Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 50
Nálgast allt á jákvæðan hátt M agnús Geir Þórðarson heill- aðist sem barn af leikhúsi, þeirri miklu töfraveröld, eins og hann kemst að orði. „Ég var svo heppinn að for- eldrar mínir fóru mikið með okkur í leikhús og á aðra menningarviðburði, menning var því hluti af daglegu lífi fyrir mig. Ég lék sem barn í Þjóðleikhúsinu og í kvikmyndum, stofn- aði barnaleikhús og leikstýrði. Eitt leiddi af öðru þangað til ég fór út í nám og lærði leik- stjórn.“ Ekki varð aftur snúið. „Þegar ég kom heim úr námi leikstýrði ég fjölbreyttum leiksýn- ingum og smám saman fór áhuginn á stjórnun að aukast. Árið 2004 var ég ráðinn leik- hússtjóri á Akureyri.“ LA var í miklum vanda þegar Magnús fór norður en viðsnúningurinn var hraður, leik- húsið varð fljótlega mjög áberandi og aðsókn- in sú mesta í sögu þess. „Starfsemin var al- gjörlega stokkuð upp og nýr, samheldinn hópur reisti hið gamalgróna leikhús við. Þarna varð einstakur andi og margir þeirra lista- manna sem fremstir standa í dag hófu ferilinn á þessum árum á Akureyri. Við rifjum þessa góðu tíma iðulega upp með vissum söknuði enda var þetta í raun ævintýri líkast. Það var gaman að byggja upp leikhúsið í góðu sam- bandi við bæjarbúa en leikhúsið stuðlaði að auknum ferðamannastraumi til bæjarins. Þeg- ar ég lít til baka er ég stoltur af þeirri blöndu sem var í verkefnavali LA á þessum tíma: boðið var upp á vel heppnaðar, ágengar sýn- ingar eins og Maríubjölluna, Herra Kolbert, Ökutíma og Dubbeldusch í bland við sýning- arnar sem mestrar aðsóknar nutu eins og Litla hryllingsbúðin, Fullkomið brúðkaup, Óvitar og Fló á skinni.“ Viðsnúningurinn hjá LA var kraftaverki lík- astur og Borgarleikhúsið hefur blómstrað á síðustu árum undir þinni stjórn. Vinnur þú eftir einhverri leyniformúlu? „Engin tvö leikhús eða fyrirtæki eru eins. Meta þarf í hverju tilviki fyrir sig hver þörfin er og í báðum tilvikum, hjá LA og Borgarleik- húsinu, blasti við eitt og annað sem betur mætti fara. Vandinn var mun augljósari hjá LA við fyrstu sín en raunin varð þó sú að við endurskoðuðum alla starfsemi Borgarleikhúss- ins í heilmiklu breytingarferli árið 2008. Þess- ar breytingar voru grunnurinn að þeim ár- angri sem náðist í kjölfarið og þær stoðir sem Borgarleikhúsið hvílir á í dag. Fyrsta árið einkenndist af miklu breyt- ingaferli þar sem öllum steinum var velt við. Við endurskoðuðum stefnu leikhússins og alla nálgun í verkefnavali, endurskilgreindum hlut- verk og markmið og samhliða var öllu skipu- lagi leikhússins breytt; sýningarfyrirkomulagi, framleiðsluferli og fjármálastjórn. Eðlilega urðu breytingar á mönnun leikhússins en þó nokkru minni en margir virðast halda. Mark- aðsmálum var umbylt og allri ásýnd leikhúss- ins breytt. Við stokkuðum upp áskriftarkerfið og lögðum aukna áherslu á það. Afrakstur breytinganna skilaði sér fljótt og síðan hefur leikhúsið siglt meira og minni eftir þeirri stefnu sem sett var á þessum tíma.“ Breytingar geta oft verið erfiðar, ekki síst á mannahaldi. Mörgum finnst sá þáttur erfiður. Hvað með þig? „Ég geri það sem þarf að gera en reyni að nálgast breytingar og stjórnun á jákvæðan hátt og sætta sjónarmið þannig að sem flestir séu sáttir. Ég hef ekki sérstaka ánægju af því að taka erfiðar ákvarðanir og breyti ekki breytinganna vegna heldur til að láta hlutina ganga betur upp með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Það getur tekið á en sá sem kýs að vera í forystu þarf að axla ábyrgð og taka ákvarðanir en þær geta verið erfiðar. En það er auðveldara ef tilgangurinn er göfugur, vel rökstuddur og nálgun öll eins manneskjuleg og kostur er.“ Af hverju ákvaðstu að fara frá leikhúsinu þegar gengur svona vel? „Ég hef lagt líf og sál í Borgarleikhúsið síð- ustu ár og hafði alls ekki hugsað mér að hverfa á braut. Mér líður afskaplega vel þar og er búinn að leggja drög að mjög spennandi dagskrá sem er framundan, en þarna blasti við mér ný og afar spennandi áskorun. Rík- isútvarpið er stærsta og sennilega mikilvæg- asta menningar- og lýðræðisstofnun þjóð- arinnar. Ég er líklega galinn að fara úr draumastarfinu, en eftir að hafa legið yfir málinu komst ég að þeirri niðurstöðu að ástæða væri til þess að taka slaginn, vegna þess að ég held að það sé ekki hollt, hvorki manni sjálfum né stofnun sem þarf að var jafn frjó og leikhús, að stjórnandi sé þar of lengi. Þá er alveg sama hve staðan er góð, hætta er á að hlutirnir staðni. Þess vegna ákvað ég að standast þá freistingu að vera áfram og hætta áður en það blasti við að hollt væri að ég myndi hverfa á braut. Ég er fyrst og fremst leikhúmaður af lífi og sál og ég sé fyrir mér að ég snúi aftur í leik- húsið síðar á lífsleiðinni. Þá mæti ég vonandi endurnærður í draumaveröld leikhússins, vopnaður nýjum og ferskum hugmyndum. Ég hlakka mikið til starfsins á Ríkisútvarpinu og vona að mér takist að koma með nýja sýn á hlutin þar.“ Gengurðu sáttur frá borði? „Já, ég fer stoltur og þakklátur frá Borgar- leikhúsinu. Ég er fyrst og fremst mjög stoltur af þeim frábæra hópi sem hér starfar; hér eru ekki bara sterkir einstaklingar heldur ekki síður einstaklega öflugur og samheldinn hópur sem hefur flutt fjöll. Hópurinn getur verið stoltur af því sem hefur áunnist og hver staða Borgarleikhússins er í dag. Á undanförnum árum höfum við skapað margar ógleymanlegar sýningar og okkur hefur tekist að vekja áhuga og velvild þjóðarinnar, sem hefur streymt í leikhúsið. Það hefur tekist ágætlega að setja saman góða blöndu verkefna og byggja upp stóran hóp reglulegra leikhúsgesta. Verðmætin sem felast í því að um 12.000 manns teljist til áskriftarkortagesta eru ómetanleg. Hér eru fjármál og skipulag í afar góðum og föstum skorðum, jafnvægi hefur verið í rekstri og jákvæð rekstrarniðurstaða af op- MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON HEFUR STÝRT BORGARLEIKHÚSINU Í SEX ÁR EN SEST Í STÓL ÚTVARPSSTJÓRA RÍKISÚTVARPSINS Á MÁNUDAGINN. HANN BLÆS Á RADDIR UM AÐ GÓÐ MARKAÐSSÓKN BITNI Á FAGLEGUM METNAÐI. SEGIR BORGARLEIKHÚSIÐ DÆMI UM HIÐ GAGNSTÆÐA. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Morgunblaðið/Golli Faust Rústað Mary Poppins GRÆNU Viðtal 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.