Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Qupperneq 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014 Myndlistarkonan Rut Rebekka opnar á laug- ardag kl. 14 sýningu í sal Íslenskrar grafíkur, sjávarmegin í Hafnarhúsinu í Reykjavík. Sam- tímis kemur út listaverka- og ljóðabók með verkum hennar. Bókin nefnist „Málverk og ljóð – Paintings and Poems“ og eru ljóðin bæði á íslensku og á ensku. Í bókinni gefur að líta verkin á sýn- ingunni, og fleiri til, en með hverri mynd birt- ist ljóð. Rut Rebekka hefur ort ljóðin sam- hliða því að mála verkin. Listakonan er fædd í Reykjavík árið 1944 og er þetta afmælissýning því hún verður sjö- tug í þessum mánuði. Hún hefur stundað myndlist í 40 ár og haldið 20 einkasýningar á ferlinum, hér heima og erlendis. RUT REBEKKA SÝNIR AFMÆLISSÝNING Hluti af einu verka Rutar Rebekku á sýningunni. Í bókinni sem kemur út eru einnig ljóð hennar. Tölvugerð mynd af „Minnissárinu“, 3,5 metra breiðum skurði gegnum Sørbråten-nesið. Mynd/Jonas Dahlberg Studio Sænskur myndlistarmaður, Jonas Dahlberg, bar sigur úr býtum í samkeppni um minn- ismerki um fórnarlömb hryðjuverka öfga- mannsins Anders Behrings Breiviks í Utøya og Ósló sumarið 2011. Dahlberg mun skapa þrjá minnisvarða. Einn þeirra, kallaður „Minnissár“, er 3,5 metra breiður skurður gegnum nes sem gengur út í stöðuvatnið þar sem Utøya er. Á annan vegginn verða grafin nöfn allra fórn- arlambanna og verður hægt að lesa þau gegn- um glugga á hinum veggnum. Grjótið sem verður tekið úr skurðinum verður flutt til Óslóar og notað í gerð annars minnismerkis, um bílsprengjuna sem Breivik sprengdi þar. MINNISVARÐI UM HRYÐJUVERK MINNISSÁR Sýning til heiðurs skáldkon- unni, myndhöggvaranum og leikkonunni Melittu Urban- cic (1902-1984) verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag, laugardag. Málþing verður um leið um ævi hennar og verk og stendur dagskráin frá kl. 13-15. Melitta Urbancic leitaði hælis á Íslandi árið 1938 ásamt eiginmanni sínum, hljómsveitarstjóranum Victor Urban- cic (1903-1958) og börnum þeirra. Fjöl- skyldan fluttist hingað frá heimalandinu, Austurríki, eftir valdatöku nasista, en Melitta var af gyðingaættum. Ljóðabók Melittu, „Frá hjara veraldar / Vom Rand der Welt“, kemur út í tvímála út- gáfu hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Háskólaútgáfunni nú í mars. Þýðandi ljóðanna á íslensku er Sölvi Björn Sigurðsson en eftirmála ritar Gauti Kristmannsson. SÝNING OG MÁLÞING MINNAST MELITTU Melitta Urbancic Sýning er nefnist „Nútímakonur“ með verkum eftir Björgu Þor-steinsdóttur, Ragnheiði Jónsdóttur og Þorbjörgu Höskulds-dóttur verður opnuð í Listasafni Árnesinga í dag, laugardag, klukkan 15. Kveikjan að sýningunni er þrjú verk eftir listakonurnar þrjár sem voru í gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona hennar til safnsins á áttunda áratugnum. Verkin voru unnin á þeim tíma, sem oft er skírskotað til sem „kvennaáratugarins“, en nýju kvennahreyf- ingunni, sem nefnd hefur verið önnur bylgja femínisma, laust þá nið- ur víða um lönd. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram listfræðingur. Heiti sýningarinnar, „Nútímakonur“, vísar til þess að mótunarár þeirra Bjargar, Ragnheiðar og Þorbjargar voru árin eftir heimsstyrj- öldina síðari, þegar íslenskt þjóðfélag hafði tekið grundvallarbreyt- ingum og breyttist hratt úr hefðbundnu norrænu bændasamfélagi í nútímavætt borgarsamfélag og við blasti ný heimsmynd. Árin eftir stríð urðu því uppgangstímar og alþjóðlegir straumar í bókmenntum, myndlist og fatatísku bárust hratt til landsins og settu sterkan svip á þjóðfélag og menningarlíf. Í þessari þróun öðluðust konur stöðugt aukið frelsi, pólitískt, menntunarlega, fjárhags- og kynferðislega. Í sýningarstjórn Hrafnhildar Schram er áherslan lögð á þá og nú- sýningu, það er að segja að sýna verk frá áttunda áratugnum en einkum verk sem þær hafa unnið að á síðustu árum og undirstrika þannig virkni kvennanna sem enn reka eigin vinnustofur. NÚTÍMAKONUR Í LISTASAFNI ÁRNESINGA Hafa allar átt frækinn feril Listakonurnar á samsettri mynd sem birtist hér í Morgunblaðinu 11. maí vorið 1975, fyrir tæpum 39 árum, þegar rætt var við þær allar saman. Listkonurnar í dag: Björg Þorsteinsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og Þor- björg Höskuldsdóttir. Þær sýna bæði ný og eldri verk. SÝNING MEÐ VERKUM BJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR, RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR OG ÞORBJARGAR HÖSK- ULDSDÓTTUR VERÐUR OPNUÐ Í HVERAGERÐI Í DAG. Menning N ú er ég á leiðinni aftur til Ís- lands. Við skemmtum okkur afskaplega vel síðast og þegar ég var spurður að því hvort ég vildi leggja leið mína öðru sinni til landsins, þá gat ég ekki annað en tek- ið hugmyndinni fagnandi,“ segir ástralski gít- arleikarinn Tommy Emmanuel sem kemur fram í Háskólabíói í kvöld, laugardagskvöld. Hann lék fyrir fullu húsi í Háskólabíói fyrir tveimur árum og komust færri að en vildu. Margir sem voru á tónleikunum höfðu á orði að annan eins gítarleik hefðu þeir ekki upp- lifað. Plötur með leik hans seljast afar vel og þá er hann með vinsælustu gítarhetjum sem sjá má á vefnum YouTube; milljónir horfa á hann taka gítarinn til kostanna. Íslenska gítarhetjan Björn Thoroddsen mun hefja leikinn hér í kvöld, eins og síðast, áður en hann kallar Emmanuel á svið. Emmanuel var að ljúka við tveggja mánaða tónleikaferð um Bandaríkin og lék fyrir fullu húsi öll kvöld. Blaðamaður náði í hann á Flór- ída og hann bjóst við að lenda í annarskonar veðri hér. „Kvöldið þegar ég lék á Íslandi var bandvit- laust veður en engu að síður var húsfyllir og gestir virtust skemmta sér vel,“ segir hann. „Björn lék afar vel og ég held að kvöldið hafi verið mjög vel lukkað. Það er mikilvægt fyrir mig að fólk fari ánægt af tónleikum og minnist þeirra með þakklæti.“ Emmanuel er á tónleikaferðalagi stóran hluta ársins. „Það er það sem ég geri. Líf mitt hefur lengi snúist um það. Síðustu tólf ár hef ég verið búsettur í Bandaríkjunum, í Tennessee, en hef haldið ástralskra ríkisborgararéttinum. Mér finnst gaman að ferðast um heiminn. Ég er hálfgerður heimsborgari,“ segir hann. Þegar Emmanuel er spurður að því hvort viðbrögð áheyrenda séu honum mikilvæg, þá stendur ekki á svarinu: „Viðbrögðin skipta mig öllu máli,“ segir hann ákafur. „Þess vegna er ég á sviðinu. Það er hlutverk mitt að skemmta fólki og bjóða því í ferðalag, á brott frá öllu amstri og angri. Það er mikilvæg vinna sem lætur fólki líða vel.“ Þegar fylgst er með honum leika er aug- ljóst að hann nýtur þess að vera með hljóð- færið í fanginu, kitla það, ögra og töfra úr því hljóma og tónarunur sem koma jafnvel hörð- ustu unnendum kassagítarsins á óvart. „Já, það er stórkostlega gaman að leika á gítarinn! Ég nýt sérstaklega þeirra tónleika þar sem ég er einn með áhorfendunum. Það er svo mikil nálægð í þeirri upplifun.“ Set mér engar reglur Þegar haft er á orði að Emmanuel sé róm- aður virtúós á hljóðfærið, þá grípur hann fram í og biður um að farið sé gætilega, hann noti ekki þetta orð. En hvers vegna? „Ég er alltaf að berjast áfram og leita að einhverju nýju. Alltaf. Ég er alltaf að læra. Ég nýt þess bæði að læra af öðrum hljóðfæra- leikurum og af nýrri tónlist sem ég uppgötva. Það er aldrei að vita hvað það getur gert manni gott að nálgast tónlist með opnum huga.“ Sumir gagnrýnendur segja Emmanuel geta leikið hvað sem er á gítarinn en hann segir að vitaskuld sé það ekki rétt. „Nei, nei. Mörkin á því hvað hægt er að gera ráðast líklega af því í hvaða stíl maður leikur, það er hægt að fara margar leiðir. Ég dái flamengó-tónlist en get ekki leikið hana svo vel sé. Ég er líka unnandi klassískrar tónlistar en er enginn sérfræðingur á því sviði. Ég leik eins og ég leik, ég sem mín eigin lög og leik einnig lög annarra sem ég kann vel að meta.“ En hann er afskaplega hugmyndaríkur hljóðfæraleikari og viðurkennir að það sé nokkuð sem hann gerir sér far um að vera. „Þannig hef ég verið síðan ég byrjaði að leika á gítar. Ég set mér engar reglur. Ég tel það vera mikil mistök þegar börn vilja læra á gítar og foreldrarnir neyða þau til að læra klassíska tónlist fyrst. Þannig EIGI að læra á gítar. Ég hafna því alfarið. Það er hægt að læra á gítar með því að leika hvaða tónlist sem er og það á ekki að neyða börn til að læra eitthvað sem þau hafa ekki áhuga á. Kannski vilja þau frekar leika tónlist eftir Rolling Sto- nes – hvers vegna ekki að spyrja þau? Vissulega er klassíska nálgunin frábær til að kynnast hljóðfærinu vel, og hún er erfið en afar áhrifamikil. Sjálfur byrjaði ég á að leika tónlist eftir The Shadows og aðra slíka. Ég var í hljómsveit, lék á ryþmagítar, en svo kynntist ég leik manna eins og Chet Atkins sem beittu annarri tækni. Mér fannst það áskorun að læra að leika eins og þeir og það hef ég gert allar götur síðan. Hef lagt áherslu á fingrasetningu og plokk og hef samið mína eigin tónlist og útsett.“ Emmanuel bætir við að leikstíl sinn byggist í raun á píanóleik. „Ég held að það sé ein ástæðan fyrir því hvað það virkar vel fyrir mig að koma fram einn. Ég þarf ekki að hafa aðra tónlistarmenn til að styðja við það sem ég þarf að segja, ég get séð um þetta allt saman sjálfur. Það er góð áskorun að þurfa að gera allt saman einn – og það er líka gríðarlega skemmtilegt.“ Emmanuel hefur verið sagður einstakur sendiherra kassagítarsins og segist gleðjast við að heyra það, enda sé kassagítarinn „sval- asta hljóðfæri sem til er! Það má taka hann fram hvar sem er og leika á hann á svo fjöl- breytilegan hátt, þetta er viðráðanlegt hljóð- færi á allan átt. Auðvitað tekur langan tíma að læra vel, og endalausar æfingar og fórnir, en það á við um allt sem maður reynir að ná góðum tökum á í lífinu,“ segir hann. ÁSTRALSKI GÍTARLEIKARINN TOMMY EMMANUEL KEMUR FRAM Í HÁSKÓLABÍÓI „Kassagítarinn er svalasta hljóðfæri sem til er“ „ÞAÐ ER STÓRKOSTLEGA GAMAN AÐ LEIKA Á GÍTARINN! ÉG NÝT SÉRSTAKLEGA ÞEIRRA TÓNLEIKA ÞAR SEM ÉG ER EINN MEÐ ÁHORFENDUNUM. ÞAÐ ER SVO MIKIL NÁLÆGÐ Í ÞEIRRI UPPLIFUN,“ SEGIR GÍTARHETJAN EMMANUEL. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.