum glæsilegu sumarhöllum á Krím allt fram til síðustu daga sovétsins og það var einmitt á Krímskaga sem síðasti forseti Sovétríkjanna, Gor- batsjov, var hnepptur í stofufangelsi, þegar nokkrar örlagafyllibyttur í æðstaráðinu reyndu að stöðva klukkuna, tímann og heiminn á síðustu metrunum. Yeltsín klifraði þá upp á skriðdreka, sem frægt er og gagnbylting byttanna var þar með úr sögunni og Sovétríkin sjálf skömmu síðar. Hvernig verður endastaðan? Krímskagatotan, sem áður var nefnd, er meira en tota. Hann er einir 26 þúsund ferkílómetrar eða nánast fjórðungur af stærð Ísland. Hann er þannig 10 sinnum landmeiri en ESB-ríkið Lúxemborg og 83 sinnum stærri en Malta, annað ESB-ríki. Landgæði, hernaðarlegt mikilvægi og söguleg sjónarmið, ásamt því hvernig íbúaskipting er á skaganum (þótt hún sé illa fengin) leiðir til þess að Pútín lítur á það sem hreint formsatriði að taka hann yfir. Það gera vestrænir leiðtogar því miður líka, þrátt fyrir mála- myndamótmæli þeirra. Þeir eru að vonast til þess, að með því að andmæla af sæmilegum þrótti yfirtöku Krímskaga nú geti þeir fengið Pútín til að ganga þó ekki lengra en það. Það kann að ganga eftir. En það er fjarri því að vera víst. Vestræn ríki fá ekki slíkt loforð frá forseta Rússlands fyrr en áhrifavald Kremlar yfir Úkraínu hefur verið viðurkennt í raun, jafnvel þótt það verði aðeins gert í bakherbergjum. Sá mikli garpur, Winston Churchill, af öllum mönnum, skrifaði upp á plagg með Stalín eftir mik- inn málsverð og með því, í Kremlarkastala árið 1944. Þar „höfðu þessir kallar kaup“ á löndum og þjóðum eins og þeir ættu það allt. Síðar skammaðist Churc- hill sín fyrir þetta augnablik sinnar ævintýralegu til- veru og kallaði herfangsplaggið (sem oftast var kall- að „skjal um prósentuskiptingu“) „ósiðlega skjalið“ (The naughty document). (Strax eftir undirritun urðu þessi orðaskipti: „Might it not be thought rat- her cynical if it seemed we had disposed of these issues so fateful to millions of people, in such an off- hand manner? Let us burn the paper,“ said Churc- hill. „No, you keep it,“ replied Stalin.) Vonandi mun þetta ógæfulega pólitíska skamm- arstrik ekki verða dregið aftur á næstunni. Vonandi hefur heimurinn eitthvað lært. Morgunblaðið/RAX 9.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.