Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 9. MARS 2014
Upplifðu 4G með
iPhone 5c
Verð 5.527 kr. á mánuði*
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
* Samkvæmt 18 mánaða raðgreiðslusamningi.
Staðgreiðsluverð 89.990 kr.
Flottur fyrir
fermingarbarnið
Lipur og lit íkur 4G sími
Verð 5.590 kr. á mánuði*
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
„Ádan Humar kígja í tölvuna! tá Humar vaddla trúa augunum!
Humar næsdum sabbna þrírnúll núllnúllnúll krónur módi kraba!!“
segir facebookstjarnan Humar Linduson Eldjárn, sem er sköp-
unarverk grínistans Ara Eldjárn og konu hans Lindu Guðrúnar
Karlsdóttur, en hann er einn af þeim fjölmörgu sem leggja Mottu-
mars lið þetta árið.
„Það hefur lengi staðið til að hann myndi vera með. Hann á marga
vini á Facebook og okkur fannst gaman að láta á það reyna hvort
hann gæti skilað einhverjum krónum til Krabbameinsfélagsins,“
segir Ari sem sér um að slá inn setningar fyrir Humar á samskipta-
miðilinn. Setningar sem tekið er eftir fyrir krúttlegt viðhorf en aðal-
lega stafsetningu. „Vinirnir eru þarna fyrir og hann á sinn vinahóp á
Facebook. Ef það er hægt að virkja þá til að styrkja svona gott mál-
efni þá er það frábært.“
Ari Eldjárn og kona hans Linda Guðrún Karlsdóttir hafa búið til facebookstjörnuna Humar Linduson Eldjárn.
Morgunblaðið/Eggert
HUMAR LINDUSON ELDJÁRN
Humar safnar
í mottumars
„Humar med ivirvarasgegg! Humar sabbna
peníng módi krabba í köddlum,“ stendur við
kynningu Humars á mottumars.is.
Hinn bráðum fimmtugi bóndi í
Henan-héraði í Kína, Guo að nafni,
gerði sér lítið fyrir og bjó til bíl
fyrir barnabarn sitt. Ekki hvaða
bíl sem er, heldur valdi hann Lam-
borghini en þeir eru meðal öfl-
ugustu og dýrustu sportbíla
heimsins.
Það tók Guo átta mánuði að
smíða bílinn og eyddi hann rúmum
92 þúsundum króna í verkið en
bíllinn er rúmur metri á breidd og
tveir metrar að lengd og vegur 250
kíló.
Bíllinn er knúinn fimm batt-
eríum sem geta komið honum
slétta 60 kílómetra á fullri hleðslu.
Ekki hefur Guo enn gefið upp há-
markshraða en segir að hann sé
ekki eins aflmikill og alvöru Lam-
borghini.
Herra Guo ákvað að skutla
barnabarni sínu í skólann í vikunni
á heimasmíðaða bílnum en var
fljótlega stöðvaður af lögreglunni
enda uppfyllir bíllinn ekki neinar
öryggiskröfur. Var hann beðinn
um að klára bílferðina, gera barna-
barn sitt stolt og leyfa vinunum að
sjá farartækið. Jafnframt var hann
látinn lofa að fara aldrei með bílinn
aftur út í umferðina. Herra Guo
sagðist ætla að virða það loforð.
FURÐUR VERALDAR
Bjó til
Lamborghini
Herra Guo og barnabarn hans fyrir framan bílinn. Guo notaði aðallega
brotajárn og gömul reiðhjól til að smíða bílinn.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Össur Skarphéðinsson
alþingismaður
Abraham Lincoln
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Megas
tónskáld.