Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.4. 2014 „Eftir kaldsama nótt vöknuðum við undir morgun við það að tjaldið var farið að leka, og þau sem sváfu yst voru orðin blaut í gegnum svefnpok- ana, en þessi tjöld voru ekki betri en það að þegar eitthvað lagðist utan í þau, þá byrjuðu þau að leka … Þeg- ar betur var að gáð og aðstæður skoðaðar kom í ljós að mikil rigning var úti og töluverður vindur. Ekki glæsilegt um að litast, og enginn af okkur með útbúnað í slíkt veður, en ekki þýddi að örvænta, tekinn var fram handpumpaður steinolíu- prímus, mikill kostagripur, og fljót- lega eftir að kveikt hafði verið á hon- um var orðið notalegt í tjaldinu. Í þessari tjaldútilegu var ekki tjaldað til margra nátta, enda átti hún að- eins að standa yfir í rúman sólar- hring. Í farteskinu voru, fyrir utan tjaldið og prímusinn, svefnpokar, en fóðrið í þeim var einhvers konar ull- arkemba, en þannig pokar voru al- gengastir á þeim tíma. Eitthvað matarkyns var með, svo sem ein stór kjötdós frá Sláturfélagi Suðurlands, brauð og kexkökur. Af drykkjar- föngum var helst verið með gosteg- undirnar Sítron og Póló.“ Rafn Sigurðsson, f. 1927. Kuldi og blaut föt „Fátt man ég af hátíðarhöldunum, nema það helsta, ræður, kórsöng o.fl., en rigningin og kuldinn yf- irskyggði allt hjá mér, beið bara að þessu lyki svo hægt væri að halda heimleiðis. […] Þegar fór að líða á daginn fóru nú fínheitin að fara af okkur, allt varð rennandi blautt, enginn var hlífðarfatnaður með, hefði ekki veitt af regnkápum og vaðstígvélum, klæðnaður hefði verið annar í dag. Mínar minningar frá þessum degi tengjast aðallega kulda og blautum fötum.“ Hallfríður Georgsdóttir, f. 1931. „Víst var þetta merkilegur og minnisstæður dagur. Og svo sann- arlega fylgdi athöfninni sérstök til- finning hjá mér, telpu á tólfta ári. Eins og hjá hinum, vænti ég. Þrátt fyrir rigninguna, sem ég man nú reyndar ekki eftir að hafi angrað mig neitt sérstaklega, fann ég ein- hverja sérstaka tilfinningu með fólk- inu mínu og með landinu mínu, og er sú tilfinning enn mjög sterk hjá mér.“ Sigríður Valdimarsdóttir, f. 1932. Frá stofnun lýðveldisins 1944. Tjöldin byrj- uðu að leka S tofnun lýðveldisins á Þingvöllum 17. júní 1944 er einn stærsti og gleðilegasti viðburður í sögu þessarar þjóðar. Um það verður varla deilt. Sjötíu ár verða í sumar liðin frá lýðveld- ishátíðinni og eðli málsins sam- kvæmt fer fólki sem man hana fækkandi. Undanfarin tvö og hálft ár hefur dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur unnið að því að safna saman minn- ingabrotum þessa fólks. Síðasta árið í samvinnu við Örnu Björk Stefánsdóttur sagnfræðing. Halda þau nú utan um verkefnið í sam- einingu. Efnisöflun er formlega lokið og eru þátttakendur í verk- efninu orðnir áttatíu talsins. Forsaga málsins er sú að 17. júní 2011 var öllum sem verið höfðu á lýðveldishátíðinni 1944 boðið á Þingvöll ásamt fjölskyldum sínum og létu margir sjá sig. Þór Jakobsson flutti þar ávarp og hvatti alla sem myndu eftir þess- um merkisdegi til að færa minn- ingar sínar í letur og senda sér. „Heimtur urðu fljótt mjög góðar. Fólk er furðuvel tölvuvætt þrátt fyrir að vera komið á þennan ald- ur,“ segir Þór brosandi en eins og gefur að skilja eru allir þeir sem muna hátíðina að einhverju gagni nú komnir yfir sjötugt. Persónuleg upplifun „Tilgangurinn með þessu verkefni er ekki að gefa heildarmynd af hátíðinni, heldur einblínum við á persónulega upplifun fólks. Minn- ingin er upprifjun barns eða ung- mennis á einum mesta degi í sögu þjóðarinnar,“ segir Þór. Hann setti stefnuna fljótlega á fimmtíu manns en endaði í áttatíu. „Viðbrögð fóru langt fram úr væntingum,“ segir Þór. „Nú eru allir textar komnir í hús, auk þess sem við erum komin með gamlar myndir af öllu fólkinu. Þetta er þverskurðurinn af þjóðfélaginu.“ Elsti þátttakandinn í verkefninu er Sigríður Jónsdóttir, fædd 1908. Hún lést raunar á síðasta ári en búið var að ganga frá framlagi hennar í fullu samráði við hana. Næstelst er Sigfríður Nieljohníus- dóttir, sem verður 94 ára í vor, og yngst eru Egill Rúnar Friðleifsson og Margrét Elísabet Jónsdóttir, fædd 1940. Þór segir minni Sig- fríðar óbrigðult og svo skemmti- lega vill til að hún man alveg eins vel eftir Alþingishátíðinni 1930. Lét sig ekki vanta þar heldur. Minningabrotin hverfast ekki eingöngu um lýðveldishátíðina en Þór bað fólk að bæta einhverju við um lífið og tilveruna á þessum ár- um. Sumir voru alls ekki á Þing- völlum þennan dag en sátu í stað- inn límdir við útvarpið og upplifðu viðburðinn með þeim hætti eða sóttu hátíðir af sama tilefni úti á landi. Langar að gefa efnið út Tilgangurinn með verkefninu hefur frá upphafi verið að gefa út bók. Þrátt fyrir að hafa leitað hófanna víða, meðal annars hjá viðskipta- bönkunum, hefur Þór hvorki tekist að afla styrkja né finna útgefanda. „Það eru tveir hópar í þjóðfélag- inu sem ég kann ekki á, stjórnmálamenn og peningamenn. Núna er ég að gera hosur mínar grænar fyrir Háskóla Íslands og er býsna vongóður um að hann leggist á árarnar með okkur,“ seg- ir Þór sem kveðst þurfa eina millj- ón króna til að búa efnið undir út- gáfu. Tveir aðilar hafa styrkt verk- efnið, Eimskipafélag Íslands og danskur efnamaður, Gottfred Westergård, en þeir styrkir snúa ekki að útgáfumálum. Westergård gefur til minningar um íslenska konu sína, Elínu Brynjólfsdóttur, sem var á lýðveldishátíðinni. Tímafrekt en skemmtilegt Þrátt fyrir þetta mótlæti er Þór hvergi af baki dottinn og gerir sér ennþá von um að bókin komi út og það fyrr en síðar. Skemmtileg- ast yrði auðvitað að hún kæmi út 17. júní næstkomandi, á sjötugs- afmæli hátíðarinnar. „Þetta hefur verið tímafrekt en afar skemmti- legt verkefni. Það er ómögulegt að þetta efni endi bara á handrita- deildinni,“ segir hann og kímir. Að sögn Þórs yrði það ekki bara skaði fyrir „lýðveldisbörnin“ heldur einnig yngri kynslóðir. Þessi minningabrot eigi ekki síður erindi við þær. „Við myndum jafn- vel tileinka verkið æsku landsins.“ Við þetta má bæta að Eggert Gunnarsson kvikmyndagerð- armaður vinnur nú að gerð sjón- varpsmyndar um „lýðveldisbörnin“, þar sem rætt verður við sautján manns úr hópnum, og er Þór von- góður um að hún verði frumsýnd í Ríkissjónvarpinu 17. júní nk. Morgunblaðið/Þórður Minnast eins mesta gleði- dags í sögu þjóðarinnar „LÝÐVELDISBÖRN, MINNINGAR NÚLIFANDI ÍSLENDINGA SEM VORU Á ÞINGVÖLLUM 17. JÚNÍ 1944“ ER YFIRSKRIFT VERK- EFNIS SEM DR. ÞÓR JAKOBSSON VEÐURFRÆÐINGUR OG ARNA BJÖRK STEFÁNSDÓTTIR SAGNFRÆÐINGUR VINNA NÚ AÐ. ÞÁTTTAKENDUR ERU ORÐNIR ÁTTATÍU TALSINS OG DREYMIR ÞÓR OG ÖRNU BJÖRK UM AÐ GEFA EFNIÐ ÚT Á BÓK. * Af þeim ríflega 48.100 manns sem greiddu atkvæðivoru 99,5% samþykk sambandsslitum við Dani og98,3% stofnun lýðveldisins.ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Þór Jakobsson var sjálfur á Þing- völlum sumarið 1944 ásamt foreldrum sínum, Þóru Ein- arsdóttur og séra Jakobi Jóns- syni, og systkinunum fjórum, Guðrúnu Sigríði, Svövu, Jökli og Jóni Einari. „Foreldrum var almennt annt um að taka börn sín með á há- tíðina og foreldrar mínir voru engin undantekning. Þetta var mjög eftirminnilegt enda ekki á hverjum degi sem öll fjölskyldan fór saman í ferðalag,“ segir Þór. Hann viðurkennir að hann muni ekki svo mikið eftir deginum sjálfur. „Það er einkum þrennt sem ég man: Í fyrsta lagi að í bílaröðinni fyrir framan okkur á leiðinni á Þingvöll var bíll með númerið R-1944. Það þótti okkur systkinunum stórmerkilegt. Í annan stað er það mann- mergðin og í þriðja lagi þögnin sem brast á eftir yfirlýsinguna um að lýðveldið hefði verið stofnað. Margir tilgreina rigninguna þennan dag en ég man ekki sérstaklega eftir henni.“ LENTI Á EFTIR BÍL MEÐ NÚMERIÐ R-1944 Fölskylda Þórs lýðveldisárið 1944. Umsjónarmenn verkefnisins, Þór Jakobsson veðurfræð- ingur og Arna Björk Stef- ánsdóttir sagnfræðingur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.